Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Frá sambandsþingi Ungpmennasambands Borgarfjarðar. Morgunbiaðið/Bemhard Sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar: Húsnæðismál og lottó aðalumræðuefnið Kleppjárnsreylqum. SAMBANDSÞING Ungmennasambands Borgarfjarðar var að þessu sinni haldið laugardaginn 28. febrúar i Brautartungu í Lundareykja- dal og var ungmennafélagið Dagrenning gestgjafi ásamt Lunda- reykjadalshreppi. Starfssvæði UMSB er Borgarfjarðar- og Mýrasýsla. Fjöldi félaga er 13 og félagar eru 1.114. Gestir fundar- ins voru Hannes Þ. Sigurðsson varaforseti ÍSÍ, Sveinn Gestsson frá Ungmennasambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga, Guðfinnur Ólafsson frá Sundsambandi íslands, Ingólfur Hjörleifsson ritstjóri Skinnfaxa og Sigurður Þorsteinsson framkvæmdastjóri UMFI. Sambandsstjóri, Sigríður Þor- valdsdóttir, flutti skýrslu stjórnar og drap á það helsta sem fram fór á árinu. Allt starf var með líkum hætti og undanfarin ár. Helst var undan því að kvarta að formanna- fundir eru illa sóttir, þýðir það samt ekki að deyfð sé í félagsstarfinu. Fréttabréf UMSB kom út sjö sinn- um á árinu. Ingimundur Ingimund- arson í Borgamesi er framkvæmda- stjóri UMSB. Húsnæðismál eru alltaf ofarlega á baugi, á síðastliðnu vori tók UMSB á leigu húsnæði undir skrifstofu sambandsins. Um verslunarmannahelgina stóð UMSB að dansleikjum í Logalandi, gengu dansleikirnir vel þó hagnaður væri lítill. Einnig stóð félagið fyrir einum unglingadansleik og sumarbúðum á Varmalandi. íþróttamaður Borgar- Qarðar var valinn 2. janúar 1987 og var það hin kunna íþróttakona íris Grönfeld. í skýrslu fram- kvæmdastjóra kom fram að ekki hefði verkefnaskortur háð starf- seminni heldur á hinn veginn. „í Borgarfj arðarhéraði er mikið af efnilegu íþróttafólki sem þarf að hlúa að. Einnig þarf að efla félags- lega þáttinn. Með því gerum við Ungmennasamband Borgarfjarðar að sterku sambandi en til þess að svo megi verða má engan veikan hlekk fínna í keðjunni," sagði Ingi- mundur Ingimundarson. Iþróttir skipa að sjálfsögðu stærstan þátt í allri starfsemi innan UMSB. Mörg mót voru á vegum félagsins. Árangur í íþróttum er alltaf að verða betri og sést það best með því að lesa skrá yfir Borg- arfjarðarmet í íþróttum, eru þau flest í kringum og eftir 1980. Tvö met eru mjög gömul, það er Borgar- fjarðarmet Kára Sólmundarsonar í þrístökki og langstökki síðan 1951 og 1000 metra boðhlaup sem sveit Reykdæla setti á landsmótinu á Þingvöllum 1957 en sveitina skip- uðu þeir Jón Blöndal, Vigfús Pétursson, Hinrik Guðmundsson og Magnús Jakobsson. Fyrsta íþrótta- mótið á vegum UMSB var haldið á Hvítárbakka 10. ágúst 1913, þar fór fram flokkakeppni í sundi og glímu. Húsnæðismál og Lottó var aðal umræðuefni fundarins. Voru fund- armenn nokkuð einhuga um að UMSB skyldi koma sér upp eigin húsnæði og nota tekjur þær sem Lottó gefur af sér til að greiða það. UMSB hefur verið boðið að kaupa aðstöðu í þjónustumiðstöð á Bjarkarbraut 6 í Borgarnesi sem er verið að byggja, en í þessu húsi munu Samtök sveitarfélaga, Bruna- bótafélag Islands, Fræðsluráð Vesturlands, Fasteignamat ríkisins, Kennslugagnamiðstöðin, tannlækn- ar, Verfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen og Þroskaþjálfun Vestur- lands hafa aðsetur. 22 tillögur voru samþykktar á þinginu. UMSB verður 75 ára á þessu ári og er því tækifæri að gera stórátak í húsnæðismálum. Stjórn UMSB skipa: Sambandsstjóri Sigríður Þor- valdsdóttir Hjarðarholti, Björn Júlíusson Hvanneyri, varasam- bandsstjóri, Gísli Einarsson ritari, Ásbrún 8, Guðjón Viggóson vararit- ari Rauðasandi, Svava Kristjáns- dóttir gjaldkeri, Hvanneyri og Sæunn Oddsdóttir varagjaldkeri, Steinum. — Bernhard Brids Arnór Ragnarsson Reykjanesmót í tvímenningi Dagana 14.