Morgunblaðið - 06.03.1987, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
ÚTVARP/SJÓNVARP
í stigagangi
Stöku sinnum komast íslenskir
frétta- og blaðamenn nálægt
nafla heimsstjómmálanna. Minnis-
stæð er heimsókn Bjöms Bjamasonar
á heimili Sakharov-hjónanna er hann
lýsti hér í blaðinu síðastliðinn þriðju-
dag. Gefum Bimi orðið: Raunar var
það svo ótrúlegt að hafa átt þess
kost að hitta þau hjón í eigin persónu
að það gæti alveg eins gerst að við
fengjum tækifæri til að hitta þau
aftur. Hvergi var nokkra gæslu að
sjá við hús þeirra og við gengum
aftur út í Moskvukuldann með þá
vissu að það væri ekki tilviljun að
jafn auðvelt væri og raun bar vitni
að heimsækja þennan einstakling og
þessa einstaklinga sem gátu látið allt
sovéska kerfíð nötra fyrir aðeins fá-
einum mánuðum með þvi að láta
leyniboð berast frá Gorkí.
Já, svo sannarlega em stórkostleg-
ir atburðir að gerast á vettvangi
alþjóðastjómmálanna með komu
bóndasonarins Mikhail S. Gorbachev
og þar njótum við íslendingar sviðs-
ljóssins í krafti Reykjavíkurfundarins
og er ég raunar ekki frá því að ís-
land sé að umhverfast í hugum
manna í einskonar friðarhólma þar
sem leiðtogar stórveldanna munu á
næstunni innsigla sitt friðarband.
Gorbachev þarf á slíku friðarinnsigli
að halda þá hann bítur í skjaldarrend-
ur gegn stalinistunum og Reagan
getur ekki lengur bitið í skjaldarrend-
ur hins ameríska draums, hann á
allt sitt undir glæsilegum sigri á sviði
afvopnunar. Og þá er bara að vona
að friðarstofnunin hans Steingríms
rísi hér fljótlega og að þar verði veitt
Höfðaorðan er Friðrik Á. Brekkan
stakk upp á á dögunum.
Svo ég víki nú að ljósvakamiðlun-
um þá var Ámi Þórður Jónsson á
Bylgjunni einn þeirra íslensku frétta-
manna er um stund soguðust inní
hringiðu alþjóðastjómmálanna í
frægðarför Steingríms. Fannst mér
einkar áhrifaríkt að hlýða á hina
beinu lýsingu Áma: Við komum að
húsi þeirra Sakharov-hjóna fremur
óhrjálegu fjöíbýlishúsi... þau búa á
sjöttu eða sjöundu hæð ... gangamir
eru ótrúlega óhreinir og sambýlis-
fólkið í blokkinni hefur farið fram á
það við Yelenu Bonner að hún sjái
sjálf um að hirða stigaganginn en
hundmð manna fara þama um til að
hitta Sakharovhjónin. Sumir eru að
spyrja um horfna ættingja, aðrir vilja
fá Andrei til að skrifa bréf til stjóm-
valda í þeirri von að ættingjum eða
vinum í fangabúðum verði veitt
frelsi." Þegar ég hlýddi á Áma Þórð
þá fannst mér sem opnaðist nýr heim-
ur. Ég skynjaði þjáningu þessa fólks
er reikaði upp stigaganginn hjá Sak-
harov. Fyrir nokkrum mánuðum þorði
þetta fólk ekki að nálgast hús An-
drei það bar sinn harm í hljóði.
En Ámi Þórður heimsótti ekki
aðeins fyrrum óvin ríkisins númer
eitt, hann fór líka útá götur Moskvu-
borgar og ræddi við vegfarendur,
meðal annars tvær ungar stúlkur.
Og hvað finnst ykkur nú um umbóta-
stefnu Gorbachevs? Við erum alveg
sammála þessari stefnu, breytingam-
ar hefðu átt að gerast fyrir löngu.
Þá ræddi Ámi við fertugan karl-
mann: Fólk þagði hér áður fyrr og
enginn þorði að vera ósammála.
