Morgunblaðið - 05.06.1987, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stjarnan
Ný útvarpsstöð, Stjarnan, hefír
tekið til starfa og gerist nú
þétt skipaður FM-bekkurinn en hin
nýja stöð sendir út á FM 102.2
allan sólarhringinn og verður aðal-
uppistaða dagskrárinnar tónlist af
ýmsu tagi en einnig er ætlunin að
senda út fréttir tvisvar til þrisvar
á degi hveijum, auk þess verður
skotið inn fréttapistlum. Þá skilst
mér að stuttum leikþáttum verði
laumað inní dagskrána — sannar-
lega athyglisvert nýmæli er leiðir
hugann að Brávallagötufólkinu á
Bylgjunni. Annars er alltof snemmt
að fjalla af nokkru viti um hina
nýfæddu útvarpsstöð en ég vil nota
tækifærið og senda „stjömunum"
hamingjuóskir og vona bara að hin
nýja stöð skreyti ljósvakaflóruna —
lengi geta hlustendur á sig blómum
bætt.
Tónlistarflöran
Eins og áður sagði verður megin-
uppistaða dagskrár Stjömunnar
blessuð tónlistin. Einhvemveginn
hef ég á tilfínningunni að dagskrár-
stjórar Stjömunnar hyggist leika
fremur ljúfa tónlist, einkum við
hæfí „Tom Jones“-kynslóðarinnar.
Þó má vel vera að þungarokkið
hljómi alla leið til stjamanna en
mestu skiptir auðvitað að útvarps-
stöðvamar bjóði uppá sem litrík-
asta tónlist og er ég raunar þeirrar
skoðunnar að Bylgjan og rás 2
hafí hér komist til nokkurs þroska
að undanfömu, í það minnsta hafa
starfsmenn stöðvanna fjarlægst
ögn hina illræmdu vinsældalista er
hljómuðu fýrmrn — daginn út og
inn. Tónlistarflóran virðist annars
ráðast af miklu leyti af persónuleg-
um smekk þáttastjóranna. Dæmi:
Fyrir skömmu hvarf morgunþátta-
stjóri Bylgjunnar, hann Páll Þor-
steinsson, í þriggja mánaða
bamseignafrí — gangi þér vel Páll
í nýja starfínu — og í skarðið hljóp
Valdís Gunnarsdóttir er hlaut sína
eldskím rétt eins og hann Páll á
sínum tíma á fyrstu léttu rásinni,
þessari númer 2. Hvað varðar tón-
listarvalið þá heyrist mér Valdís
laðast að ljúfri ögn rómantískri
tónlist fremur en þungarokki sem
að vísu var ekki mjög áberandi í
morgunþáttum Páls en þar fannst
mér bera óþarflega mikið á Bítla-
kynslóðartónlistinni.
Hjartataugarnar
í kjölfar aukins framboðs ljós-
vakaefnis ætti að mínu mati að
auka frjálsræði þáttastjóranna
svo þeim gefíst færi á að setja sitt
kennimark á hvem þátt. Þess
vegna má Valdís spila þá músik
sem stendur henni næst án nokk-
urs tillits til þeirrar tónlistarstefnu
er forverinn Páll markaði. Undirrit-
aður gæti ekki hripað grein á dag
nema vegna þess mikla trausts er
ritstjóramir blessaðir hafa sýnt í
verki. Persónulega lít ég á dálka-
skrif sem listgrein er nær ekki að
blómstra nema hjartað fái að ráða
ferð og hvað um þáttastjórana, eiga
þeir ekki líka allt sitt undir því að
klípa hjartataugar áheyrandans?
Nú ijölgar útvarpsstöðvunum óð-
fluga og þá skiptir ekki lengur öllu
máli að elta skottið á vinsældalist-
unum heldur að þáttastjóramir
marki sér pláss í hugarskoti hlust-
enda. Sumir kjósa að hlusta á
Valdísi, aðrir á Hermann Ragnar
eða Pétur Pétursson og enn aðrir
á harmonikkuþátt Bjama Mar-
teinssonar, vísnavini Kristjáns
Siguijónssonar eða jafnvel Olfu.
