Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Aðalsteinn Þor- geirsson — Minning Fæddur 19. janúar 1916 Dáinn 26. febrúar 1987 Þegar fregnin um andlát afa barst okkur til eyrna voru tilfinn- ingamar blandaðar sorg og söknuði ásamt örlitium létti yfir því að bar- áttan væri á enda og hann hefði nú fengið frið. Afí, sem hafði verið hraustur og friskur allt sitt líf, varð að berjast við erfiðan sjúkdóm síðustu mánuðina og láta loks und- an. í þessari baráttu kom sterkur persónuleiki hans skýrt fram, því þótt heilsunni hrakaði og líkamlegt þrek minnkaði, þá styrktist vilja- þrek hans og andlegt atgerfí. Á stundu sem þessari reikar hug- urinn aftur í tímann og minningam- ar streyma fram. Fyrstu minningamar um afa og ömmu eru frá Korpúlfsstöðum en þar var afí bústjóri og stjómaði af miklum myndarskap. Lífíð á Korpúlfsstöð- um var ævintýraheimur í huga okkar bamanna því þar var svo margt að gerast. Frá þessum tíma em minningamar hjúpaðar ævin- týralegum ljóma og því stóra samfélagi sem þama myndaðist með afa sem miðpunkt munum við aldrei gleyma. Þegar amma og afí fluttu frá Korpúlfsstöðum og afí hætti bú- störfum, bjó hann til nýjan ævin- týraheim fyrir okkm bömin, sem var hesthúsið hans í Mosfellssveit. Þar eyddum við ófáum stundum með honum sem var óþreytandi að leiðbeina okkur og kenna. Hann var bamgóður og þreyttist aldrei á að hafa okkur í kringum sig, jafnvel þótt við væmm stundum óstýrilát og erfíð. í hesthúsinu var oft margt um manninn, þar lék afí við hvem sinn fíngur og var hrókur alls fagn- aðar. Kímni hans og léttleiki naut sín hvergi betur því þar var hann á heimavelli. Afí og amma skiluðu miklu og góðu ævistarfí. Þau eignuðust átta böm sem öll em á lífi, tuttugu og þijú bamaböm og níu bamabama- böm, þannig að í dag eiga þau Qöratíu afkomendur. Þau áttu gott og myndarlegt heimili sem ætíð stóð öllum opið og þar hefur fjöl- skyldan átt margar ógleymanlegar ánægjustundir. Afí var sterkur og hrífandi per- sónuleiki, skapmikill og hikaði ekki við að segja sína meiningu. Hann kom hreint og beint fram, var létt- ur í lund, „húmoristi" og hafði yndi af að umgangast annað fólk. Hann var vinur vina sinna og taldi ekki eftir sér að hjálpa öðmm. Heima fyrir var hann rólyndur og hjarta- hlýr og hjá honum var gott að vera. Elsku amma, þegar þú stendur nú ein, vonum við að Guð gefí þér styrk til að standast þessa erfíð- leika, og að góðu minningamar muni deyfa sárasta söknuðinn. Við biðjum guð einnig að styrkja langömmu sem missir nú sitt fyrsta bam. Þegar við kveðjum afa óskum við þess að okkur beri gæfa til að erfa eitthvað af hans góðu eiginleik- um. Við viljum færa starfsfólki deild- ar A-7 á Borgarspítalanum alúðar- þakkir fyrir þá nærgætni og umhyggju sem það sýndi afa í veik- indum hans. Guð blessi minningu afa. Barnabörn Okkur langar að skrifa örfáar línur til að minnast Aðalsteins Þor- geirssonar eða afa eins og við heyrðum hann alltaf kallaðan. Það er ljóst að þama er stórt skarð sem verður vandfyllt ef það verður þá nokkumtímann. Afí var heillandi persónuleiki sem tók okkur vel frá fyrstu kynnum. Það er skemmtilegt að minnast þess að við fyrstu kynni kom hann fram við okkur öil á sama hátt, það er að segja með þeirri kímni og stríðni sem hann var þekktur fyrir. Þessi eiginleiki var það sem ávallt hreif okkur mest í fari hans. Afí var alltaf hrókur alls fagnað- ar hvar sem hann var og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við afa og vottum ömmu okkar dýpstu samúð. Helga Sigurðardóttir Elísabet Sveinsdóttir Hallmundur Marvinsson Það var á fimmtudagsmorgun 25. febrúar sl. að okkur Ingu bár- ust fréttir um lát vinar