Morgunblaðið - 14.03.1987, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
Riddarasljarna
Amaryllis
Svava hringdi og bað um upp-
lýsingar um ræktun amaryllis,
einkum hvaða ráð væru til þess
að fá laukana til að blómstra
ár eftir ár. Af þessu tilefni sner-
um við okkur til Hafsteins
Hafliðasonar garðyrkjufræðings
og farast honum svo orð.
Fáar pottaplöntur hafa eins
tíguleg blóm og riddarastjaman.
Upp úr hverjum lauk vaxa ein
eða tvær hálfsmetra háar spírur
með fjórum stórum blómhnöpp-
um hvar. Blómhnappamir
opnast í risastórar blómklukkur
sem standa í viku til tíu daga.
Blómlitimir em rautt, bleikt, eir-
rautt eða hvítt. Oft eru blómin
tvílit með ljósar langrendur á
dekkri grunni.
Riddarastjaman — Hippeastr-
um hybridum — er blendingur
úr 10—12 tegundum af sömu
ættkvísl sem á heimkynni sín í
Suður-Ameríku. Heiti ættkvísl-
arinnar er dregið saman úr
gríska orðinu „hippos“ = hestur
og hinu latneska „astra" sem
þýðir stjama. Amaryllis-nafn-
giftin er gömul en ekki allskost-
ar rétt, enda þótt hún sé enn
verslunarheiti riddarastjömunn-
ar og verði seint annað. Hin
eiginlega amaryllis er hjarðliljan
— amaryllis belladonna — frá
Suður-Afríku. Hjarðliljan fæst
stundum á vorlaukamarkaðnum.
Henni svipar til riddarastjöm-
unnar og er ræktuð á sama hátt.
Aðrar náskyldar tegundir eru
jakobslilja (sprekelia), dísalilja
(nerine), blælilja (zephyranther)
og skátalilja (crinum). Allir þess-
ir laukar em fáanlegir í blóma-
búðum á vorin eða haustin og
ræktun þeirra er í stómm drátt-
um mjög lík.
Riddarastjaman — „amaryll-
is-laukamir“ — fæst í blómabúð-
um bæði haust og vor. Þá em
þeir stórir og þmngnir suðrænni
orku og blómvísum, sem vaxa
upp og sýna sig 4—6 vikum eft-
ir að laukamir hafa verið settir
í mold. Ræktunin er í raun frek-
ar auðveld. Það er best að byrja
á því að velja sem stærsta lauka
með gildum laukhálsi, þeir gefa
ömgglega tvær blómspímr. Ef
þarf em allar þurrar og fúnar
rætur hreinsaðar burt og laukur-
inn síðan gróðursettur í 14 til
15 sm pott með kröftugri mold.
Helmingur til þrír fjórðu af
lauknum á að vera ofan moldar.
Reynið að fá moldina vel inn á
milli rótanna og varist að vöðla
þeim saman. Þægilegast er að
nota mjótt prik eða sleifarskaft
til að greiða úr rótunum og jafna
með moldinni á milli þeirra um
leið. Eftir umpottunina þarf að
vökva dálítið — einn kaffíbolli
af volgu vatni dugir oftast, hafí
moldin ekki verið þeim mun
þurrari. Síðan er potturinn sett-
ur á hlýjan og bjartan stað, t.d.
í glugga yfír miðstöðvarofni.
Haldið moldinni ögn á þurra
kantinum þangað til blómspír-
urnar em komnar alveg upp úr
lauknum. Þaðan af má vökva
ríflega og gefa áburðarvatn í
þriðja hvert sinn. Sé of mikið
vökvað í byijun er hætt við að
laufblöðin nái yfírhönd á vextin-
um og blómin kafni ofan í
lauknum.
Á þessum tíma skyndibitanna
henda flestir riddarastjömu-
lauknum eftir að þeir hafa skilað
því sem bjó við innkaupin. Því
fylgir nefnilega dálítið vesen og
umstang að fá þá til að blómstra
aftur. Laukamir em ekki svo
dýrir í innkaupi og svo þykir
plantan óásjáleg og plássfrek á
meðan hún er að ná sér eftir
blómburðinn. En sé pláss og vilji
fyrir hendi, getur riddarastjam-
an skilað sinni árvissu blómgun
í marga áratugi. Þannig er farið
að: Þegar blómgun lýkur em
blómstönglamir skomir burt en
haldið er áfram að vökva og
gefa áburð reglulega. Það skipt-
ir mestu að fá góðan vöxt í
laukana og þeir eiga að gildna
og stækka fýrir haustið. Ég
mæli ekki með því að setja ridd-
arastjömuna út yfír sumarið eins
og svo margir gera. Það er betra
að hafa hana inni í björtum
glugga eða í gróðurhúsi. Þegar
líður á sumarið og ný blcð hætta
að láta á sér kræla er dregið
úr vökvun og smátt og smátt
er henni hætt í september—
október. Eftir það fær laukurinn
að hvfla sig í þurri moldinni við
stofuhita eða ögn svalara fram
í mars þegar byijað er að vökva
á ný. Óþarfí er að skipta um
mold eða umpotta nema á
þriggja til fjögurra ára fresti.
