Morgunblaðið - 14.03.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
37
Stefnt að frumsýningu Kabaretts í kvöld:
Pétur leikhússljóri hleypur
í skarðið á síðustu stundu
Þráinn Karlsson veiktist
Guðjón Pedersen í hlutverki siðameistarans.
LEIKFÉLAG Akureyrar ætlar í
kvöld að frumsýna söngleikinn
fræga, Kabarett. Ef allt gengur
að óskum hefst sýningin kl. 20.30
í kvöld — en í fyrrakvöld varð
leikhúsið fyrir þvi áfalli að Þrá-
inn Karlsson, sem átti að fara
með hlutverk Rudolfs Schultz,
veiktist hastarlega á æfingu og
er ljóst að hann verður ekki með
í sýningunni. Pétur leikhússtjóri
Einarsson ákvað að hlaupa í
skarðið fyrir Þráin og hefur æft
hlutverk hans stíft síðan Þráinn
veiktist. í gærkvöldi var „gener-
al-prufa“ og það verður í raun
ekki ákveðið fyrr en í dag hvort
af frumsýningu verður eða ekki
- en Þórey Eyþórsdóttir hjá LA
sagði í gær að ákveðið væri
stefnt að þvi að sýna í kvöld.
Söngleikurinn Kabarett er mjög
frægur. Hann gerist í Berlín um
1930, skömmu áður en nasistar
tóku völdin í Þýskalandi. Höfundur
handrits er Joe Masteroff en hann
byggir texta sinn á leikriti Johns
Van Druten, „I am a Camera", og
sögu rithöfundarins Cristhoper Ish-
erwood, „Berlín kvödd". Druten
skrifaði leikrit sitt einmitt eftir
þeirri sögu. Höfundur söngtexta í
Kabarett er FVed Ebb og John
Kander samdi tónlistina.
Rithöfundurinn Isherwood dvaldi
í Berlín á árunum 1929-33 og skrif-
aði tvær bækur um þá dvöl, „Berlín
kvödd“ sem fyrr er nefnd og „Hr.
Norris skiptir um lest“. Fyrirmynd-
ir persóna bókanna eru fólk sem
hann kynntist í Berlín og hélt hann
til dæmis lengi sambandi við þá
konu sem er fyrirmynd Sally Bow-
les. Einnig stóð hann í sambandi
við konuna sem hann leigði hjá á
Berlínarárunum, frk. Schneider í
söngleiknum. Sjálfur er Isherwood
fyrirmyndin að Clifford Bradshaw
í verkinu.
Söngleikurinn Kabarett var fyrst
frumsýndur árið 1966 í New York.
Þekktast varð þó verkið eftir að
kvikmyndin fræga með Lizu Minn-
elli varð gerð árið 1972.
Með helstu hlutverk í þessari
sýningu Leikfélags Akureyrar fara
eftirtaldir: Guðjón Pedersen leikur
siðameistarann, Ása Svavarsdóttir
leikur Sally Bowles, Einar Jón
Briem leikur Clifford Bradshaw,
Soffía Jakobsdóttir fer með hlut-
verk frk. Schneider, Gestur E.
Jónasson er Emest Ludwig, Inga
Hildur Haraldsdóttir er frk. Kost,
Skúli Gautason tollvörður og Pétur
Einarsson fer með hlutverk Rudolfs
Schultz sem fyrr segir. Auk þess
koma fram Kitt-Katt-stelpur í
klúbbnum og gestir þar, þjónar og
sjóliðar. Tónlist gegnir veigamiklu
atriði í sýningunni og er Roar Kvam
hljómsveitarstjóri sem fyrr í söng-
leikjum LA. Leikstjóri er Bríet
Héðinsdóttir, Ken Oldfíeld samdi
dansana, Karl Aspelund hannaði
leikmynd og búninga og Ingvar
Bjömsson sér um lýsingu. Þýðingu
texta sá Óskar Ingimarsson um.
Sjá einnig umfjöllun í Lesbók
Morgunblaðsins í dag.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Guðrún Marinósdóttir, Skúli Gautason og Hlín Svavarsdóttir í hlut-
verkum sínum í Kabarett.
Sjónvarp Akureyri
Laugardaginn 14. mars
§9.00 Lukkukrúttin.Teiknimynd.
§9.25 Alli og íkornarnir. Teiknimynd.
§9.55 Penelópa puntudrós. Teikni-
mynd.
§10.20 HerraT. Teiknimynd.
§10.45 Garparnir —teiknimynd.
§11.10 Stikilsberja-Finnur. Annar þátt-
uraf fjórum.
12.05 Hlé.
§18.00 Heimsmeistarinn að tafli. Þriðji
þáttur af sex um hraðskákeinvígi
Garry Kasparov og Nigel Short.
§18.25 Hitchcock.
19.25 Hardy-gengið. Teiknimynd.
19.50 Undirheimar Miami. (Miami
Vice).
§20.45 Hello Dolly. Bandarísk dans-
og söngvamynd með Barbara Strei-
sand, Walter Matthau og Louis
Arm-
strong í aðalhlutverkum.
§23.10 Buffalo Bill.
§23.30 Hringurinn lokast (Full Circle
Again). Bandarísk spennumynd
með Karen Black og Robert Vaug-
han í aðalhlutverkum.
