Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Reagtin neitar fregrium
um valdafíkn Nancy
Washington, Reutcr, AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti vísaði í gær alfarið á bug öllum ásökunum
um, að kona hans væri ,jámfrú“, sem hugsaði um það eitt að hafa
völd. Lýsti forsetinn þessum áburði sem „fyrirlitlegum tilbúningi",
er blöðin hefðu komið af stað.
Reagan, sem er 76 ára, var spurður
um þátt konu hans, sem er 10 árum
yngri, í ákvörðunum stjómar hans.
Svaraði hann því til, að ekkert væri
hæft í því, að kona sín ætti aðild
að ákvörðunum stjórnarinnar nó
heldur hefði hún nokkurn áhuga á
slíku. „Enginn, sem þekkir hana
vel, myndi trúa slíku,“ sagði forset-
inn.
Blaðið Ncw York Times skýrði svo
frá á forsíðu nú í vikunni, að Naney
Reagan væri núna á hátindi valda
sinna og áformaði að fá eiginmann
sinn til að reyna að koma á víðtæku
samkomulagi um afvopnun við Sov-
étríkin og að haldinn yrði nýr fundur
forsetans og Mikhails Gorbachevs,
leiðtoga Sovétríkjanna, í þeim til-
gangi að fá jákvæða umsögn í
mannkynssögunni.
í fyrradag gerðu mörg önnur
bandarísk blöð hlutverk forsetafrú-
arinnar að umtalsefni og sum þeirra
gengu svo langt að birta af henni
skopteikningar með brugðnum
brandi, þar sem hún er að veija
mann sinn og fleira í þeim dúr.
Blaðið Chicago Tribune birti skop-
teikningu af Howard Baker, hinum
nýja starfsmannastjóra Hvíta húss-
ins, í búningi matsveins í eldhúsinu
þar og Nancy forsetafrú, þar sem
hún er að gefa honum fyrirskipanir:
„í fyrsta lagi, Howard, þá er það
matarboð fyrir 300 manns í austur-
salnum í kvöld.“
Fyrirsögn myndarinnar er: „Fyrsti
dagur nýja bakarans"
Morgunblaðið/Kristín Ólafsdóttir
Skerðingu námslána mótmælt
Opinberri heimsókn Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra til Kaup-
mannahafnar lauk í hádeginu í gær með málsverði í ráðhúsinu. Þegar
ráðherrann og fylgdarlið hans komu að ráðhúsinu voru þar fyrir um 50
íslemskir námsmenn sem afhentu ráðherranum mótmælabréf vegna skerð-
ingar námslána. Telja námsmenn að 20 prósent skerðing á lánunum geri
þeim næstum ókleift að halda áfram námi. í gærkvöldi sat forsætisráð-
herra fund með námsmönnum í Jónshúsi.
Islend-
ingar
skuldugri
en Danir
FRÁ því var greint hér í
blaðinu í gær, að Danir
væru skuldugasta þjóð í
heimi og næmu erlendar
skuldir þeirra sem svaraði
293.000 ísl. kr. á hvert
mannsbarn. Þarna er ekki
rétt með farið. Samkvæmt
upplýsingum frá Seðla-
banka íslands eru íslend-
ingar skuldugasta þjóð
heims, en erlendar skuldir
okkar nema rúml. 309.000
kr. á hvert mannsbarn.
Sjónvarpsræða Reagans Bandaríkjaforseta:
Játaði mistök og boðaði
frekari mannabreytingar
Wa.shintrt.nn. Rnntnr. AP.
Washington, Reuter, AP.
RONALD REAGAN Bandaríkja-
forseti boðaði frekari manna-
breytingar innan stjórnkerfisins í
sjónvarpsræðu sinni í fyrrínótt.
Forsetinn lagði áherslu á dugnað
og elju Howards Baker, hins nýja
starfsmannastjóra Hvita hússins,
og Franks Carlucci öryggisráð-
gjafa og sagði að búast mætti við
frekari breytingum á næstu vikum
og mánuðum. Forsetinn sagðist
viðurkenna að reynt hefði verið
að skipta á vopnum fyrir banda-
ríska gísla í Libanon og að hann
bæri fulla ábyrg á þeim mistökum
sem gerð voru.
Reagan kvaðst vera bæði reiður
og vonsvikinn vegna þeirra aðgerða
sem gripið hefði verið til án vitundar
hans. Sagði hann upprunalegan til-
gang þeirra hafa verið þann að bæta
samskiptin við hugsanlega eftirmenn
Khomeinis erkiklerks í Iran. „Þrátt
fyrir þetta er það ég sem verð bera
ábyrgð á þessu athæfi gagnvart þjóð-
inni,“ sagði hann. Forsetinn vék að
fyrri ummælum sínum um að til-
gangurinn með vopnasölunni hefði
ekki verið sá að skipta á vopnum og
gíslum. Kvaðst hann í hjarta sínu
enn trúa að þetta væri satt en stað-
reyndir málsins gæfu annað til
kynna. Reagan sagði að Tower-
skýrslan gæfí ótvírætt til kynna að
brotið hefði verið gegn yfirlýstri
stefnu stjómarinnar með þessum
hætti. Áhyggjur af gíslunum hefðu
skyggt á allt annað og því hefði
hann ekki sinnt öðrum þáttum írans-
málsins. Því hefðu hlutimir þróast á
annan veg en að var stefnt í upp-
hafi og reynt hefði verið að kaupa
gíslana lausa. „Þetta stríðir gegn
sannfæringu minni, stefnu stjómar-
innar og upprunalegum tilgangi
aðgerðanna." Forsetinn sagði
ákveðnar ástæður liggja að baki því
að aðgerðimar fóru úr böndunum en
það væri engu að síður óafsakan-
legt. „Þetta vom mistök," sagði
Reagan.
