Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
54. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
J átningarnar taldar
munu styrkja Reagan
Washington, AP. Reuter.
Ronald Reagan, Banda-
ríkjaforseti, með
bendingar til blaðaljós-
myndara rétt áður en
hann ávarpaði þjóðina
í beinni sjónvarpsræðu
þar sem hann svaraði
gagnrýni, sem sett var
fram í Tower-skýrsl-
unni.
Stjórnmálaskýrendur voru á
einu máli um að Ronald Reagan
hefði alla möguleika á að endur-
heimta fyrra traust eftir sjón-
varpsræðu í fyrrakvöld, þar sem
hann viðurkenndi að vopnasölu-
málið hefði verið mistök. Það
væri þó undir þvi komið hvernig
hann héldi á málum í framliald-
inu. Margir stjórnmálaskýrendur
töldu að ekki væru öll kurl kom-
in til grafar i vopnasölumálinu
og sögðu að mörgum spurning-
um væri enn ósvarað. í ræðunni
boðaði Reagan frekari manna-
breytingar innan stjórnkerfisins
á næstu vikum og mánuðum.
Þingmenn fögnuðu ræðu Reag-
ans en demókratar sögðu að ein
ræða dygði forsetanum ekki, hann
Reuter
Tyrknesk kona á leið frá bænastund í Bláu moskunni í gær. Allt
athafnalíf lá niðri í borginni í gær vegna fannkomu.
Klofdjúpur snjór
þekur Istanbúl
Istanbul, AP. Reuter.
GÍFURLEG ofankoma og éljagangur var í vesturhluta Tyrklands
annan daginn í röð og var í gær 75 sentimetra jafnfallinn snjór
í Istanbúl. Allt athafnalíf í vesturhluta landsins lamaðist af völd-
um veðursins.
Flest fyrirtæki og verzlanir
voru lokaðar í Istanbúl í gær,
einnig skólar, enda nær ófært um
götur borgarinnar vegna fann-
fergis og snjóskafla. Fimm manns
biðu bana og 25 slösuðust í um-
ferðaróhöppum, sem rakin eru til
veðursins.
Samgöngur lágu að mestu niðri
og var Ataturk-flugvöllurinn í Ist-
anbúl lokaður annan daginn í röð
vegna veðurs. Hundruð þorpa og
margir smábæir voru einangraðir
þar sem þjóðvegir voru flestir lok-
aðir. Önnur eins snjókoma hefur
ekki orðið í Tyrklandi í 60 ár.
Kalsaveðrið teygði sig einnig
til Grikklands og var höfuðborgin
Aþena snævi þakin í gær. Tæp-
lega 200 fjallaþorp einangruðust
og fjórir menn biðu bana af völd-
um veðursins. Gífurlegar truflanir
urðu á samgöngum um land allt.
yrði að efna það loforð að láta
meira til sín taka í stjómun lands-
ins og sýna fram á hver væri
æðstur í Hvíta húsinu.
Robert Dole, leiðtogi repúblikana
í öldungadeildinni, sagði að forset-
inn hefði sagt þjóðinni það sem hún
hefði viljað heyra, að mistök hefðu
verið gerð og að hann bæri ábyrgð
á þeim.
í ræðunni sagðist Reagan viður-
kenna að reynt hefði verið að skipta
á vopnum fyrir bandaríska gísla í
Líbanon. Sagðist hann vera bæði
reiður og vonsvikinn vegna þeirra
aðgerða sem gripið hefði verið til
án vitundar hans í því sambandi.
Fjölmiðlar í Vestur-Evrópu vom
á einu máli um að Reagan hefði í
sjónvarpsræðu sinni í raun játað
að honum hefði farist vopnasölu-
málið klaufalega úr hendi. Flestir
þeirra lýstu þó samúð með forsetan-
um. Embættismenn og stjómarer-
indrekar sögðu í einkasamtölum að
ræðan hefði verið „kröftug" en tals-
menn ríkisstjóma neituðu að gefa
umsögn sína þar sem um bandarískt
innanríkismál væri að ræða.