Vissulega taka breytingamar langan
tíma en þær munu vissulega eiga sér
stað. Þannig fengum við í verksmiðj-
unni nýlega að velja okkur nýjan
yflrmann. Áður skipaði flokkurinn
slíka menn. Svo mörg vom þau orð
vegfarendanna í Moskvuborg. Fyrir
nokkrum mánuðum hefði fólkið vikið
sér undan spumingum Áma Þórðar.
En nú heflr flokkurinn gefið grænt
ljós og þá opnast allar flóðgáttir.
Segiði svo að stjómvöld geti ekki
mótað hugsanagang og lífsmynstur
fólks. Á öllum tímum eru menn á
borð við Andrei Sakharov og Yelenu
Bonner er bjóða valdsmönnum byrg-
inn en ekki má heldur gleyma því að
á öllum tímum hafa blómstrað valds-
menn er hugsa um það eitt að halda
öllum taumum í höndum flokksins.
Ólafur M.
Jóhannesson
RÚV Sjónvarp
Fram í sviðsljósið
■i Á dagskrá ríkis-
40 sjónvarpsins í
“* kvöld er myndin
Fram í sviðsljósið, eða
„Being There“ eins og hún
heitir á frummálinu. Með
aðalhlutverk í myndinni
fara Peter Sellers og Shir-
ley MacLaine. Hal Ashby
leikstýrði, en handrit gerði
Jerzy Kosinski, sem einnig
samdi metsölubók með
sama nafni. Þess má geta
að hún kom út á íslensku
hjá Almenna bókafélaginu
fyrir nokkrum árum.
Myndin er eins konar
dæmisaga í gamansömum
stfl. Hún segir frá manni
nokkrum, Chance, sem
með einfeldingslegri hrein-
skilni sinni og hrekkleysi
setur menn úr jafnvægi á
jákvæðan hátt.
Chance er munaðarleys-
ingi og hefur enga fortíð,
sem heitið getur. Frá
bernsku hefur hann séð um
garð fyrir roskin mann,
sem alið hefur önn fyrir
honum allan tímann og
hefur Chance aldrei séð
heiminn nema í sjónvarpi.
Chance hefur aldrei gengið
í skóla og getur því hvorki
lesið né skrifað, en hann
hefur horft á sjónvarp
hveija stund.
Þegar gamli maðurinn fell-
ur frá er húsi hans lokað
og Chance verður að arka
út í heiminn. Hann hefur
þó ekki lengi furðað sig á
humheiminum, þegar á
hann er ekið af bifreið, sem
í er eiginkona aukýfingsins
Benjamin Rands, en hann
er einn valdamesti fjár-
málamaður Banda-
ríkjanna.
Chance er ekið til óðals-
seturs Rand-hjónanna og
fær þar nauðsynlega
umönnun. Hjónin og aðrir
töfrast af framkomu
Chance og sérstaklega
þykir þeim mikið koma til
líkingamáls hans þegar
hann talar um hvemig
rækta beri garðinn sinn líkt
og Birtíngur forðum. Ótrú-
legustu menn fara að taka
mark á honum og áður en
yfir lýkur er rætt um að
fá hann til forsetafram-
boðs.
Myndin tekur 126
mínútur í sýningu.
c
UTVARP
J
FÖSTUDAGUR
6. mars
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.
Jón Baldvin Halldórsson og
Jón Guðni Kristjánsson.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veöurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
Erlingur Sigurðarson talar
um daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03Morgunstund barnanna:
„Mamma í uppsveiflu" eftir
Ármann Kr. Einarsson.
Höfundur les (5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úrforustugreinum
dagblaöanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Sögusteinn
Umsjón: Haraldur Ingi Har-
aldsson. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn" sagan um Stefán
islandi.
Indriði G. Þorsteinsson
skráði. Sigríöur Schiöth les
(10).
14.30 Nýtt undir nálinni. Elín
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Lesið úr forustugreinum
landsmálablaöa.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Siðdegistónleikar.
a. „Karnival dýranna", fant-
asía eftir Camille Saint-
Saéns. Alfons og Aloys
Kontarsky leika á píanó og
Wolfgang Herzer á selló
með Fílharmoníusveitinni i
Vínarborg; Karl Böhm
stjórnar.
b. Les Préludes, sinfóniskt
Ijóð eftir Franz Liszt.
