Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 53 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA ,691100 KL. 13-14 IFRÁ MÁNUDEGI ]TIL FÖSTUDAGS Gorbachev veit ekki hvað frjáls verkamaður er Nú er mér skemmt þegar Gorba- chev er alltaf að fræða mann og leiða í allann sannleika um lífið í Hver er skáld? Hver er skáld? Skáld er sá sem hugsar nýjar eða snjallar hugsanir og sem tekst að búa þær í orð, og að raða orðunum saman á listrænan hátt. En skáld eru fleiri en þeir sem raða saman orðum á listrænan hátt. Sum skáld búa hugsunum sínum listrænt form í stáli, tré og steini, önnur í litum og línum. Enn önnur skáld búa hugsun- um sínum form í vélum, sem snúast og létta erfíði af þreytt- um höndum og sem veita alls- nægtir úr skauti jarðar. Hveijir eru skáld? Hvar eru mörkin? Hveijir leggja fram drýgstan skerf til fegrunar mannlífs? Hver yrkir ekki í lífsstarfi sínu, hvert sem það er? Móðirin, læknirinn, húsmóðir- inn, bóndinn, iðnaðarmaðurinn. Eru þetta ekki allt skáld, hvert á sinn hátt? Yrkja ekki allir einsskonar ljóð úr efniviði þeim, sem lífíð færir þeim í hendur? Hvert er fegursta ljóðið? Getur nokkur skorið úr um það? Ingvar Agnarsson Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugfur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 13 og 14, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir Iáti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Rússlandi, en líklega ekki útvarps- hlustendur, því fjölmiðlar okkar hafa aðeins leyft sanntrúuðum stalínistum og svo þessum sem þurft hafa að þakka dýrar trakter- ingar í Rússlandi, að lýsa lífinu þar í sveit og þetta hefur alltaf verið sami hallelújasöngurinn. Svona hefur þetta verið allar götur síðan að kona ein sem til Russlands fór var svo stálheppin að fá að skoða part af afmælis- gjöfum Stalíns þegar hann varð sjötugur og þær fýlltu 54 herbergi. Aldrei fá fjölmiðlamir sér annan fréttaskýranda um ástandið í Aust- ur-blokkinni en vinnumann á Þjóðviljanum, og allir sem þar vinna — þeirra hjörtu slá á Volgubökkum — eins og skáldið sagði. Þetta eiga þeir að vita sem ábyrgð bera á fjöl- miðlunum. Mér finnst það hart að Gorbachev, sem ekki veit hvað frjáls verkamaður er, skuli kvarta yfir slæmum aðbúnaði á vinnustöðum í Russlandi. Ég veit að það er ekki af hugulsemi við verkamennina heldur hitt, að vinnuskilyrðin hafa verið slík, að vinnuafköstin minnka stöðugt og það eyðileggur efnahag rússnesku þjóðarinnar. Ekki alls fyrir löngu gaf frétta- skýrandi íjölmiðlanna okkar lýsingu á rússneskum verkamanni og komst að þeirri niðurstöðu að kjör hans væru sambærileg við það sem hér gerist. Hann minnist ekki á sjúkra- húsin fyrir verkamennina, ekki á eftirlitsmennina frá KGB og ekki á ferðafrelsið sem verkstjóramir ráða, og hann minnist ekki á vinnu- aðbúnaðinn. Fjölmiðlamir okkar hafa eytt öll- um sínum tíma í skandínavíska vandamálaáróðurinn sem allur er til höfuðs frjálshyggjunni og henni Húsmóðir segist munu þakka Gorbachev ef fyrir hans tilstillan dragi úr hinni „rauðu tjöru“ í ríkisfjölmiðlunum. lýst sem höfuðóvin mannkynsins. Sannleikurinn er hinsvegar sá að loka verður Austur-blokkinni því allur almenningur þar vill