Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Knattspyrna: Rummenigge- bræðurnir með Bayern Miinchen? Frá Jóhanni Inga Qunnarsayni í Veatur-Þýskalandi. SVO gæti farið að bræöurnir, Karl-Heinz og Michael Rummen- igge, leiki saman með Bayern Munchen á nœsta keppnistímbili. Karl Heinz leikur nú með Inter Milan á Ítalíu og er talið að ef liðið endurnýji ekki samning sinn komi hann aftur til Bayern. Karl-Heinz Rummenigge hefur átt við meiðsli að stríða í vetur og ekki getað leikið mikið með Inter af þeim sökum. Hann lék ekki með liðinu í Evrópukeppninni í fyrra- kvöld af sömu ástæðu. Bayern fékk á sínum tíma 10 milljónir marka fyrir kappann. Ef hann kæmi aftur til Bayern þyrftu þeir aðeins að greiða Inter 2 miljónir svissne- skra franka. „Á sínum tíma var hann stjarna hjá Bayern. Nú hefur Augenthaler, Lothar Matteus og Reinhold Mat- hy tekið við leikstjórninni. Karl- Heinz Rummenigge er velkominn aftur ef hann sættir sig við þessar staðreyndir," sagði Udo Lattek, þjálfari Bayern Munchen. Yngri bróðirinn, Michael Rumm- enigge, hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem við hann voru gerðar hjá Bayern. Hann berst nú fyrir því að fá samning sinn endurnýjaðann. Hann skoraöi fyrsta mark Bayern gegn And- erlecht í fyrrakvöld og gæti það hjálpað honum við endurnýjun samningsins. Stóra spurningin er því sú hvort einn, tveir eða einginn Rummen- igge spilar með Bayern Munchen á næsta keppnistímabili. Handknattleikur: Deildarkeppni unglinga um helgina Á morgun, laugardag, hefst 3. umferðin í deildarkeppni ungl- inga í handknattleik. Keppt verður i 2. og 4. flokki karla og 4. flokki kvenna. Leikið verður á eftirtöldum stöðum: KR-heimilið 2. flokkur karla, 1. deild: Vikingur, Stjarnan, KR, FH og Grótta. Keppnin hefst kl. 13. 00 á laugardag og heldur áfram kl. 10.00 á sunnudag. fþróttahúsið að Varmá 2. deild karla, 2. deild: HK, Selfoss, UMFA, ÍBV og IBK. Keppnin hefst kl. 12.00 á laugardag og heldur áfram kl. 10.00 á sunnudag. íþróttahúsið i Njarðvfk 2. flokkur karla, 3. deild: Fram, Valur, ÍR, Fylkir og UMFN. Keppnin hefst kl. 13.00 á laugardag og heldur áfram kl. 13.00 á sunnudag. Róttarholtskóli 4. flokkur karla, 2. deild: Þróttur, Fylkir, KR, Víkingur, Selfoss og Þór. Keppnin hefst kl. 13.00 á laugardag og heldur áfram kl. 09.00 á sunnudag. íþróttahúsið ( Hveragerðl 4. flokkur karla, 4. deild: Skallagrímur, l'BK, UMFN, Grótta, Ármann og UFHÖ. Keppnin hest kl. 10.20 á laugardag og heldur áfram kl. 09.00 á sunnudag. Áfftamýraskóli 4. flokkur kvenna, 1. deild: Selfoss, Fram, UMFG, UMFN, Grótta og ÍBK. Keppnin hefst kl. 13.00 á laugardag og heldur áfram kl. 09.00 á sunnudag. Ásgarður Garðabœ 4. flokkur kvenna, 2. deild: KR, Viking- ur, UBK, Fylkir, Reynir og Stjarnan. Keppnin hefst kl. 20.30 i kvöld og held- ur áfram kl 13.00 á laugardag og sunnudag. Vogaskóli 4. flokkur kvenna, 3. deild: FH, UFHÖ, Ármann, HK, UMFA. Keppnin hefst kl. 13.00 á laugardag og heldur áfram kl. 