Fílharmoniusveit Berlinar
leikur; Herbert von Karajan
stjórnar.
17.40 Torgiö — Viðburðir
helgarinnar
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Erlingur Sigurö-
arson flytur.
19.40 Þingmál
Umsjón: Atli Rúnar Hall-
dórsson.
20.00 Lög unga fólksins.
Valtýr Björn Valtýsson kynn-
ir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Úr Mimisbrunni. Þáttur
islenskunema við Háskóla
íslands. Frá trú til tortíming-
ar. Um Ströndina eftir
Gunnar Gunnarsson.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
6. mars
18.00 Nilli Hólmgeirsson.
Sjötti þáttur. Þýskur teikni-
myndaflokkur gerður eftir
kunnri barnasögu eftir
Selmu Lagerlöf um ævin-
týraferð drenghnokka í
gæsahópi. Þýðandi: Jó-
hanna Þráinsdóttir.
18.25 Stundin okkar — Endur-
sýning. Endursýndur þáttur
frá 1. mars.
19.05 Á döfinni. Umsjón:
Anna Hinriksdóttir.
19.10 Þingsjá. Umsjón: Ólafur
Sigurðsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Spítalalíf (M*A*S*H).
23. þáttur. Bandarískur
gamanmyndaflokkur sem
gerist á neyðarsjúkrastöð
bandaríska hersins í Kór-
eustríðinu. Aöalhlutverk:
Alan Alda. Þýðandi: Krist-
mann Eiðsson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Unglingarnir í frumskóg-
inum. Efni: Frá Breiðóvision
'87, skíðaæfingar á Skála-
felli og rabb við faereyskar
stúlkur á íslandi. Umsjón:
Örn Þórðarson.
21.10 Mike Hammer. Sjötti
þáttur.
Bandariskur sakamála-
myndaflokkur gerður eftir
sögum Mickey Spillane um
einkaspæjarann Mike
Hammer. Aðalhlutverk:
Stacy Keach. Þýðandi: Stef-
án Jökulsson.
22.00 Kastljóst
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður: Helgi E.
Helgason.
22.30 Seinni fréttir
22.40 Fram í sviösljósið
(Being There)
Bandarísk biómynd frá
1979 gerð eftir skáldsögu
Jerzy Kosinskis. Leikstjóri:
Hal Ashby. Aðalhlutverk:
Peter Sellers, Shirley
MacLaine og Melvyn
Douglas.
Einfaldur og fáfróður garð-
yrkjumaður stendur uppi
einn og óstuddur eftir frá-
fall húsbónda síns í heimi
sem hann þekkir aðeins úr
sjónvarpi. Átvikin haga þvi
þó svo að máttarstólpar
þjóðfélagsins taka hann
upp á arma sér og hampa
honum sem nýjum spá-
manni vegna visku hans og
mannkosta. Þýðandi: Vetur-
liði Guönason.
00.55 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
6. mars
§ 17.00 Fljótiö (The River).
Bandarisk kvikmynd með
Mel Gibson og Sissy Spac-
ek í aðalhlutverkum. Myndin
segir frá ungum hjónum
sem eru aö koma sér upp
búi við vantsmikla á. Þau
lenda í vandræöum vegna
fyrirætlana um virkjun árinn-
ar.
§ 18.40 Myndrokk.
19.00 Feröir Gúllivers.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir
20.00 Opin lína. Á milli kl.
20.00 og 20.15 gefst áhorf-
endum Stöðvar 2 kostur á
að hringa i sima 673888
og bera upp spurningar. Á
föstudögum stjórnar Helgi
Hjörvar þættinum og fjallar
um mál unglinga. Rætt
verður við poppstjörnur,
unglinga, æskulýðsforkólfa
o.s.frv.
20.15 Um víða veröld.
Fréttaskýringaþáttur í um-
sjón Þóris Guðmundssonar.
§ 20.35 Á hálum fs (Thin lce).
