Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 50
1*1 VSpl í'^'l •! H’jr;,'1í ''V-nn íf'l'M
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
Margar spurningar vakna eftir „rassskeHinn“ ífyrrakvöld - hver eru viðbrögðin?
Erum við á villigötum, eða
var þetta bara stórslvs?
„HVAÐ er maðurinn að geral Sjá
nú þetta, það er eins og þeir
hafi aldrei spilað fótbolta! Vlð
erum betri á sunnudagsmorgnum
niðri við Laugardalslaugl" Upp-
^ hrópanir sem þessar heyrðust
Vneðal þeirra tæplega níu þúsund
áhorfenda sem sáu landsleik ís-
lands og Austur-Þýskalands á
Laugardalsvelllnum á miðviku-
daginn. Áhorfendur, leikmenn og
landsmenn allir voru óhressir
með leikinn, enda full ástæða til.
Sex sinnum lá boltinn í netinu hjá
fslenska liðinul Hver er ástæðan
fyrir því að slfkt gerist? Er lands-
liðið á einhverjum villigötum? Er
ástæða fyrir forystumenn KSÍ að
hugsa sinn gang varðandi fram-
tfðina eða er slakt gengi liðsins
ef til vill leikmönnum að kenna -
eða þjálfaranum? Einhverjar
skýringar hljóta að vera á þessum
-_jhrakförum.
íslenska landsliðiö byrjaði vel í
Evrópukeppninni eins og menn
muna eflaust. Jafntefli við Frakka
og síðan Sovétmenn hér heima
en síðan komu tveir slakir leikir
erlendis, fyrst í Austur-Þýskalandi
og síðan í Frakklandi, og lokst
þessi hörmung sem fólk sá á mið-
vikudaginn. Ef svo heldur fram
sem horfir og mið er tekiö af þróun
leikja okkar í keppninni er svart-
nætti framundan. Vonandi tekst
landsliðsstrákunum að gleyma
þessum leik sem fyrst og mæta
tvíefldir til leiks í september þegar
við mætum Norðmönnum, ekki
veitir af.
Auðvitað megum við ekki
gleyma að við erum fámenn þjóð
og fræðilega ættum við ekki að
geta staðið í stórþjóðum í íþróttum
en við höfum gert það að undanf-
örnu og ef við berum knattspyrn-
una saman við handknattleikinn
þá er ekki að undra þó fólk geri
miklar kröfur, ef til vill of miklar á
stundum.
Undirritaður hefur áður látið þá
skoðun sína í Ijós aö leikur islands
‘og Frakklands í París hafi verið
slakur og leiðinlegur á að horfa.
Leikurinn hér á miðvikudaginn var
énn leiðinlegri, ekki fyrir það að
viö töpuðum stórt, heldur vegna
þess að enginn barátta var í leik-
mönnum okkar og „þetta jaðraði
viö áhugaleysi", eins og Pétur
Pétursson sagði i samtali við
Morgunblaðið eftir leikinn. Ef leik-
menn, sama hvort það eru atvinnu-
menn eða áhugamenn, hafa ekki
áhuga á að leika fyrir fslands hönd
eiga þeir ekki að gefa kost á sér
í slíka leiki. Það eru margir fram-
bærilegir leikmenn sem eru reiðu-
búnir að leika landsleiki.
Þáttur þjálfarans
Hver er þáttur Sigfried Held
- ijendsliðsþjálfara? Hefur honum
mistekist í hinu erfiða starfi sínu?
Eðlilegt að menn velti því fyrir sér
eftir þrjá tapleiki í röð þar sem
markatalan er 10:0!
Margir þeir er rætt var við í gær
voru þeirrar skoðunar að Held
hefði mistekist. Menn spyrja sig
hvert sé hlutverk þjálfara þegar
hann sér ekki leikmenn nema
tveimur dögum fyrir leik. Þegar
þannig háttar hlýtur þjálfari fyrst
og fremst að þurfa að leggja upp
leikkerfi hverju sinni og koma leik-
mönnum í „rétt" skap fyrir leikinn.
