Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
VEÐUR
Hveragerði.
Skáksnillingnrinn Viktor
Korchnoi tefldi á miðvikudag í
Eden i Hveragerði fjöltefli við
30 manns.
Hann vann 27 skákir gerði tvö
jafntefli og tapaði einni skák.
Sá sem sigraði meistarann er
Bjami Þór Jónatansson frá Eyrar-
bakka, en jafnteflin gerðu þeir
Sigurður Sólmundarson og Helgi
Hauksson báðir úr Hveragerði.
Kristján Jóhannesson, sveitar-
stjóri sá um skipulagningu á þessu
fjöltefli, sem var vel sótt af áhorf-
endum sem skemmtu sér hið besta.
Hér í Hveragerði var haldið
Helgarskákmót á vegum tímarits-
ins Skákar og Hveragerðishrepps
og vaknaði þar sú hugmynd að fá
einhvem hinna þekktu skákmanna
sem tefldu á I.B.M. mótinu til þess
að tefla fjöltefli hér í Hveragerði
og rættist sú ósk í gærkvöldi.
Vonast er til að þetta fjöltefli
endurvekji skákáhuga manna hér
svo að framhald geti orðið á fjöltefl-
um hér í Hveragerði.
Sigrún
Heímild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 t gær)
Í DAG kl. 12.00:
P r
F * .
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að fsl. tíma
hiti voöur
Akureyri 8 hálfskýjað
Reykjavik 6 skúr
Bergen 1 snjókoma
Helsinki -13 skýjað
Jan Mayen 1 alskýjaS
Kaupmannah. vantar
Narssarssuaq -18 lóttskýjað
Nuuk -11 skýjaS
Osló -8 lóttskýjað
Stokkhólmur -9 léttskýjað
Þórshöfn 6 rigning
Algarve 20 skýjað
Amsterdam -0 mistur
Aþena vantar
Barcelona 14 mistur
Bertfn -3 mistur
Chicago 3 heiðskfrt
Glasgow 4 rigning
Feneyjar 2 heiðsklrt
Frankfurt -1 heiðskfrt
Hamborg -1 léttskýjað
las Palmas vantar
London 7 mlstur
LosAngeles 18 skúr
Lúxemborg -2 mistur
Madríd 18 mistur
Malaga 21 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Miami 21 alskýjað
Montrea! -18 þokumóöa
NewYork -2 léttskýjað
Paris 2 þokumóða
Róm 7 skýjað
V(n -7 mistur
Washington 3 hálfskýjað
Winnipeg -4 léttskýjað
Kvöldsólin kost-
aði 2,2 milljónir
FJÁRHAGSLEGT tjón i umferð-
aróhöppum er oft á tíðum mikið.
Þannig varð kvöldsól við Kaldak-
lifsá þess valdandi að bifreiðareig-
andi og tryggingafélag urðu
rúmum tveimur milljónum króna
fátækari.
Í lok síðasta sumars valt flutn-
ingabíll á brúnni yftr Kaldaklifsá.
Okumaðurinn hafði kvöldsólina beint
í augun og þegar hann sá skyndilega
bíl koma á móti sér sveigði hann til
að forða árekstri. Flutningabílinn
valt og lagðist þvert á brúna, svo
hún lokaðist næstu átta klukku-
stundimar. í Gjallarhomi, fréttabréfi
Samvinnutrygginga, kemur fram að
skemmdir á flutningabílnum voru
metnar á 2 milljónir og 24 þúsund
krónur, en þar af bar eigandinn helm-
ing skaðans. Björgunarkostnaður
nam tæpum 115 þúsund krónum,
enda þurfti að sækja krana og annan
búnað svo ryðja mætti brúna.
Flutningabillinn lagðist þvert á Kaldaklifsárbrúna og varð tjónið af
óhappinu tæpar 2,2 milljónir króna.
Fiskverð féll
í Frakklandi
Upplýsingaskyldan að komast til framkvæmda
FISKVERÐ er enn lágt á fisk-
mörkuðunum í Þýzkalandi og
verðfall hefur orðið í Boulogne í
Frakklandi í kjölfar offramboðs-
ins í Þýzkalandi. Verð í Bretlandi
var fremur lágt á þriðjudag, en
hækkaði er leið á vikuna. Fyrirsjá-
anlegt er að minna verður af
karfa héðan í næstu viku í Þýzkal-
andi en undanfarnar tvær vikur.
