Morgunblaðið - 05.06.1987, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.06.1987, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 Bretland: Ræðismannsskrif- stofu Irana í Man- chester lögð af ERLENT VORBOÐEVN LJÓFISÁÁ Vorhappdrætti SÁÁ DREGIÐ ÍO. JÚNÍ Upplagmiða 100.000 Fjármálahneyksli komið upp í Svíþjóð Stokkhólmur, fr& Erik Liden fréttaritara Morgunblaðsins. PER-ERIK Nilson, sem gegnir embætti stj ómsýslueftirlits- manns í Svíþjóð, varð við rann- sókn uppvís að því að hafa misnotað greiðslukort það sem hann fékk til að nota í starfi sínu. Nilson fór til Portúgal síðasta haust. Hann hélt því lengi fram að portúgalski stjómsýslueftirlitsmað- urinn hefði boðið sér sérstaklega að koma en í ljós hefur komið að svo var ekki. Þeir hittust aðeins einu sinni til að borða saman hádeg- isverð. í för með Nilson var Gengi gjaldmiðla London, Reuter. LITLAR breytingar urðu á gjald- eyrismörkuðum i gær. Banda- ríkjadollari hækkaði lítillega, en viðskipti einkenndust af hóflegri bjartsýni fyrir fund leiðtoga helstur iðnríkja heims, sem hald- inn verður í Feneyjum í næstu viku. í London kostaði sterlingspundið 1,6265 dollara á hádegi í gær. Gengi annarra helstu gjaldmiðla var með þeim hætti að dollarinn kost- aði: 1,3397 kanadíska dollara, 1,8155 vestur-þýsk mörk, 2,0465 hollensk gyllini, 1,5025 svissneska franka, 37,62 belgíska franka, 6,0690 franska franka, 1313 ítalskar lírur, 144,10 japönsk jen, 6,3300 sænskar krónur, 6,7225 norskar krónur og 6,8300 danskar krónur. Únsa af gulli kostaði 450,10 doll- ara. kvenkyns samstarfsmaður hans og greiddi embætti stjómsýslueftirlits- manns farseðil þeirra beggja. Þau dvöldu á hóteli á vinsælum ferða- mannastað í Portúgal. Per-Erik Nilson hefur nú greitt fyrir það sem hann tók út af greiðslukortinu. Stjómsýslueftirlitsmaður er um- boðsmaður sænska þingsins sem á að hafa eftirlit með störfum emb- ættismanna. Nilson var einnig talsmaður þeirrar nefndar sem hef- ur rannsakað starfsaðferðir sænsku lögreglunnar og saksóknara við leit að morðingja Olovs Palme. Búist er við því að Nilson verði að segja af sér. Þrettán Kúbumenn flýðu til Flórída Key West, Florída, Reuter. ÞRETTÁN Kúbumenn báðu um pólitískt hæli í Bandarikjunum í dag eftir að hafa flúið á litlum fiskibáti frá heimalandi sínu. Kúbumennimir komu að landi á Stock-eyju skammt frá suðurodda Flórída eftir 14 stunda siglingu, en 145 kflómetrar eru á milli Kúbu og Flórída. Lagt var upp síðla kvölds í skjóli náttmyrkurs. Hópurinn er einn sá stærsti um langt árabil sem flýr frá Kúbu með þessum hætti. Ein kona var meðal bátsvetja. Karlmennimir voru á öll- um aldri. Hér er japanski kaupsýslumaðurinn að bragða á „stærsta ismola í heimi“. Grænlenskur ísjaki á leiðinni til Japans JAPANIR hafa lært að meta grænlenska ísjaka. Af þeim ástæð- um kom japanskur kaupandi þessarar vöru til Álaborgar í Danmörku fyrir skömmu til þess að kanna gæði „stærsta ísmola í heimi“, en jakinn tyllti aðeins niður tá á Norður-Jótlandi á leið sinni frá Grænlandi til Japans. Japaninn hefur fest kaup á 40 tonnum af ís, og svamlar meginið af honum enn í söltum sjó við Nuuk (Godtháb). „ísmolinn", sem áður getur, fer með skipi til Japans, en þar á hann að draga til sín áhorfendur á mikiili iðnsýningu i júlímánuði. Kostnaðurinn: 250.000 danskar krónur (um 1.425.000 ísl. kr.). Fimm sendierindrekum vísað úr landi London, Reuter. BRETAR skipuðu írönum i gær að loka ræðismannsskrifstofu sinni í borginni Manchester og ráku fimm íranska embættis- menn úr landi, að því er tilkynnt var í breska utanríkisráðuneyt- inu. Gripið var til þessa ráðs til að hefna fyrir það að háttsettum breskum stjórnarerindreka var rænt í Teheran og hann barinn til óbóta. íranamir í ræðismannsskrifstof- unni fengu sjö daga til að hafa sig á brott. Þessi ákvörðun hefur ekki áhrif á starfsemi íranska sendiráðs- ins í London. Akhunsadeh Basti, fyrsti sendi- ráðsritari Irana, var kvaddur í utanríkisráðuneytið í London og sagt að íranar bæru fulla ábyrgð á þessu máli. Deilan snýst um stjómarerind- rekan Edward Chaplin. Sex íranskir byltingarverðir drógu hann út úr bifreið sinni í Teheran með byssur á lofti. Honum var haldið í einn sólarhring og hafa íranar hótað að draga hann fyrir rétt. Ákænlr á hendur honum hafa ekki verið gefn- ar upp. Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð- herra Breta, sagði að Chaplin hefði verið veitt þessi meðferð vegna þess að Ahmed Ghassemi, íranskur sendierindreki, var handtekinn fyrir búðaþjófnað í Manchester. Tals- maður utanríkisráðuneytisins sagði að Ghassemi hefði átt að koma fyr- ir rétt 11. júní vegna búðahnupls, ógætilegs aksturs og árásar á lög- regluþjón. Af því yrði ekki og væri Ghassemi einn mannanna fimm, sem vísað hefði verið úr landi. Ghas- semi hefur neitað öllum ásökunum. Sendiráðsritaranum var sagt að ekki væri viðunandi að mál Ghas- semis og Chaplins væm spyrt saman og breska stjómin yrði ekki beitt þrýstingi. „Þetta er alvarlegt mál. Breska stjómin beitir nítjándu aldar vinnu- brögðum," sagði sendiráðsritarinn Basti þegar hann gekk út úr breska utanríkisráðuneytinu. Hann kvaðst telja að írönsk stjórnvöld myndu grípa til gagnaðgerða innan nok- kurra daga. Stjómmálasamband er milli Breta og írana. Ellefu manns starfa í íranska sendiráðinu í London. Bretar hafa ekki sendiráð í Teher- an. Þess í stað hafa nítján breskir stjómarerindrekar aðsetur í sænska sendiráðinu þar í borg. Ástæða þess er sú að Bretar töldu að íranar gætu ekki tryggt öryggi sendierind- reka sinna eftir að Iranskeisara var steypt af stóli árið 1979.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.