Morgunblaðið - 03.07.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987
Ti.lAf. i-.mT ^ ,-r-t ^ r # t x-. .rr. ^
29
«=*---H *
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, síml 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö.
Velmegnn
og menning
Fléstar þjóðir keppa að
tveimur megin markmið-
um: menningu og velmegun. í
fjölbreyttu og flóknu samfélagi
líðandi stundar og næstu
framtíðar hvflir ásókn ein-
staklinga og þjóða eftir
þessum keppikeflum ekki sízt
á menntun og þekkingu. Það
var fyrst og fremst aukin
menntun og þekking þjóðar-
innar, meðal annars verk-
menntun og vélvæðing í
atvinnulífinu, sem margfaldaði
verðmæti í þjóðarbúinu á tutt-
ugustu öldinni og leystu
fátæktarfjötrana af þjóðinni.
Þær þjóðir heims, sem lengst
hafa náð í almennri menntun,
fagmenntun, vísindalegum
rannsóknum og þekkingu yfir-
höfuð, státa jafnframt af
blómlegastri menningu og
mestri almennri hagsæld.
Háskóli íslands er „flagg-
skip“ íslenzka fræðslukerfisins
og gegnir stóru og mikilvægu
hlutverki í framsókn þjóðar-
innar til betrí daga, í margs
konar merkingu þeirra orða.
„Skilningur á mikilvægu starfi
háskólans vex í þjóðfélaginu
og þá einnig stuðningur við
hann. Þessi aukni skilningur
og stuðningur kemur fram í
ýmsum myndum, bæði frá
samtökum, fyrirtækjum og
einstaklingum. Mikilsverður er
stuðningur Reykjavíkurborg-
ar, en bæði borgarstjóri og
borgarstjóm hafa sýnt mikinn
áhuga á að efla háskólann og
samstarf við hann,“ sagði Sig-
mundur Guðbjamarson, rekt-
or, á háskólahátíð fyrir
skemmstu, en liðið skólaár út-
skrifaði háskólinn 529 kandid-
ata.
Rektor nefndi sérstaklega
Líftæknihús, sem reist verður
fyrir afmælisgjafír Reykjavík-
urborgar og Rannsóknarráðs
ríkisins [75 ára afmæli háskól-
ans 1986], og tæknigarð, sem
byggður verður í samvinnu
Reykjavíkurborgar, Þróunar-
félags fslands, Félags
íslenzkra iðnrekenda, Tækni-
þróunar hf. og Háskóla ís-
lands. Verður aðstaðan í
tæknigarðinum leigð út til
rannsókna og þróunarstarfa,
en háskólinn eignast húsnæðið
á 20 ámm.
„Merkasta afmælisgjöfín
sam háskólinn fékk var fyrir-
heit ríkisstjómarinnar um að
fjórfalda fjárveitingar í Rann-
sóknarsjóð háskólans úr 5. m.
kr. í 20 m. kr. á næstu fjórum
ámm . . . Þakka ég mennta-
málaráðherra, Sverri Her-
mannssyni, vasklega fram-
göngu í þessu máli og ágætt
samstarf," sagði rektor í hátíð-
arræðu sinni.
Rektor vék í ræðu sinni að
helztu gagnrýnisatriðum á há-
skóla á Vesturlöndum. Þeir
væm ásakaðir fyrir að leggja
of mikla áherzlu á þjálfun há-
skólakennara og vísinda-
manna, en of litla áherzlu á
að þjálfa framkvæmda- og at-
hafnamenn, sem þori að taka
áhættu í þjóðarbúskapnum.
Háskólar væm of íhaldssamir
og leggi ekki næga áherzlu á
að mæta framtíðarþörfum
samfélagsins. Hann vék jafn-
framt að helztu vandamálum
skólanna: takmörkuðu fjár-
magni, ónógri getu til að
mæta akademískum kröfum,
skammtímasjónarmiðum, sem
sett væm fram á kostnað
langtímamarkmiða, tilhneig-
ingu til stöðnunar og of litlum
stuðningi við undirstöðurann-
sóknir.
