Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Slys á Reykjanesbraut:
Þrettán ára pilt-
ur þungt haldinn
ÞRETTÁN ára piltur slasaðist
alvarlega þegar hann varð fyrir
bifreið á Reykjanesbraut um há-
degi á miðvikudag.
Pilturinn var að fara í skíðaferða-
lag ásamt öðrum grunnskólaböm-
um af Suðurnesjum. Rútan sem
flutti þau stöðvaði vegna bilunar á
nýju Reykjanesbrautinni, til móts
við Hnoðraholt í Garðabæ. Pilturinn
ákvað þá að bregða sér í verslun í
nágrenninu. Þegar hann kom til
baka og hljóp yfir veginn að rút-
unni varð hann fyrir fólksbíl, sem
ekið var norður brautina, frá Hafn-
arfirði. Pilturinn liggur nú þungt
haldinn á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans.
Níu ára drengur er enn meðvit-
undarlaus eftir slys sem varð á
Reykjanesbrautinni til móts við
Kaplakrikavöll í Hafnarfirði fyrir
viku. Drengurinn var á hjóli og fór
í veg fyrir bíl.
INNLENT
Lyfsalar funda 1 dag um
greinargerð Arna Johnsen
LYFSALAR og lyfjafræðingar
ætla að halda fund í dag til að
ræða viðbrögð við ásökunum á
hendur þeim í greinargerð
Árna Johnsen alþingismanns
með þingsályktunartillögu sem
hann, ásamt þremur öðrum
þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins, lagði fram á Alþingi um
að lyfjasala verði gefin fijáls.
í greinargerðinni, sem birt var
í Morgunblaðinu í gær, gagnrýnir
Ámi Johnsen meðal annars verð-
lagningu lyfja og segir að með
skynsamlegri stýringu og afnámi
einokunar í sölu lyQa megi spara
milli 600 og 700 miljónir króna á
þessu ári. I samtali við Morgun-
blaðið sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir að þær upplýsingar um
verðlagningu og fyrirkomulag á
sölu ljfya sem fram koma í grein-
argerðinni, væru réttar. Ólafur
sagðist áður hafa skrifað ráðherra
af því tilefni og í framhaldi af því
var skipuð nefnd í vetur til að
gera úttekt á lyfjamarkaði.
Ólafur sagði að samkvæmt
upplýsingum frá Lyfjaeftirlitinu
væri smásöluálagning hér á landi
mun hærri en í nágrannalöndun-
um, eða milli 68-70%. í Svíþjóð
og Noregi væri smásöluálagningin
33% og í Danmörku 50-54%. Hér
tíðkaðist einnig að því dýrara sem
lyfíð væri þeim mun meira væri
lagt á það en á Norðurlöndunum
væri stiglækkandi álagning eftir
því sem lyfin væru dýrari. Þar
hefði einnig verið sett á verðjöfn-
unargjald til að auðvelda rekstur
apóteka í dreifbýli og það hefði
valdið lækkun á smásöluálagn-
ingu.
Ólafur gagnrýndi að í lyfjaverð-
lagsnefnd, sem væri svipuð nefnd
og verðlagsnefndir búvara eða
sjávarútvegsins og hefði því end-
anlegt vald óháð ráðherra, væru
lyfjafræðipgar í meirihluta, eða 4
af 5 nefndarmönnum. Það væri
því pottur brotinn víða en hann
sagðist hafa trú á að hægt væri
að koma þessu kerfí í lag og raun-
ar væri fullur vilji til þess meðal
lyfsala.
Stefán Sigurkarlsson formaður
Apótekarafélagsins sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið vísa því á
bug að lyfsalar réðu verðlagningu
lyfja. Stefán sagði að í lyfjaverð-
lagsnefnd sæti einn fulltrúi
Tryggingastofnunar ríkisins, einn
fulltrúi Hagstofunnar og þriðji
fulltrúinn er skipaður af heilbrigð-
isráðherra sem oddamaður. Síðan
ættu Apótekarafélagið og Lyfja-
fræðingafélagið sinn fulltrúann
hvort. Þótt fulltrúar opinberu
stofnanana væru lyfjafræði-
menntaðir væri ekki þar með sagt
að þeir gengju erinda lyfsala enda
hefði ráðherra endanlegt vald í
þessu efni ef nefndin kæmist ekki
að samkomulagi.
Stefán sagði síðan að ásakanir
um að lyfsalar lægju á upplýsing-
um um lyfjamarkaðinn ættu ekki
rétt á sér. Rekstrarskýrslur apó-
teka lægju frammi handa hveijum
sem væri og lyfjaverðlagsnefndin
byggði veðlagningu lyfja á þeim.
Apótek væru bókhaldsskyld og
þar væri engu leynt. Ef háttsettir
embættismenn í heilbrigðiskerfinu
þættust ekki geta fengið upplýs-
ingar um lyf og lyfsölu þá gætu
þeir sjálfum sér um kennt.
Morgunblaðið/Eínar Falur
Básúnuverk Atla Heimis frumflutt
Sinfóníuhljómsveit Islands frumflutti í gærkvöldi Jubílus II, nýtt
verk eftir Atla Heimi Sveinsson tónskáld og lék Oddur Björnsson,
ungur básúnuleikari, einleik í verkinu. Á myndinni sjást Atli Heimir
og Oddur taka við þakklæti tónleikagesta. Þeirra á meðal voru Hall-
dór Blöndal alþingismaður og eiginkona hans, Kristrún Eymunds-
dóttir, sem sjást á innfelldu myndinni, en tónskáldið tileinkaði
Halldóri verkið.
