Morgunblaðið - 03.03.1987, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1987
45
smíðameistari, kvæntur Halldóru
Maguúsdóttur, kennara, búsett á
Isafirði; Sigurður, rennismiður,
kvæntur Lilju Kristjánsdóttur, bú-
sett á Isafirði, og Messíana, gift
Asgeiri Sigurðssyni, járnsmið, bú-
sett á ísafirði.
Heimili þeirra Albertu og Mars-
ellíusar var eitt af stærstu og
fjölmennustu heimilum á Isafirði
um áratuga skeið. Þangað kom
óhemju Qöldi gesta, bæði innan-
bæjar og utan, enda var heimilið
annálað fyrir gestrisni og skörungs-
skap, ekki eingöngu á Isafirði og
næsta nágrenni, heldur um allt
land. Húsbóndinn var einn mesti
framkvæmdamaður kaupstaðarins
áratugum saman og hann átti því
láni að fagna að eiga konu sem bar
uppi heimilið af rausn og höfðings-
skap og það gerði Albeita svo
sannarlega.
Ég var svo lánsamur að vera
samstarfsmaður Marsellíusar, m.a.
í bæjarstjórn Isafjarðar um langt.
árabil og tókst með okkur mjög góð
vinátta sem aldrei bar skugga á.
Það fór ekki hjá því að töluverð-
ur samgangur yrði milli heimila
okkar og var ég því oft gestur á
heimili þeirra hjóna. Alberta sat oft
inni þegar við spjölluðum saman,
lagði stundum lítið til mála, stund-
um meira; hún hafði sínar ákveðnu
skoðanir, hún hélt þeim fram þegar
henni þótti við þurfa, en að jafnaði
var hún hlédræg.
Alberta var mikil ágætismann-
eskja. Hún fór í gegnum harðan
skóla lífsins og skiptust á skin og
skúrir í ævi þeirra hjóna, en þegar
litið er á lífshlaup þeirra var ham-
ingjan öllu yfirsterkari og þau báru
gagnkvæmt traust og virðingu
hvort fyrir öðru.
Alberta var skapmanneskja og
átti hún til að taka stundum tölu-
vert hart á ef henni þótti miður
fara og lét þá hvergi hlut sinn. En
hún var mannkostakona sem var
góðhjörtuð og viðkvæm þegar þeir
áttu í hlut sem lífið hafði leikið
grátt og máttu sín minna og var
hún þá fyrst allra til að koma til
hjálpar.
Hún var óvenju sterk kona, sem
tók á sig mikið starf, langt umfram
heimili sitt, því hún var einnig holl-
ur vinur og félagi mannsins síns á
athafnasamri ævi hans. Hún studdi
hann á erfiðum stundum, sem oft
var, en sennilega aldrei erfiðari en
í kreppunni miklu árið 1931, þegar
Marsellíus missti aleigu sína á opin-
beru uppboði, smíðaverkfæri sín og
innbú. Þá var mikils virði að eiga
kjarkmikla konu sér við hlið. En
dugnað.ur og trú á framtíðina og
byggðarlagið sitt kom fljótlega til
hjálpar og Marsellíus stofnaði fyrir-
tæki sem dafnaði undir stjórn hans
og rak það í hartnær fimmtíu ár.
Alberta var drjúgur þátttakandi í
því starfi.
Alberta ól allan sinn aldur á
Isafirði og var því barn ísafjarðar
og það hvarflaði aldrei að henni að
flytja brott eins og við mörg önnur
höfum gert. Ég á þá ósk heitasta
að sem flestir hafi sömu trú og
dugnað sem þau hjónin og þá mun
Isafjörður halda áfram að vaxa og
vestfirska byggðin að dafna.
Fyrir rúmum tíu árum lést Mars-
ellíus og var það mikið áfall fyrir
Albertu, en eins og að líkum lætur
tók hún því með sama æðruleysi
og öllu öðru. Nú hefur okkar góða
vinkona, Alberta, fengið hvíld eftir
langt og heillaríkt starf.
Að leiðarlokum viljum við hjónin
þakka Albertu Albertsdóttur fyrir
vináttu hennar og tryggð og við
munum ávallt minnast þeirra hjón-
anna með mikilli hlýju og þakklæti.
Við flytjum öllu skylduliði þeirra
innilegar samúðarkveðjur.
Matthías Bjarnason
Albertd Albertsdóttir, ísafirði, er
látin 88 ára að aldri. Með henni er
gengin mikilhæf kona, eftirminni-
leg öllum sem þekktu.