Sjá ennfremur fréttir á bls.
24 og 25.
Reuter
Hugsanlegt samkomulag um meðaidrægar f laugar:
Sovétmenn sagðir
samþykkir eftirliti
Moskvu, Brussel, AP. Reuter.
SOVÉTMENN hafa samþykkt
hugmyndina um gagnkvæmt eftir-
lit til að fylgjast með framkvæmd
hugsanlegs samkomulags stór-
veldanna um að fjarlægja meðal-
drægar kjarnaflaugar frá Evrópu,
að því er New York Times hafði
eftir samningamönnum I Genf I
gær. Blaðið sagði að Sovétmenn
hefðu einnig tekið vel i hugmynd
um að samkomulagið næði einnig
til um 600 skammdrægra kjarna-
flauga.
Bandaríkjamenn lögðu í fyrradag
fram uppkast að samningi stórveld-
anna um fækkun meðaldrægra
flauga í Evrópu og í gær lýsti
Gennady Gerasimov, talsmaður ut-
anríkisráðuneytisins í Moskvu, því
sem „mjög jákvæðu" skrefi. Hann
sagði þar í að finna mörg atriði, sem
leiðtogar stórveldanna hefðu orðið
sammála um á Reykjavíkurfundin-
um. Hann sagði að helzt þyrfti að
ljúka samningagerð innan hálfs árs
til þess að samkomulag hlyti stað-
festingu áður en kjörtímabil Reagans
Bandaríkjaforseta lynni út.
Samningamenn Bandaríkjanna í
Genfarviðræðunum gáfu fulltrúum
NATO skýrslu um viðræðumar í
Bussel í gær. Héldu þeir að afloknum
þriggja stunda fundi til Washington
til fundar við Reagan forseta um
framhaldið. Háttsettir stjómarerind-
rekar í Brussel sögðu að fundurinn
með samningamönnunum hefði verið
„mjög uppörvandi“ og einn þeirra
sagðist ekki hafa setið betri fund.
Fundurinn í Brussel snerist að miklu
leyti um skammdrægar kjamaflaug-
SÆNSKA stjórnin ákvað í gær að
skipa sérstakan rannsóknardóm-
ara til að kanna meinta vopnasölu
Bofors-fyrirtækisins til írans.
Stjómarandstaðan krafðist þess í
gær að óháðir aðilar yrðu fengnir til
að kanna hvað hæft væri í stað-
hæfingum þess efnis að íranskar
hersveitir notuðu sænskar loftvam-
arflaugar í Persaflóastríðinu.
Fullyrt hefur verið að Olof Palme,
fyrrum forsætisráðherra, sem myrt-
ur var fyrir rösku ári, hafi vitað um
vopnasöluna. Vill stjómarandstaðan
að rannsóknin á meintri vopnasölu
fari fram í náinni samvinnu við þá,
sem rannsaka morðið á Palme.
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, hefur krafizt þess af Preb-
ar Sovétmanna og leiðir til að fylgjast
með að samkomulag um meðaldræg-
ar flaugar væri haldið.
Sjá ennfremur „Sovétmenn
segja svar Bandarikjamanna
jákvætt" á bls. 25.
en Möller Hansen, formanni danska
sjómannasambandsins, að hann út-
skýri hvað hann eigi við með þeim
fullyrðingum sínum að Svíar hafi
staðið í vopnaflutningum til írans.
Hansen sagði í samtali við danska
útvarpið að ef hann skýrði frá vitn-
eskju sinni mundi það leiða til
afsagnar ráðherra í sænsku stjóm-
inni. Hann sagði að Olof Palme hefði
átt leynifundi með sendiherra frans
í Stokkhólmi um vopnasöluna.
Hans Holmer, hinn umdeildi lög-
reglustjóri í Stokkhólmi, sagði starfi
sínu lausu í gær. Rannsóknin á morð-
inu á Palme var tekin úr höndum
hans fyrir skömmu, en hann hafði
stjómað henni frá upphafi.
Meint vopnasala til
Irans rannsökuð
Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, frá Reuter og Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgun-
bladsins.