Þrátt fyrir gagnrýni og
vandamál, sem við væri að
kljást, taldi rektor ekki ástæðu
til að óttast hagsmunaárekstra
í háskólastarfí hér á landi, til
dæmis að hagnýtar rannsóknir
vaxi á kostnað undirstöðu-
rannsókna, sem væm eitt af
meginverkefnum háskóla.
Rektor sagði orðrétt:
„Við lifum í þekkingarþyrst-
um heimi þar sem þekking og
fæmi eru í vaxandi mæli verzl-
unarvara. Við leitum fjár-
stuðnings hjá stjómvöldum,
sem leitast einnig við að
styrkja atvinnulf og efnahag
landsmanna. Það er því eðli-
legt að við reynum að miðla
öðmm af þeirri þekkingu sem
við höfum aflað, að háskólinn
stuðli að hagnýtingu þekking-
ar í landinu eftir því sem
kostur er. Eftir sem áður hafa
háskólakennarar rannsóknar-
frelsi og velja sjálfír þau
viðfangsefni sem þeir glíma
við.“
Sem fyrr segir em menntun
og þekking þau vopn sem bezt
duga íslenzkri þjóð á vegferð-
inni inn í framtíðina. Meðal
annars af þeim sökum á það
að vera keppikefli landsmanna
að efla Háskóla íslands og
gera hann betur í stakk búinn
til að sinna sínu mikilvæga
hlutverki.
Frá vinstri: James Polk frá NBC-sjónvarpinu sem stýrði umræðunum, James Atwater skólastjóri blaða-
mannaskólans við Missouri-háskóla, Jim Savage ritstjóri hjá Miami Herald og Jim McGhee rannsóknar-
Með bandarísk-
um rannsóknar
blaðamönnum
Tíðindamaður Morgunblaðsins sækir ársþing
samtaka bandarískra rannsóknarblaðamanna
Frá Jótii Ásgeiri Sigurdssyni, fréttaritara Morgunblaðsins f Bandarilgunum
„Þetta er ijóminn úr bandarískri
blaðamannastétt," sagði banda-
rískur kunningi minn, þegar við
stóðum úti á grasflöt fyrir utan
Biltmore-hótelið í Phoenix og virt-
um fólkið fyrir okkur. Þama á
flötinni voru saman komin nokkur
hundruð blaðamanna í hanastéls-
boði að loknum öðrum degi ársþings
bandarískra rannsóknarblaða-
manna.
Ársþingið þótti með eindæmum
vel heppnað og liggja ýmsar ástæð-
ur til þess. Eitt kvöldið sátu fyrir
svörum blaðamennimir sem ljóstr-
uðu upp um ósannsögli Gary Hart
og annað kvöld vitnuðu þeir
skríbentar stórblaðanna sem skrifa
um íran-Kontra-hneykslið. Þama
töluðu bæði þrautreyndir blaða-
menn og háttskrifaðir prófessorar
um allt það sem mestu máli skiptir
í blaðamennsku. Og aUðvitað var
kjaftað um heima og geima í hléum
og á kvöldin. Við vorum tveir frá
Norðurlöndunum, Hans Maanson
fréttastjóri Svenska Dagbladet, og
undirritaður, en örfáir útlendingar
sóttu þingið í Phoenix.
Hættur sem steðja að
blaðamönnum
Hvemig sneiða blaðamenn hjá
hættum í starfinu? Einn morguninn
skýrðu nokkrir rannsóknarblaða-
menn frá reynslu sinni og drógu
ályktanir. Það datt á dúnalogn í
salnum, þegar Tim Reiterman sagði
frá reynslu sinni af rannsókn á of-
beldi í starfi sértrúarsafnaðar Jim
Jones árið 1978. Tim starfaði hjá
Associated Press og hélt ásamt
öðmm blaðamönnum og bandaríska
þingmanninum Leo Ryan til Guy-
ana að hitta Jones og söfnuðinn að
máli. Guyana er eyríki í Karíbahafi
norðan Suður-Ameríku.
