Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 33 AKUREYRI Ferðamannastraumur til Akureyrar; Veruleg aukning „ÞAÐ hefur orðið veruleg aukn- ing- frá því í fyrra og mér sýnist stefna í að hún verði enn meiri seinni hluta vetrar,“ sagði Gísli Jónsson, forstjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar, er Morgunblaðið spurði hann um ferðamanna- straum til Akureyar í vetur, sérstaklega með tilliti til svokall- aðra pakkaferða. Gísli sagði að aðalferðamanna- straumurinn hingað norður yfir veturinn væri í mars, apríl og maí. Þar spiluðu skíðaferðir mikið inn í og nú væri til dæmis stórbætt að- staða í Hlíðarfjalli frá því sem verið hefur með tilkomu nýrrar lyftu. „Leikfélagið sýnir svo Kabarett, það verður örugglega vinsælt, og hér eru mjög góð hótel. Nú í vikunni verður sýnd á Stöð 2 mynd um Akureyri, sem ferðamannabæ að vetri, og við- vonumst til að það hafi áhrif á að fólk sæki okur enn frekar heim — flykkist hingað norður!" sagði Gísli. Gísli sagði að „stórkostleg aukn- ing“ hefði orðið á ferðum höfuð- borgarbúa norður á vetuma undanfarin ár. „Áður var það þannig að Akureyringar fóru suður en við fengum ekkert í staðinn." Hins vegar yrði nú erfiðara og erfíðara að fá hótelpláss í Reykjavík fyrir farþega að norðan. Svo mikið væru um Norð- urlandabúa í helgarferðum syðra. Á hótelunum á Akureyri hefur aðsókn verið góð í vetur og lítur vel út með pantanir fyrir sumarið að sögn forráðamanna þeirra. 62 sóttu um 11 íbúðir: „Langmesta sem ég man“ — segir Hákon Hákonarson formað- ur stjórnar verkamannabústaða SEXTÍU og tvær umsóknir bár- ust um ellefu íbúðir sem stjórn verkamannabústaða á Akureyri auglýsti til sölu en umsóknar- frestur rann út um mánaðamót- in. Aldrei hafa borist jafn margar umsóknir og nú. „Við auglýstum 12 íbúðir í byrjun desember. Þá sóttu 43 um og okkur þótti það mjög mikið þannig að við bjuggumst við að umsóknimar yrðu eitthvað færri nú. Svo fór þó ekki. Þetta er það langmesta sem ég man eftir síðan ég fór að skipta mér af þessum málum,“ sagði Hákon Há- konarson, formaður stjómar verka- mannabústaða, í samtali við Morgunblaðið. Skilyrði fyrir því að menn geti sótt urh íbúð hjá verkamannabú- stöðum er sú að þeir eigi lögheimili á Akureyri, heimilistekjur hafi ekki farið yflr 1280 þúsund krónur síðustu þijú árin og að þeir eigi ekki fullnægjandi húsnæði. Um ástæðu fyrir þessari miklu eftir- spurn sagði Hákon: „fyrir það fyrsta eru vextir lægri hjá okkur — 1% á móti 3% minnst hjá Bygging- arsjóði ríkisins. Þá er lánshlutfallið 85% hjá okkur á móti 70% á al- mennum markaði þannig að það er eðlilegt að þeir sem em að leita sér að húsnæði skoði þetta." Verkamannabústaðir hafa nú keypt tuttugu og þrjár íbúðir sem verða tilbúnar í lok þessa árs og byrjun þess næsta og verða þær auglýstar til umsóknar strax og þeim ellefu fyrmefndu hefur verið úthlutað. Nýju íbúðimar tuttugu og þrjár em í tveimur blokkum, önnur er Múlasíða 5 en hin Melasíða 5. Eftirspurn er miklu meiri en fram- boðið en Hákon sagði verkamanna- bústaði ekki geta keypt meira á þessu ári — kaupgeta þeirra mark- aðist af framlagi Byggingasjóðs verkamanna og framlagi Akur- eyrarbæjar. Velta Kaupfélags Eyfirð- inga jókst um 23,3% árið 1986 Heildarvelta Kaupfélags Ey- firðinga í aðalrekstri á árinu 1986 var rúmlega 4,6 milljarðar króna (4.607,7 milljónir) og jókst frá fyra ári um 23,3%. Launa- greiðslur