Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRi'ðJUDAGÍJR 26. MAÍ 1987
37
Mývatnssveit:
Járniðnaðarmenn
kæra Kísiliðiuna
SVEINAFÉLAG jámiðnaðar-
manna á Húsavík og í S-Þingeyj-
arsýslu hafa kært Kísiliðjuna hf.
i Mývatnssveit fyrir brot á iðnað-
arlögnm. Lögreglan hefur tekið
skýrslu af forsvarsmönnum fé-
lagsins og stjórnendur Kísiliðj-
unnar, og býst sýslumaður,
Halldór Kristinsson, við að senda
málið til ríkissaksóknara til fyr-
irsagnar á næstunni.
Sveinafélagið kærir Kísiliðjuna
fyrir brot á 8. grein iðnaðarlaga
nr. 42 frá 1978. Þar segir m.a. að
iðngreinar, sem reknar eru sem
handiðnaður og löggiltar sam-
kvæmt iðnfræðslulögum og reglu-
gerðum settum samkvæmt þeim,
skuli ávallt reknar undir forstöðu
meistara. Þar segir einnig að rétt
til iðnaðarstarfa i slíkum iðngrein-
um hafi meistarar, sveinar og
nemendur í iðngreininni.
Burðarþol húsa:
Yerkfræðistofnun falið
að yfirfara útreikninga
Verkfræðistofnun Háskóla ís-
lands hefur verið falið að yfir-
fara teikningar og útreikninga á
burðarþoli húsanna tíu sem
Rannsóknarstofnun bygginga-
riðnaðarins gerði athugasemdir
við.
Að sögn Þórðar Þ. Þorbjarnar-
sonar borgarverkfræðings kostaði
könnunin félagsmálaráðuneytið um
1,5 milljónir króna og má búast við
svipuðum kostnaði vegna þeirrar
endurskoðunar sem Verkfræði-
stofnun Háskólans hefur tekið að
sér. Niðurstöðu er ekki að vænta
fyrr en eftir tvo til þijá mánuði.
C20Uy,
IRINN
MEÐ DRIFIÁ ÖLLUM HJÓLUM
FYRIR BÆNDUR - VERK-
TAKA - BJÖRGUNARSVEITIR
□ 250 cc fjórgengisvél □ Sjálf-
stæð fjöðrun á hverju hjóli □
Drifsköft □ Val um drif aftan/
aftan + framan □ Handlæsing
á drifi (100% læsing) □ 5 gírar
áfram 1 afturábak □ 3 gíra
lágadrif □ Hraðamælir □ 12 I.
bensíngeymir □ Hæð undir
lægsta punkt 20 sm. □ Þyngd
232 kg.
UMBOÐID HF.
Skútahraun 15, S: 65-17-25, P.o. Box 59,220 Hafnarfjörður.
Kaupskipaflotinn:
Skipin sífellt í
siglingu og áhöfnin
sinnir ekki viðhaldi
-segir yfirmaður skipaeftirlitsins
MEÐALALDUR íslenska kaup-
skipastólsins er nú um 14 ár. Að
sögn Páls Guðmundssonar yfir-
manns skipaeftirlitsins hefur
borið á því að viðhaldi skipanna
sé minna sinnt en áður. Hleðslu
og losunartími verður æ styttri
þar sem útgerðirnar leitast við
að gjörnýta skipin. Þá eru áhafn-
ir orðnar fámennari og hafa
skipverjar engan tíma til að huga
að viðgerðum. „Þetta er rétt.
Minniháttar viðhald eins og að
fjarlægja rið er látið sitja á hak-
anum. En hvað burð, búnað og
sjóhæfni skipanna varðar er allt
í góðu lagi,“ sagði Viggó Maack
skipaverkfræðingur Eimskipa í
samtali við blaðamann.
Skipaeftirlit Siglingamálastofn-
unar stöðvaði í síðustu viku tvö
kaupskip sem ekki uppfylltu settar
reglur. Annað skipanna fékk ekki
afgreidd skipsskjöl fyrr en búið var
að lagfæra ýmsan búnað. I hinu
tilfellinu var um að ræða ofhleðslu.
Páll kvað algengt að skip væru yfir-
hlaðin. Ekki væru eftirlitsmenn í
höfnum hérlendis til þess að fylgj-
ast með að farið væri að settum
reglum og hefði Siglingmálastofnun
því engin tök á því að sinna slíku
eftirliti.
Meðalaldur kaupskipa er mun
hærri hér á landi en í öðrum Evr-
ópulöndum, að sögn Páls. Hann
sagði að erlendis reyndu útgerðar-
menn að selja skip við 6-8 ára
aldur, en yngri skip en það hafa
ekki verið keypt til landsins á
síðustu árum. „Sá hraði sem er við-
hafður í rekstri skipa hérlendis
gefur tvfmælalaust tilefni til meira
eftirlits en nú er viðhaft,“ sagði
Páll.
Eitt af þeim ráðum sem Siglinga-
málastofnun hefur gripið til eru
fyrirvaralausar skyndiskoðanir.
Sagði Páll að það væri talið væn-
legra til árangurs en reglubundið
árlegt eftirlit.
„Það er rétt að viðhald er öðru-
vísi nú en fyrr á árum. Skipin eru
mun styttra í höfn en áður og mann-
skapur er minni um borð. Við
söfnum því viðgerðunum saman og
stoppum skipin þá í eitt skipti fyrir
öll til að láta lagfæra þau,“ sagði
Viggó Maack. Hann taldi að enga
ástæðu til að óttast að skipinum
væri eitthvað ábótavant þótt við-
haldið væri ekki eins mikið og áður.
„Þetta hefur aðallega komið fram
í útliti skipanna, nú má sjá riðtauma
á fossunum sem aldrei voru áður.
Styrkleikinn og sjóhæfnin er hins-
vegar eins og best verður á kosið
og skipin eru í toppstandi."
Hann sagði að Eimskip væru að
kaupa tíu ára gamalt skip frá
Þýskalandi. Það hefði verið yfirfar-
ið frá kili upp í mastur og ekkert
fundist athugavert. „Vissulega
hefðum við áhuga á því að geta
keypt yngri skip. En markaðurinn
er það lítill að við stöndum ekki
undir svo dým tæki. Nýtt skip sömu
tegundar og það sem við erum nú
að kaupa yrði fimmfalt dýrara og
reksturinn stendur ekki undir svo
háu kaupverði," sagði Viggó.
Fékk vír í ennið
ÞYRLA landhelgisgæslunnar
sótti slasaðan sjómann á haf út
á sunnudagsmorgun.
Um kl. hálf sex um morguninn
barst landhelgisgæslunni tilkynning
um að sjómaður á togaranum Arin-
birni frá Reykjavík hefði fengið vír
í ennið. Togarinn var þá að veiðum
um ciO sjómílur suðvestur af
Reykjanesi. Þyrlan fór í loftið um
ki. 6.30 og sjómaðurinn var kominn
um borð í hana hálfri stundu síðar.
Allt gekk að óskum og um kl. 7
lenti þyrlan við Borgarspítalann,
þar sem gert var að sárum manns-
ins. Hann mun ekki vera mikið
slasaður.
Vorhappdrætti SÁÁ
DREGIÐ ÍO. JÚNÍ
Upplagmiða 100.000
VOSBOÐINN
LJÚFISÁÁ