Morgunblaðið - 06.03.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
3
Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli:
Milljón stein-
ar fara í planið
Hellulagningarvél léttir mönnum störf in
Keflavik.
Hellulagningarvél léttir nú
undir með mönnum sem þessa
dagana vinna við að leggja hell-
ur í kringum nýju flugstöðina á
Keflavíkurflugvelli. Vélin er
keypt hingað á kaupleigusamn-
Jarðbor-
anir bjóða
í verk
í Kenya
JARÐBORANIR hf. undirbúa nú
gerð tilboðs í borun 8 tilrauna-
hola í Kenya sem boraðar verða
til undirbúnings 60 megavatta
gufuaflsvirlgunar sem fyrir-
hugað er að reisa þar.
Að sögn Karls Ragnars forstjóra
Jarðborana, sem nýkominn er frá
Kenya, er þarna um að ræða lítinn
hluta þeirra tilraunahola sem fyrir-
hugað er að bora til undirbúnings
virkjunarinnar en þetta væri fyrsti
hluti útboðs á því verki. Karl sagði
að margir yrðu sjálfsagt um hituna
og vildi ekki spá um möguleika
Jarðborana á að fá verkefnið.
Karl sagði að fyrirtækið hefði
mikinn áhuga á að komast með sfn
tæki á erlendan markað, þar sem
hér á landi væri búið að útvega 80%
þjóðarinnar heitt vatn og því væri
fyrirsjáanlegur verkefnaskortur.
Kópavogur:
Tíu sækja
um starfs-
laun bæjar-
listamanns
TÍU listamenn sóttu um starfs-
laun til listamanna sem Lista-
og menningarráð Kópavogs
auglýsti. Umsóknarfrestur rann
út 1. mars.
Bæjarstjóm Kópavogs sam-
þykkti reglur um starfslaun til
listamanna í desember 1986, sem
heimila að veita laun fyrir 6 til
12 mánaða tímabil og miðast laun-
in við 8. þrep 139. launaflokks
samkvæmt kjarasamningi Banda-
lags háskólamanna. Listamenn
skuldbunda sig sig til þess að
gegna ekki fastlaunuðu starfi
meðan þeir njóta starfslauna. í lok
starfstímabilsins sem hefst 1. júní,
skal listamaðurinn gera grein fyr-
ir starfi sínu.
Kennarafélag VÍ:
Afstaða ekki
tekin enn
KENNARAR við Verzlunar-
skóla íslands hafa ekki enn
tekið afstöðu til þess hvort þeir
efni til atkvæðagreiðslu um
hugsanlega verkfallsboðun, þar
sem samningaviðræður standa
yfir við skólayfirvöld, að þv í
er Arni Hermannsson i stjórn
Kennarafélags VÍ sagði i gær.
ingi frá Vestur-Þýskalandi þar
sem hún er framleidd.
Tæki þetta er afar afkastamikið
og að sögn kunnáttumanns, sem
framleiðendur sendu hingað til að
kenna meðferð þess, er algengt
að lagðir lagðir séu 700 fermetrar
af hellum á dag. Þeir sem vinna
við að leggja steinhellurnar sögðu
að þeir hefðu ekki náð þessum
hraða og væru afköstin hjá þeim
um 200 fermetrar á dag.
Ekki mun mönnum af veita að
fá aðstoð við hellulögnina, því
ætlunin er að leggja á 20 þúsund
fermetra og fer um 1 milljón steina
á planið kringum flugstöðina.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Menn að störfum með hellulagningarvélina fyrir framan nýju flugstöðina. Hún leggur niður 40 steina
í einu og er býsna Ujót í ferðum.
Vjt
;\\>
fe Ö i’''J
Trésmíðaverkstæði geta nú sparað tíma
og fyrirhöfn við pantanir erlendis frá.
Við eigum nægar birgðir af ofnþurrkuð-
um viði, - á mjög hagstæðu verði!
Furu, eik, beyki, oregon pine, ask,
meranti, ramin, mahogny, tekk,
poplar, iroko, pitch pine, og m.fl.
■
Þarsemfagmennirnir
versla
erþéróhætt
BYKO
SKEMMUVEGI2
Kópavogi, timbur - stál-og plötuafgreiósla,
simar 41000, 43040 og 41849