Morgunblaðið - 14.03.1987, Síða 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
61,tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afvopnunarmálin:
Perle spáir samn-
ingi fyrir haustið
Waflhmgton. Reuter.
RICHARD N. Perle, sérfræðing-
ur Bandarikjastjómar í afvopn-
unarmálum og harður
gagnrýnandi gildandi samninga,
spáði þvi í gær, að samningar
um meðaldrægu eldflaugamar
næðust fyrir haustið. Perle, sem
er aðstoðarutanríkisráðherra og
fjallar sérstaklega um stefnuna
í alþjóðlegum öryggismálum,
ætlar að láta af embætti á vori
komanda.
Aukakosningar
á Englandi:
Bandalagið
bar signr
úr býtum
Truro, Engiandi.
Kosningabandalag Frjálslynda
flokksins og jafnaðarmanna
vann auðveldan sigur í aukakosn-
ingum, sem fram fóru í fyrradag
í Truro-kjördæmi í Vestur-Eng-
landi. Áttu fijálslyndir þing-
manninn fyrir en þegar talningu
lauk í gær var Ijóst, að bandalag-
ið hafði aukið meirihlutann
verulega.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra og leiðtogi íhaldsflokksins,
sagði, að úrslitin hefðu engin áhrif
á það hvenær hún boðaði til al-
mennra þingkosninga en búist er
við, að hún geri það áður en kjör-
tímabilinu lýkur um mitt næsta ár.
David Steel, leiðtogi frjálslyndra,
spáði því hins vegar, að Thatcher
hugsaði sig um tvisvar áður en hún
efndi til kosninga á næstunni.
Prambjóðandi bandalagsins,
Matthew Taylor, verður yngsti
þingmaður á breska þinginu, aðeins
24 ára gamall. Fékk hann 60,4%
atkvæða, 14.500, 4000 fleiri en í
kosningunum 1983. Frambjóðandi
íhaldsflokksins fékk 31,6% en
Verkamannaflokksins aðeins 7,1%.
Til kosninganna var boðað vegna
þess, að fyrrum þingmaður, David
Penhaligon, lést í bflslysi í desemb-
er sl.
„Enn eru mörg ljón í veginum
en ef vel gengur kunnum við í
fyrsta sinn í sögunni að ná samn-
ingum um að eyða alveg ákveðinni
vopnategund," sagði Perle í viðtali
við NBC-sjónvarpsstöðina.
Á flmmtudag kynntu Banda-
ríkjamenn Sovétmönnum hug-
myndir sínar um samkomulag um
meðaldrægu eldflaugamar og hafa
þeir síðamefndu í meginatriðum
fallist á, að fylgst verði með fram-
kvæmdinni, svokallað eftirlit á
staðnum. Bandaríkjamenn leggja
til, að á fimm ámm verði eytt 268
bandariskum flaugum í fimm Vest-
ur-Evrópuríkjum og 243 sovéskum
í Austur-Evrópu.
Perle sagði, að framlag Reagan-
stjómarinnar til afvopnunarmála
hefði verið að koma mönnum niður
á jörðina og auka þeim skilning á
þvf í hveiju raunvemlegt vígbún-
aðareftirlit væri fólgið.
„Fyrri samningar gerðu ráð fyrir
og ýttu undir kjamorkuvopnakapp-
hlaupið," sagði hann, „en nú emm
við að ræða um stórkostlegan niður-
skurð kj amorkuvopna. “
Reuter
*
Ivon um nýtt vor
Fimmtán kunnir félagar i Mannréttindasamtökunum ’77 i Tékkóslóvakíu söfnuðust í gær saman í
kirkjugarði í Prag tíl að minnast þess, að 10 ár voru liðin frá dauða Jans Patooka, stofnanda sam-
takanna, sem lést eftir yfirheyrslur lögreglunnar. Er samkoma af þessu tagi mjög fátíð í Tékkóslóv-
akíu enda sjást þess engin merki, að stjómvöld þar ætli að draga úr kúguninni. Annar frá vinstri
er Jiri Hajek, sem var utanríkisráðherra árið 1968, á þeim stutta tima sem kallaður var „Vorið í
Prag“.
Sovétmenn draga 1 land í
afvopnunarviðræðunum
Hafa fallið frá tilboði um skammdrægu eldflaugarnar
London, Reuter.
