Morgunblaðið - 06.03.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
31
Frysta loðnan sett í gáma.
Grindavík:
Kjaradeila byggingarmanna:
Fundur á þriðjudag
BOÐAÐ hefur verið til samn-
ingafundar hjá ríkissáttasemj-
ara með þeim félögum
byggingariðnaðarmanna, sem
boðað hafa verkfall, á þriðju-
daginn kemur klukkan 10 fyrir
hádegi, en verkfallið gengur
gildi á miðnætti þann dag.
Fjögur félög hafa boðað verk-
fall, Trésmiðafélag Reykjavík-
ur, Félag byggingarmanna á
Selfossi, Félag byggingar-
manna í Hafnarfirði og Iðn-
sveinafélag Suðurnesja.
I gær var fundur með bygging-
armönnum á Selfossi og Vinnu-
málasambandi samvinnufélagana
hjá ríkissáttasemjara um sérmál
byggingarmanna þar. Ákveðinn
var annar fundur á Selfossi á
sunnudaginn kemur.
Félag leiðsögumanna og við-
semjendur þeirra voru á fundi
hjá ríkissáttasemjara í gær og
hófst hann klukkan 17. Búist var
við að fulltrúar ferðaskrifstof-
anna myndi leggja fram formlegt
tilboð á fundinum.
Tillaga LÍÚ um ísfiskútflutning til Þýzkalands:
Skylda að gefa upp
áætlaðan útflutning
Frysta loðnan á
f örum til Japans
Loðnuhrognafrysting í landi komin í gang
Grindavík.
ÚTFLUTNINGUR á frystri
loðnu er hafinn til Japans. Jap-
anskt skip, Aoshima-Maru, er
komið til Suðurnesja frá Vest-
mannaeyjum til að lesta loðnu.
Einnig keyrir Eimskip frysti-
gáma vítt og breitt að frystihús-
um þar sem þeir eru fylltir og
síðan ekið til baka um borð í
Eyrarfoss.
Eins og kunnugt er af fréttum
var mikið fryst af loðnu fyrir Jap-
ansmarkað þær tvær vikur sem
vertíð stóð yfír. í Grindavík voru
samtals fryst 430 tonn hjá þremur
frystihúsum og telst það þokkalegt
miðað við frystigetu húsanna. í
Arnarvík var verið að fylla hvern
frystigáminn á fætur öðrum en
samtals fara tæp 20 tonn í gám.
Nú verður sett í 9 gáma þannig að
af 230 tonnum sem þar voru fryst
Mor^unblaðið/Kr.Ben.
Japanski eftirlitsmaðurinn tekur prufur úr farminum. A meðan bíður
skipsliöfnin og fólkið í frystihúsunum spennt eftir því hvort farmur-
inn stenst gæðakröfur því á því byggist vinnan og tekjurnar.
verða um 50 tonn eftir. Hraðfrysti-
hús Þórkötlustaða og Gullvík eru
einnig að losna við loðnuna ýmist
í Japanska skipið eða í gáma enda
byggist afkoman á því að afurðin
fari fljótt og vel eins og einn verk-
stjórinn orðaði það.
Nú er unnið af kappi í hraðfrysti-
húsi Þórkötlustaða og Arnarvík að
frysta loðnuhrogn og gengur það
vel. Tekið er á móti frá þremur
bátum, Þórshamri GK, Víkurberg-
inu GK frá Grindavík og Magnúsi
NK frá Neskaupstað.
Japanskur eftirlitsmaður fylgist
náið með og tekur prufur af hveij-
um farmi til að kanna hvort
hrogning eru orðin nægilega þrosk-
uð.
Kr.Ben.
Aðalfund-
ur KA
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
félags Akureyrar verður
haldinn í kvöld í KA-heimilinu
og hefst kl. 20.30.