komast í frelsið. Ég er að vona að herför Gorbachevs hafi þau áhrif að ríkis- fjölmiðlamir geti sóma síns vegna lofað almenningi að heyra eitthvað frá skáldunum í Austur-blokkinni, ekki síst nú þegar Pastemak er loksins tekinn f skáldatölu. Ég myndi þakka Gorbachev ef fyrir hans tilstilli drægi eitthvað úr þess- ari eilífu rauðu tjöru sem dembt er sí og æ yfír mann í ríkisfjölmiðlun- um okkar, sem eiga þó að kallast hlutlausir. Húsmóðir Óviðeigandi að skrifa ekki undir fullu nafni Kæri Velvakandi, Ég minnist þess að fyrir allmörg- um árum kom í Velvakanda klausa frá húsmóður, þar sem hún kvart- aði yfir gestagangi á heimili sínu. Ég skrifaði þá svar og fannst mjög óviðeigandi af henni að skrifa ekki undir fullu nafni, svo fólk HEILRÆÐI Varmatap er eitt það hættulegasta við að falla í sjó. Því er nauð- synlegt að vita hvemig líkaminn bregst við kulda og þekkja ráð til að tefja fyrir skaðvænlegum áhrifum hans. Sjómenn: Á neyðarstund gefst ekki tími til að lesa leiðbeiningar. Lærið um ofkælingu og vamir gegn henni. gæti varað sig á að gjöra henni ekki ónæði með heimsóknum. Sama finnst mér núna hjá þessari frú sem skrifaði greinina Hótel Ókeypis, Hún á að skrifa undir fullu nafni og ekkert vera að fela sig. Ég get nú ekki séð að 300 dagar komi út úr þessu reikningsdæmi hennar heldur 227. En hvað um það, ég er ekki svo sterk í reikningi. Það var þó gott að heyra að hún væri í Svíþjóð, þá getur maður var- að sig á því að fara ekki þangað. Virðingarfyllst, Marta Tómasdóttir Mávahlíð 25 Mikil hækkun hjá VISA Guðmundur skrifar: Nú um mánaðarmótin fékk ég að venju reikningsyfirlit frá VISA og greiddi skuldir mínar að sjálf- sögðu á gjalddaga. Ég veitti því eftirtekt, að þóknun VISA fyrir að senda viðskiptavinunum þetta yfir- lit hefur verið hækkuð úr 35 krónum í 50. Þessi hækkun um 15 krónur nemur 43 prósentum og það er allhá tala. Ég kannast ekki við, að VISA hafi tilkynnt sérstaklega um þessa hækkun, en vel má vera að það hafi farið fram hjá mér. Hvað sem því líður fínnst mér hækkunin vera of mikil og ekki í samræmi við aðr- ar verðhækkanir að undanfömu. Getur VISA upplýst, hvers vegna þessi hækkun er til komin? Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, blómum og gjöfum á níutíu ára afmœli minu 21. febrúar. GuÖ blessi ykkur öll. Marta Kjartansdóttir, Setbergi, Stokkseyri. Innilegt þakklœti til barna minna, tengda- barna, barnabarna og systra minna og mágs, frœndfólks ncer og fjœr, vina og kunningja sem heiÖruÖu mig meÖ ncerveru sinni, blómum, gjöfum og skeytum á 80 ára afmælisdaginn 22. febrúar si, og gerÖu mér daginn ógleyman- legan. GuÖ blessi ykkur. Dóróthea Óiafsdóttir, Skúlagötu 76, Reykjavík. Verslunin Smáfólk er flutt úr Austurstræti 17 (kjallara) í Iðnaðar- húsið, Hallveigarstíg 1. Sængurfatnaður í úrvali fyrir börn og fullorðna. Verslunin Smáfólk, Hallveigarstíg 1, sími 21780 ■;A i wm Vorsendingin komin frá MODELLE Úrval af fallegum slæðum. tískuverslun, Barónsstíg 18, s: 23566. Blaóburóarfólk óskast! AUSTURBÆR MIÐBÆRII Þingholtsstræti o.fl. Sóleyjargata Leifsgata Laufásvegur 2-57 Lindargata 40-63a o.fl.__________ PlóirjpmMáfcáífr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.