okkar, Aðalsteins Þorgeirssonar. Kvöldið áður hafði ég hitt Þorstein son hans uppi í Víðidal, fréttin kom mér því ekki á óvart. Hvíldin er góð þeim, sem þreyttir em. Kunningsskapur okkar Alla, en svo var hann oft kallaður, hefur staðið í þijátíu og þijú ár eða í ald- arþriðjung. Það er langur tími góðrar vináttu. Fyrstu kynni okkar vom tengd hestum sem við báðir höfðum ánægju af. Alli var þá ráðsmaður í Nesi á Seltjamamesi, en þar fékk ég, árið 1954, ásamt öðram aðstöðu til að koma upp hesthúsi og byggð- um við það áfast við hús Alla, þannig að í gegnum hans hús var farið til að komast í okkar. Við rið- um oft út saman um Seltjamame- sið, fómm austur fyrir bæinn þegar daginn tók að lengja og í sumarferð- ir saman í hópi góðra félaga, þegar báðir gátu því viðkomið. Marga fjallvegi höfum við farið á hestum og víða höfum við tjaldað og legið saman í leitarmannakofum og notið þess að spjalla, áttað okkur á leið- um, á ám og ljöllum og stundum dregið okkur saman til að vaka yfír hestunum. Skörð hafa komið í þennan ferða- og vinahóp, sum stór, og enn fjölgar þeim. Alli átti marga gæðinga um dag- ana og hann naut þess að hafa við þá gott samband. Hann fór vel á hesti og þeir fóm vel undir hjá honum. Hann hafði líklega mesta ánægju af yfírferðarhestum, svona eins og til dæmis Skjóna þegar hann var upp á sitt besta, þá gust- aði stundum af þeim. Mörg atriði koma í huga minn, þegar ég hugsa til ferðalaga okkar Alla, en efst er mér líklega í minni, þegar við eitt sinn riðum suður Kjöl og komum að Tungufljóti í miklum vexti. Það skiftir jafnan miklu að maður hafí trú á því, sem maður gerir hveiju sinni, og í þetta skipti, þegar við stóðum þama á bakkanum til að átta okkur á Fljót- inu, þá fékk Alli trú á Nasa sem var með í ferðinni. Hann lagði á hann og yfír beljandi strauminn fóm þeir léttilega. Alli var farsæll í sínu lífshlaupi, hann hafði svo sterka trú á því sem hann ákvað að gera hveiju sinni, að hann kom því oftast glaður í höfn. Ég hef dáðst að þessum eigin- leika hans og því hvað hann fór Aðalsteini vel. Alli var félagsvera eins og þær era bestar. Hann hjálpaði mörgum sem hjálpar þurftu og gerði það með gleði. Hann tók virkan þátt í félagsmálum hjá Fáki og síðar Herði, þar sem hann hefur í nokkuð mörg undanfarin ár gegnt for- mennsku. Þar nutu sín hæfileikar hans til að laða að sér fólk og fá það til samvinnu. Aðalsteinn var oft kjörinn á Landsþing hesta- manna og eiga margir ánægjulegar endurminningar frá þingsetu sinni með honum. Lífshlaup Alla, ætt og uppmna ætla ég ekki að rekja, þar sem ég veit að það verður gert af öðmm. Við Ingigerður sendum aldraðri móður hans, eiginkonu og fólkinu hans öllu, innilegar samúðarkveðjur um leið og við þökkum fyrir áfang- ann sem við saman fengum að ganga. Hjaltí Pálsson Mig langar að minnast tengda- föður míns, Aðalsteins Þorgeirsson- ar, með nokkmm orðum. Alli fæddist vestur í Önundarfírði 19. janúar 1916, og var því 71 árs þegar hann lést. Við hittumst fyrst í Nesi á Seltjamamesi, þar sem hann var bústjóri vorið 1957. Ég þá nítján ára unglingur en hann í blóma lífsins. Ég var að stíga í vænginn við Þorgerði dóttur hans og hafði vonast til að hann tæki mér tveim höndum. En þrautin var þyngri en ég hélt því Alli átti marg- ar myndarlegar dætur og gætti þeirra vel. Þama kynntist ég strax þeim eiginleika sem ég mat mest í fari hans en það var hversu hreint og ákveðið hann kom fram, laus við sýndarmennsku og uppgerð. Mér tókst að vinna traust hans og eftir það myndaðist sterk vinátta milli okkar sem aldrei bar skugga á. 9 rpráðlijstiars^r',n9- -------' . - - sÆTÚM8-s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.