Morgunblaðið - 14.03.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
35
Verkfall HÍK:
Erum ekki búin að
gefa upp alla von enn
- segja nemendur í framhaldsskólum
EF fer sem horfir skellur boðað kennaraverkfall á þann
16. mars, á mánudaginn og kennsla leggst að mestu leyti
niður í framhaldsskólum landsins. Blaðamaður og ljós-
myndari heimsóttu nokkra af framhaidsskólum
Reykjavíkur í gær og tóku tali verðandi stúdenta. Spurt
var hvernig hugsanlegt kennsluleysi legðist í nemendur.
Bæði kennarar og
nemendur eru
áhyggjufullir
í roki og nístingskulda rákumst
við á þær stöllur Ingibjörgu
Kristófersdóttur, Berglindi
Bragadóttur og Sigrúnu Benedikz
fyrir framan Menntaskólann í
Reykjavík. Þær tvær fyrmefndu
stunda þar nám á máladeild, en
Sigrún er í stærðfræðideild. Þær
sögðu að töluverður titringur væri
í skólanum og kennslustundir það
sem af væri deginum hefði að
mestu leyti farið í að spyija kenn-
arana hvemig nemendur ættu að
haga námi og undirbúningi vegna
stúdentsprófanna, ef af vekfalli
yrði. „Bæði kennarar og nemend-
ur eru áhyggjufullir, þetta er svo
mikil óvissa. Við emm búin að fá
uppgefíð hvaða námsefni er til
prófs, það verður prófað í öllu
námsefninu hvort sem við fáum
kennslu eða ekki. Ef verkfall verð-
ur og það dregst á langinn verðum
við að lesa upp sjálf. Svo okkur
líst ekki vel á ástandið. Kennar-
amir hafa mest lítið viljað um
þetta tala, allir vonuðu að ekkert
yrði af verkfalli. En þótt þetta
geti orðið erfitt þá standa nem-
endur upp til hópa með kennurun-
um, því launin þeirra eru fáránleg,
ekki síst miðað við það nám sem
þeir eiga að baki. Ef kennaramir
er á almennilegum launum, kemur
það okkur til góða, við hefðum
þá alla vega ánægða kennara. Svo
eigum við líka ömgglega mörg
eftir að kenna síðar meir, en það
er ekkert tilhlökkunarefni eins og
launamálunum er nú háttað."
Almennur stuðningur
við málstað kennara
fyrir okkur og í þriðja skipti í
námi okkar hér sem við lendum
í þessu." Þetta sögðu þrír nem-
endur í Fjölbrautarskólanum í
Breiðholti, þau Kristján Grétars-
i
son, Hrafnhildur Sigþórsdóttir og
Gunnar Ragnarsson. 011 em þau
á félagsfræðibraut og ljúka í vor
stúdentsprófi frá skólanum.
„Það hefur verið mikil umræða
„Þetta er mjög óheppilegur tími Stefán Steinsen í MS.
Gunnar Ragnarsson, Kristján Grétarsson og Hrafnhildur Sigþórs-
dóttir í FB.
Morgunblaðið/Þorkell
Sigrún Benedikz, Berglind Bragadóttir og Ingibjörg Kristófers-
dóttir í MR.
um þetta í skólanum og það er
yfírleitt slæmt hljóð í fólki hér í
skólanum vegna verkfallsins þótt
það sé almennur stuðningur við
málstað kennarana. Við fylgjum
námsáætlun hvort sem verkfall
verður eða ekki. Námsefnið til
prófs breytist ekkert hvemig sem
allt fer. En við emm nú ekki búin
að gefa upp alla von enn um að
þetta leysist fljótt og vel.“
Svokallaðir sæludagar hefjast
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
næstkomandi miðvikudag og
standa út vikuna. Þá á sér stað
ýmis konar hópstarf á daginn og
uppákomur og skemmtanir á
kvöldin. „Þannig að ef verkfall
stendur ekki lengur en í viku þá
missum við í sjálfu sér ekki svo
mikið úr skólanum."
Allir mjög svartsýnir
í Menntaskólanum við Sund
hoppaði ungur maður, Stefán
Steinsen, um á hækjum, hann
hafði orðið illa úti í fótboltaleik
sagði hann. Stefán stundar nám
í hagfræðideild MS og eins og
aðrir viðmælendur okkar stefnir
hann að því að útskrifast með
stúdendspróf upp á vasann í vor.
Hann sagði að kennsla við skólann
myndi ekki alveg leggjast niður
ef að verkfalli yrði, því 4-5 kenn-
arar væm ekki í HIK.