Tim Reiterman lýsti því hvemig
þingmaðurinn og margir af félögum
hans vom skotnir til bana á flugvell-
inum, en sjálfum tókst honum að
sleppa særður inn í fmmskóginn.
Söfnuður Jones taldi 911 manns,
sem vom myrtir eða frömdu alls-
heijar sjálfsmorð í kjölfar þessara
atburða.
Tim sagði að menn hefðu haft
misjafna vitneskju um Jones og
jafnvel verið hótað ofbeldi áður en
lagt var upp til Guyana. Hann ráð-
lagði blaðamönnum að taka allar
hótanir alvarlega, skrá þær og láta
vita um þær hjá blaðinu, eða jafn-
vel lögreglu ef svo ber undir. Á
fundinum var blaðamönnum al-
mennt ráðlagt að aðgreina sig sem
best má frá stríðandi aðilum, klæð-
ast ekki eins og innfæddir, bera
einungis tæki viðkomandi starfínu
en aldrei vopn og vera ekki á stöð-
ugu flakki milli stríðsaðilanna.
Aðrir blaðamenn sögðu frá
reynsíu sinni af stríðsfrétta-
mennsku og gáfu hollráð. Alex
Drehsler sagði frá ferðum sínum
um Afganistan. Hann kvað mikil-
vægt að kunna slangur í málinu,
hafa góðan og traustverðugan túlk
og lesa sig vandlega til um menn-
ingu landsins. Hann sagði frá
norskum blaðamanni sem móðgaði
múdsjaheddina með því að ganga
þá af sér fyrsta daginn í fjalllendi.
Þeir hefndu sín með því að hella
úr vatnspelanum hans næsta dag,
sögðu þetta hálftíma ferð og mars-
éruðu síðan í sjö tíma. Það tók
Norðmann þennan langan tíma að
komast í takt við landsmenn.
Blaðamenn myrtir
í Mexíkó
Tuttugu og fímm innlendir blaða-
menn hafa verið myrtir í Mexíkó í
stjómartíð núverandi forseta sem
tók við 1982, sagði mexíkanski
blaðamaðurinn Femando Cantu,
einn af fáum útlendingum á þinginu
í Phoenix. I landinu er ströng mið-
stýring, forsetinn er kóngur, og
þrískipting valdsins hjóm eitt. Þar
er 100 prósent verðbólga, gengið
hefur fallið gífurlega að undanfömu
og almennt kaup dugir ekki fyrir
lífsnauðsynjum.
Blöðin eru í eigu manna sem
standa í ýmsum öðrum viðskiptum
að auki og hafa því fíölmargra
hagsmuna að gæta, þau njóta hárra
ríkisstyrkja og ríkið ræður yfir
dreifíngunni. Það kveður því ekki
við mikla gagnrýni í blöðum og
sjónvarpið þegir af því að ella missa
sjónvarpsstöðvar starfsleyfín.
Rannsóknarblaðamennska fyrir-
finnst ekki í Mexíkó, hún er stór-
hættuleg.
Mexíkanskir blaðamenn lifa við
sultarlaun, fá 120 dollara eða 4.800
krónur á mánuði, og langflestir lifa
því á aukagreiðslum frá þeim sem
fjallað er um, öðru nafni mútum.
Sumir hafa jafnvel verið drepnir
fyrir að þiggja ekki mútur. Margir
blaðamenn í Mexíkó ganga með
byssu á sér.
Eiturlyfjabransinn er stórhættu-
legur, mexíkanskir blaðamenn
koma ekki nálægt honum og reynd-
ar ekki þeir erlendu heldur. Samt
sem áður eru erlendir blaðamenn
tiltölulega hólpnir í höfuðborginni.
Femando ráðlagði útlendingum að
tilkynna heimaritstjórn sem oftast,
hvert þeir ætli og hvenær þeir komi
aftur á hótelið. Sú regla gildir að
mati annarra almennt um ferðalög
blaðamanna í þriðja heiminum.