Þessi tvö atriði voru ekki í lagi í
leiknum á miðvikudaginn. Strák-
arnir voru daufir alveg frá fyrstu
mínútu og þó svo Held segi í við-
tali eftir leikinn að það sé ekki
spurning um leikkerfi, heldur hug-
arfar, sér hver maður að leikkerfið
skiptir auðvitað miklu máli í heilum
Morgunblaðið/Bjarni
• Nei, ekki bakvörður elnu sinni
ennll Þessi skemmtilega mynd
var tekin á æfingu fyrir landsleik-
inn og hvort sem Slgurður
Jónsson er að hugsa um „bak-
varðarstöðuna" eða ekki er Ijóst
að hann nýtist ekki sem skildi á
þeim stað sem hann leikur nú
með landsliðinu.
knattspyrnuleik. Val á þeim mönn-
um sem leika í liðinu hverju sinni
skiptir einnig miklu.
Hvar var vörnin?
Vörn íslenska landsliðsins á
miðvikudaginn var úti á þekju.
Sævar Jónsson var að vísu þokka-
legur en Gunnar og Ágúst Már
náðu sér aldrei á strik. Reyndar
var það skoðun margra að Guðni
Bergsson hefði átt að hefja leikinn
í stað Ágústs Más. Guðni hefur
leikið vel það sem áf er íslands-
mótinu og auk þess lék hann mjög
vel með ísienska ólympíuliðinu
gegn Hollendingum á dögunum.
Held stjórnaöi þeim leik og sá
Guðna og Ágúst Má, en aðspuröur
um möguleikann á að láta Guðna
byrja sagði Held: „Nei, Ágúst Már
hefur leikið þessa stöðu í undanf-
örnum leikjum. Guðni lék ekki
nákvæmlega þessa stöðu gegn
Hollandi og þvf vildi ég ekki
skipta."
Jæja, svo það er nóg aö hafa
leikið stöðuna áður, þá ert þú ör-
uggur um hana. Þá verður núver-
andi landslið ekki burðugt eftir svo
sem áratug ef aldrei má breyta
til. Það er rétt hjá Held að Guðni
lék ekki nákvæmlega sömu stöðu
gegn Hollandi en það munaði ekki
miklu og ef Held er þeirrar skoðun-
ar að Guðni geti ekki gætt leik-
manns þá er það mesti misskiln-
ingur. Guðni hefur gert það með
ágætum árangri og þar sem Guðni
og Sævar þekkja hvorn annan vel,
vegna þess að þeir leika með sama
liði, hefði útkoman varla getað orð-
ið verri. Það heföi ekki gert mikið
til þó einhverjir hefðu talað saman
í vörninni á miðvikudaginn.
Stöðubrengl
Það hefur löngum verið deilt á
Held fyrir að láta menn leika í allt
öðrum stöðum með landsliðinu en
þeir eru vanir með sínum félagslið-
um. Þannig leikur Sigurður sem
hálfgerður bakvörður, þó svo á
pappírnum eigi hann að vera
hægra megin á miðjunni, Ragnar
leikur sem miðjutengiliður en á
hvergi annars staðar heima en í
fremstu víglínu og Arnór leikur
sem fremsti maður en á auðvitað
að vera á miðjunni.
I leik íslands og Spánverja á
Spáni í september 1985, en það
var síðasti leikur landsliðsins undir
stjórn Tony Knapp, lék Sigurður á
miðjunni og þeir sem sáu þann
leik hljóta að vera sammála um
að þar lék Sigurður einn sinn besta
leik. Hann var eins og kóngur í ríki
sínu á miðjunni. Eftir það var hann
settur í „bakvarðarstöðu" og þó
svo hann hafi staðið sig vel þar
er ég ekki í nokkrum vafa um að
kraft hans og tækni mætti nýta
mun betur fyrir liösheildina.
