Morgunblaðið - 06.03.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Holiday Inn-hótelið við Sigtún opnar í júní:
„Ohætt að treysta gæðunum hvar
sem menn gista á Holiday Inn“
- segir Guðbjörn Guðjóns
son eigandi hótelsins
Morgunblaðið/Júlíus
Guðbjörn Guðjónsson, eigandi Holiday Inn hótelsins fyrir framan hótelbygginguna í Sigtúni.
UNDIRBÚNINGUR að opnun
Holiday Inn-hótelsins við Sig-
tún 38 í Reykjavík er nú í
fullum gangi og er stefnt að
opnun hótelsins á þjóðhá-
tíðardaginn, 17. júní næst-
komandi. Að sögn Guðbjörns
Guðjónssonar, eiganda hótels-
ins, eru bókanir þegar farnar
að berast fyrir sumarið og
fram á haust og kvaðst hann
hafa orðið var við mikinn
áhuga á hótelinu, bæði hér-
lendis og erlendis.
Holiday Inn-hótelið er í sam-
nelndri alþjóðlegri hótelkeðju,
sem þó á ekki neinn hlut í því
heldur fær hótelið að nota nafn
keðjunnar að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum og gæða-
kröfum varðandi húsnæði,
búnað og þjónustu. „Til að gefa
hugmynd um kröfumar má
nefna að herbergi verða að vera
af ákveðinni stærð, rúm verða
einnig að vera af ákveðinni
stærð og eru þau stærri en al-
mennt er í hótelum hér á Iandi“,
sagði Guðbjöm í samtali við
Morgunblaðið, og bætti við:
„Herbergi eiga að öðm leyti að
vera búin ákveðnum húsgögnum
og einnig er kveðið á um þykkt
gólfteppa, gerð gluggatjalda og
svona mætti lengi telja. Mjög
strangar reglur gilda varðandi
brunavamir og mikið er lagt upp
úr góðri vinnuaðstöðu, svo sem
búningsherbergjum starfsfólks.
Varðandi kröfur um þjónustu,
hreinlæti og fleira má nefna að
starfsmenn keðjunnar koma
tvisvar til þrisvar á ári í eftirlits-
ferðir og með þessum kröfum,
sem Holiday Inn setur, geta
ferðalangar treyst gæðunum
hvar sem þeir gista á Holiday
Inn hótelum", sagði Guðbjöm.
„Annar mikilvægur þáttur
samstarfs við Holiday Inn keðrj-
una er sameiginlegt bókunar-
kerfi", sagði Guðbjöm
ennfremur. „Holiday Inn keðjan
er sú stærsta sinnar tegundar í
heiminum og getur fólk pantað
sér herbergi hvar sem það er
statt í gegnum sérstakar bókun-
armiðstöðvar, ferðaskrifstofur
eða hótelin sjálf. Almenn kynn-
ingarþjónusta og markaðssetn-
ing er einnig hluti af samstarf-
inu. Upplýsingar um hótelin og
verð á þeim eru send út í sér-
stakri hótelskrá til ferðaskrif-
stofa í flestum löndum heimsins.
Styrkur Holiday Inn keðjunnar
felst þannig í stærð hennar, en
ekki síður í þeirri ákveðnu ímynd
sem hún hefur skapað sér meðal
fólks um allan heim. Samstarf
hótela í keðjum er sífellt að auk-
ast í heiminum og skapa þær
sér mismunandi ímynd. Til dæm-
is eru margar keðjur sem leggja
mesta áherslu á lágt verð, en
takmarkaða aðstöðu og þjón-
ustu. Aðrar, eins og til dæmis
Holiday Inn, leggja áherslu á
gæði og áreiðanleika, en eru
samt ekki í hópi dýrustu lúxus-
hótela."
Guðbjöm sagði að við út-
færslu á hönnun hótelbygging-
arinnar hefði Holiday Inn miðlað
af reynslu sinni og gefíð góð
ráð, en hönnunin væri þó alís-
lensk, unnin af Teiknistofu
Gunnars Hanssonar. Hótelið
verður yfír 7.000 fermetrar að
grunnfleti og þar verða 100 vel
búin gistiherbergi, nokkrir ráð-
stefnu- og veislusalir, einn
veitingasálur sem eingöngu
verður opin á kvöldin og annar
sem verður opinn allan daginn.
Auk þess verða tveir barir í hót-
elinu svo og minjagripaverslun,
ferðaskrifstofa og hárgreiðslu-
stofa og í ráði er að opna
heilsurækt seinna á árinu.
Guðbjöm Guðjónsson rak áð-
ur umsvifamikla innflutnings-
verslun með fóðurvömr, sem
hann hefur nú selt. Hann var
spurður hvers vegna hann hefði
hætt rekstri biómlegs fyrirtækis
og snúið sér að hótelrekstri:
„Ég er búinn að vera í 25 ár
í innflutningi á fóðurvörum og
ýmsum landbúnaðartækjum, og
það er rétt að reksturinn hefur
verið blómlegur. En það em
ýmsar blikur á lofti í landbúnað-
armálum og kannski fannst mér
að það væri ekki þörf fyrir mig
lengur í þessum viðskiptum. Alla
vega fannst mér nú rétti tíminn
til að söðla um og ef til vill lá
þá beinast við að fara út í hótel-
rekstur þar sem ég þekki svolítið
til á þeim vettvangi. Ég hef
áhuga á þessum málum, bæði
hef ég menntað mig lítillega í
hótelrekstri og auk þess hef ég
starfað á hótelum og rekið hót-
el. Ég rak Hótel Bifröst fyrir
um það bil 30 árum og var við
nám og störf í hótelrekstri í
Lusanne í Sviss á ámnum 1946
og 1947. En ég vil taka það
skýrt fram að ég mun ekki taka
við hótelstjóm á nýja hótélinu
og hef heldur ekki í hyggju að
vera að vasast í daglegum
rekstri þess. Jónas Hvannberg,
sem starfað hefur á Hótel Sögu
um árabil, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri og dagleg
stjómun hótelsins verður að
mestu í hans höndum, en alls
verða á milli 50 til 60 manns á
launaskrá til að byija með.“
Guðbjöm var að lokum spurð-
ur hvort hann væri bjartsýnn á
reksturinn og þróunina í ferða-
málum hér á landi í framtíðinni:
„Já ég er vissulega bjartsýnn
á þennan rekstur, annars hefði
ég ekki farið út í hann. Við ís-
lendingar eigum mikla mögu-
leika varðandi þjónustu - við
ferðamenn í framtíðinni og það
er enginn vafí á að ferðamanna-
straumur hingað á eftir að
stóraukast ef rétt er á málum
haldið. Hins vegar verður að
segjast eins og er að enn sem
komið er em vetrarmánuðimir
erfíðir hvað varðar hótelrekstur
hér á landi og það er eitt að því
sem við verðum að fínna lausn
á.“