Morgunblaðið - 05.06.1987, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
43
Hart bað Donnu
að verður vart ofsögum sagt
af hrakförum Gary Harts, nóg-
ar eru þær samt. Um daginn var
birt mynd á þessum stað, en á henni
var forsíða hins óábyrga slúðurrits
National Enquirer, og mátti þar sjá
Gary kappann með fyrirsætuna
Donnu Rice í fanginu. Myndin ku
hafa verið tekin á Bahama-eyjum,
meðan þau eyddu þar viku saman.
Donna segist ekkert í því skilja
hvaðan myndimar eru komnar, því
þær áttu vitaskuld ekki að komast
í hendur ókunnugra, síst gerókunn-
ugra blaðamanna lygasnepilsins
fyrrnefnda.
„Mér finnst ég hafa verið niður-
lægð með öllum þessum skrifum
og það fer ekki milli mála að ein-
hveijir andstæðingar Garys hafa
notfært sér samband okkar á hinn
auðvirðilegasta hátt. Umræðan hef-
ur öll verið á sömu bókina lærð og
nú er svo málium komið að ég horfi
ekki einu sinni á sjónvarpsfréttir."
Síðast en ekki síst hefur Donna
nú upplýst að Hart hafi beðið sín,
en hún hryggbrotið hann til þess
að hún yrði honum ekki fjötur um
fót á leið hans til Hvíta hússins.
Endalok þeirrar sögu þekkja all-
ir. Fram að þessu hefur Donna
harðneitað að hafa átt í ástarsam-
bandi við Hart og ekki rætt um
samband þeirra opinberlega, en eft-
ir að áðurnefndar myndir birtust
telur hún sig hafa litlu að leyna,
enda má pólítískur Harts heita á
enda.
MJÚKUR YST SEM INNST
Þegar þú heldur á rauðum poka
af Merrild-kaffi í hendinni,
finnst þér þú næstum geta fundið
kaffigæðin gegnum mjúkan pokann.
Merrild — gæðakaffi, sem bragð er af,
enda framiejtt úr bestu fáanlegum
kaffibaunum frá Brasilíu, Kólumbíu
og Mið-Ameríku.
Óvenjulega höfugur kaffiilmur og bragð,
sem varir lengur í munni, en þú átt að
venjast, eru meðal þess, sem gerir
kaffið svo sérstakt.
Merrild setur brag á
sérhvern dag.
(^) MYNDAMÓT
ff
Fegurðar-
drottningar
íslands
og Fegurðar-
drottningar
Reykjavíkur 1987
ÍKVÖLi
10,20.
Takmarkaður miðagöldi.