Uppruni Samtaka rann-
sóknarblaðamanna
Hættumar er líka að fínna í
blaðamannastarfínu í Bandaríkjun-
um. Nægir að minna á mafíuna,
eiturlyf, aðra glæpi, svindl og
svínarí. Raunar voru það voveifleg-
ir atburðir sem þjöppuðu rannsókn-
arblaðamönnum saman í öflug
3.000 manna samtök. Bob Greene
hjá Newsday dreif ásamt öðrum í
myndun þessara samtaka fyrir tólf
árum. Hann útskýrði í Phoenix hvað
það var sem hrinti samtökunum af
stað.
Fyrir ellefu árum var Don Bol-
les, blaðamaður í Phoenix, myrtur,
vegna þess að hann vann að frá-
sögn um glæpastarfsemi í Arizona.
Þetta var fyrsta morðið á venjuleg-
um blaðamanni hjá viðurkenndu
blaði í Bandaríkjunum. Nýstofnuð
samtök rannsóknatblaðamanna
héldu fyrir tilviljun ársþing í Phoen-
ix skömmu eftir morðið, og ákváðu
forráðamenn þeirra að efna til ein-
staks samstarfs rannsóknarblaða-
manna. Það var safnað liði
hvaðanæva úr Bandaríkjunum, til
að taka upp þráðinn þar sem Bolles
hafði horfíð frá.
Tilgangurinn var ekki að fínna
morðingja Don Bolles, sagði Bob
Greene, heldur að láta engan ganga
þess gruflandi, að morðhótanir eða
morð á blaðamönnum verði til þess
eins, að margefla rannsóknina. í
sex mánuði unnu fímmtíu blaða-
menn úr öllum landshomum að
rannsókn á glæpastarfsemi í Ariz-
ona. Niðurstöðumar voru birtar
sem greinaflokkur í fjölmörgum
blöðum víðsvegar um Bandaríkin.
Og um miðjan júní síðastliðinn var
aftur komið saman til ársþings í
Phoenix, tíu árum síðar.
Bruce Babbitt, nýhættur fylkis-
stjóri Arizona sem stefnir á útnefn-
ingu Demókrataflokksins til
forsetaframboðs, sagði í hádegis-
verðartölu á blaðamannaþinginu í
Phoenix, að þetta samstarf blaða-
manna úr flestum fylkjum Banda-
ríkjanna hafí haft gífurleg áhrif til
batnaðar í Arizona.
Fréttin sem felldi
Gary Hart
Rannsóknarblaðamenn gengu
ekki of langt í Gary Hart-málinu,
sagði Jim McGhee, einn af blaða-
mönnum Miami Herald, á ráðstefn-
unni í Phoenix. Þvert á móti sjáum
við sífellt fleiri dæmi þess, að það
er ekki nærri nógu mikið gert af
slíku. Það var ekki bandarískt blað
sem hratt íran-Kontra-hneykslinu
af stað, heldur „þessi skítasnepill í
Líbanon“ eins og Reagan orðaði
það. Hefðum við elt uppi heimildar-
menn innan geimferðastofnunar-
innar NASA, í stað þess að bukta
okkur og beygja, spurði Jim
McGhee, hvar væri þá Challenger-
geimfeijan í dag?
blaðamaður hjá sama blaði.
Þegar frétt Miami Herald komst
fyrst í hámæli og bent var á ýmis
göt í rannsókn blaðamannanna,
fannst undirrituðum þetta heldur
klén og losaraleg blaðamennska.
En eftir að hafa hlýtt á þá Jim
Savage og Jim McGhee, sannfærð-
ist ég um að þeir voru vissir í sinni
sök, þegar ákveðið var að prenta
fyrstu fréttina. Þeir sögðu í Phoen-
ix að vissulega hefði verið álq'ósan-
legt að reyna allar venjulegar
aðferðir rannsóknarblaðamennsku
til þrautar. Á hinn bóginn þótti ljóst
hvað var á seyði þegar fylgst var
með ferðum Donnu Rice, auk þess
sem sjálfstæður vitnisburður lá fyr-
ir og efnisatriði höfðu verið borin
undir Gary og aðra viðkomandi
þessu máli.