„Hjá mér leggst ekki niður
kennsla í þjóðhagfræði og bók-
færslu, en á heildina litið kemur
þetta sér mjög illa fyrir okkur.
Við þurfum þá alveg að treysta á
okkur sjálf og kennaramir hafa
allir talað um að ef af verkfallinu
yrði, þá yrðu menn samt að vera
duglegir við lestur og heimanám.
Annars gengur þetta ekki upp.
Stærðfræðina verður erfíðast að
lesa sjálfur og reyndar sum lesfög
sem em torskilin í fyrstu, t.d.
stjómmálafræðin. En okkur hefur
verið lofað því að við getum út-
skrifast í vor, þótt ekki sé að vita
hvað skeður ef verkfal! stendur
lengi, t.d. í mánuð. Fyrsti próf-
dagur á samkvæmt próftöflu að
vera um mijan apríl. Stærðfræði-
kennarinn okkar er í samninga-
neftidinni og allir kennaramir
virðast mjög svartsýnir. Það hefur
komið til tals að ef verkfallið
dregst á langinn þá yrði námsefn-
ið minnkað, en það er alveg óvíst
hvemig þetta fer,“ sagði Stefán
að lokum.
Leiklistarklúbbur Ml ásamt leikstjóra.
„Hassið hennar mömmu“ í Reykjavík
GAMANLEIKURINN „Hassið
hennar mömmu“ eftir Dario
Fo verður sýndur í Hlaðvarp-
anum nk. sunnudag og
mánudag kl. 20.30. Það er
Leiklistarklúbbur Mennta-
skólans á ísafirði sem stendur
að þessari sýningu og leik-
stjóri er Oddur Björnsson,
leikritahöfundur.
Þetta er fyrsta verk Leiklist-
arklúbbs MI. Nú þegar hefur
leikritið verið sýnt víða við góð-
ar undirtektir og var því ákveðið
að bjóða höfuðborgarbúum upp
á að sjá gamanleikinn.
Þess má geta að þetta er Reykjavíkur sýndi fyrir nokkr-
sama leikrit og Leikfélag um árum. (úr frétudikymúngu)
Morgunblaðið/EG
Verkfallsverðir bera saman bækur sínar í húsakynnum Iðnsveinafé-
lagsins.
Hamlin Hill heldur fyrir-
lestra um Mark Twain
HAMLIN Hill, sem er sérfræðing-
ur um verk bandaríska rithöfund-
arins Mark Twain er væntanlegur
hingað til lands. Hann heldur tvo
fyrirlestra á vegum Fulbright -
menntastofnunar íslands og
Bandaríkjana 15. og 16. mars
næstkomandi.
Prófessor Hill fékk Fulbrightstyrk
árið 1966 og kenndi þá við Kaup-
mannahafnarháskóla. í fréttatil-
kynningu segir að Hill heimsæki nú
Norðurlönd í tilefni 40 ára afmælis
Fulbrightlaganna í Bandaríkjunum.
Hill hefur helgað störf sín rann-
sóknum og umfjöllun um gamansemi
í bandarískum bókmenntum og verk
Mark Twains. Auk kennslu við há-
skóla í Evrópu og Bandarikjunum
hefur Hill gefið út meira en tug bóka
um ritverk skáldsins. Hann hefur
haldið fyrirlestra um sérsvið sitt
beggja vegin Atlantsála í tvo ára-
tugi, gegnt ráðgjafastörfum og setið
í ritstjórnum við bandarískar
menntastofnanir.
Fyrri fyrirlesturinn verður haldinn
fyrir fyrrverandi styrkþega stofnun-
arinnar sem nú teljast vera 300.
Síðari fyrirlesturinn er öllum opinn.
Hann verður haldinn í Odda Háskóla
íslands mánudaginn 16. mars kl.
17.15.
Einhugur hjá félagsmönnum
Vogum.
„ÞAÐ er mikill einhugur í félags-
mönnum," sagði Einar Haralds-
son formaður byggingadeildar
Iðnsveinafélags Suðurnesja, að-
spurður um framkvæmd verk-
falls byggingadeildarinnar.
„Verkfallið hefur gengið mjög
vel, en það hefur verið misskilning-
ur á einstaka stöðum sem hefur
verið leiðréttur. Það hefur verið ein-
hugur í félagsmönnum og hafa
tugir þeirra tekið þátt í verkfalls-
vörslu," sagði Einar.
Það hefur verið sótt um fáeinar
undanþágur frá verkfalli til iðn-
sveinafélagsins, en engar undan-
þágur veittar.
Talið er að tvö hundruð iðnaðar-
menn hafí lagt niður vinnu vegna
verkfallsins.
- EG