Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
55
Tvö vítaskot
í lokin
- og Keflavík vann Njarðvík
INGÓLFUR Haraldsson tryggði
Keflvíkingum sigur gegn
Njarðvíkingum, 83:81, í úrvals-
deildinni í gœrkvöldi með því að
skora úr tveimur vítaskotum eftir
að venjulegur leiktími var liðinn
Staðan í hálfleik var 47:44. Leik-
urinn var spennandi frá upphafi
til enda, Keflvíkingar voru betri í
fyrri hálfleik en Njarðvíkingar í
þeim síðari, en þeir mistu boltann
klaufalega til Keflvíkinga á
síðustu sekúndunum og reyndist
það afdrifaríkt.
Ólafur Gottskálksson lék ekki
með ÍBK að þessu sinni vegna
meiðsla en UMFN var með alla
sína menn. Þrátt fyrir það náðu
Keflvíkingar príðisgóðum leik, þeir
voru rólegir og ákveðnir og höfðu
öruggt frumkvæði í fyrri hálfleik.
IBKvann
Haukar unnu ÍS í 1. deild kvenna
í körfu f gær og þá vann ÍBK lið
UMFG 52:45 eftir að staðan hafði
verið 23:19 í hálfleik.
Stúdínur voru mjög óhressar
með framkvæmd leiksins í gær.
Mikill ruglingur var á stigatöflunni
og töldu þær að tekin hefðu verið
af þeim stig í fyrri hálfleik. Úrslitin
urðu 47:44 og 24:22 í leikhléi.
Njarðvíkingar náðu síðan undir-
tökunum í síðari hálfleik en Keflvík-
ingar gáfust aldrei upp og gripu
tækifæriö í lokin þegar allt stefni
í sigur UMFN.
Staðan var 81:81, Njarðvíkingar
með boltann og 23 sekúndur til
leiksloka. Á klaufalegan hátt mistu
þeir boltann til Keflvíkinga sem
brunuðu upp og í miklum darraðar-
dansi undir körfunni var brotið á
Ingólfi Haraldssyni í þann mund
sem leiktíminn rann út. Hann skor-
aði af öryggi úr báðum vítaskotun-
um.
Bestir hjá ÍBK voru þeir bræður
Gylfi og Hreinn Þorkelssynirog Jón
Kr. Gíslason. Hjá Njarðvík voru
Kristinn Einarsson, Valur Ingi-
mundarsson og Jóhannes Krist-
björnsson bestir.
BB
Leikurinn
ítölum
Keflavík 5. mars. Úrvalsdeildin í körfu.
ÍBK - UMFN 83:81 (47:44)
7:7, 13:13, 23:15, 26:23, 35:27, 37:34,
45:36, 47:44, 54:52, 56:55, 58:59, 60:60,
62:66,68:68, 73:74, 79:79, 81:81,83:81.
STIG ÍBK: Gylfi Þorkelsson 23, Jón Kr.
Gíslason 19, Hreinn Þorkelsson 15, Guð-
jón Skúlason 12, Sigurður Ingimundarson
8, Ingólfur Haraldsson 4, Falur Haröarson 2.
STIG UMFN: Kristinn Einarsson 21, Valur
Ingimundarson 18, Jóhannes Kristbjörns-
son 12, Árni Lárusson 11, Teitur Örlygs-
son 6, ísak Tómasson 5, Hreiðar
Hreiöarsson 4, Helgi Rafnsson 4.
Enn kaupir
Everton
Frá Bob Hennessy á Englandi.
EVERTON keypti í gær Wayne
Clarke frá Birmingham fyrir
300.000 pund og er þá Everton
búið að eyða um tveimur milljón-
um punda í kaup á nýjum leik-
mönnum á þessu keppnistima-
bili.
Derwall
hættir
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni f Vestur-
Þýskalandi.
JUPP Derwall, fyrrum landsliðs-
þjálfari Vestur-Þýskalands, hefur
ákveðið að hætta sem þjálfari
tyrkneska liðsins Galatasaray eft-
ir þetta keppnistímbil.
