Morgunblaðið - 05.06.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
33
Ragnheiður O. Bjöms-
son — Kveðjuorð
Minning:
Óskar Sigurðsson
bakarameistari
Fædd 25. desember 1896
Dáin 21. maí 1987
Ragnheiður O. Bjömsson hefir
kvatt þetta líf í hárri elli og þar sem
undirrituð gat ekki komið því við
að fylgja henni síðasta spölinn em
nokkur orð sett á blað til þess að
þakka löng og góð kynni.
Þessi glaðlega og góða kona er
raunar einn þáttur minningar frá
unglingsámm á Akureyri. Þegar
komið var í verslun hennar til að
kaupa dúk eða púðaborð og velja
gam sem vel færi saman var tekið
á móti manni með svo mikilli hlýju
og elskusemi að aldrei gleymist.
Móðir mín hafði gaman af að sauma
út og ég man eftir ferðum eftir
bandspotta til Ragnheiðar til að
vera viss á að telpan keypti réttan
lit. Þessar sendiferðir vom famar
án nokkurra undanbragða og
skokkað létt niður Brekku og Hafn-
arstrætið í hannyrðaverslunina,
sem þar stóð allan minn uppvöxt
og var hluti af svip bæjarins. Mót-
tökumar vom alltaf þær sömu og
góðu óskimar fylgdu manni alla
leið heim. Ekki tel ég að Ragn-
heiður hafi gert sér grein fyrir því,
hve hlýtt viðmót getur haft djúp-
stæð áhrif á börn og unglinga, en
henni var þetta eðlislægt og ég man
hana best brosandi.
Við Ragnheiður 0. Bjömsson
kynntumst fyrir alvöru þegar til
stóð að stofna Zontaklúbb á Akur-
eyri. Hún kom heim til mín og
kynnti mér þennan félagsskap, sem
hún hafði þá þegar mikinn áhuga
á. Óhætt er að fullyrða að það var
hennar verk fyrst og fremst, að
klúbburinn var stofnaður. Hún varð
fyrsti formaður og undirrituð fyrsti
ritari, svo að kynnin urðu fljótt
meiri og af öðmm toga. En sökum
þess að ég fluttist alfarin frá Akur-
eyri 1952 varð samstarfið ekki ýkja
langt en nógu langt til þess að
kynnast þessari mætu konu allnáið.
Ekki bar fundum oft saman eftir
það, en vinátta hennar og hlýja var
gleðiefni hverju sinni. Meðan hún
bjó enn á gamla heimilinu sínu inni
í Fjöm var boðið til fagnaðar. Þar
stóð gömul menning föstum fótum,
en nýjum viðhorfum heilsað af
skilningi, t.a.m. vom manneldismál
mjög hátt sett. Vel man ég kökur
og fínustu tertur á borðum Ragn-
heiðar, sem höfðu annað yfirbragð
en almennt tíðkaðist þá, en það var
sökum þess að hún bakaði allt sitt
brauð, líka dýrindis kökur úr heil-
hveiti.
Hún var snemma mikil áhuga-
manneskja um hollustufæði og var
raunar langt á undan samtíð sinni
í skilningi á mikilvægi þess að borða
gijón og baunir, gróf brauð, ávexti
og grænmeti og kannski var hún
fyrst hér til að skilja og framkvæma
þessa svonefndu „makrobiotisku"
fæðu, sem nú er svo ofarlega á
blaði víða um lönd. Við Zontasystur
vomm vanar að borða saman einu
sinni í mánuði á Hótel KEA og mér
er minnisstætt, að Ragnheiður lét
bera sér hollustufæði, hvað svo sem
var á boðstólum á meðan við hinar
vomm enn í sósu-sulli og endalausu
kjöti, því að fiskur þótti ekki hátíða-
matur á þeim ámm.
Nú hefir síðasta bam Odds
Bjömssonar prentsmiðjustjóra og
konu hans, frú Ingibjargar, kvatt.
Allt þetta fólk setti svip á Akureyri
á uppvaxtarámm mínum og ég var
kunnug þeim öllum nema sr. Bimi
en hitti síðar á lífsleiðinni böm
hann. Ragnheiður giftist ekki og á
ekki afkomendur en bræðrabömin
vom henni sem hennar eigin böm.
Faðir minn, Snorri Sigfússon, hafði
miklar mætur á Oddi Bjömssyni
og ég man vel að það var a.m.k.
um skeið venja að fara með fullnað-
arprófsbömin í heimsókn niður í
prentsmiðju til Odds og sýna þeim
leyndardóma prentlistarinnar. Odd-
ur tók ævinlega á móti hópnum,
sýndi og sagði frá. Það var mikil
reisn yfír þessum manni eins og
raunar börnum hans og afkomend-
um, og Ragnheiður með sína ljúfu
framkomu bar merki menningar-
legs uppeldis. Hún var í raun „grand
dame“.
Síðast bar fundum saman vetur-
inn 1984, þegar ég var nokkra daga
á Akureyri. Zontasystur buðu mér
til fagnaðar á heimili Guðríðar
Eiríksdóttur og Gunnar Ragnars.
