Morgunblaðið - 06.03.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Morgunblaðið/Guðmundur Pétursson
Eldsneytisgeymarnir taka 750 þúsund gallon af eldsneyti.
Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli:
Eldsneytisgeymar til-
búnir í byrjun apríl
FRAMKVÆMDUM við eldsneyt-
isgeyma nýju flugstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli er að ijúka
og er gert ráð fyrir að geymam-
ir verði tilbúnir í byrjun april
Viðstaddirút-
för Frydenlunds
ÚTFÖR Knut Frydenlund, utan-
ríkisráðherra Noregs, fer fram
í Osló í dag, föstudag.
Matthías A. Mathiesen, utanrík-
isráðherra, verður viðstaddur
útforina ásamt Níels P. Sigurðs-
syni, sendiherra íslands í Noregi
og Þórði Einarssyni sendiherra.
næstkomandi. Það eru olíufélög-
in þrjú og Flugleiðir sem standa
að þessum framkvæmdum og á
hvert félag um sig 25% í þessum
mannvirkjum.
í þessum áfanga, sem nú er að
ljúka, er geymslurými fyrir 750
þúsund gallon af eldsneyti, en hægt
er að stækka birgðastöðina um
helming, sem tæki þá 1.500 þúsund
gallon af eldsneyti. Eldsneytinu
verður ekið frá olíubirgðastöð í
Hafnarfírði. Sú olíubirgðastöð sem
næst er Keflavíkurflugvelli, verður
hins vegar í Helguvík, en þar sem
höfnin þar er er hemaðarmannvirki
og aðskilin frá allri starfsemi nýju
Flugstövarinnar, verður ekki um
að ræða olíuflutninga þaðan.
/ dag og á morgun
verður Kjötmarkaður SS í Glœsibœ.
Þar fœrð þú nýtt, fyrsta flokks nauta-
kjöt á hagstœðu tilboðsverði.
Verk eftir Omar Stefánsson.
Myndlistarmenn
framtí ðarinnar
Myndlist
Valtýr Pétursson
Það er bæði skemmtilegt og
fróðlegt að líta inn á Kjarvalsstöð-
um og skoða þar fjölskrúðuga
sýningu á verkum ungra og verð-
andi listamanna á Islandi. Eins
og margir munu vita, er IBM á
íslandi tvítugt um þessar mundir
og lætur sér ekki nægja að halda
eitthvert merkasta skákmót, sem
hér hefur verið haldið, heldur hef-
ur fyrirtækið einnig boðíð til
mikillar messu af verkum verð-
andi myndlistarmanna. Þetta er
sérdeilis vel til fundið og stórfyrir-
tækið sýnir í verki, að það heldur
uppi merki hugvits á fleiri
vígstöðvum en á tölvuvellinum
einum saman. Ekki man ég eftir,
að það hafi áður gerzt í þessu
þjóðfélagi, að fyrirtæki tæki for-
ystu í menningarviðburðum, eins
og þessari ungmennasýningu,
sem nú trónar á Kjarvalsstöðum.
Þama er heldur ekki sparað í
neinu, ekki seldur aðgangur að
sýningunni og sýningarskrá
ókeypis. Vegleg verðlaun eru veitt
fyrir eitt þeirra verka, sem sýn-
ingamefnd sérfróðra hefur valið,
og er það eftir unga myndlistar-
konu, Svanborgu Matthíasdóttur,
sem er við nám í Hollandi, ef ég
hef rétt skilið. Verk Svanborgar
er Nr. 49 á sýningunni og ber
nafnið „Stígur". Þama er vel að
verki staðið og verðlaunin ekki
skorin við nögl. Afmælis IBM er
í einu orði sagt minnzt með glæsi-
mennsku, á höfðinglegan hátt.