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir að tillög-
ur LÍÚ ' um upplýsingaskyldu
vegna gámaútflutnings til Þýzka-
lands séu þegar að komast til
framkvæmda. Útflytjendur séu
þegar byrjaðir að tilkynna áætlað
magn og boð séu farin að berast
frá mörkuðunum. Þetta lofi því
góðu um framhaldið.
Viðey RE seldi 231 lest af karfa
í Bremerhaven á miðvikudag. Heild-
Leiðrétting
í útvarpsþættinum Mál mála,
sem fluttur var 4. þessa mán-
aðar, var lesið upp úr greinar-
gerð með þingsályktunartil-
lögu á Alþingi árið 1984; en
hún fjallaði um aukna rækt
við íslenskt mál í skólum.
Ég vil geta þess að það sem
þar var eftir mér haft hef ég
aldrei sagt, hvorki í ræðu né
riti. Þar hlýtur einhver að hafa
farið mannavillt. Hins vegar
ræddi ég um þingsályktun þessa
í blaðagrein, sem síðan birtist í
bæklingnum Skynsamleg orð og
skætingur árið 1985.
Að sjálfsögðu gátu umsjónar-
menn útvarpsþáttarins ekki
varað sig á mistökunum.
Helgi Hálfdanarson.
arverð var 8,9 milljónir króna,
meðalverð 38,44. Gámafiskurinn
kom á markaðinn á fimmtudag og
samkvæmt upplýsingum LÍÚ var
meðalverð fyrir karfann um 43 krón-
ur á kílóið. Alls woru seldar 400 til
500 lestir, en endanleg niðurstaða
var ekki væntanleg fyrr en í dag.
80 lestir af gámafíski héðan voru
seldar í Bretlandi á þriðjudag. Heild-
arverð var 4,6 milljónir króna,
meðalverð 56,97. Fyrir þorsk fengust
að meðaltali 54,96 krónur á kíló,
68,99 fyrir ýsuna og 51,45 fyrir
kola. Á miðvikudag var selt úr einum
gámi, alls 16 lestir. Fyrir þorsk úr
honum fengust 60,23 krónur á kíló
og 75,06 fyrir ýsuna. Vegna brælu
í Norðursjó hefur verið lítið framboð
af físki í Bretlandi og verð því haldizt
uppi. Á fímmtudag seldi Náttfari ÞH
84 lestir, mest þorsk í Grimsby.
Heildarverð var 5,2 milljónir króna,
meðalverð 62,59. Þá seldi Jökull SH
65 lestir í Hull. Heildarverð var 3,1
milljón, meðalverð 47,44. 27 lestir
af karfa voru í afla Jökuls og fen-
gust að meðaltali 30,97 krónur fyrir
hann. Meðalverð fyrir þorskinn var
67,19.
Birtingur NK seldi 139 lestir í
Boulogne í Frakklandi á miðvikudag.
Heildarverð var 5,9 milljónir króna,
meðalverð 42,26. 62 lestir af karfa
voru í aflanum og fengust að meðal-
tali 33,59 krónur fyrir hann. Eitthvað
af físki barst til Boulogne frá Þýzka-
landi í upphafí vikunnar.
Lítið verður um gámafisk héðan í
mörkuðunum í Þýzkalandi í næstu
viku vegna verðfallsins. Tvö skip,
Ögri og Engey, selja þá í Þýzka-
landi, en Ólafur Jónsson hefur hætt
við siglingu.
Sjá ennfremur frétt um tillögur
LÍÚ á bls. 31.
Prestkosningar í
Prestbakkaprestakalli:
Meirihlutíiin skilaði auðu
Meirihluti kjósenda í Prestbakka-
prestakalli f Húnavatnsprófasts-
dæmi, skilaði auðu í prestkosning-
um sem þar fóru fram i síðustu
viku.
Alls voru 244 á kjörskrá í pre-
stakallinu og 136 kusu, sem er 54,6%
kjörsókn. Jón ísleifsson cand. teol.
hlaut 42 atkvæði, séra Hörður Þ.
Áskelsson hlaut 1 atkvæði, 92 ski-
luðu auðu og eitt atkvæði var ógilt.
Kosningin var ekki lögmæt.