09.00 á sunndag. Knattspyrna: Berthold til Verona VESTUR-ÞÝSKI landsliðsmaður- inn í knattspyrnu, Thomas Berthold, mun að öllum líkindum leika með Verona á Ítalíu næsta keppnistímabil. „Það er meira en 99 % öruggt að Berthold leiki með Verona. Við höfum þegar komið okkur saman um kaupverðið," sagði Gunther Berthold, faðirThomasar. En hann er umboðsmaður hans. Thomas Berthold er 22 ára og leikur með Frankfurt og var einn besti leikmaður vestur-þýska landsliðsins í úrslitakeppni HM í Mexíkó í fyrra. Hann er bakvörður en getur einnig leikið á miðjunni. Ekki vildu þeir feðgar gefa upp kaupverðið en blöð í Þýskalandi segja að hann verði keyptur á 2,4 milljónir marka eða um 50 milljón- ir íslenskar krónur. IMBA ÚRSLIT í NBA-deildinni í körfu- knattleik sem fram fóru í Banda- ríkjunum í fyrrakvöld: Boston Ceitics — Utah Jazz 123:105 Buliets —NewJersey Nets 117:114 New York Knicks — Philadelphia 102:99 Chicago Bulls — Detroit Pistons 125:120 Milwaukee Bucks — Clippers 110:100 Dallas Mavericks — Denver 115:107 L A. Lakers — Seattle 138:124 Houston — Sacramento Kings 108:102 • Klaus Fischer, fyrrum lands- liðsmaður Vestur-Þýskalands, hefur tekið frá skóna að nýju og leikur með Bochum. Ficher tekur fram skóna KLAUS Fischer, fyrrum landsliðs- maður Vestur-Þýskalands, hefur tekið fram skóna að nýju. Hann er 37 ára og lék með Bochum i' fyrra og hafði endanlega lagt skóna á hilluna. Leikmönnum Bochum hefur ekki gengið vel að koma knettinum í net andstæðinganna í vetur og gripu því til þess ráðs að fá Ficher aftur. Ficher, sem leikið hefur 512 deildarleiki og skorað 69 mörk, tók vel í þessa málaleitan og er byrjað- ur að æfa. Hann fær að æfa eins og honum hentar og mun leika í fremstu víglínu. Búist við að hann leiki sinn fyrsta leik eftir hálfan mánuð. Símamyndir/Reuter • Franski hlauparinn Bruno Marie Rose er einn þeirra sem telur að frjálsíþróttir séu fyrst og fremst til að stunda utanhúss en hann kepp- ir samt innanhúss til þess að halda sér í æfingu. Hér kemur hann fyrstur f mark á nýju heims- meti í 200 metra hlaupi á Evrópumeistaramót- inu innanhúss. Hann ætlar að bæta tíma sinn á fyrsta heimsmeistaramótinu innanhúss sem hefst i dag. Á myndinni hér til hliðar fagnar Svfinn Patrick Sjöberg sigri f hástökki en hann hefur verið iðinn við kolann í vetur og ætlar sér stóra hluti um helgina. Frjálsar íþróttir: Falla mörg heims- met á fyrsta heims- meistaramótinu innanhúss? EKKI er ólfklegt að mörg heims- met f frjálsum íþróttum innan- húss falii f dag og um helgina þegar fyrsta heimsmeistaramó- tið innanhúss verður haldið f Indianapolis. Frjálsíþróttamenn í Evrópu taka nú í æ rfkari mæli þátt f innanhússmótum og þá eru stóru stjörnurnar taldar með en þær hafa hingað til ekki verið of hrifnar að taka þátt f innanhúss- mótum. Ein af ástæðunum telja fróðir menn vera að heimsmet fengust ekki skráð innanhúss og því að litlu að keppa. Um áramót- in var þessu breytt og nú geta menn sett heimsmet