Á dagskrá fundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf, en auk
þess verður rætt um 60 ára af-
mæli félagsins sem verður 8.
janúar á næsta ári og bókaút-
gáfu því samfara og síðast ekki
síst verður rætt um hugsanlega
byggingu íþróttahúss KA á fé-
lagssvæðinu. Jón Hjaltalín
Magnússon, verkfræðingur og
formaður Handknattleikssam- •
bandsins, mætir á fundinn og
ræðir um byggingu íþróttahúsa
og fjármögnun.
Síðasta sýn-
ing á Róm-
eó og Júlíu
Þeir, sem ekki gefi upplýsingar, fái ekki útflutningsleyfi
STJÓRN LÍÚ samþykkti á fundi
sinum þann 3. marz tillögu varð-
andi isfisksölu úr skipum og
gámum i Þýzkalandi. Tillagan
er samþykkt í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir offramboð á
fiskmörkuðum í Þýzkalandi og
til að tryggja hagstætt verð fyrir
þann f isk, sem seldur er á þessum
markaði.
í frétt frá LÍÚ segir, að leitað
verði eftir upplýsingum um æski-
legt framboð frá fiskmörkuðunum
og þeim upplýsingum komið á fram-
GENGIS-
SKRANING
Nr. 44 - 5. mars 1987
Kr. Kr. ToU-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollarí 39,240 39,360 39,290
St.pund 61,373 61,561 61,135
Kan.dollarí 29,410 29,500 29,478
Dönsk kr. 5,6646 5,6819 5,7128
Norsk kr. 5,6286 5,6458 5,6431
Sænskkr. 6,0729 6,0915 6,0929
Fi. mark 8,6584 8,6849 8,7021
Fr. franki 6,4086 6,4282 6,4675
Belg. franki 1,0298 1,0329 1,0400
Sv.franki 25,3129 25,3903 25,5911
Holl. gyllini 18,8913 18,9490 19,0617
V-þ. mark 21,3232 21,3884 21,5294
ít. líra 0,03000 0,03009 0,03028
Austurr. sch. 3,0313 3,0406 3,0612
Port. escudo 0,2765 0,2774 0,2783
Sp.peseti 0,3036 0,3045 0,3056
Jap.yen 0,25527 0,25605 0,25613
Irsktpund 56,918 57,092 57,422
SDR (Sérst.) 49,5365 49,6883 49,7206
ECU, Evrópum.44,1882 44,3233 44,5313
færi við útflytjendur. Að fengnum
upplýsingum frá útflytjendum, um
hvað þeir hyggist senda til Þýzka-
lands, verði þeim sent álit LÍÚ á
því hvað sé æskilegt að sent verði
á þennan markað frá hveijum og
einum. Þessum upplýsingum og
ráðgjöf verði komið á framfæri áður
en endanlegar ákvarðanir um út-
flutning verði teknar. Eftir sem
áður verði það ákvörðun hvers og
eins, hve mikið hann sendi af fersk-
um físki á markað í Þýzkalandi og
sú ákvörðun verði á ábyrgð viðkom-
andi. Stjómendur fiskmarkaðanna
í Bremerhaven og Cuxhaven hafi
staðfest, að þeir samþykki, að gefa
álit á því, hvað þeir telji æskilegt
framboð hveiju sinni.
Helgi Laxdal, varaforseti FFSÍ,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að sér fyndist nauðsynlegt að gera
eitthvað til að koma í veg fyrir
verðfall af völdum offramboðs.
Menn yrðu að passa sig á því að
ofbjóða ekki mörkuðunum. Það
kostaði ákveðna skipulagningu og
tillaga LÍÚ gæti verið fyrsta skref-
ið í þá átt. Með þessu móti vissu
menn með nokkurri vissu hve mikið
væri heppilegt að senda utan hveiju
sinni.
