Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Fasteignaverð: íbúðir í fjölbýlishúsum í Reykjavík. um verðsprengingu yrði að ræða. Þeir, sem lánin fengju, yrðu leiksoppar örlaganna. Þeir mundu kaupa íbúðir á upp- sprengdu verði og steypa sér í miklar skuldir vegna íbúða, sem síðar myndu lækka í verði. 2) Ef allir, sem vilja byggja, fengju til þess fullnægjandi lán í hvelli yrði mikil eftirspumaralda á byggingarmarkaði. Iðnaðarmenn yrðu mjög eftir- sóttir. Byggingarkostnaður mundi ijúka upp. Þeir, sem lánin fengju, yrðu þannig leiksoppar örlaganna og byggingarkostnaður þeirra miklu hærri en ella. Verst mundi þetta leika þá, sem úr minnstu hafa að spila. Byggingaraldan mundi síðan snarfalla og byggingariðnaðar- menn standa atvinnulausir eftir uppsveifluna. Málflutningur alþýðuflokksmanna Upphlaup alþýðuflokksmanna í húsnæðismálum virðist allt byggt á röngum forsendum og þar af leið- andi röngum útreikningum. Kröfumar, sem síðan em reistar á þessum ranga gmnni, em síðan vanhugsaðar og beinlínis skaðlegar, því þær ganga þvert á hagsmuni þeirra, sem þurfa að útvega sér húsnæði. Þær virðast reistar til þess að skapa flokknum aðstöðu í kosning- unum og þá i þeirri von og trú að enginn hugsi málið til enda. Þær lýsa þannig vantrú á kjós- endur. Allt stangast á: 1) Gerð er atlaga að þesta hús- næðislánakerfi, sem íslendingar hafa búið við. Húsnæðislána- kerfi, sem alþýðuflokksmenn hafa sjálfir nýverið samþykkt á Alþingi. Nú búa íslendingar í fyrsta skipti við húsnæðislánakerfi, sem sambærilegt er við það, sem er í löndunum í kringum okkar. 2) Kvartað er undan að húsnæðis- lánakerfið hafi valdið spreng- ingu á fasteignamarkaði og síðan krafist gífurlegra fjár- muna til íbúðarkaupalána, sem myndu óhjákvæmilega auka eft- irspum gífurlega og valda verðsprengingu. 3) Enginn greinarmunur er gerður á eðli umsókna um lán frá því sem áður var. Forsendur og út- reikningar verða því hvom tveggja rangar. 4) Á sama tíma og flestum er ljós nauðsyn þess, að ríkisvaldið hryndi ekki af stað eftirspumar- öldum, raski jafnvægi á markaði og vekji verðbólgu á ný krefjast alþýðuflokksmenn að sett sé af stað gengdarlaus eftirspumar- alda eftir íbúðum. Athyglisvert er og nokkurt um- hugsunarefni, að þessar sundur- leitu, röngu og vanhugsuðu kröfur em settar fram af lista, sem nýtur forystu helsta efnahagssérfræðings Alþýðuflokksins, fyrrverandi for- stjóra tjóðhagsstoftiunar. Það vekur óneitanlega ýmsar hugsanir. Þvi miður virðist kosningabar- átta Alþýðuflokksins allt of oft einkennast af slíkum vanhugsuðum og skaðlegum upphlaupum og útaf- spörkum. Tilgangurinn helgar meðalið að því er virðist. Auðvitað er þetta húsnæðislána- kerfi ekki fullkomið. Félagsmála- ráðherra lætur nú vinna að ýmsum endurbótum á því. Nauðsynlegt er, að sem flestir setji sig inn í gang mála og láti ekki berast af leið í múgæsingum þeirra, sem sjá það eitt markmið að valda óánægju. Ekki á þetta síst við um frétta- menn. Höfundur er verkfræðingur og efsti maður álista Framsóknar- flokksins í Reykjavík. _________________________17 Óttar Páls- son plötu snúður ársins NÝLOKIÐ er diskótekarakeppni sem staðið hefur yfir frá því í janúar. Var keppt í öllum sex félagsmiðstöðvum í Reykjavík ásamt félagsmiðstöðvum í Kópa- vogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Eftir forkeppni og undanúrslit komust fjórir áfram á úrslitakvöld diskótekarakeppninnar sem fór fram í nýju diskóteki félagsmið- stöðvarinnar Frostaskjóls; Hilmar Ámason Æskó Hafnarfirði, Grétar I. Gunnarsson Þróttheimum, Kristj- án Ásgeirsson Tónabæ og Óttar Pálsson Þróttheimum. Dómnefndin var skipuð þeim Vil- hjálmi Ástráðssyni framkvæmda- stjóra veitingahússins Evrópu, Jóni Gústafssyni frá Bylgjunni og Stöð og Magnúsi Þór Sveinssyni frá skemmtistaðnum Hollywood. Sigurvegari var Óttar Pálsson og afhenti heiðursgestur kvöldsins, plötusnúður ársins 1986, Hlynur S. Jakobsson honum titilinn og glæsileg verðlaun frá Japis; „4-rása power diskómixer". Að áuki fengu allir blóm og plötuverðlaun frá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. (Fréttatilkynning) TOYOTA Hl ACE 4x4, 8 manna með „de luxe“ innrétt- ingu, vökvastýri, 5 gíra beinskiptur, 2.4 lítra dísil- vél .. . sjón er sögu ríkari! AKUREYRI AKUREYRI AKUREYRI Við erum á leiðinni tH þínmeð Toyotatröllin! Um helgina geturðu tekið í Toyotatröllin og spurt okkur spjörunum úr. Við rennum í hlað kl. 10.00 á laugardag og dveljum í Bílasolonni Stórholt til kl. 17.00. Á sunnudag byi'jum við aftur í sólskinsskapi kl. 13.00 en leggjum í hann kl. 17.00. Við vonumst til að sjá ykkur í góðu bílaskapi! TOYOTA LAND CRUISER II, beinskiptur 5 gira, vökva- og veltistýri, 2.4 lítra bensínvél eða dísil turbo, breið dekk, driflokur... TOYOTA LAND CRUISER STW. „torfærutröllið" með 100% læsingu á drifum, 4 lítra, 6 strokka dísil turbo, 5 gíra beinskiptur... TOYOTA AUK hl. 109.5/SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.