Morgunblaðið - 14.03.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
Nýtt kosningakerfi:
Hlskiljanlegur óskapnaður
eftirEirík
Tómasson
í stjórnarskránni nr. 33/1944
er að finna grundvallarreglumar
um kosningar til Alþingis. Með
stjómskipunarlögum nr. 65/1984
var reglum þessum breytt og þar
með mörkuð sú stefna er fylgt
skyldi við endurskoðun á lögum
um kosningar til Alþingis nr.
52/1959. Reglumar hafa svo verið
fullmótaðar, fyrst með lögum nr.
66/1984 og síðan með lögum nr.
2/1987. Markmiðið með þessu nýja
kosningakerfí var að ráða bót á
eldra kerfi sem í gildi hafði verið
frá 1959. Árangurinn af þessu
endurbótarstarfi birtist ljóslifandi
í grein dr. Þorkels Helgasonar í
Morgunblaðinu sl. laugardag. Ber
greinin yfirskriftina „Ný kosninga-
lög — Réttarbót, en með ann-
mörkum". Ég held því fram, eins
og margir fleiri, að „réttarbót" sé
öfugmæli á þessu nýja kerfí, öllu
fremur bæri að kalla það „ill skilj-
anlegan óskapnað".
Það féll í minn hlut fyrir tveim-
ur ámm að útskýra (eða réttara
sagt að reyna að útskýra) þetta
nýja kosningakerfí fyrir laganem-
um á fyrsta námsári við lagadeild
háskólans. Eftir að hafa kynnt mér
meginatriði þessa kerfís, sem enn
standa óbreytt enda í sjálfri stjóm-
arskránni, sannfærðist ég um það
að kerfíð væri ekki einvörðungu
ill skiljanlegt flestum sæmilega
viti bomum mönnum, heldur væri
það jafnframt stór háskalegt lýð-
ræði í þessu landi. Mun ég hér á
eftir færa rök fyrir þessu hvoru
tveggja, einkum þó hinu síðar-
nefnda atriði. Ég vil taka fram
strax í upphafí, til þess að fyrir-
byggja misskilning, að gagnrýni
mín beinist ekki að dr. Þorkatli,
heldur þeim stjómmálamönnum
sem að sjálfsögðu bera ábyrgð á
þessum óskapnaði er ég hef kosið
að nefna svo.
Flókið kerfi
Dr. Þorkell viðurkennir í grein
sinni að hið nýja kosningakerfí sé
nokkuð flókið. Að minni hyggju
er vægt til orða tekið hjá stærð-
fræðiprófessomum. Nægir í því
efni að benda á þann kafla í grein-
inni, sem ber yfírskriftina „Lýsing
á nýja kerfínu", ekki síst ærið
flóknar aðferðir við úthlutun á svo-
nefndum jöfnunarsætum.
Segja má að eldra kerfíð frá
1959 hafí verið nokkuð flókið.
Reglur þær, sem í gildi vora um
úthlutun uppbótarsæta, vora ekki
aðgengilegar fyrir almenning, en
þó hátíð hjá þeim reglum sem not-
aðar verða við komandi Alþingis-
kosningar. Það lýsir nýja kerfinu
að minni hyggju best og segir
meira en mörg orð að við undirbún-
ing þeirra hafa einkum unnið
stærð- og tölfræðingar. Öðram
hefur ekki verið treystandi til þess
að reyna að fá einhvem botn í og
samræma öll þó ólíku sjónarmið
sem reynt hefur verið að hafa hlið-
sjón af við gerð hinna endanlegu
reglna.
Lýðræðið í hættu
Ég er sem fyrr segir þeirrar
skoðunar að hið nýja kosninga-
kerfí sé stórhættulegt lýðræði því
sem við íslendingar höfum búið
við til þessa. Þessu valda einkum
§ögur atriði sem þó er erfítt að
greina algjörlega í sundur. í fyrsta
lagi er það atriði, sem ég hef vikið
að áður, en það er hversu reglum-
ar sjálfar era flóknar. í öðra lagi
hefur alls ekki tekist að leysa þá
togstreitu á milli þéttbýlis og dreif-
býlis sem þó hlýtur að hafa verið
meginmarkmiðið með hinu nýja
kerfí. f þriðja lagi ýtir hið nýja
kerfí ekki síður en eldra kerfíð og
jafnvel enn frekar, undir upplausn
í íslenskum stjómmálum og síðast
en ekki síst er einkar auðvelt að
fara í kringum nýju reglumar og
þar með gera „réttarbótina" að
engu.
Því hefur heyrst fleygt að nýja
kosningakerfíð hafí verið reiknað
út í tölvu, miðað við það fjórflokka-
kerfi sem einkennt hefur íslensk
stjómmál síðustu áratugi og var
enn við lýði í ársbyrjun 1983 þegar
tillögumar um nýja kerfið litu fyrst
dagsins ljós. Þetta hefur eflaust
verið sagt í gamni, en öllu gamni
fylgir þó einhver alvara. Svo virð-
ist a.m.k. sem ijölgun stjómmála-
flokka og sérframboða hafí skekkt
kerfið frá því sem það var hugsað
í upphafí. Er mér ekki granlaust
um að það hafí verið helsta ástæð-
an fyrir því að kosningareglumar
vora teknar til gagngerrar endur-
skoðunar á yfírstandandi þingi,
aðeins þremur áram eftir að þær
höfðu verið settar og þrátt fyrir
að aldrei hefði á þær reynt í kosn-
ingum.
Ósættanleg sjónarmið
Hinu nýja kosningakerfi er, eins
og reyndar hinu eldra kerfí frá
1959, ætlað að sætta tvö sjónar-
mið sem era í raun ósættanleg eins
og fram kemur í grein dr. Þorkels.