Hvað varðar rangar stöður
þeirra Ragnars og Arnórs liggur í
augum uppi, fyrir þá sem fylgst
hafa með þeim í gegnum árin, að
þeir eiga að leika í þeim stöðum
þar sem þeir nýtast best. Ragnar
í framlínunni og Arnór hægra meg-
in á miðjunni. Sigurður á miðjunni
og þeir Arnór og Ásgeir við hlið
hans væri sterkasta miðja sem við
gætum haft.
Það hefur oft verið sagt að þjálf-
arar breyti aldrei sigurliði. Það er
ágætt sjónarmið út af fyrir sig en
eftir að hafa leikið fimm leiki í
Evrópukeppninni, jafntefli í fyrstu
tveimur og síðan þrjú töp, er full
ástæða til að gera einhverjar
breytingar. Þær sem hér að fram-
an hafa veriö nefndar eru þær sem
fyrst koma uppí hugann og eflaust
mætti hressa aðeins upp á liðið
með fleiri breytingum, en við því
er varla að búast á meðan Sigfried
Held ræður ríkjum því hann hefur
lýst því yfir að íslensk knattspyrna
sé léleg og því vill hann sjálfsagt
ekki velja áhugamenn héðan til að
leika ef við eigum í lið með atvinnu-
mönnum.
Til hvers er Guðni?
Guðni Kjartansson er aðstoðar-
maður Sigfried Held og hefur verið
það frá því hann var ráðinn til
starfa. Þegar Ellert B. Schram
formaður KSÍ var spurður um
hvernig verkaskiptingin ætti að
vera á milli Held og Guðna svaraði
hann því til að Held bæri að stjórna
í landsleikjum en Guðni sæi um
undirbúninginn á milli leikja. Þetta
fyrirkomulag minnir einna helst á
þegar handknattleikslandsliðið var
æft fyrir HM í Danmörku á sínum
tíma með bréfaskriftum frá Pól-
landi.
Daginn fyrir leik íslands og
Frakklands á Parc des Princes leik-
vanginum í París í apríl fékk
íslenska iiðið að æfa á leikvellinum
sjálfum í eina og háifa klukku-
stund. Blaðamenn þeir sem fylgdu
liðinu fengu að fylgjast með æfing-
unni og satt best að segja kom
dálítið furðulegur svipur á flesta
viðstadda. Landsliðþjálfarinn tók
nokkra bolta og skaut á Bjarna í
markinu mestan hluta æfingarinn-
ar á meðan aðstoðarþjálfarinn sá
um að stjórna æfingunni. „Til
hvers er landsliðsþjálfarinn?" varð
einum að orði og lái honum hver
sem er.
Held ráðinntil KSÍ
Að lokum iangar mig til að rifja
aðeins upp aðdraganda þess að
Held var ráðinn þjálfari íslenska
landsliðsins. Nokkur fjöldi sótti um
stöðu landsliösþjálfara og kom það
mörgum á óvart. Engu að síður
var aðeins rætt við Held, eða við
vitum ekki betur. Vel má vera að
rætt hafi verið við fieiri í síma en
aðeins Sigi Held kom hingað til
lands til viðræöna og einhvern
vegin hafði maður á tilfinningunni
að eftir að hann kom inn í myndina
hafi enginn annar átt möguleika.
Hvers vegna veit ég ekki en varla
getur það verið vegna árangurs
Held sem þjáfara því sá ferill er
ekki glæstur ef marka má hið virta
þýska íþróttablað Kicker.
Hvernig í ósköpunum er hægt
að ráða þjáifara þannig að hann
komi aðeins í leiki og ekki söguna
meir. Það hlýtur að vera lágmarks-
krafa að sá sem á að velja íslenska
landsliðið, í hvaða íþrótt sem er,
sé á landinu öðru hvoru, að
minnsta kosti, og sjái einn og einn
leik í deildunum þannig að hann
sé dómbær á hverja eigi að kalla
til. Nema allt sé ákveðið fyrirfram
og góð frammistaða leikmanna
breyti þar engu um. Erfiðara sé
að komast úr liöinu en í þaö. Von-
andi er það ekki raunin. Vonandi
var þessi leikur bara slys!