Grindvíkingnr GK:
Loðnufarm-
ur fyrir tæp-
ar 8 milljónir
Gríndavík.
Grindvíkingur GK kom til
hafnar í Grindavík í gær
og landaði 80 tonnum af
frystum loðnuhrognum og
400 tonnum af loðnuúr-
gangi. Lætur nærri að
farmurinn sé tæpra átta
milljóna króna virði, ef Jap-
anir samþykkja hrognin.
Að sögn Willards Ólasonar,
skipstjóra, tók túrinn um átta
sólarhringa, en í millitíðinni
var loðnuúrgangi landað á
Akranesi. „Bestu loðnuna
fengum við vestur af Þor-
móðsskeri á Mýrum, en þar
var 75% af loðnunni kerling
og nýtingin mjög góð. A
Breiðafirði lóðaði á mikla
loðnu, en hrognin voru fastari
í henni og lætur nærri að þar
sé á leiðinni loðnugangan, sem
fannst út af Vestfjörðum,"
sagði Willard.
Kr. Ben.
Sjá ennfremur frétt á
bls. 31.
Brotinn ventill talinn
skýring olíulekans
Eldisfiskur að verðmæti 45 milljónir króna í húfi
Morgunblaðið/Þorkell
„Svona óhöpp geta hent alla,“ sagði Óli Kr. Sigurðsson forstjóri
Olíuverslunar íslands. Hann kannar hér opið á olíugeyminum á
Grundarfirði þar sem ventill brast með þeim afleiðingum að 80.000
lítrar af gasolíu runnu í sjóinn.
„VIÐ SLUPPUM með skrekk-
inn,“ sagði Þorvaldur Ólafsson
eftirlitsmaður Siglingamála-
stofnunar í gær eftir að mengun
frá olíuleka úr geymi Olíuversl-
unar íslands á Grundarfirði
hafði verið könnuð. Ekki kom til
kasta flotgirðinga og hreinsibún-
aðar sem stofnunin flutti til
Grundarfjarðar aðfaranótt mið-
vikudags. Suðvestan strekkingur
hafði séð til þess að olíuna bar
frá landi þar sem hún virðist
hafa gufað upp eða hvarfast í
hættuminni efni.
Talið er að eldisfiskur í kvíum
Snælax hafi ekki orðið fyrir spjöll-
um en að sögn Svans Guðmunds-
sonar fiskeldisfræðings fyrirtækis-
ins koma áhrif mengunarinnar ekki
fram í fiski fyrr en að nokkrum
tíma liðnum.
Eldiskvíar Snælax eru í hafnar-
mynni Grundarfjarðar. Þar eru nú
um 76.000 laxar og 30.000 regn-
bogasilungar auk klakfísks. Svanur
sagði að fískurinn hefði verið settur
í kvíamar á undanfömum tveimur
árum. Snælax stefnir að fyrstu
uppskeru sinni í haust og er fískur-
inn metinn á um 45 milljónir króna.
Mesta hættan felst í því að físk-
urinn gleypti olíu og kafni. Hugsan-
lega gæti olían brotnað niður í
hættuminni efni og borist þannig í
innyfli físksins. „Um þetta getum
við ekkert sagt fyrr en í fyrsta lagi
eftir viku. Fóðurgjöf var hætt um
leið og slysið uppgötvaðist og við
munum ekki gefa fískinum fyrr en
sannað er að vatnið sé laust við
mengun," sagði Svanur.
Það sem olli lekanum úr tanki
Olíuverslunar íslands var brotinn
ventill í botni geymisins. Tankurinn
var fylltur á mánudag af 150.000
lítrum af gasolíu. Iekinn uppgötv-
aðist ekki fyrr en á miðvikudags-
morgun og einhvemtímann á því
tímabili hefur óhappið orðið. 80.000
lítrar náðu að renna í sjóinn, en
afganginum var dælt yfír í annan
geymi. Óli Kr. Sigurðsson forstjóri
olíufélagsins fór vestur í gær og
kannaði aðstæður. Tjón OLÍS er
tilfmnanlegt því söluverðmæti gas-
olíunnar nam um hálfri milljón
króna.
Að sögn Ólafs Sverris Hilmars-
sonar sveitarstjóra hefur skipulags-
nefnd hreppsins ítrekað kvartað við
OLÍS vegna slæms frágangs á
geyminum. Núgildandi reglur kveða
á um að í kringum olíutanka skuli
vera þrær sem geti tekið við 60%
af þeirri olíu sem í þeim er geymd.
Tankurinn á Gmndarfírði er hins-
vegar algjörlega óvarinn og því gat
olían mnnið óheft í sjó fram. „Sigl-
ingamálastofnun tilkynnti eiganda
fyrirtækisins í morgun að notkun á
tankinum sé bönnuð þar til búið er
að ganga frá löglegri þró í kringum
hann. Hann hefur fallist á þessi
skilyrði enda vilja allir koma í veg
fyrir að svona óhöpp hendi oftar,“
sagði Ólafur.
„Af þessu óhappi verðum við að
draga þann lærdóm að gagngerra
endurbóta er þörf á stómm hluta
þeirra mannvirkja sem notuð em
til olíudreifmgar á íslandi. Við vor-
um heppnir núna og höfum verið
heppnir áður, en það er ekki víst
að forsjónin verði svo hliðholl um
alla framtíð," sagði Þorvaldur
Ólafsson. Hann hefur á undanföm-
um tiu ámm tekið þátt í fjölmörgum
aðgerðum til þess að hefta olíu-
mengun í sjó. „Við ráðum yfir tækni
sem getur reynst vel við bestu skil-
yrði en eina vitið er að fyrirbyggja
skaðann," sagði Þorvaldur.