Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.06.1987, Blaðsíða 20
20 MORGÖNBLAÐIÐ, PÖSTUÐAGUR-5. JÚNl 1987 Á Folald hverf- ur með dular- fullum hætti FJÖGURRA sólarhringa gamalt folald hvarf frá bænum Þjóðólfs- haga í Holtum snemma á mánudagsmorgunn. Ekkert hef- ur sést til folaldsins síðan og telur heimilisfólkið í Þjóðólfs- haga að því hafi verið stolið. Eigandi folaldsins hefur heitið 10.000 króna fundarlaunum. Það var um klukkan hálf níu um morgunninn að hundurinn á bænum hljóp geltandi frá bænum í áttina að hrossum sem voru í girðingu við þjóðveginn. Að sögn Lindu Jóns- dóttur, eiganda týnda folaldsins, vaknaði hún við þetta og átti von á að bfll kæmi heim að bænum, því hundurinn er vanur að taka á móti aðkomubílum með þessum hætti. Enginn bfll kom, en um hádegis- SLÁTTUVÉLAR MARKAÐURINN MYRARGÖTU 2 Folaldið sem hvarf frá Þjóðólfs- haga. Eins og sjá má ætti ekki að vera erfitt að þekkja það. Eigandi folaldsins, Linda Jóns- dóttir, tók þessa mynd daginn áður en það hvarf. bilið þegar farið var að huga að folaldsmerum sem voru í girðing- unni var yngsta folaldið horfíð. Heimilisfólkið hóf þegar leit að fol- aldinu, en hún hefur engan árangur borið. Linda sagði að hún væri sann- færð um að folaldinu hafí verið stolið. Folaldið, sem er merfolald brúnt að lit og tvístjömótt, var að- eins fjögurra sólarhringa gamalt þegar það hvarf. „Ég skil ekki hvað fær fólk til að taka íjögurra daga gamalt folald. Og ekki veit ég hvað það ætlar að gera við það, því fol- aldið verður að nærast á mjólk fyrst um sinn.“ sagði Linda. í vetur hurfu sjö hestar sporlaust frá bænum Þverá í Axarfírði. Enn hefur ekkert spurst til hrossanna að sögn heimilisfólksins á Þverá. TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KDDAK... ---------------------------------------------------| Fegurðarsamkeppni íslands 1987: Séð fyrir endann á þrotlausum æfingmn Kynningarkvöld á Broadway í kvöld „ÞETTA hefur verið erfitt og mjög tímafrekt, en um Ieið skemmtilegt og spennandi," sagði ein af fegurðardísunum tíu, sem keppa til úrslita um titilinn Fegurðardrottning íslands 1987, þegar Morgunblaðsmenn litu inn á æfingu hjá þeim í heilsurækt- arstöðinni „World Class“ nú í vikunni. Stúlkurnar sjá nú fyrir endann á þrotlausum æfingum undanfarna tvo mánuði því að í kvöld hefst hin raunverulega úrslitakeppni með kynningar- kvöldi í veitingahúsinu Broadway. Keppendurnir tíu koma þá fram i kvöldkjólum og sundbolum auk þess sem valdar og krýnd- ar verða vinsælasta stúlkan og besta ljósmyndafyrirsætan. „Þær eru búnar að ganga í gegn- um hreint víti enda sérðu hvað þær eru allar orðnar spengilegar og sætar,“ sagði Katrín Hafsteins- dóttir, sem hefur þjálfað stúlkumar í heilsuræktinni „World Class" und- anfama tvo mánuði, þrisvar í viku, tvo tíma í senn. Aðspurð um hvort svo stífar æfíngar væm nauðsyn- legar þegar svona ungar og hraust- ar stelpur ættu í hlut sagði Katrín að það veitti hreint ekki af. „Kröf- umar eru orðnar svo miklar í þessari keppni að þær verða að vera alveg í toppformi. Þær eru auðvitað allar vel vaxnar að upp- lagi, en sumar þurftu að losa sig við aukafitu hér og þar á skrokkn- um, til dæmis á rassi og læmm. Og þetta er ekki bara þjálfun í líkamsrækt og megrun heldur einn- ig í réttu mataræði. í þessum hópi vom nokkar sem vantaði bætiefni í skrokkinn þegar við bytjuðum og ég byijaði á að bæta úr því. Viku fyrir keppnina hafa þær svo fastað til að hreinsa líkamann af öllum aukaefnum," sagði Katrín. Hún kvaðst vera ánægð með ár- angurinn og sagði að stúlkurnar Þetta tekur { til lengdar. íris Guðmundsdóttir i armæfingum. Hér eru stúlkumar i talkennslu hjá Gunnari Eyjólfssyni leikara. wMiwfrí<ír! IMý afmæiisutgófa af SKUTLUNNr, sérhönnuð fyrir LANCIA af hinu heimsþekkta sportvörufyrirtæk' FILA. Nýtt, spennandi útlit, hvítur litur, hvítir stuðarar og hjólkoppar,sportrönd á hliðum og hárautt áklæði á sætum. Aðeins örfáir bílar koma til já Islands. Aj j Verð aðeinsTi mwm ý BILABORG HF ) FOSSHALSI \ S 6'S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.