Loks tapaði Moses
EDWIN Moses, bandaríski
grindahlauparinn frábæri, laut í
lægra haldi í gær í 400 metra
grindahlaupí eftir 122 sigra í röð.
Hann hafði ekki tapað í þessari
sérgrein sinni í tæp 10 ár, síðan
26. ágúst 1977 er Vestur-Þjóð-
verjinn Harald Schmidt varð á
undan honum á móti í Dusseld-
orf. í gær var það landi Moses,
Danny Harris, sem vann hann
en Moses varð annar. Mótið í
gær fór fram í Madrid á Spáni...
Navratilova og Graf í
úrslitum
MARTINA Navratilova og Steffi
Graf mætast í úrslitaleiknum í
einliðaieik kvenna á opna franska
meistaramótinu í tennis á morg-
un. Navratilova tók sinn gamla
keppinaut Chris Evert í kennslu-
stund í öðrum undanúrslitaleikn-
um, 6:2, 6:2, og í hinum sigraði
Steffi Graf argentínsku stúlkuna
Gabriela Sabatini, 6:4, 4:6, 7:5.
Það vakti nokkra athygli er móts-
haldarar rööuðu keppendum í
.
• Martinn Navratilova f sigur-
leik sínum gegn Chris Evert í
gær. Hún sigraði auðveldlega.
styrkleikaröð að Steffi Graf var í
öðru sæti á eftir Navratilovu og
Evert í þriðja sætinu. Þeir
frönsku voru því væntanlega án-
ægðir í gær. Evert hefur sjö
sinnum sigrað á móti þessu,
síðast i fyrra en nær ekki að verja
titilinn. Hún átti aldrei möguleika
gegn Martinu, en viðureign Graf
og Sabatini var stórskemmtileg
og æsispennandi. í síöasta sett-
inu náði Graf að sigra 7:5 eftir
að hafa verið undir 3:5...
EM í körfubolta
ÚRSLITAKEPPNI Evrópumóts
landsliða í körfuknattleik hélt
áfram í Aþenu í gær. í B-riðli
voru eftirtaldir þrír leikir: Holland
sigraði ísrael 61:60 eftir að hafa
verið 43:24 yfir í hálfleik. Þá vann
Ítalía Pólland 99:85 (51:44) og
Tékkóslóvakía vann Vestur
Þýskaland 95:72 (48:31). í Á-riöli
voru eftirtaldir leikir: Sovétmenn
sigruðu Júgoslava 100:93
(44:41), Grikkir unnu Rúmena
109:77 (60:49), Rúmenar töpuðu
einnig fyrir Spánverjum í gær,
98:116 (51:70) og Sovétmenn
unnu Frakka 107:78 (55:37)...
Knattspyrna í kvöld
Þrír leikir verða í kvöld í 2. deild
karla í knattspyrnu. KS og Víking-
ur mætast á Siglufiröi, ÍR og ÍBV
leika á Gervigrasvellinum í Laug-
ardal og Breiðablik fær Selfoss
í heimsókn í Kópavoginn. Allir
leikirnir hefjast kl. 20.00. Þá er
einn leikur í 1. deild kvenna. Á
Akranesi leika lA og (BK. Kvenna-
leikurinn hefst einnig kl. 20.00.
íþróttanámskeið í
Hafnarfirði
INNRITUN í (þrötta- og leikja-
námskeið Hafnarfjarðar stendur
nú yfir í Víðistaðaskóla, á Hörðu-
völlum og við Öldutúnsskóla.
Námskeiðið er fyrir 9 - 12 ára
krakka.
Verður Real Madrid
tvöfaldur Meistari?
REAL Madrid, sem er með
tveggja stiga forystu í spænsku
deildinni þegar þrjár umferðir eru
eftir, vann Atletico Madrid 3:2 i
fyrri undanúrslitaleik bikarkeppn-
innar.
Real Sociedad og Bilbao gerðu
markalaust jafntefli í hinum und-
anúrslitaleiknum.