§1.05. Foringi og fyrirmaður (An Offic-
erand a Gentleman). Bandarísk
biómynd með Richard Gere, Debra
Winger og Louis Gossett yngri í
aðalhlutverkum. Gossett hlautósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn í þessari
mynd.
3.00 Dagskrárlok.
Svavar Alfreð Jónsson:
Aðdáunarvert framtak
„SÝNINGEN var
góð, mjög
skemmtileg.
Það er mikið í
þetta lagt, i
dansi, söng og
leik. Þetta þarf
ekki að
hneyksla neinn
en ég hef heyrt
svolítið hjá fólki
að það
hafi gert það,“ sagði Svavar Alfreð Jónsson.
Svavar er frá Akureyri, en starfar nú sem
sóknarprestur í Ólafsfirði. Er þannig arftaki
Hannesar Blandon sem leikur Guðmund i
sýningnnni.
Svavar var spurður hvemig honum hefði líkað
að sjá kollega sinn f hlutverki sem Guðmundar.
Hann sá ekkert athugavert við það og sagði:
„Það er Guðmundur í öllum, líka sóknarprest-
um.“ Um leikarana sagði hann: „Þó ég sé
enginn sérfræðingur held ég að ég geti sagt
að allir leikaramir hafí staðið sig vel. Það er
aðdáunarvert framtak hjá þeim að setja þetta
upp hér.“
Svavar sagði um boðskap verksins að það
væri hættulegt að hætta að leita. „Guðmundur
hætti aldrei að leita, hann lét aldrei deigan síga.“
Martha Jónasdóttir:
Ekki síðri skemmtun
en hjá atvinnumönnum
vinnumenn leika og það er því gaman að sjá
hvað fólkið héðan úr sveitinni getur. Þetta er
auðvitað öðruvísi en samt frábært. Maður
skemmtir sér mjög vel hér, ekki síður en í
Reykjavík."
Um frammistöðu leikaranna sagði Martha:
„Allir leikaramir stóðu sig vel þó sumir hafí
staðið upp úr. Mér fannst homminn til dæmis
mjög góður, strákurinn líka og Guðmundur
auðvitað, hann var mjög fyndinn," sagði Martha.
Vigdís Thordersen:
Frábær sýning
Soffía Eggertsdóttir:
Vel flutt og kraftmikið
„ÞETTA var al-
veg frábær
sýning. Söngur-
inn, leikurinn og
allt. Ég hef aldr-
ei komið hingað
áður og vissi því
ekkert hveiju
ég mátti eiga
von á. Það er
ótrúlegt hvað
svona áhuga-
leikhús getur gert,“ sagði Vigdís Thordersen
úr Njarðvíkum.
„Allir leikaramir stóðu sig vel en Hannes
fannst mér bestur. Hann var frábær. Homminn
var einnig mjög góður og líka strákurinn. Þá
fannst mér Katrín Ragnarsdóttir leika mjög
vel. Ég fylgdist reyndar mikið með henni. Hún
er frænka mín og ég hafði ekki séð hana í 16 ár.“
„ÞETTA var
mjög skemmti-
leg sýning.
Lögin voru sér-
lega skemmti-
leg, söngurinn
góður og þetta
var vel flutt og
kraftmikið,“
sagði Soffía Eg-
8?rtsdóttir frá ______________
lafsfirði. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Það voru ýmsir hlutir í verkinu sem maður
kannast við frá þessum ámm, þó ég þekki þá
ekki af eigin raun. Leikaramir voru hver öðrum
betri en Hannes Öm í hlutverki Guðmundar
náttúrulega bestur. Hann var alveg súper.“
Hveraig fannst þér að sjá gamla sóknar-
prestinn þinn í Ólafsfirði í þessu hlutverki?
„Mér fannst það mjög gaman. Hann er stórkost-
legur. Hress eins og alltaf. Maður kannaðist
við marga takta sem maður sá hjá honum á
sviðinu, en ekki allt auðvitað — það er til dæm-
is allt of gróft að segja að hann hafi flakkað á
milli kvenna!" sagði Soffía.
Áhorfendur skemmtu sér vel í Freyvangi.
Freyvangur:
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Láttu ekki deigan síga, Guð-
mundur fær góðar viðtökur
Freyvangsleikhúsið sýnir þessa dagana
leikritið Láttu ekki deigan síga, Guðmund-
ur eftir Eddu BJörgvinsdóttur og Hlín
Agnarsdóttur í leikstjóm Svanhildar Jó-
hannesdóttur. Verkið hefur hlotið mjög
góðar viðtökur og verið uppselt á þær
átta sýningar sem þegar hafa farið fram.
Áhorfendur hafa komið víða að í Frey-
vang. Blaðamaður Morgunblaðsins brá sér á
sýningu í Freyvangi á fímmtudagskvöldið,
áttundu sýningu á verkinu, og ræddi við
nokkra áhorfendur um sýninguna. Á fímmtu-
dagskvöldið var stór hópur frá Ólafsfirði í
Freyvangi auk margs fólks frá Akureyri.
Þeir sem blaðamaður ræddi við voru mjög
ánægðir með Guðmund og hans fólk á svið-
inu, eins og sjá má á umsögnum þeirra.