Ég átti því láni að fagna að
þekkja Albertu lengi. Raunar er
mér í barnsminni að hafa þekkt til
hennar löngu áður en ég heyrði
hana eða sá. Kom það til af því,
að hún var konan, sem Maraelíus
Bemharðsson var kvæntur. En
hans fólki var ég nákominn og
fylgdist því fljótt með ýmsu sem
varðaði einkalíf hans. Marzelíus var
þá raunar orðinn sá athafnamaður
sem orð fór af. Hann var dæmigerð-
ur maður fyrir þá athafnamenn,
sem komu undir sig fótunum fyrir
eigin atgervi. Marzelíus óx við hvert
viðfangsefni sem hann tók sér fyrir
hendur, svo að ævintýri var líkast.
Hann var einn mesti athafnamaður
sem ísafjörður hefir átt á þessari
öld, og er þá eigi lítið sagt.
Mér var eftirvænting í huga að
hitta eiginkonu þessa manns og
kynnast. Ég gerði mér háar hug-
myndir og ég varð ekki fyrir
vonbrigðum. Við fyrstu kynni kom
fram hennar sterki persónuleiki.
Það fylgdi henni óvenjulegur
traustleiki. Hún var ákaflega grein-
argóð um menn og málefni. Ahugi
hennar á þjóðmálum var lifandi og
sérstaka umhyggju og metnað hafði
hún fyrir velferð síns bæjar. En
umfram allt var hún af lífi og sál
samheiji eiginmannsins í starfi
hans og stríði. Og það var ekki allt-
af dans á rósum hjá Marzelíusi. En
það mun sannmæli, að aldrei hafi
Alberta reynst eiginmanninum
styrkari stoð en þegar mikinn vanda
bar að höndum og verst gegndi.
Hlutur Albertu í því sem Marzelíus
afrekaði er ómældur. Þegar þau
hjón eru nú bæði gengin iýkur
merkum þætti í sögu ísafjarðar.
Alberta bjó fjölskyldu sinni gott
og fagurt heimili. Höfðingsbragur
og alúð mætti gestum og gang-
andi. Ég var einn þeirra sem þessa
naut í ríkum mæli. Og enn var það
eins, þegar komið var til Albertu
síðustu árin og hún var orðin ein
og sat við útsaum og handavinnu
sína.
En þá hafði Alberta skilað miklu
dagsverki. Unggiftist hún Kristjáni
Stefánssvni, stýrimanni, sem
drukknaði árið 1924. Þau áttu þijú
börn, sem Marzelíus gekk í föður-
stað þegar hún giftist honum 1927.
Þau Alberta og Marzelíus eignuðust
svo tíu börn en tvö þeirra dóu í
æsku. Miklu barnaláni átti Alberta
að fagna og hún var hamingjunnar
kona, sem kynntist þó lífinu bæði
í blíðu og stríðu.
Með Albertu er gengin merkis-
kona, sem margir minnast með
söknuði.
Þorv. Garðar Kristjánsson
~z\ Þriðji kosturinn:
akirrn viðvörunarkerfi
- Varðstaða allan sólarhringinn
EFF EFF vidvörunarkerfid býður
upp á fjölmarga möguleika, og getur
staðið vörð um nánast hvað sem er.
Kerfið byggist upp á stjórnstöð,
skynjurum og símboða sem hringir
skilaboð hvert sem þú óskar
milliliðalaust eða tengdur beint t.d. til
lögreglu, slökkviliðs eða vaktfyrir-
tækja. Þetta er þó bara einn
möguleikinn af fjölmörgum.
Kynntu þér kostina - og verðið.
A
TÆKNI"
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík. S. 672122.
á réttri hillu í lífinu?
Leitaðu svars hjá ...
RÁÐGJÖF OG RÁÐNINGAR
Náms- og starfsráðgjöf Ábendis sf.
getur aðstoðað þig við að finna það
nám og/eða starf sem hentar þér
og eykur því vellíðan þína.
Unnið er út frá tölfræðilegum forsendum.
Grundvöllurinn að starfsaðferðum Ábendis sf.
byggist á áratuga rannsóknum og reynslu
í bandarískum skólum og fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar og tímapantanir
í síma 689099 kl. 9-15 virka daga.
ÁBENDl SF.
Engjateig 7 (gegnt Hótel Esju)
Ágústa Cunnarsdóttir, M.A. sálfræði
Nanna Christiansen, ráðgjafj
Þórunn H. Felixdóttir, ráðgjafi
LÍF A) ÞOL
Eróbikk leikfimi
Ný sex vikna nám-
skeið hefjast 5. mars
Eróbikk I - II
byrjenda- og framhaldsflokkur
Kvennaleikfimi — karlaleikfimi —
fimleikar barna
* Innritun í síma 1S888
þol í Orkulind
Brautarholti 22,
sími 15888.