—15. marz verður spilað Reykjanesmót í tvímenningi. Eru það Suðumesjafélögin ásamt Hafnfírðingum og Kópavogsbúum sem etja kappi saman. Spilað verð- ur í Þinghóli og hefst keppnin kl. 13 á laugardag. Bridsfélag Hafnarfjarðar Sl. mánudag, 23. febrúar, hófst hinn árlegi barómeter-tvímenning- ur félagsins og er spilað í einum 22 para riðli. Staðan eftir fyrsta kvöldið er þannig: Ólafur Torfason — Bjöm Svavarsson Stig 59 Ú!ul"r ^'s'ason — Sigurður Aðalsteinsson r o OO Einar Sigurðsson — Björgvin Víglundsson 50 Hulda Hjálmarsdóttir — Þórarinn Andrewsson 38 Guðni Þorsteinsson — Halldór Einarsson 28 Guðbrandur Sigurb. — Kristófer Magnússon 27 Nýlega er lokið einmennings- og fírmakeppni hjá félaginu og urðu úrslit þessi: Stig Ólafur Ingimundarson 211 Þorsteinn Þorsteinsson 210 Sverrir Jónsson 206 Í firmakeppninni urðu úrslit eftir- farandi: Stig Börkur hf. 115 Rafmagnsveitur ríkisins 113 Prentsmiðja Hafnarfjarðar 113 Vélsmiðja Hafnarfjarðar 111 Steinmark 108 Hagvirki hf. 106 Blikktækni hf. 104 Asiaco hf. 104 íslandsmótið í sveitakeppni 1987 Dregið hefur verið í riðla í ís- landsmótinu í sveitakeppni, undan- rásum er verða spilaðar á Loftleið- uni 3-—5- aPríl nk. Eru þeir þannig skipaðir: A-riðill: Páll Valdimarsson, Reykjavík Samvinnuferðir/Landsýn íslm.m. Ásgrímur Sigurbjömsson, Siglufirði Sveit Norðurlands vestra Gunnar Berg, Akureyri Sveit Pólaris, Reykjavík B-riðill: Sigurður Steingrímsson, Reykjavík Sigfús Öm Ámason, Reykjavík Ragnar Jónsson, Kópavogi Sigfús Þórðarson, Selfossi Sveit Atlantik, Reykjavík Jón Hjaltason, Reykjavík C-riðill: S.S. Byggir, Akureyri Ólafur Lárusson, Reykjavík Guðni Ásmundsson, ísafírði Sigtryggur Sigurðsson, Reykjavík Jón Hauksson, Vestmannaeyjum Jón Skeggi Ragnarsson, Hörnafirði. D-riðilI: Aðalsteinn Jörgensen, Reykjavík Pálmi Kristmannsson, Egilsstöðum Ingi Steinar Gunnlaugss., Akranesi Sveit Delta, Reykjavík Sigurður Sigurjónsson, Reykjavík Sigmundur Stefánsson, Reykjavík Opna stórmótið á Akureyri Skráning í opna stórmótið, sem spilað verður á Akureyri helgina 21 —22 mars nk., stendur yfir. Skráð er hjá stjóminni á Akureyn og hjá Bridssambandi íslands. Stórglæsileg verðlaun em í boði; kr. 40.000 fyrir 1. sætið, kr. 30.000 fyrir 2. sætið, kr. 20.000 fyrir 3. sætið og kr. 10.000 fyrir 4. sætið. Að auki er spilað um silfurstig. Tímarit Máls og menningar helgað fjölmiðlum FYRSTA hefti Tímarits máls og menningar 1987 er komið út. Aðalefni þess eru fjórar greinar um fjölmiðla, einkum útvarp og sjónvarp, nú þegar ríkisreknir ljósvakamiðlar standa á tímamót- um, ekki aðeins hér á landi heldur i grannlöndum okkar lika. Birt er nær óbreytt erindi Stefáns Jóns Hafsteins sem hann flutti á rás 1 nýlega og nefnir Kreppu í ríkisfjölmiðlun. Stefán Jón þýðir líka grein eftir breskan kennara sinn og ljölmiðlaspeking, Nicholas Garnham. Einar Örn Benediktsson fjölmiðlafræðingur, kunnari sem Kuklari og Sykurmoli, rekur afdrif menningarstefnu ríkisútvarpsins frá upphafi, og Þorbjöm Broddason skrifar um Samvitundina og ljós- vakann, úttekt á sambýli þjóðar og ríkisútvarps sem hefur verið frið- sælt og hamingjusamt til þessa. Halldór Laxness er 85 ára í vor. Af því tilefni birtir tímaritið í tveim hlutum grein eftir Peter Hallberg sem heitir: Listin að ljúka sögu. Hallberg tekur fyrir allar skáldsög- ur Halldórs og skoðar þær í ljósi þess hvernig þær enda, lætur enda- lokin bregða nýrri birtu á alla söguna. Fyrri hluti greinarinnar er í þessu hefti, seinni hlutinn verður í maí-heftinu. Ljóð í