Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 21
MÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
21
„Þær verða að vera í toppformi enda eru miklar kröfur gerðar í þessari keppni,“ sagði þjálfarinn og
gaf engin grið.
Hildur Guðmundsdóttir og Fjóla Grétarsdóttir í léttum lóðalyftingum. Á bak við þær er Katrín þjálfari
og fylgist með að rétt sé að farið.
hefðu lagt mjög hart að sér til að
ná þessum árangri. Eigandi World
Class, Bjöm Leifsson, sem lánaði
aðstöðuna, var ekki síður ánægður
með „innrás" allra þessara fallegu
stúlkna í stöðina og sagði að það
hefði verið virkilega gaman að hafa
þær þama undanfama tvo mánuði.
Raunar hefur hann boðið öllum
keppendunum tíu frítt námskeið í
hálft ár. „Það er nauðsynlegt fyrir
alla að halda sér í þjálfun, hvort
sem þeir taka þátt í fegurðarsam-
keppni eða ekki,“ sagði Bjöm.
Kennsla í framkomu og
tjáningu
Þáttakan í fegurðarsamkeppn-
inni hefur þó ekki aðeins lagt á
stúikumar erfiða þjálfun í líkams-
rækt og mataræði. Þær hafa einnig
Sigríður Guðlaugsdóttir fer létt með lóðin eftir tveggja mánaða þjálf-
un.
Það er eins gott að missa þetta
ekki í andlitið á sér svona rétt
fyrir úrslitakeppnina. Magnea
Magnúsdóttir handleikur lóðið.
gengið í gegnum þjálfun í fótaburði
og framkomu undir leiðsögn Sóleyj-
ar Jóhannsdóttur danskennara. Þá
hefur Gunnar Eyjólfsson leikari
kennt fegurðardísunum að tjá sig
á skýran og skilmerkilegan hátt. I
svona keppni er það nefnilega ekki
útlitsfegurðin ein sem gildir heldur
einnig framkoma og tjáning. Allir
þessir þættir í sameiningu móta
persónuieikann, sem endanlega
ræður úrslitum um hver hrepjnr tit-
ilinn Fegurðardrottning Islands
1987.
Tveggja kvölda keppni
Segja má að sjálf úrslitakeppnin
fari fram á tveimur kvöldum. Á
kynningarkvöldinu í kvöld velja
stúlkumar sjálfar úr sínum hópi
vinsælustu stúlkuna og dómnefnd
skipuð blaðaljósmyndurum tilnefnir
bestu ljósmyndafyrirsætuna. Þá
verður einnig boðið upp á rokksýn-
inguna „Allt vitlaust“ og á eftir
mun hljómsveit Grétars Örvarsson-
ar leika fyrir dansi.
Krýning Fegurðardrottingar ís-
lands og Fegurðardrottningar
Reykjavíkur fer svo fram á Gala-
kvöldi í Broadway næstkomandi
mánudag, annan í hvítasunnu.
Heiðursgestir þess kvölds verða
Johnny Logan, ísrski söngvarinn
sem sigraði í söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstöðva nýverið og
tískufrömuðurinn Gunnar Larsen
frá París, sem mun setja upp sér-
staka tískusýningu með íslenskum
fyrirsætum og innlendum fatnaði í
tilefni kvöldsins.
Starfsfólki
Dúks berast
atvinnutílboð
arslag fyrir starfsfólkið. „Við
vomm þó fljótar að sjá að
þetta var ekkert tiltökumál
og teljum okkur ekki í nein-
um vanda staddar," sagði
Hlíf. „Það er frekar hægt
að segja að okkur taki sárt
að sjá fyrirtæki sem starf-
andi hefíir verið í 40 ár, og
gengið vel, leggja upp laup-
ana. Sumar okkar hafa verið
starfandi hér í um 20 ár og
þykir því bagalegt að þurfa
að skilja við fyrirtækið. En
hér er ekki vart neinnar
óánægju og við kviðum ekki
atvinnuleysi," sagði Trúnað-
armaðurinn að lokum.
STARFSFÓLKI verk-
smiðjunnar Dúks í
Reykjavík eru þegar farið
að berast atvinnutilboð
víða að, og að sögn Hlífar
Gestsdóttur, trúnaðar-
manns starfsfólksins hjá
Dúk, hafa nokkrir starfs-
menn fengið fleiri en eitt
tilboð.
Eins og komið hefur fram
í Morgunblaðinu þá hefur
öllu starfsfólki verksmiðj-
unnar Dúks, um 40 manns,
verið sagt upp störfum. Hlíf
Gestsdóttir sagði f samtali
við Morgunblaðið að þetta
hefði í fyrstu verið sem reið-
tj
Morgunblaðið/Sverrir
Verksmiðjan Dúkur hefur um árabil saumað ullarvörur fyrir Álafoss hf. en nú leggur það niður starfsemi eftir 40 ár.