Það er þá gert um leið og laukur-
inn er vakinn ellegar strax eftir
blómgun. Riddarastjaman er
sjaldan sótt heim af plágum og
kvillum.
Hafsteinn Hafliðason
ÞYSKAN,
APANSKAN,
SÆNSKAN EÐA
AMERISKAN BIL.
I NIPPARTS ©
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUMÁ LAGER:
kúplingar,kveik)uhluti;bremsuhluti,
STARTARA, ALTERN ATORA, SÍUR,AÐALL)ÓS,
BENSÍNDÆLUR, PURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
FREMSTIR í VARAHLUTUM
BiLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Síðasta fímmtudag var spilaður
eins kvölds tvímenningur. Til leiks
mættu 22 pör og var spilað í tveim-
ur riðlum, 10 og 12 para.
Úrslit urðu þessi:
A-riðill
Helgi Viborg —
Armann J. Lárusson 137
Agnar — Oddur 132
Sigurður Thorarensen —
ÖmVigfússon 123
Burkni Dómaldsson —
Stefán Jónsson 115
B-riðiil
Vilhjálmur Vilhjálmsson -
Vilhjálmur Sigurðsson 220
Jón Andrésson —
Garðar Þórðarson 187
Grímur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 177
Úlfar Friðriksson —
Bemódus Kristinsson 175
Næsta fímmtudag hefst þriggja
kvölda tvímenningur með Mitchell-
fyrirkomulagi. Spilað er í Þinghól,
Hamraborg 11, og hefst spila-
mennskan kl. 19.45.
Bridsfélag Breiðholts
Að loknum 14 umferðum í baro-
meterkeppni félagsins er staða
efstu para þessi:
Anton R. Gunnarsson -
BaldurÁmason 138
Stefán Oddsson -
Ragnar Ragnarsson 130
Baldur Bjartmarsson -
Gunnlaugur Guðjónsson 118
Magnús Oddsson -
Lilja Guðnadóttir 104
Rafn Kristjánsson -
Þorsteinn Kristjánsson 88
Guðmundur Baldursson —
Jóhann Stefánsson 80
Sigurður Kristjánsson -
Eiríkur Sigurðsson 76
Næsta þriðjudag heldur keppnin
áfram. Spilað er í Gerðubergi kl.
19.30 stundvíslega.
Bridsdeild Barðstrend-
ingafélagsins
Staðan í barometerkeppni félags-
ins eftir 20 umferðir er nú þessi:
Þórarinn Ámason -
Ragnar Bjömsson 217
Þórður Miiller —
Rögnvajdur Miiller 207
Sigurður Isaksson -
Isak Sigurðsson 166
Friðjón Margeirsson -
V aldimar Sveinsson 159
Jóhann Guðbjartsson —
Garðar Ólafsson 117
Birgir Magnússon -
BjömBjömsson 105
Jón Carlsson -
Kristián Kristjánsson 82
Amór Ölafsson —
Viðar Guðmundsson 81
Þorsteinn Þorsteinsson —
Sveinbjöm Axelsson 81
Mánudaginn 16. mars verða spil-
aðar 7 umferðir í barometer-keppn-
inni. Spilað er í Armúla 40 og hefst
keppni stundvíslega kl. 19.30.
Keppnisstjóri er Hermann Lárus-
son.
Tafl-og brídsklúbburinn
Síðastliðinn fimmtudag var byij-
að á aðaltvímenningi klúbbsins
(barometer).
Hæstu skor hlutu:
Ingólfur Böðvarsson —
Jón Steinar Ingólfsson 85
Gunnlaugur Óskarsson —
Sigfús Ö. Ámason 79
Gísli Tryggvason —
Guðlaugur Nielssen 60
Þórður Jónsson —
Ragnar Bjömsson 59
Sigurjón Helgason —
Gunnar Karlsson 51
Félagið stefnir að því að fá ann-
að húsnæði. Spilarar fylgist með
fjölmiðlum varðandi flutninginn.
Ánnars byijar spilamennskan 19.30
eins og venjulega.