Er annars ekki gaman að lifa,
kæru hlustendur, í heimi þar sem
hversdagsmennimir móta lífsum-
hverfíð fremur en hin allsráðandi
embættismanna- og menningar-
vitaklíka?
Ólafur M.
Jóhannesson
Stöð 2:
Heimsmeta-
bók Guinness
■■■ Mönnum virðist
orv 00 í blóð borið að
reyna krafta
sína og hæfíleika og reyna
að slá met á öllum sviðum.
í heimsmetabók Guinness
er safnað saman afrekum
og fádæmum. Hinn kunni
sjónvarpsmaður David
Frost kynnir hin ýmsu
uppátæki og met. Þetta er
fyrri hluti þáttar um heims-
metabók Guinness en síðari
hlutinn varður á dagskrá
Stöðvar 2 hinn 12. júní.
itess.,.
Þorkell Gunnar Gunn-
arsson, innanhússarkí-
tekt, lét smíða stæðsta
stól heims fyrir Heimilis-
sýninguna 1977.
Ríkissj ónvarpið:
Tíðindalaust á Vest-
urvígstöðvunum
■■■■ Tíðindalaust
00 35 á Vesturvíg-
stöðvunum, ný
bandarísk mynd eftir sam-
nefndri sögu Erich Maria
Remarque, er á dagskrá
sjónvarps í kvöld. Sagan
gerist í heimstyijöldinni
fyrri. Nokkrir komungir
Þjóðveijar gerast sjálf-
boðaliðar árið 1914 og
halda til vígstöðvanna til
að beijast fyrir keisarann
og föðurlandið. í skotgröf-
unum og villimannlegum
bardögum á víglínunni
verður þeim ljós viður-
styggð stríðsins. Leikstjóri
er Delbert Mann.
Kvikmyndin Tíðinda-
laust á Vesturvígstöðv-
unum er á dagskrá
sjónvarps í kvöld.
UTVARP
©
FOSTUDAGUR
5. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Hjördís
Finnbogadóttir og Óðinn
Jónsson. Fréttir eru sagöar
kl. 7.30 og síðan lesið úr
forystugreinum dagblaö-
anna. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og
8.25. Erlingur Siguröarson
talar um daglegt mál kl.
7.20. Fréttir á ensku sagðar
kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Sögur af Munda"
eftir Bryndísi Víglundsdótt-
ur. Höfundur les (8).
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Mér eru fornu minnin
kær.
Umsjón: Einar Kristjánsson
frá Hermundarfelli og Stein-
unn S. Sigurðardóttir. (Frá
Akureyri.)
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson. (Þáttur-
inn verður endurtekinn að
loknum fréttum á miönætti.)
11.66 Útvarpið í dag.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miödegissagan: „Fall-
andi gengi" eftir Erich Maria
Remarque.
Andrés Kristjánsson þýddi.
Hjörtur Pálsson les (31).
14.30 Þjóðleg tónlist.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Lesið úr forystugreinum
landsmálablaöa.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar:
a. Vals eftir Hans Christian
Lumbye. Tívolí-hljómsveitin
leikur.
b. Kvintett op. 43 eftir Carl
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
5. júní
18.30 Nilli Hólmgeirsson
Nitjándi þáttur. Sögumaöur
Örn Árnason. Þýöandi Jó-
hanna Þráinsdóttir.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir
Sjötti þáttur. Teiknimynda-
flokkur i þrettán þáttum eftir
Jim Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
19.15 Á döfinni
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkoffi------—-
Umsjónarmenn Guðmund-
ur Bjarni Harðarson, Ragnar
Halldórsson og Guðrún
Gunnarsdóttir. Samsetning:
Jón Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Meö hjartað á réttum
stað
(You Gotta Have Heart).
Breskur fræðsluþáttur i létt-
um dúr um hjartað, hjarta-
sjúkdóma og áhættuþætti á
borð við offitu, reykingar og
streitu. Þýðandi Jón 0. Ed-
wald.
