Morgunblaðið - 06.03.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Frá hófinu sem haldið var í tilefni útskriftarinnar.
Sagastrðnd:
Sérhæft fiskvinnsluf ólk
hjá Rækjuvinnslunni hf.
Skagaströnd.
NÝLEGA var útskrifað sérhæft
fiskvinnslufólk, 20 starfsmenn
Rækjuvinnslunnar hf. á Skaga-
strönd.
Hafa þessir starfsmenn sótt 10
námskeið á undanfömum mánuð-
um auk starfsþjálfunar á vinnu-
stað. Markmið þessara námskeiða
er að bæta vinnubrögðin við vinnsl-
una og er því mikið lagt upp úr
gæðamálum þar sem aukin gæði
skapa meiri verðmæti sem skila
sér síðan í betri launakjörum.
í hófi sem haldið var í tilefni
af útskriftinni afhentu Vilhjálmur
Egilsson frá Vinnuveitendasam-
bandi íslands og Sævar Bjamason,
formaður Verkalýðsfélags Skaga-
strandar, fólkinu skírteini þess
efnis að það megi nota starfsheitið
sérhæfður fiskvinnslumaður.
- ÓB
Morgunblaðið/Ólafur
Hópurínn sem útskrifaðist, Vilhjálmur Egilsson fremst til vinstri og
Sævar Bjarnason til hægrí.
Morgunblaðið/Gísli
Hafsteinn Vilhjálmsson umboðssali á ísafirði við stæður af Sanitas-
gosdrykkjum sem hann býður nú á sama verði og í Reykjavík.
Gosdry kkj aver ð
lækkar á Isafirði
Ísafirði.
í NIÐURSTÖÐUM verðlagsstofnunar að undanförnu hefur komið í
Ijós að verðlag á gosdrykkjum er víða mjög hátt úti á landi. Ein af
ástæðum þess er að landsbyggðin hefur verið látin bera dreifingar-
^•kostnað gosdrykkjaverksmiðjanna í Reykjavík ofan á dreifingar-
kostnað heima fyrir.
Sumstaðar þar sem samkeppni
hefur ríkt t.d. á Akureyri hafa þó
sumar tegundii verið seldar á sama
verði og í Reykjavík. Nú hefur Sani-
tas hf. ákveðið að bjóða viðskipta-
vinum sínum á norðanverðum
Vestfjörðum sama verð og í
Reykjavík fyrir framleiðsluvörur
sínar, sem eru í einnota umbúðum.
Að sögn Hafsteins Vilhjálmsson-
ar umboðsmanns Sanitas á Isafirði
var kveikjan að þessum breytingum
sú, að Samband íslenskra sam-
vinnufélaga gerði samning við
Sanitas um að dreifa gosdrykkjun-
um út af lager sínum til kaupfélag-
vanna í landinu, en kaupfélögin njóta
þeirra sérkjara að þurfa ekki að
greiða flutningsgjöld af vörum frá
Sambandinu. Við þessar aðstæður
er hlutur kaupmannaverslananna
orðin svo afskiptur að þeir töldu sig
ekki geta við unað, og samþykkti
stjórn Kaupmannafélags Vestfjarða
á fundi sl. mánudag að beina þeim
tilmælum til félagsmanna sinna að
kaupa ekki vörur af Sanitas að
óbreyttu. Hafsteinn hafði þá þegar
hafið samningsviðræður við Sani-
tas, sem lyktaði með því að byijað
var að dreifa einnota umbúðum með
gosdrykkjum frá Sanitas á Isafirði
á sama verði og í Reykjavík sl.
þriðjudag. _ úlfar
ítaioachf
Steinar gefur út
þrjú „Eurovision-lög“
syngur lag Ólafs Hauks Símonar-
sonar „Sofðu vært“, en hún er
landsmönnum að góðu kunn fýrir
söng sinn með Spilverki þjóðanna
hér áður fýrr og óperusöng nú
seinni árin.
Það er ný hljómsveit sem flytur
lag Friðriks Karlssonar, Gunn-
laugs Briem og Birgir Bragasonar
„Lífíð er lag“. Það er hljómsveitin
Model sem er skipuð Eiríki Hauks-
syni (söngur), Friðriki Karlssyni
(gítar), Gunnlaugi Briem (tromm-
ur), Eddu Borg Ólafsdóttur
(híjómborð, söngur), Ernu Þórar-
insdóttur (söngur) og Evu Al-
bertsdóttur (söngur). Þessir sex
hljómlistarmenn hafa allir unnið
saman áður að hinum ýmsu verk-
efnum, en þetta er í fyrsta sinn
sem þau starfa öll í einni og sömu
hljómsveitinni.
(Fréttatilkynning)
í TENGSLUM við Eurovision-
söngvakeppnina hefur hljóm-
plötuútgáfan Steinar hf. tryggt
sér öll réttindi á þremur af
þeim 10 lögum sem keppa til
úrslita hér heima þann 23.
mars næstkomandi. Þetta eru
lögin: „Norðurljós“ eftir Gunn-
ar Þórðarson við texta Ólafs
Hauks Símonarsonar, „Lífið er
lag“ eftir þá Friðrik Karlsson,
Gunnlaug Briem og Birgi
Bragason og „Sofðu vært“ eftir
Ólaf Hauk Símonarson.
Þessi þrjú lög verða öll gefin
út á litlum plötum strax að keppn-
inni aflokinni. Það er Eyjólfur
Kristjánsson sem syngur lag
Gunnars Þórðarsonar „Norður-
ljós“. Eyjólfur var söngvari Bítla-
vinafélagsins og er um þessar
mundir að syngja í uppfærslunni
„Allt vitlaust" á
Broadway.
Sigrún (Diddú) Hjálmtýsdóttir
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar |
Akranes — bæjarmálefni
Almennur fundur um bæjarmálefni veröur haldinn í sjálfstæðishúsinu
við Heiöargeröi mánudaginn 9. mars kl. 21.00. Bæjarfulltrúar flokks-
ins mæta á fundinn.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Reykjaneskjördæmi
Aðalfundur kjördœmisráðs Sjálfstœðis-
flokksins l Reykjaneskjördæmi verður
haldinn I Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1,
Kópavogi, laugardaginn 14. mars 1987 og
hefst kl. 9.00 fyrir hádegi.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breyting á lögum kjördæmisráðs.
3. Alþingiskosningarnar.
Frummælandi Matthías Á. Mathiesen,
utanríkisráðherra.
Stjórn kjördæmisráðs.
HFIMDALl.UR
Mannúð og
markaðsbúskapur
Fyrirhugað er að fara af stað með les- og umræðuhring á vegum
Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavik. Þar verða
tekin fyrir stefnuatriði Heimdallar og Sjálfstæðisflokksins og þau
reifuð. Fengnir verða í rabb ýmsir kunnáttumenn í stjórnmálum, einn-
ig verður stuðst við ákveðnar bækur um sjórnmál.
Hér er tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á því að ræða vítt og breitt
um frjálslyndar stjórnmálakenningar o.fl.
Áhugasamir geta skráð sig eða leitað upplýsinga hjé Sjálfstæðis-
flokknum í síma 91-82900 á skrifstofutíma fyrir þriðjudaginn 10.
mars nk.