Þar var Ragnheiður með okkur,
glöð og kát, þótt heym væri tekin
að dofna. Á eftir kom ég til hennar
á heimili hennar í Hlíð og þar kvödd-
umst við. Hún settist við hljóðfærið
sitt og lék svolítið fyrir mig, en hún
var músíkölsk og listelsk kona. „Ég
spila alltaf svolítið á hverjum degi,
og þakka Guði fyrir meðan ég get
það,“ sagði hún og svo kyssti hún
mig á báðar kinnar. Nú grípur hún
ekki oftar í píanóið sitt eða gleður
á annan hátt, en minningin um
hana lifír með þeim sém þekktu
hana. Blessuð sé minning Ragn-
heiðar O. Bjömsson.
Anna S. Snorradóttir
Fæddur 15. maí 1911
Dáinn 31. maí 1987
í dag er til moldar borinn vinur
minn og félagi, Óskar A. Sigurðsson
bakarameistari. Okkar fyrstu kynni
vom 1. apríl 1938 er ég gerðist
sendisveinn hjá fyrirtækinu G.
Ólafsson & Sandholt, en hann starf-
aði þá sem bakari þar. Unnum við
þarna saman í þijú ár eða til ársins
1941, er hann stofnsetti sitt fyrsta
bakarí á Bárugötu 11. Nokkm síðar
flutti hann sig um set og opnaði
bakarí á Skúlagötu 61 og rak það
af miklum myndarbrag þar til hann
keypti bakaríið á Laugavegi 5 af
Óskari Thorberg Jónssyni.
Hann rak bakaríið á Laugavegi
5 þar til Brauð hf. hóf starfsemi
sína 1965.
Hinn 6. september 1963 stofnuð-
um við þrír félagar, Óskar A.
Sigurðsson, Kristinn K. Albertsson
og Haukur L. Friðriksson, fyrirtæk-
ið Brauð hf.
í 12 ár rákum við þetta fyrirtæki
saman félagamir þrír eða til ársins
1977 er Óskar heitinn seldi okkur
sinn hlut vegna heilsubrests. Á
þessum 12 ámm varð þetta fyrir-
tæki að því stærsta í sinni grein.
Öll þessi ár var samstarf okkar
félaganna hið besta.
Síðastliðin 12—15 ár hefur Óskar
heitinn átt við erfiðan og illvígan
sjúkdóm að stríða, sem að lokum
yfirbugaði hann.
Þegar ég lít yfir farinn veg, þá
er ég þakklátur fyrir þann tíma sem
ég átti því láni að fagna að starfa
með Óskari heitnum. Okkar sam-
starf var mjög gott og minnist ég
ekki annars en að samstarf okkar
félaganna þriggja hafí ávallt verið
snurðulaust.
Nú þegar ég kveð vin minn, þá
sendum við hjónin og fjölskylda
okkar okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur til eftirlifandi eiginkonu hans,
Hrefnu Pálsdóttur, dætra hans og
fjölskyldna þeirra.
Við biðjum góðan guð að gefa
þeim styrk í sorg þeirra.
Haukur L. Friðriksson
t
Ástkær móöir okkar,
ELENORA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Þórufelli 10,
Reykjavik,
lést á Vífilsstaðaspítala miövikudaginn 3. júní.
Böm hinnar látnu.
t
Maðurinn minn,
SIGURÐUR MÁR PÉTURSSON,
Borgarhottsbraut 78,
Kópavogi,
lést í Landspítalanum þriöjudaginn 2. júní.
Fyrir hönd aöstandenda,
Steingeröur Sigurðardóttir.
t
Faðir okkar,
JÓN B. ÓLAFSSON
óður bóndi
Fffustöðum, Arnarfirði,
lést i sjúkrahúsi ísafjaröar 29. maí.
Jaröarförin ferfram frá Bfldudalskirkju laugardaginn 6. júníkl. 14.00.
Bömin.
t
Eiginmaður minn, faðir, sonur, bróöir og mágur,
GfSLI SIGHVATSSON,
Birkihvammi 13,
Kópavogi,
sem lést miövikudaginn 27. maí, verður jarösunginn frá Lang-
holtskirkju í Reykjavík föstudaginn 5. júní kl. 13.30.
Ólöf Helga Þór, Gunnar Sveinn,
Elín Ágústsdóttir, Sighvatur Bjamason,
Krístín Sighvatsdóttir Lynch, Charies Lynch,
Bjami Sighvatsson, Viktor Sighvatsson, Ásgeir Sighvatsson, Aurora Friðriksdóttir,
Elín Sighvatsdóttir.
10% staðgreiðsluafsláttur
Dúndur rýmingarsala!
hælaháir skór
dömumokkasínur
herraspariskór
kínaskór og espadrillur
úrval af barnastrigaskóm
nokia stígvél í sveitina
20-30% verðlækkun
á nýjum og gömlum vörum
mr nú 500
4495 nú 090
499T nú 1300
Frá 195
Frá 310
SÍÐUMÚLA 23, SÍMI 84131
sporið í rétta ótt!
◄