21.30 Derrick
Fjórði þáttur. Þýskur saka-
málamyndaflokkur í fimmt-
án þáttum með Derrick
lögregluforingja sem Horst
Tappert leikur. Þýöandi Vet-
urliði Guönason.
22.35 Tíðindalaust á Vest-
urvígstöövunum
(All Quiet on the Western
Front)
Ný, bandarisk mynd eftir
sögu Erich maria Remar-
que. Leikstjóri Delbert
Mann. Aöalhlutverk: Rich-
ard Thomas, Ernest Borgn-
ine og Donald Pleasance.
Sagan gerist í heimsstyrj-
öldinni fyrri. Nokkrir korn-
ungir Þjóðverjar gerast
sjálfboðaliöar árið 1914 og
halda vondjarfir til vígstöðv-
anna til að berjast fyrir
keisarann og föðurlandið. í
skotgröfum og á vigvelli
veröur þeim Ijós viöur-
styggð stríösins og þar falla
þeir hver af öðrum. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
00.50 Dagskrárlok.
b
0
STOD-2
FÖSTUDAGUR
5. júní
§ 16.45 Fjölskylduleyndar-
mál (Family Secrets).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá árinu 1984 með Maure-
en Stapelton, Melissa
Gilbert og Stefanie Powers
i aöalhlutverkum.
. Þrjátkonurr-amma, mamma.
og dóttir, eyða saman helgi
og verður hún tilfinningarik
í meira lagi. Upp á yfirborðið
koma leyndarmál og sann-
leikur fortíðarinnar.
18.20 Knattspyrna — SL-
mótið — 1. deild.
Umsjón: Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Heimsmetabók Gu-
innes (Guinnes Book Of
Records).
Mönnum virðist ( blóð boriö
að reyna krafta sína og
hæfileika og gera sitt ýtr-
asta til aö skara fram úr. i
heimsmetabók Guinnes er
hinum ýmsu sérkennum og
afrekum safnað saman á
einn stað til að menn geti
bariö dýrðina augum.
í þessum þætti kynnir hinn
kunni sjónvarpsmaður
David Frost hin ýmsu uppá-
tæki og met svo sem: hver
er stærstur, hver er minnst-
ur, hver getur hlaupið
hraöast, stokkið lengst,
borðaö mest af rúllupylsu
eða staðið lengst á haus?
20.56 Hasarleikur (Moon-
lighting).
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur með Cybill
Sheperd og Bruce Willis í
aðalhlutverki.
Maddie Hayes og David
Addison lenda f einkenni-
legu máli er þau finna lik
ungs manns, en I hendi
hans er bréf.
§ 21.45 Sheena drottning
frumskógarins (Sheena).
Bandarísk ævintýramynd
________________________^
með rómantísku ívafi frá
1984 með Tanya Roberts,
Ted Wass, Donovan Scott
og Elisabeth of Toro. Leik-
stjóri er John Guillermin.
Á unga aldri verður Sheena
viðskila við foreldra sína í
myrkviöum frumskóga
Afríku. Ættflokkur einn finn-
ur hana og tekur að sér og
hún elst upp samkvæmt
lögmálum náttúrunanr.
Löngu seinna ferðast þátta-
gerðarmaður sjónvarps um
Afríku og verður Sheena þá
á vegi hans.
23.00 Einn á móti milljón
(Chance In A Million).
Nýr breskur skemmtiþáttur
með Simon Callow og
Brenda. Blelhyn i aðalhlut-
verkum.
Hlutskipti Tom Chance í
lifinu er grátbroslegt. At-
burðir sem heyra til undan-
tekninga og líkurnar á því
að þeir geti gerst eru einn
á móti milljón, henda hann
oft og iðulega og virðast
eðlilegur þáttur i lifi hans.
23.30 Lost (Kiks).
Bandarísk spennumynd frá
1985. Aöalhlutverk: Ant-
hony Geary, Shelley Hack
og Tom Mason. Leikstjóri:
William Wiard.
Myndin fjallar um unga,
óvenjulega kennslukonu.