Bandarisk sjónvarpsmynd
frá CBS. Með aðalhlutverk
fara Kate Jackson og Gerard
Prendergast. Kennslukona í
litlum bæ verður ástfangin
af nemenda sínum og verða
þau fyrir ofsóknum þæj-
arbúa.
§ 22.05 Benny Hill. Breskur
gamanþáttur.
§ 22.30 Leitin (Missing).
Bandarísk kvikmynd með
Sissy Spacek og Jack
Lemmon í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Costa-Gavras.
Mögnuð mynd sem gerist
eftir valdaránið i Chile árið
1973. Ungur Bandaríkja-
maður hverfur og faðir hans
og eiginkona reyna að
grennslast fyrir um afdrif
hans. Myndin er byggð á
sannsögulegum heimildum
og hlutu Costa-Gavras og
Donald Stewart Óskars-
verölaun fyrir handrit sitt.
§ 00.30 Eyjan (The Island).
Bandarisk kvikmynd með
Michael Caine i aöalhlut-
verki. Myndin segir frá
rannsóknarblaöamanni sem
lendir i þvi að kljást við af-
komendur sjóræningja á
Karabiska hafinu sem enn
halda tryggð við fornar venj-
ur. Myndin er gerð eftir
skáldsögu Peter Benchley
sem einnig samdi Jaws og
The Deep. Mynd þessi er
ekki við hæfi barna.
02.10 Myndrokk
03.00 Dagskrárlok
Umsjón: Sigríður Alberts-
dóttir. Lesari: Soffía Auður
Birgisdóttir.
b. Sagnir af Jóni Vidalín.
Gils Guðmundsson tekur
saman og flytur. Fyrri hluti.
c. Úr sagnasjóði Árnastofn-
unar
Hallfreður Örn Eiriksson sér
um þáttinn.
21.30 Sígild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma.
FÖSTUDAGUR
6. mars
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Oskalög hlust-
enda á landsbyggðinni og
getraun.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist i
umsjá Gunnlaugs Sigfús-
sonar.
13.00 Bót í máli. Margrét
Blöndal les bréf frá hlust-
endum og kynnir óskalög
þeirra.
Andrés Björnsson les 17.
sálm.
22.30 Vísnakvöld
Guðrún Gunnarsdóttir sér
um þáttinn.
23.10 Andvaka. Þáttur i umsjá
Pálma Matthíassonar. (Frá
Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.10 Næturstund í dúr
og moll með Knúti R. Magn-
ússyni.
1.00 Dagskrárlok.
Næturútvarps á rás 2 til kl.
3.00.
15.00 Sprettur. Þorsteinn G.
Gunnarsson kynnir tónlist
úr ýmsum áttum og kannar
hvað er á seyöi um helgina.
17.00 Fjör á föstudegi með
Bjarna Degi Jónssyni.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin - Andrea
Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt með Vigni
Sveinssyni.
3.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVAEP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
989
'BYL GJANi
FÖSTUDAGUR
6. mars
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Föstu-
dagspoppið allsráðandi,
bein lina til hlustenda, af-
mæliskveðjur, kveðjur til
brúðhjóna og matarupp-
skriftir.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með þvf
sem helst er f fréttum, segja
frá og spjalla við fólk.
Flóamarkaðurinn er á dag-
skrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—18.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar siðdegispoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson f Reykjavík
síðdegis. Þægileg tónlist
hjá Hallgrími, hann lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk-
ið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson. Þorsteinn leikur
tónlist úr ýmsum áttum og
kannar hvað næturlífiö hefur
upp á að bjóða.
22.00—03.00 Jón Axel Ólafs-
son. Þessi síhressi nátt-
hrafn Bylgjunnar heldur
uppi helgarstuöi með góðri
tónlist. Spennandi leikur
með góðum verölaunum.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gisla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
ALFA
biadleg átrufaatU.
FM 102,9
FÖSTUDAGUR
6. mars
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
21.00 Ljóskorn. Stjórnendur:
Alfons Hannesson og Eiður
Aðalgeirsson.
24.00 Á réttum nótum. Tón-
listarþáttur.
4.00 Dagskrárlok.