Derwall er nú 60 ára og segist
ekki vilja falla niður dauður á vara-
mannabekknum. Hann bendir þar
til dæmis á Jack Stein, fyrrum þjálf-
ara Skota, sem lést meðan á leik
Skota og Wales stóð í fyrra.
Hann er þjálfari Galatsaray sem
er í 2. sæti tyrknesku deildarinnar
og segist hann vilja enda feril sinn
þar. „Skemmtilegast væri þó að
liðið yrði meistari undir minni
stjórn," sagði Derwall. Hann sagð-
ist aðspurður ekki hafa áhuga á
að þjálfa í Bundesligunni.
í kvöld
TVEIR leikir verða í körfunni í
kvöld. Fram leikur við KR f Haga-
skóla klukkan 20 í úrvalsdeildinni
og KR tekur síðan á móti UMFN
á sama stað klukkan 21.30 í 1.
deild kvenna.
Morgunblaðið/Júlíus
• Egill Jóhannesson skorar hér eitt marka sinna í leiknum gegn UBK í gær. Til varnar er Sigþór Jóhann-
esson. Egill lék nú með að nýju eftir meiðsli og stóð sig vel.
Stálheppnir Blikar
logðu Framara
Clarke er 26 ára sóknarmaður
og bróðir Allan Clarke sem lék með
Leeds hér á árum áður. Það meki-
lega við þessi kaup er að Birming-
ham fær ekki nema 150.000 pund.
Hinn helmingurinn af kaupverðinu
rennur til Wolves en þegar Clarke
var seldur þaðan árið 1984 var
samið um að félagið fengi 50%
söluverösins ef hann yrði seldur
frá Birmingham.
Raddir eru uppi um að Mo Jo-
hnston muni ganga frá samningum
við ítalska félagið Roma um helg-
ina og kaupverðið só 400.000
pund. Ekki er þó enn búið að stað-
festa þetta en líklegt er að hann
fari til Ítalíu og líti á aðstæður.
BREIÐABLIKSMENN hljóta að
vera dómurunum Þorsteini Ein-
arssyni og Þórði Sigurðsyni
æfinlega þakklátir fyrir dómgæsl-
una i leik þeirra við Fram í
gærkvöldi. Þeir fóru á kostum og
hreinlega gáfu Blikunum bæði
stigin í leiknum með mjög slakri
dómgæslu og í sfðari hálfleik var
hún UBK mjög í hag.
Það voru fleiri sem fóru á kost-
um í síðari hálfleik því Guðmundur
Hrafnkelsson markvörður Kópa-
vogsbúa varði þá mjög vel og á
mikilvægum augnabllkum og átti
hann ekki minni hlut en dómararn-
ir í sigrinum.
Leikurinn fór annars rólega af
stað og Framarar höfðu forystu
allan fyrri hálfleikinn, mest fimm
mörk, en í síðari hálfleik jöfnuðu
Blikar fljótlega en góður kafli hjá
Fram kom þeim aftur þremur
mörkum yfir.
Síðari hluti síðari hálfleiks var
hrein martröð fyrir Fram. Hvað
eftir annað dæmdu dómararnir
heimamönnum vítaköst að því er
virtist af ástæðulausu á sama tíma
og eins brot hinum megin voru
ekki þess virði að flauta á þau.
Merkilegt að Framar skyldu þó
geta einbeitt sér að leiknum því
Leikurinn
ítölum
Digranesi 5. mars. 1. deildin í handbolta.
UBK - Fram 29:27 (11:15)
1:0, 1:3, 3:4, 5:5, 5:8, 9:10, 10:11, 10:15,
11:15, 15:16, 17:17, 17:20, 22:22, 25:24,
28:26, 28:27, 29:27.
MÖRK UBK: Jón Þórir Jónsson 11/8,
Þórður Davíðsson 5, Aðalsteinn Jónsson
3, Svafar Magnússon 3, Björn Jónsson
3/1, Ólafur Björnsson 2, Kristján Halldórs-
son 2.