Þessi sjónarmið era annars vegar
fullur jöfnuður á milli (þing)flokka
og hins vegar misjafnt vægi at-
kvæða eftir búsetu kjósenda þar
sem dreifbýliskjördæmin hafa hlut-
fallslega fleiri þingmenn miðað við
fólksfjölda en þéttbýliskjördæmin.
Þetta tvennt samýmist ekki. Rök-
rétt afleiðing af síðara sjónarmið-
inu er að sjálfsögðu sú að
stjórnmálaflokkur, sem nýtur til-
tölulega meira fylgis úti á landi
en hér á höfuðborgarsvæðinu, á
að fá kjöma fleiri þingmenn, miðað
við atkvæðafjölda, en aðrir flokk-
ar. Þetta myndi aftur stangast á
við hitt sjónarmiðið, en eina rök-
rétta leiðin til þess að tryggja
jafnvægi á milli flokka er að at-
kvæði hvers kjósanda vegi hið
sama án tillits til búsetu. Það er
hægt að koma til móts við bæði
þessi sjónarmið, svo sem ég mun
víkja að nánar hér á eftir, en það
er ekki unnt með því að kjósa í
einu lagi til Alþingis nema fram
komi annmarkar á þvflíku kerfi.
Vissulega vora hnökrar á eldra
kerfínu frá 1959, en þeir era að
mínum dómi enn fleiri á nýja kerf-
inu, ekki síst vegna þess hversu
flókið það er. Það er a.m.k. reynsl-
an að því flóknara sem kerfi er,
t.d. skattakerfí, þeim mun auðveld-
ara er að fara í kringum það, hvort
Eiríkur Tómasson.
„Eftir að hafa kynnt
mér meginatriði þess
kerfis, sem enn standa
óbreytt enda í sjálfri
stjórnarskránni, sann-
færðist ég um það að
kerfið væri ekki ein-
vörðungn ill skiljanlegt
flestum sæmilega viti
bornum mönnum, held-
ur væri það jafnframt
stór háskalegt lýðræði
í þessu landi.“
sem menn gera það af ásettu ráði
eða af hreinni tilviljun.
Hið nýja kosningakerfí byggist
m.a. á því að atkvæði í dreifbýli
jafnist út á móti atkvæðum í þétt-
býli og öfugt. Þannig á stjóm-
málaflokkur, sem hefur minna
fylgi í þéttbýli en dreifbýli, litla
möguleika á því að fá jöfnunar-
sæti vegna þess að hann fengi
væntanlega fleiri kjördæmissæti
en aðrir flokkar, miðað við heildar-
atkvæðatölu á landinu öllu. Hvað
gerðist nú ef stuðningsmenn slíks
flokks í Reykjavík og á Reykjanesi
stofnuðu nýjan flokk er aðeins
byði fram í þessum tveimur kjör-
dæmum og hefði ekki formleg,
heldur lausleg tengsl við „systur-
flokkinn“ er byði einungis fram í
dreifbýlinu? Tengsl af þessu tagi
er t.d. að fínna í Vestur-Þýska-
landi. Þetta myndi að sjálfsögðu
riðla hinu þrauthugsaða kerfi. Nýi
flokkurinn hefði sömu möguleika
á jöfnunarsætum og aðrir flokkar
þar sem tiltölulega fá atkvæði í
dreifbýli á bak við hvem kjördæ-
miskjörinn þingmann yrðu honum
ekki til trafala.
Annað dæmi um það hvemig
hægt er að fara í kringum nýja
kerfíð era sérframboð í einstökum
kjördæmum, einkum dreifbýlis-
kjördæmunum. Þannig fengi
sérframboð á Vestfjörðum, er hlyti
aðeins 800 atkvæði, að öllum
líkindum kjördæmiskjörinn þing-
mann þótt á að giska 2.100
atkvæði væra að meðaltali að baki
hveijum þingmanni á landinu öllu.
Sú regla, er gildir við úthlutun
kjördæmissæta í nýja kerfinu, svo-
nefnd. „regla stærstu leifar", er
þannig án efa hagstæðari slíkum
sérframboðum en eldri úthlutunar-
regla sem kennd er við d’Hondt.
„Sér grefur gröf...“
„Sér grefur gröf þótt grafí."
Þannig hljóðar fom málsháttur og
virðist hann eiga einkar vel við
aðalhöfunda hins nýja kerfíns, þ.e.
flokksforingjana. Dæmin tvö hér
að framan sýna að hið nýja kosn-
ingakerfi ýtir ekki síður og jafnvel
öllu frekar en eldra kerfið undir
alls kyns sérframboð og þar með
upplausn í stjómmálaflokkunum.
Að sjálfsögðu verður reynt að
spoma við þessu með því að breyta
kosningareglunum í sífellu, eins
og dr. Þorkell boðar reyndar í grein
NISSAN SUNNY
Bílasýningar
laugardag og sunnudag kl. 14-17
54ra manna dómnefnd bílagagnrýnenda ÍJapan
kaus einróma
NISSAN SUNNY
bíl ársins 1987
Sauðárkróki: við Bifreiðaverkstæðið ÁKI.
Reykjavík: í sýningarsal okkar við Rauðagerði, þar
sem tónsnillingurinn Jónas Þórir leikur hin ógleym-
anlegu klassísku lög Bítlanna.
Jónas Þórir Dagbjartsson fiðluleikari kemur í
kaffiheimsókn á sunnudag og þeirfeðgartaka lagið.
iiH
Verið velkomin — Alltaf heitt á könnunni.
k 1957-1987^)/
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.