varð af greiðslum írana. Forsetinn
kvaðst ekki hafa vitað að hluti
greiðslunnar hefði mnnið til contra-
skæmliða í Nicaragua og bætti við
að stöðu sinnar vegna gæti har.n
ekki firrt sig ábyrgð. Sagðist hann
trúa því og treysta að frekari rann-
sóknir þingnefnda gætu skýrt hvað
varð af þeim ijármunum.
Þjóðaröryggisráðsins.
í lok ræðu sinnar sagði Ronald
Reagan: „Þegar menn em komnir á
minn aldur hafa þeir gert fjölmörg
mistök hafi þeir á annað borð látið
sig lífið einhverju varða. Þannig læra
menn og öðlast betri yfirsýn. Menn
taka sig á, breytast og halda ótrauð-
ir áfrarn."
Reuter
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti í skrifstofu sinni eftir að
hafa flutt sjónvarpsræðuna í
fyrrinótt.
Næst vék Reagan að þeim hluta
skýrslunnar sem fjallar um ágóðann
af vopnasölunni. Nefndin taldi sig
ekki geta skýrt með óyggjandi hvað
Reagan fjallaði nokkuð ítarlega
um gagnrýni sem fram kemur í
skýrslu nefndarinnar á stjómun
hans. Kvaðst hann ætíð hafa haft
þann háttinn á að velja hina hæfustu
menn til að sjá um framkvæmd
mála. Þessi aðferð hefði greinilega
ekki hentað starfsmönnum Þjóðar-
öryggisráðsins. Sagðist hann þegar
hafa grípið til viðeigandi ráðstafana
og fengið nýja menn til starfa. Þá
hefði hann gefíð út tilskipun þar sem
starfsmönnum Þjóðaröryggisráðsins
væri með öllu óheimilt að gangast
fyrir leynilegum aðgerðum. Sagðist
forsetinn hafa fylgt þeim hugmynd-
um sem fram kæmu í Tower-skýrsl-
unni varðandi breytta starfshætti
Ræða forsetans
mótsagnakennd
- sagði sovéska fréttastofan TASS
^ Moskvu, AP, Reuter.
ÚTVARP Moskva sagði í gær að
ræða Ronalds Reagan Bandaríkja-
forseta um vopnasölumálið og
greiðslur til skæruliða í Nicaragua
hefði verið tilraun til að endur-
vekja traust Bandaríkjamanna til
forsetans. Málum værí aftur á
móti þannig varið að flestir
Bandaríkjamenn tryðu ekki að
forsetinn hefði sagt allan sann-
leikann.
Repúblikanar og demókrat-
Sovéska fréttastofan TASS sagði
að ræða Reagans á miðvikudags-
kvöld væri uppfull af mótsagna-
kenndum fullyrðingum og hún myndi
ekki duga til að binda enda á
hneykslið.
ar fagna ávarpi forsetans
Washington, New York, Shanghai, Baltimore, AP, Reuter.
ÞINGMENN repúblikana gerðu góðan róm að ræðu Ronalds Reagan
Bandaríkjforseta í fyrrakvöld og sögðu að forsetinn hefði verið hrein-
skilinn, en demókratar ætti enn mikið verk fyrír höndum ætlaði hann
að endurvekja traust þjóðarinnar til stjómarinnar.
„Reagan forseti sagði bandarísku
þjóðinni það, sem hún vildi heyra:
að mistök hefðu verið gerð og hann
bæri ábyrgð á þeim,“ sagði Robert
Dole, forystumaður repúblikana í
öldungadeild Bandaríkjaþings. „Með
því að viðurkenna að hann hefði
verið sekur og heita að bæta úr því
sem aflaga fór sýndi Ronald Reagan
enn einu sinni að hann væri sá leið-
togi, sem Bandaríkjamenn vilja,“
sagði í tilkynningu, sem Dole gaf
út eftir að forsetinn flutti ræðuna.
„Það er augljóst að hann gerir sér
grein fyrir því, hvað var rangt í
stefnun stjómarinnar í vopnasölu-
málinu og ágöllum á stjómarháttum
sínum," sagði William Cohen, öld-
ungadeildarþingmaður repúblikana.