MÖRK FRAM: Birgir Sigurðsson 6, Her-
mann Björnsson 5, Egill Jóhannesson 4,
Agnar Sigurðsson 4/2, Ragnar Hilmars-
son 3, Per Skaarup 3, Julius Gunnarsson
1, Tryggvi Tryggvason 1.
fæstir hefðu tekið þessu mótlæti
með slíku jafnaðargeði.
Einu sinni sauð þó uppúr hjá
þeim. Er staðan var 28:27 fengu
þeir vítakast og var Agnar Sigurðs-
son tilbúinn að taka það en þá
flautar dómarinn töf á hann. Undir-
ritaður heyrði ekki í flautunni og
greinilega fæstir leikmenn en Blik-
ar brunuðu upp í hraðaupphlaup
og skoruðu síðasta mark leiksins.
Blikar voru slakir í þessum leik
og þá sérstaklega í fyrri hálfleiK
Einstaklingsframtakið var látio
ráða í sókninni og vörnin var ein-
beitingarlaus. í síðari hálfeik
breyttist liðið mikið til hins betra.
Jón Þórir skoraði mikið úr vítum
en alls fengu Blikar 11 vítaköst á
móti þremur sem Fram fékk. Jón
Þórir mátti ekki gera sig líklegan
til að reyna að fara inn úr horninu
því þá flautuðu dómararnir og
dæmdu víti, sem hann skoraði
síðan úr. Þórður Davíðsson lék
einnig vel þegar hann kom inná í
síðari hálfleik og svo auðvitað
Guðmundur Hrafkelsson.
Hjá Fram stóðu flestir sig
þokkalega. Birgir á línunni, Egill
fyrir utan og Hermann í horninu.
Vörn þeirra varði mörg skot frá
sóknarmönnum Blika og undir
venjulegum kringumstæðum
hefðu þeir hlotið laun erfiðis síns,
en það voru engar venjulegar að-
stæður í gærkvöldi. -SUS
Liðum fjölgað
í Litlu
bikarkeppninni
FIMM lið hafa til þessa tekið
þátt i Litlu bikarkeppninni í knatt-
spyrnu, en nú hefur verið ákveðið
að fjölga þeim f átta og breyta
keppnisfyrirkomulaginu.
Mörgum finnst þessi keppni
hafa verið afar litlaus, þó í henni
hafi verið allt að fjögur 1. deildar-
lið í senn, en ÍA, UBK, FH, Haukar
og ÍBK hafa tekið þátt. Því hefur
þremur liðum verið bætt við, Víði,
Selfossi og Stjörnunni.
Keppnisfyrirkomulagið verður
einnig annað. Liðunum er raðað í
tvo riðla eftir lokastöðu síðasta
íslandsmóts. Þannig leika að
þessu sinni saman í riðli ÍA, Víðir,
UBK og Stjarnan annars vegar og
ÍBK, FH, Selfoss og Haukar hins
vegar. í riðiunum leika allir við alla,
en síðan verður leikið um sæti,
efstu liðin í hvorum riðli leika um
1. sætið, næst efstu um 3. sætið
og svo framvegis.
Litla bikarkeppnin hefst um
miðjan apríl og úrslitaleikurinn
verður 9. maí, en mótanefnd skip-
uð fulltrúum ÍBK, UBK og FH sér
alla framkvæmd keppninnar
um
og raðar niður leikjum.
J.G.
sjma
HÓNUSIA
GREIÐ SLUKORTAÞ J ÓNU STA
ÍSLENSKRA GETRAUNA
Hér eru leikirnir!
Leikir 7. mars 1987 K
1 X 2
1 Charlton - West Ham 2 Chelsea-Arsenal 3 Coventry - She’f. Wed.
4 Liverpool - Luton 5 Man. Utd. - Man. City 6 Newcastle - Aston Villa
7 Norwich - Wimbledon 8 Tottenham - Q.P.R. 9 Birmingham - Sunderland
10 Brighton - Derby 11 Stoke - Ipswich 12. W.B.A. - Portsmouth
Hringdu straxí
688-322
föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardaga kl. 9.00-13.30