kaupfélagsins í aðal- rekstri voru á árinu 1986 592,1 milljón króna og jukust um 34,12% frá fyrra ári, að launa- tengdum gjöldum meðtöldum. Þetta kom fram á Félagsráðs- fundi KEA sem haldinn var í fyrradag. Í skýrslu sem lögð var fram á fé- lagsráðsfundinum kom fram að veltuaukningin var mjög misjöfn eftir rekstrarsviðum en yfirleitt var hún með eðlilegu móti. Nokkrir þættir urðu til þess að draga heild- arveltuna niður, má þar nefna olíuverðslækkun, minnkandi véla- sölu vegna samdráttar í landbúnaði, svo og minnkandi áburðarsölu. Minnkandi hráefni til Fiskvinnslu- stöðvarinnar í Hrísey dró niður veltuaukningu í sjvarútvegi, svo og lágt gengi á bandarískum dollara. „Að öllu þessu athuguðu má segja, að veltuaukning félagsins hafí verið með eðlilegu móti,“ segir í skýrsl- unni. Birgðaaukning Vörubirgðir KEA í verslun, iðn- aði og þjónustu, sjávarútvegi og landbúnaðarafurðum voru í árslok 1986 1.022,1 milljón króna og höfðu aukist um 21,4% frá árslok- um 1985. Hér er um óafskrifaðar birgðir að ræða. í skýrslunni segir: „fiskbirgðir lækkuðu beinlínis um nærfellt 40 milljónir króna vegna hraðra afskipana á freðfiski og salt- físki, svo og vegna sölu á verulegum hluta skreiðarbirgða. Birgðir í versl- unarstarfsemi jukust í takt við verðbólguna, birgðir í iðnaði og þjónustu lækkuðu nokkuð, en birgð- ir landbúnaðarafurða jukust um 43,6%, úr 359,7 milljónum króna í 516,4 milljónir." Á árinu tók Mjólkursamlag KEA á móti 1.759.518 lítrum mjólkur frá 250 mjólkurframleiðendum. Nokk- ur minnkun varð á árinu, eða um 2,99%. Meðalfita mjólkurinnar hækkaði milli ára, úr 3,97% í 4,00%. Mjólkurflutningar gengu vel á ár- inu, ekin vegalengd var 277.509 kílómetrar, sem er heldur minna en árið áður. Á hvem kílómetra vom fluttir 78,4 lítrar sem er um hálfum lítra meira en 1985. 99,52 allrar mjólkur í fyrsta flokk „Flokkun mjólkurinnar var áfram mjög góð og framleiðendum til mik- ils sórna," segir í skýrslunni. í 1. flokk fóm 99,52 %. 103.956 lítrar fóm í 2. og 3. flokk, þar af 13 þúsund lítrar í 3. flokk eða 0,06%. 1985 fóm 99,17% í 1. flokk þannig að milli ára batnaði flokkunin enn. Meðalgmndvallarverð fyrir framleiðslusvæði Mjólkursamlags KEA á árinu 1986 var 25,12 kr. á lítra en árið áður kr. 20,71 og hef- ur því hækkað um 21,29% á milli ári. Þess má og get.a að birgðabreyt- ingar í Mjólkursamlaginu vom þær helstar að í árslok 1986 höfðu smjör/smjörvabirgðir lækkað um u.þ.b. 36 tonn. Sala á smjörva er nú orðin svipuð og á smjöri eða 50-55 tonn á mánuði. Því hefur verið fluttur rjómi frá Húsavík, Sauðárkróki og Blönduósi til að fullnægja eftirspum. Ostabirgðir hafa vemlega aukist. Þær vom að verðmæti rúmlega 165 milljónir króna um síðustu áramót, á móti u.þ.b. 103 milljónum áramót- in þar á undan. Birgðaþunginn hefur því aukist um 60% — um 62 milljónir króna. Grunnskólalögin: Skólamenn vilja góð- an tíma til umsagnar Skólastjórar og kennarar á Norðurlandi eystra samþykktu á fundi í Þelamerkurskóia nýlega að beina þeim eindrægnu tilmæl- um til menntamálaráðuneytis að nýsamið frumvarp til laga um grunnskóla yrði rækilega kynnt starfsmönnum skólanna, sveitar- stjórnarmönnum og almenningi áður en það kemur til kasta al- þingis. A fundinum var einnig samþykkt að beina þeim tilmælum tii ráðu- neytis að frestur til að skila umsögnum og athugasemdum við frumvarpið yrði lengdur verulega, helst til næsta skólaárs, svo að mönnum gæfist ráðrúm til að ræða málið, mynda sér skoðanir um það og setja þær fram áður en Alþingi afgreiðir ný grunnskólalög þar sem hér er um að ræða starfsgrundvöll kennara og nemenda um langa framtíð. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ljubojevic þungt hugsi andspænis Gylfa Þórhallssyni, formanni Skákfélags Akureyrar, en hann var einn þeirra sem gerði jafntefli við stórmeistarann. Fyrir aftan Gylfa má sjá Tómas Inga Olrich, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu við næstu alþingiskosningar, og á myndinni er einnig Sigbjörn Gunnarsson, sem er númer tvö á lista Alþýðuflokksins. Fjölteflið í Lóni: Þrír lögðu Ljubojevic FJÖLTEFLIÐ við júgoslavn- eska stórmeistarann Ljubomir Ljubojevic í Lóni í fyrrakvöld var mjög vel heppnað. Teflt var á 40 borðum. Júgoslavinn vann 33 skákir, gerði 4 jafntefli og tapaði 3 skákum. Þeir sem náðu að vinna kapp- ann voru Rúnar Berg, Smári Ólafsson og Jón Björgvinsson. Þeir Rúnar og Smári eru báðir rúmlega tvítugir að aldri, en Jón hefur verið lengi í eldlínunni hjá Skákfélagi Akureyrar og er fyrr- um Akureyrarmeistari. Sigurskák Rúnars Berg þótti mjög glæsileg - hann fórnaði hrók í lokin og vann með svokölluðu „glans- partýi". Eins og áður sagði náðu fjórir jafntefli, það voru Bogi Páls- son, sem er aðeins 15 ára, Amar Þorsteinsson, Hjörleifur Halldórs- son og Gylfi Þórhallsson, formað- ur Skákfélags Akureyrar. Að sögn Margir ungír skákmenn mættu júgoslavneska stórmeistaranum. Hér sést hann andspænis tveimur þeirra. Lengst til vinstri er Jón Björgvinsson, einn þeirra sem náði að vinna Ljubojevic. Gylfa tókst fjölteflið mjög vel, Ljubojevic var vandvirkur og gaf sér góðan tíma, enda var fjölteflið óvenju langt. Það hófst klukkan átta á miðvikudagskvöldið og lauk ekki fyrr en klukkan hálf þrjú aðfaramótt fimmtudagsins. Stóð því í sex og hálfa klukkustund. FÖSTUDAGUR 6. mars §18.00. Á heimleió. Bandarísk bíó- mynd með T elly Savalas og Michael Constantine í aðalhlut- verkum. Pete Panakos (Savalas) hefur eytt 35 árum í að öngla saman fyrir ferð til heimabæjar sins í Grikklandi. Þessi langþráði draumurverðurað veruleika en þorpsbúar eru ekki mjög hrifnir af bandariskum lífsmáta hans. 19.30. Hardy gengiö. Teiknimynd. 19.55. Um víða veröld. Fréttaskýr- ingaþáttur i umsjón Þóris Guömundssonar. §20.20. Sigri fagnaö (ATimeTo Triumph). Sjónvarpsmynd frá CBS ergreinirfrá óvæntum atvikum í lífi hjóna nokkurra. Eiginkonan gerist atvinnuhermaður til að sjá fjölskyldunni farboröa, en eigin- maðurinn er eftir heima og annast börn og buru. §22.00. Benny Hill. Breskurgaman- þáttur. §22.30. Alaskagull (North To Al- aska). Bandarískur vestri með John Wayne og Stewart Granger íaðalhlutverkum. Myndin gerist i Alaska í kringum f 890. Tveir gull- grafarar hafa heppnina með sér og hyggjast njóta afrakstursins. En ókunnur maður birtist á sjónar- sviðinu og dregur þá til tíöinda. §00.30. Blóðbaðið i Chicago 1929 (St. Valentine's Day Massacre). Bandarísk kvikmynd frá 1967 með Jason Robards, George Segal og Ralph Meeker í aöalhlutverkum. Á bannárunum í kringum 1930 réði mafían ríkjum í undirheimum Chicago. Glæpaflokkar, með Al Capone og Bugs Moran i farar- broddi, skiptu borginni (tvö umráðasvæði. Sifelld innbyrðis átök flokkanna náðu hámarki í blóðbaðinu mikla þ. 14. febrúar 1929. Bönnuð börnum. 02.10. Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.