Þar sem sýning þessi stendur
aðeins í eina viku og verður ekki
framlengd verður ekki flallað
rækilega um hvert verk fyrir sig
á þessum stað. Til þess er tíminn
einfaldlega of naumur og fyöldi
listafólks og verka of mikill. Því
verður að stikla á stóm og sleppa
upptalningum á þeim verkum,
sem ef til vill ættu það helzt skil-
ið. Þó verður ekki hjá því komizt
að nefna örfá ungmenni, sem
sérstaklega vekja athygli. Georg
Guðni Hauksson á þama nokkur
eftirtektarverð verk, sama er að
segja um Ómar Stefánsson, Tolla
og Helga Þorgils. Fleiri mætti
eflaust nefna af þeim sæg, sem
þama sýnir, en það munu vera
70 sýnendur — sumir enn í skóla,
aðrir hafa þegar vakið eftirtekt
með sýningum á verkum sínum
og víða er Ieitað fanga eins og
verkin sjálf sýna best. En þau em
hvorki meira né minna en 186
talsins. Eðlilega em þama dálítið
misjöfn verk á ferð, enda væri
annað óhugsandi, þegar fjöldi
listamanna og verka er tekinn
með í reikninginn. Megnið af
þessu fólki er enn leitandi og sumt
nokkuð óráðið í myndgerð sinni,
en það ánægjulegasta við þessa
sýningu er, hve vítt er leitað á
myndlistarsviðinu og hve víða er
við komið. Það eitt og sér í lagi
er tvímælalaust vitnisburður um
þá óhemju grózku, sem er að fínna
í þessari listgrein meðal íslend-
inga um þessar mundir. Þótt ekki
skiluðu sér nema 10 prósent af
þessu fólki til fulls þroska í mynd-
list á komandi ámm væri það
stórkostlegt fyrir íslenzkt menn-
ingarlíf. Það er vemlegur fengur
að þessari sýningu fyrir íslenzka
myndlist og sýningin ætti að
sanna okkur enn betur en áður
var vitað, hvers konar ungt fólk
við eigum í þessu landi.
Vissulega er margt á þessari
sýningu, sem ekki vekur hrifningu
mína en í heild er kraftur í þessum
verkum, sem hlýtur að skila sér,
er tímar líða. Hvort hann verður
endilega í því formi, er þama birt-
ist, skal ósagt hér, en ástríðumar
og dugnaðurinn leyna sé ekki. Ef
þessi sýning er borin saman við
UM-sýninguna, sem haldin var
fyrir nokkmm ámm á Kjarvals-
stöðum, má fínna framför og vissa
tæknigetu, sem lítið bar á, á þeirri
sýningu. Það er einnig augljóst,
að unga kynslóðin er nú farin að
halla sér meira að því maleríska,
eins og við málarar segjum á
vondu máli. Og það með er mesti
ofsinn og það hijúfa yfirborð, sem
einkenndi hið svokallaða „nýja
málverk", á undanhaldi.
Það var veralega ánægjulegt
að sjá allar þær ólíku tilraunir,
sem gerðar em af ungmennum í
myndlist um þessar mundir. Þess
ber einnig að gæta, að þetta fólk
hefur yfírleitt ýmist nýlokið námi
eða er enn undir handleiðslu kenn-
ara víðs vegar um heim — hefur
farið víðar en til Hollands á und-
anfömum ámm. Ég óska sýnend-
um til hamingju með þann áfanga,
sem þeir hafa þegar náð, og óska
þeim áframhaldandi þroska og
velgengni á listabrautinni. Ég vil
svo ljúka þessu skrifí með því að
segja frá því, að þegar ég leit inn
á þessa skemmtilegu sýningu á
sunnudaginn var þar mikill fjöldi
gesta, flest ungt fólk sem skoðaði
verkin af mikilli gaumgæfni.
Sannarlega góðs viti. Ég óska
IBM til hamingju með afmælið
og þær leiðir, sem fyrirtækið hef-
ur valið til að gera það eftirminni-
legt.
Verk eftir Svanborgu Matthiasdóttur.
4