í stað þess að ná „besta árangri ársins inn- anhúss“ eins og það hét áður. Hinn aukni áhugi kom berlega í Ijós á Evrópumeistaramótinu sem haldin var í Lievin í Frakklandi í febrúar. Þar mættu flestir þeir bestu í Evrópu og áhorfendur létu sig ekki heldur vanta því meðal- talsaðsókn var um 3.500 áhorf- endur á dag. Þó svo margir Evrópubúar hafi verið á móti innanhússmótum, ta- lið þau eitthvað ómerkilegri en mót sem haldin eru á sumrin utanhúss, eru nokkrir sem leggja mesta áherslu á innanhússmótin. Þeirra á meðal er hollenski spretthlaupar- inn Nelli Cooman-Fiere en hann á heimsmetið, 7.00 sekúndur, í 60 metra hlaupi. „Ég hugsa aðeins um innanhússmót. Ég hef engann áhuga á að keppa á heimsmeist- aramótinu í Róm í sumar." Þeir eru þó fleiri sem telja innan- hússmót tilvalin til að halda sér í æfingu yfir vetrarmánuðina. „Frjálsar íþróttir eru fyrst og fremst íþrótt til að stunda undir berum himni. Innanhússmótin eru góð til þess að halda sér í æf- ingu," segir franski spretthlaupar- inn Bruna Marie-Rose. Hástökkvarinn knái frá Svíþjóð, Patrick Sjöberg, telur innanhúss- og utanhússmótin jafn mikilvæg. Hann jafnaði á dögunum heims- met Sovétmannsins Igor Paklin í hástökki utanhúss með því að stökkva 2.41 metra innanhúss. Sjöberg segir mótin inni og úti jafna hvort annað upp og að hann komi sterkari í útimótin með því að keppa inni yfir vetrarmánuðina. En hvað sem menn segja um muninn á innimótum og útimótum er Ijóst að margir sem standa sig vel inni gengur miður þegar út er HERMANNSMÓTIÐ, Visa-bikar- mót SKÍ, fer fram f Hlíðarfjalli við Akureyri á morgun, laugardag, og á sunnudaginn. Keppni hefst kl. 10.30 báða dagana. Á morgun keppa konur í stórsvigi en karlar í svigi og öfugt á sunnudaginn. Allir bestu skíða- menn landsins verða á meðal komið. Gott dæmi um þetta er að inni er ekki keppt í 100 metra spretthlaupi heldur 60 metrum. Þeir sem hafa gott start og stutta fætur geta náð langt í 60 metrum en eiga síðan erfiðara uppdráttar síðustu 40 metrana þegar út er komið. Þetta á til dæmis við um Cooman-Fiere frá Hollandi en hún er mjög sterk í 60 metra spretti en síðan skjótast þær langleggj- uðu fram úr henni í 100 metrunum. Heike Drechsler, heimsmeistari í langstökki inni og úti, segist hafa gott og gaman af því að keppa á báðum vígstöðum. „Með því að vera að allt árið tekst manni að laga tæknina hjá sér og með au- kinni tækni éru meiri líkur á að mér takist að stökkva aðeins lengra og það veitir ekki af þegar hver milli- meter skiptir orðið máli. Auðvitað verð ég stundum þreytt á þessu öllu en ef ég tæki mér frí þá yrði svo erfitt að byrja aftur." keppenda. Lambagangan, sem er hluti ís- landsgöngunnar 1987, verður haldin á morgun og hefst keppni á Súlumýrum kl. 12.00. Auk tíma- tökunnar er fyrirhuguð hópferð undir leiðsögn frá Súlumýrum inn í Lamba. Gengið verður frá ösku- haugunum kl. 10.00. VlSA-bikarmót SKÍ: Hermannsmótið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.