Bæði demókratar og repúblikanar
fögnuðu viðurkenningum Reagans í
tólf mínútna langri ræðu hans.
Margir demókreatar sögðu aftur á
móti að ein ræða dygði ekki til.
„Ég er ánægður með að hann við-
urkenndi að hann hefði gert mistök
og lofaði Bandarísku þjóðinni að
hann myndi grípa til ráðstafana til
að bæta úr því, sem aflaga fór,“
sagði Robert Byrd, talsmaður demó-
krata í öldungadeildinni, í sjónvarps-
viðtali.
„En ein sjónvarpsræða dugar ekki
til að endurvekja traust þjóðarinn-
ar,“ sagði Byrd og kvaðst myndu
bíða og sjá hvemig Reagan efndi
loforð sín um að gera breytingu á
þeirri aðferð sinni til að stjóma, sem
fælist í því að koma sem minnst
nálægt hlutunum. Gagnrýnendur
telja að þessir stjómarhættir eigi
m.a. sök á vopnasölumálinu.
Demókratinn Bill Bradley tók
dýpra í árinni. Hann sagði að ræða
Reagans hefði verið framúrskar-
andi, en bætti við: „Engin ræða
getur gert að engu þær efasemdir,
sem vaknað hafa vegna vopnasölu-,
málsins. Tíminn mun skera úr um
það hvort að forsetanum hafi tekist
að ná valdi á utanríkisstefnu þjóðar-
innar.
Ýmsir repúblikanar og demó-
kratar hafa lokið lofsorði á manna-
breytingar í Hvíta húsinu, þ. á m.
að Howard Baker skyldi taka við
embætti starfsmannastjóra af Don-
ald Regan, sem hefur verið mikið
gagniýndur fyrir þátt sinn í vopna-
sölumálinu. Dole sagði að skipan
Bakers í embætti og ræðan á mið-
vikudagskvöld bæri því vitni að
forsetinn væri nú að festa sig í sessi
á nýjan leik.
Fyrstu viðbrögð bandarískra dág-
blaða við ræðu Reagans vom
jákvæð. Mörg dagblöð höfðu þó ekki
tíma til að skrifa leiðara fyrir útgáfu-
tíma í gær. f leiðara The Washington
Post í gær sagði að Reagan hefði
„flutt rétta ræðu“.
„Það var ekki undarlegt að Reag-
an skyldi hvorki ata sig út, rífa í
hár sitt, né auðmýkja sig, eins og
ýmsir höfðu mælt með, enda var það
ekki mergurinn málsins. Því að for-
setinn vissi hvað honum bar að gera:
hann viðurkenndi mistök og hét því
að bæta skaðann á þeim tveimur
árum, sem hann á eftir í embætti,"
sagði í leiðaranum.
Áforsíðu USA Today stóð: „Reag-
an er kominn af varamannabekknum
og inn á völlinn."
Caspar Weinberger vamarmála-
ráðherra neitaði í viðtali við dag-
blaðið Baltimore Sun í gær
ásökunum í skýrslu Tower-nefndar-
innar um að hann og George Shultz
utanríkisráðherra hefðu setið að-
gerðarlausir hjá og brugðist forset-
anum. Weinberger sagði að sér hefði
ekki verið greint frá fudnum um
vopnasöluna til írans og hann hefði
barist gegn henni.
Shultz neitaði einnig í gær ásök-
unum í skýrslunni um að hann hefði
reist umhverfís sig vamarmúr hlut-
Ieysis til að vemda sjálfan sig.
Opinber viðbrögð hafa ekki borist
frá ráðamönnum Sovétmanna enda
flutti Reagan ræðuna of seint til að
sovésk morgunblöð gætu fjallað um
hana.
Ríkisútvarpið í Moskvu sagði í
venjulegum fréttatíma að Reagan
hefði á miðvikudag viðurkennt fyrsta
sinni að mistök hefðu verið gerð í
samskiptum Bandaríkjamanna við
frana, sem áttu að leiða til þess að
bandarískum gíslum í Líbanon yrði
sleppt. Sagði útvarpið að mistökin
hefðu'„reynst felast í að skipta átti
á vopnum og gíslum".
Aftur á móti hefði Reagan neitað
að hafa haft nokkra vitneskju um
að greiðslur fyrir vopnin hefðu runn-
ið til skæruliða, sem beijast gegn
stjóminni í Nicaragua, sem Sovét-
menn styðja.
Fréttastofan TASS efaðist um að
Reagan hefði ekkert vitað um
greiðslumar.
„Ræða forsetans var uppfull af
mótsagnakenndum fullyrðingum,"
sagði orðrétt í frétt TASS. „Til dæm-
kvaðst hann hafa þagað yfir
ís
„Irangate" og fyrir það hefði hann
goldið með trúnaði og trausti banda-
rísku þjóðarinnar til sín. Aftur á
móti muna allir að Reagan hafði
áður gefíð út sérstaka yfirlýsingu
um „Irangate", þar sem gangi máls-
ins hafði verið lýst af ónákvæmni,
svo að ekki sé meira sagt.“