tímaritinu eru eftir Sigurð Pálsson, Gyrði Elíasson, Einar Má Guðmundsson, Jacques Prévert (í þýðingu Sigurðar Pálssonar), Jorge Luis Borges (í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar), Nínu Björk Árnadóttur, Kristján Jóh. Jónsson og Gunnar Hersvein Sigursteins- son. Auk þess kynnir Sjón suður- afríska skáldið Breyten Breyten- bach fyrir íslendingum. Löng smásaga er eftir ensku skáldkonuna Margaret Drabble sem kom í heimsókn til Ísiands fyrir tæpu ári. Sagan heitir Hassantum- inn og valdi höfundur hana sérstak- lega handa tímaritinu. Önnur smásaga er eftir nýliða og heima- mann. Saknað eftir Ágúst Sverris- son. Örsagan Nóvembermorgunn er einnig eftir nýliða á þessu sviði, Ágústu Snæland, en hún hefur lagt hönd á aðrar listgreinar. Þorleifur Hauksson minnist Snorra Hjartarsonar í heftinu, einn- ig em ritdómar eftir Pál Valsson, Guðmund Andra Thorsson, Mar- gréti Eggertsdóttur og Dagnýju Kristjánsdóttur og ádrepa eftir Ein- ar Kárason. Tímaritið er 128 bls. og prentað í Odda. Kápu hannaði Teikn. Rit- stjóri er Silja Aðalsteinsdóttir. (Úr fréttatilkynningu) Norræn ljósmyndasýn- ing í Norræna húsinu í ANDDYRI Norræna hússins hefur verið opnuð sýning, sem ber yfirskriftina Norrænar ljós- myndir ’85. Á sýningunni er úrval mynda eftir ljósmyndara frá Islandi, Danmörku, Finn- landi, Noregi og Svíþjóð. Markmiðið með sýningunni er að sýna listræna ljósmyndun frá sem flestum sjónarhornum og að styrkja stöðu ljósmyndalistarinnar með til- liti til annarra greina myndlistar- innar. Frumkvæðið að sýningunni átti Finn Thrane, forstöðumaður Ljós- myndasafnsins (Museet for Foto- kunst), sem hefur aðsetur í nýrri listamiðstöð (Brandts klædefabrik) í Óðinsvéum, en hún var opnuð 1. janúar sl. Myndirnar á sýningunni voru valdar af Gert Garmund, en hann ferðaðist ásamt Esther Ny- Mótsstjórn verður í höndum Ólafs Lárussonar en útreikning (á tölvu) mun Margrét Þórðardóttir sjá um. Mótið er opið öllu bridsáhugafólki, svo lengi sem húsrúm leyfír. Spilað verður í Félagsborg og hefst spila- mennska kl. 10 á laugardagsmorg- un. Þess má geta, að meðal keppenda eru þegar skráðir til leiks m.a. Þórarinn Sigþórsson, Valur Sigurðsson, Jón Baldursson, Þorák- ur Jónsson, Hrólfur Hjaltason, Björn Theodórsson, forseti BSÍ, o.fl. Opna stórmótið í Sandgerði Vegna mikillar þátttöku í opna stórmótinu, sem Bridsfélagið Mun- inn í Sandgerði í samvinnu við Samvinnuferðir/Landsýn á Suður- nesjum, gengst fyrir laugardaginn 7. mars, hefur verið ákveðið að fjölga keppendum úr 32 pörum upp í 34 pör. Spilafjöldi eykst því um 4 spil. Er þetta gert í samráði við stjórnanda mótsins, Ólaf Lárusson. Spilað verður í samkomuhúsinu í Sár.d^rð: o" hefst Hep?ni w- n árdegis. Áríðandi er að skráðir keppendur mæti til leiks, því þurft hefur að vísa keppendum frá. Mjög góð verðlaun eru í boði, m.a. eru 1. verðlaun utanlandsferð á vegum SL. holm um Norðurlönd og völdu þau ljósmyndir eftir 58 ljósmyndara. Afraksturinn var um 350 ljósmynd- ir, en á sýningunni í Norræna húsinu verður ekki nema brot af þeim myndum eða 57 myndir. Islendingarnir sem eiga myndir á sýningunni eru Guðmundur Ing- ólfsson, Ólafur Lárusson, Jóhanna Ólafsdóttir, Valdís Óskarsdóttir, Sigurgeir Sigurjónsson, Jim Smart og Páll Stefánsson. Sýningin verður opin á opnun- iitíma hússins kl. 9—19 alla daga nema sunnudaga kl. 12—19 til 23. mars. (Fréttatilkynning) -27=997,- Vdrumarkaðurinn hf. =—I NÝJABÆ-EIÐISTORGI SlMI 622-200 FULLKOMIN VÉL A FRÁBÆRU VERÐI Heitt og kalt vatn, 400/800 snúningar, íslenskar merkingar á stjórnborði, 18 þvottakerfi, sjálfstætt hitaval.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.