Jón Ásbjörnsson er einn þeirra,
sem undanfarin ár hefur flutt fisk
utan í gámum. Hann á einnig sæti
í stjórn útflutningsráðs Félags
íslenzkra stórkaupmanna, sem er
með á sinni hendi megnið af gáma-
útflutningnum. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið, að sér
litist vel á þessa tillögu miðað við
aðstæður. Þetta væri þó engin alls-
heijarlausn til að koma í veg fyrir
offramboð, en hættan á því minnk-
aði með þessum hætti. Hins vegar
yrði lítil breyting á því, að stöðug
óvissa yrði um mögulegt verð á
þessum mörkuðum. Hann væri
fylgjandi sem minnstum höftum á
þessum útflutningi, sem hlyti að
ráðast af framboði og eftirspurn
umfram annað. Tillaga LÍÚ miðað-
ist við það, að hægt væri að forða
slysum eins og að undanfömu og
væri því jákvæð.
Tillaga LÍÚ er orðrétt á þessa
leið:
„1. Á hveijum fimmtudegi liggi
fyrir sameiginlegt álit fiskmarkað-
anna í Bremerhaven og Cuxhaven
um æskilegt framboð af fiski frá
íslandi í annarri viku þar frá, sund-
urliðað eftir fisktegundum.
2. Útflytjendur ísfísks í gámum
tilkynni skrifstofu LÍÚ fyrir hádegi
á föstudegi með símskeyti eða
telexskeyti hvaða áform þeir hafa
um útflutning í næstu viku þar á
eftir. (Fiskur sem -á að seljast í
annarri viku). Tilkynningu þessari
fylgi áætluð sundurliðun eftir fisk-
tegundum.
3. Skrifstofa LÍÚ sendi öllum
útflytjendum eftir hádegi á föstu-
degi með símskeyti eða telexskeyti
upplýsingar um ráðleggingar þýzku
markaðsfyrirtækjanna og áliti
skrifstofu LIÚ á, hver æskilegur
útflutningur hvers og eins eigi að
vera miðað við áður upp gefin
áform.
4. Bókanir fiskiskipa um sölu-
daga verði óbreyttar.
5. Óskað verður eftir því við við-
skiptaráðuneytið að þeim, sem ekki
gefa upplýsingar um áformaðan
útflutning, verði ekki veitt útflutn-
ingsleyfi.
Þetta fyrirkomulag gildi til
reynslu í þijá mánuði og hafizt verði
handa um að vinna eftir því í þess-
ari viku.“
SÍÐASTA sýning Herranæt-
ur á Rómeó og Júlíu verður
laugardaginn 7. mars kl.
18.00. Þetta er í annað sinn
sem þetta verk er sviðsett í
Reykjavík. Það var fyrst
sett á svið fyrir u.þ.b. 20
árum af Leikfélagi
Reykjavíkur.
Ferðamiðstöðin:
Benedormkvöld í Þórscafé
FERÐAMIÐSTOÐIN efnir til
ferðakynningar í veitingaliúsinu
Þórscafé næstkomandi sunnu-
dagskvöld. Kynntar verða ferðir
til sólarstrandarinnar Benedorm
á Spáni, en þangað hefur Ferða-
miðstöðin skipulagt ferðir um
árabil.
Á ferðakvöldinu verður boðið upp
á þríréttaðan matseðil og fjölbreytt
skemmtiatriði. Húsið opnar klukkan
19.00 og gestum sem koma fyrir
klukkan 20.00 verður boðið upp á
óvæntan glaðning. Að loknu borð-
haldi munu grínistinn Ómar
Ragnarsson og bandaríski söngvar-
inn Tommy Hunt skemmta gestum.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson annast
ferðakynningu, nýr ferðabæklingur
verður kynntur og sýnd ný mynd
frá Benedorm.
Ferðabingó verður spilað þar sem
í boði eru þrír ferðavinningar til
Benidorm. Þá verður stiginn Ása-
dans og síðan dans fram eftir nóttu
við undirleik Santos-sextettsins og
Bandaríski söngvarinn og
grínistinn Tommy Hunt mun
skemmta gestum á Benedorm-
kvöldinu í Þórscafé.
söngkonunnar Guðrúnar Gunnars-
dóttur.
(Fréttatilkynning.)