Hún keyrir um á hraðskreiðu
mótorhjóli, lifir ætíð á mörk-
unum og teflir á tæpasta
vað. Þegar hún hittir ungan
mann sem hugsar á svipuö-
um nótum er hættan á
næsta leiti.
01.05 Fyrirbæriö
(The Thing).
Bandarísk kvikmynd frá ár-
inu 1982 með Kurt Russel
I aöalhlutverki.
Myndin gerist í veðurathug-
unarstöð á Suðurskauts-
landinu. Þar vinna tólf menn
við rannsóknir. Þeir finna
óþekktan hlut sem hefur
fallið úr geimnum og veriö
grafinn i snjó í yfir 100 þús-
und ár. Eftir að hluturinn er
tekinn inn í hús og afþíddur
fara ógnvænlegir hlutir að
gerast. Leikstjóri er John
Carptenter.
Myndin er ekki við hæfi
barria.
02.50 Dagskráríok.
Nielsen. Blásarasveitin í
Esbjerg leikur.
17.40 Torgið.
Umsjón: Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Erl-
ingur Sigurðarson flytur.
Náttúruskoðun.
20.00 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands og
Karlakórs Reykjavikur í
Laugardalshöll 22. nóvem-
ber sl. Síðari hluti.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Einsöngvari: Viðar Gunnars-
son.
20.40 Kvöldvaka
a. „Oft um Ijúfar Ijósar sum-
arnætur."
Danska skáldið Holger
Drachmann og islenskar
þýðingar á Ijóðum hans.
Gunnar Stefánsson tók
saman.
b. „Rakel", smásaga eftir
Soffíu Ingvarsdóttur. Gyða
Ragnarsdóttir les.
c. Eyöibýlið og síðasti ábú-
andinn. Ágúst Vigfússon
flytur frumsaminn frásögu-
þátt.
21.30 Tifandi tónar.
Haukur Ágústsson leikur
létta tónlist af 78 snúninga
plötum. (Frá Akureyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Franski orgelleikarinn
André Isoir leikur orgelverk
eftir Cesar Franck og 7ö-
hann Sebastian Bach.
23.00 Andvaka.
Umsjón Pálmi Matthíasson.
(Frá Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
Umsjón: Sigurður Einars-
son. (Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
FOSTUDAGUR
5. júní
6.00 I bítið. Rósa G. Þórs-
dóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir m.a. frá
veðri, færð og samgöngum
og kynnir notalega tónlist í
morgunsárið. Fréttir á
ensku eru sagöar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Skúla Helgasonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón:
Leifur Hauksson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Gunnar
Svanbergsson.
16.06 Hringiöan. Umsjón:
Broddi Broddason og Ería
B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Lög unga fólksins. Val-
týr Björn Valtýsson kynnir.
22.05 Snúningur. Umsjón:
Vignir Sveinsson.
00.10 Næturútvarp. Óskar
Páll Sveinsson stendurvakt-
ina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Inga Eyda rabbar við hlust-
endur og les kveðjur frá
þeim, leikur létta tónlist og
greinir frá helstu viðburðum
helgarinnar.
f989
rnBBEBSMSl
FÖSTUDAGUR
5. júní
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pétur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
litur yfir blöðin. Fréttir kl.
7.00, 8.00 og 9.00.
09.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Sumarpoppið á sínum stað,
afmæliskveöjur og kveðjur
til brúðhjóna. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
12.00—12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkið sem
ekki er í fréttum og leikur
létta hádegistónlist. Fréttir
kT.73.0tf-...“ ------
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og föstudagspoppið.
Ásgeir hitar upp fyrir helg-
ina. Fréttir kl. 14.00, 15.00,
16.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir i Reykjavík siðdeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólk sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00—22.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaði
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
22.00—03.00 Haraldur Gísla-
son nátthrafn Bylgjunnar
kemur okkur í helgarstuð
með góðri tónlist.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Ólafur Már
Björnsson leikur tónlist fyrir
þá sem fara seint í háttinn
og hina sem snemma fara
á fætur.
ALFA
FH 102,9
FÖSTUDAGUR
5. júní
8.00 Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.16 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur meö
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
21.00 Blandaö efni.
24.00 Dagskrárlok.