Samningamenn Sovétríkj-
anna í afvopnunarviðræðunum
í Genf hafa dregið aftur fyrra
tílboð sitt tun að stöðvuð verði
fjölgun skammdrægra kjarn-
orkuflauga. Áttí það að vera
liður í væntanlegu samkomu-
lagi stórveldanna um að eyða
öllum meðaldrægum eldflaug-
um í Evrópu. Er þetta haft eftír
vestrænum stjórnarerindrek-
um, sem benda einnig á, að
Sovétmenn hafa enn ekki lagt
fram samkomulagsdrög á sama
hátt og Bandaríkjamenn.
Að sögn vestrænu stjórnar-
erindrekanna hafa sovésku samn-
ingamennimir í Genfarviðræðun-
um skýrt viðmælendum sínum frá
þessari nýju afstöðu.
„Sovétmenn hafa fallið frá til-
boði sínu um skammdrægu eld-
flaugamar. Hér er um að ræða
meiriháttar skref aftur á bak,“
sagði einn stjómarerindrekanna,
sem fylgst hafa með Genfarvið-
ræðunum.
Nú þegar horfur hafa vænkast
á samkomulagi um að eyða öllum
meðaldrægum eldflaugum í Evr-
ópu þykir mjög mikilvægt að ná
Reuter.
Þannig voru margir bílar leiknir eftir árekstur 150 bíla á hrað-
brautinni milli Lille og Dunkirk i Frakklandi. Fyrir einhverja guðs
mildi lést enginn en 17 manns slösuðust. Er mikilli þoku um kennt
en lögreglumenn segja, að ástæðan hafi fyrst og fremst verið allt
of hraður akstur við stórhættuleg skilyrði.
Frakkland:
150 bílar í árekstri
Lille, Frakklandi. AP.
RÚMLEGA 150 fólksbílar og
flutningabílar lentu i gær sam-
an i einum árekstri á hrað-
brautinni milli Lille og
Ermarsundsborgarinnar Dun-
kirk. Var mikilli þoku um
kennt en hún var svo svört, að
menn sáu varla handa sinna
skil.
„Það er kraftaverk, að enginn
skuli hafa látið lífíð," sagði einn
lögreglumannanna, sem komu á
vettvang, en 17 manns slösuðust
og þar af ijórir alvarlega.
Við áreksturinn kviknaði í
fimm bflum og brunnu þeir en
margir aðrir voru líkastir harm-
óniku eftir að hafa lent á milli
stórra vöruflutningabfla. Einn
bíll, Peugeot 205, var t.d. aðeins
tveggja metra langur þegar hann
var dreginn út úr kösinni en þó
slapp ökumaðurinn ómeiddur að
kalla. Tók hálfa aðra klukku-
stund að ná honum út úr brakinu.
„Ökumenn á bijáluðum hraða
í niðdimmri þoku, það er eina
ástæðan fyrir þessu slysi,“ sagði
einn lögreglumannanna um
áreksturinn.
einnig samningum um skamm-
drægu flaugarnar. Geta þær
dregið allt að 1000 km og hafa
Sovétmenn mikla yfirburði hvað
þann vopnabúnað snertir. Segja
vestrænir stjómarerindrekar, að
það hefði verið almennur skilning-
ur eftir Reylgavíkurfundinn, að
skammdrægu flaugamar yrðu
teknar með í samningum um með-
aldrægu eldflaugamar. Mikhail
Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj-
anna, tók líka þannig til orða á
blaðamannafundi f Reykjavík, að
hann hefði lagt til, að „tala þess-
ara flauga yrði fryst“.
Sovéskir embættismenn sögðu
I fyrradag, að viðræður um
skammdrægu eldflaugamar yrðu
að vera óháðar viðræðum um þær
meðaldrægu og Viktor Karpov,
sérfræðingur sovéska utanríkis-
ráðuneytisins í afvopnunarmálum,
ítrekaði þetta í London sama dag.
1 samkomulagsdrögum Banda-
ríkjamanna um meðaldrægu
flaugamar er gert ráð fyrir, að
báðar þjóðimar hafi jafn margar
skammdrægar flaugar og ekki
fleiri en Sovétmenn hafa nú.
Bandaríkjamenn gætu því Qölgað
sínum ef viðræður um þessar
flaugar fæm út um þúfur. Sovét-
menn ráða nú yfir nokkmm
hundmðum skammdrægra flauga
en Nato-ríkin yfir 72.