Morgunblaðið - 14.03.1987, Síða 15

Morgunblaðið - 14.03.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987 15 og fyrir verulega lægra verð en nú er rflqandi. Framieiðsluget- una skortir ekki. Fyrirtæki lyfsala, Pharmaco hf. og dóttur- fyrirtæki þess, Delta hf., hafa í krafti aðstöðu sinnar á smásölu- stiginu (í apótekunum) ráðið stórum hluta lyfjaverslunarinnar hérlendis á undanfömum árum. 5. Beita þarf útboðum og bjóða út þau ljrf sem hér em notuð og fáanleg eru frá fleiri en einum aðila. Yrðu útboðsgögn byggð á núverandi notkun (til viðmiðun- ar) og gæti útboðið gilt t.d. fyrir notkun á næstu 4 árum. Tilboði lægstbjóðanda yrði tekið, að því tilskyldu að gæði teljist full- nægjandi. Auk innlendra fyrir- tækja mætti beina útboðinu til fyrirtækja í þeim löndum sem aðild eiga að PIC (Pharmaceutic- al Inspection Convention) og ísland er aðili að, en innan þeirra allra er afar strangt eftirlit með gæðum framleiddra lyfja. Arlegur spamaður sem hér væri unnt að koma við, án þess að skerða nokkra þjónustu, er að likindum verulegur. í ljósi þess að skattgreiðendur bera lyfla- kostnaðinn sem nú er yfir 1,4 milljarðar á ári (fyrir utan þá upphæð er sjúklingur greiðir) ber stjómvöldum skylda til þess að koma þessum málum í sæm- andi horf. f heild var lyfjakostn- aður um 1,7 milljarðar árið 1986. 7. Breytingar á lyfjaverðlags- nefnd. I lyfjalögum er kveðið á um að í lyfjaverðlagsnefnd skuli silja 5 aðilar og þar af 2 lyfja- fraeðingar og oddamaður, sem skal vera sérfróður um lyfsölu- mál, skipaður af ráðherra. Nú sitja í nefndinni 3 lyfjafræðing- ar. Nefndin ákveður rekstrar- gmndvöll lyfjabúða og álagningarprósentu og hefur þannig gífurleg áhrif á lyfjaverð. Nefndin þarf að fá í hendur efna- hagsreikninga apóteka en ekki einungis rekstrarskýrslur eins og nú er. í greinargerð laganna er sérstaða nefndarinnar skýrt fram tekin. Henni er lfld við sexmannanefnd og yfímefnd sem fer með verð- lag landbúnaðarafurða og nefnd sem fjallar um verðlagsmál sjáv- arafurða. í greinargerðinni kemur skýrt fram, að hags- munaaðilar skuli ekki vera í meirihluta nefndarinnar. Enn má benda á, að löggjafinn hefur tekið fuOt tillit til hags- munaaðila með breytingum á skipan nefndarinnar, þegar fjallað er um sérstök mál, m.a.: „Þegar fjallað er um verðlagningu lyfja í heildsölu tekur fulltrúi samkvæmt til- lögum Félags ísl. stórkaup- manna sæti lyfsalans í nefndinni.“ Þessi skipan mála bendir ótvirætt til þess, að það sé í hæsta máta óeðlilegt og ekki til þess ætlast, að lyfja- heildsali sé fastur nefndar- maður. Samkvæmt anda laganna er þvi ekki ætlast til að lyfja- fræðingar skipi meirihluta lyfjaverðlagsnefndar. Áhrif þeirra eru of mikO þó að ráð- herra geti haft áhrif á verðið ef nefndin er ekki sammála. Þessu þarf að breyta. 8. Heilbrigðisyfirvöld, þar á meðal landlæknir, sinni mun meira upplýsingagjöf um lyf- in til lækna en nú er gert, en þar hafa þau að mestu leyti brugðist skyldum sínum. Lyfja- sala er nú að öllu leyti úr höndum lækna „svo að ekki hagnast þeir á því að ávísa dýrum lyfjum“! En vissulega eru þeir ekki ónæmir fyrir auglýsingum frek- ar en aðrir menn og sumir jafnvel býsna næmir. Nú er lyfjafyrirtækjum næstum selt „sjálfdæmi" varðandi þennan lið og er sá kostnaður gjaman reiknaður milli 17-25% af heild- söluverði. Þess má geta að í Bretlandi er sá kostnaður tak- markaður við 9%. Það er óeðlilegt að neytendur greiði fyrir kostnað sem er oft ein- hliða upplýsingar og beinlínis áróður fyrir lyf, því vitaskuld ræða lyfjasölumenn að mestu um „ágæti“ þess lyfs sem þeir eru að selja. '1. ó. ólafsson. Lyfin eru of dýr; Fréttabréf Lækna, 6. tbl. 1986. 2. ó. ólafsson. Greinargerð vegna bréfs Ap6- tekarafélags íslands; Fréttabréf laekna, 9. tbl. 1986. 3. ó. ólafsson, Lyfin eru of dýr. Leiðir til að draga úr lyfjakostnaði; Fréttabréf lækna, 11. tbl. 1986. Stuðst er við upplýsingar frá Benedikt Andrés- syni, viðskiptafræðingi, o.fl. Höfundur er landlæknir MEÐEINU SÍMTALI er haegt að breyta innheimtu- aðferðinni. Eftir það verða áskriftargjöldin skuldfærð a~ viökomantíi greiðslukorta- reikning mánaðarlega. SÍMINN ER 691140 691141 fUíS>rgimí>faMt> Lyfjakostnaður hefur hækkað gifurlega. Há smásöluá- lagning og óheppilegar álagningareglur eru m.a. orsakir þess að lyf eru í dýrara lagi hér á landi. Fyrirkomulag á lyfjaverðlaginu slæmt og úrelt. Faglegt mat lyfjafræð- inga vegur þungt þegar ákvarðanir eru teknar um gæði lyfja (lyfjanefnd) en það verður að teljast í hæsta máta óeðlilegt að lyfjafræðingar séu ráðandi aðilar við stað- festingu á verði lyfja (Lyfjaeftirlit ríkisins) og í meiri- hluta í nefnd er ákveður rekstrargrundvöll lyfjabúða og álagningarprósentu á lyf (lyfjaverðlagsnefnd). Upplýsingar um lyf koma nær eingöngu frá lyfjafyrir- tækjum og má þvi trúlega finna nokkra skýringu á að íslenskir læknar ávisa oft dýrari lyfjum, þó að í heild ávísi þeir ekki meira magni, en félagar þeirra í nágranna- löndunum. Okkar ræktun - okkar verö lOstk. 295. , íú ér tími vorlaukanna Mikið úrval, m.a. Begomur Gloxiníur, Dahlíur, Gladíólur og Anemonur- - Blómlaukar, loforo um litríktvor. Nviar f raesendingar. Rósastilkar nýkomnir. Blómum in?ZroVÍðaverold ^■sinu^Sigtún-. Símar 36770-686340

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.