Kynlíf Gary Hart skipti í sjálfu
sér engu máli, sögðu þeir Miami
Herald-menn. Hefði hann verið ein-
hleypur og við komist á snoðir um
að hann væri hommi, þá hefðum
við ekkert aðhafst, því það væri
engin frétt, sagði Jim Savage.
Mergur málsins var sá að frambjóð-
andi í eitt af valdamestu embættum
heims reyndi að skapa af sér ímynd
sem stóðst ekki samanburð við hátt-
emi hans. Gary Hart varð uppvís
að lygum og það var tilefni um-
fjöllunar Miami Herald.
Jim McGhee lýsti því hvemig
þeir tóku viðtal við Gary Hart
síðdegis á laugardag, daginn áður
en fréttin birtist. Frambjóðandinn
var óviðbúinn og þeir baunuðu á
hann spumingum um sambandið
við Donnu Rice. Það var þessi viður-
eign sem sannfærði þá um að þeir
hefðu réttar upplýsingar um sam-
band skötuhjúanna. Jim sagði að
fyrstu tíu mínútumar í viðureign
af þessu tagi skiptu sköpum, sé
viðmælandinn á undanhaldi sé rétt
að spytja hann beint og af hörku.
Ég ræddi við ýmsa félaga úr
blaðamannastétt eftir þennan fund
og sýndist sitt hvetjum. Sumir vom
ekki sáttir við afskipti fjölmiðla af
persónulegum málum af þessu tagi,
öðmm þóttu vinnubrögðin forkast-
anleg en þeir vom líka margir sem
höfðu fulla samúð með þeim Miami
Herald-mönnum. Segja má að þeir
hafí í vissum skilningi verið heppn-
ir, því að eftirleikurinn, fleiri
hjákonur og afsögn Gary Hart,
staðfesti fyrstu fréttina rækilega.
Áhrif meiðyrðamála
Fyrsti dagur þingsins i Phoenix
var helgaður umfjöllun um meið-
yrðamál. I Bandaríkjunum teljast
það meiðyrði, þegar sannast að
blaðamaður hafí „virt sannleikann
að vettugi", skrifað af ósanngimi
og gegn betri samvisku, og jafn-
framt skaðað persónulegan orðstír
þess sem höfðar málið.
Að undanfömu hefur málsóknum
gegn fjölmiðlum og blaðamönnum
fjölgað verulega, og þótt sjaldnast
sé um sakfellingu að ræða, hefur
kostnaður vegna meiðyrðatrygg-
inga aukist, vegna þess að dómstól-
ar hafa stórhækkað skaðabætur.
Ennfremur hefur sjálfsábyrgð
meiðyrðatryggingar hækkað úr
10.000 krónum í 200.000 krónur.
Bill Marimow hjá Philadelphia
Inquirer og Jeff Klein lögfræðingur
Los Angeles Times héldu því fram
að góðir, reyndir og heiðarlegir
blaðamenn séu alls ekki sakfelldir
í meiðyrðamálum. Vandi blaða-
manna er samt sem áður sá, að
málaferli em tímafrek og þar eð
sakfellingum hefur ekki fjölgað, eru
þessi mál oft hrein tímasóun frá
sjónarhóli blaðamannsins.
í umræðutíma á Phoenix-þinginu
kom fram að menn telja verulega
hættu á að öll þessi málaferli skaði
vinnuskilyrði fjölmiðla. Ritstjómir
skirrast að taka hart á málum,
heimildarmenn þagna og það fækk-
ar aðsendum greinum og lesenda-
bréfum. í desember síðastliðnum
var 24 blaðamönnum hjá rannsókn-
ardeild CNN-sjónvarpsins sagt upp
störfum, og aðalástæðan þau meið-
yrðamál sem höfðuð hafa verið
gegn CNN sem er eitt af stóru sjón-
varpsfyrirtækjunum í Bandaríkjun-
um.
Að læra af mistökum
í pallborðsumræðum las Joel
Brinkley frá New York Times upp
fréttaklausu sem birtist í blaðinu í
ágúst 1985 og innihélt flest það sem
kom á daginn þegar uppvíst varð
um íran-Kontra-hneykslið í nóvem-
ber 1986. Hvemig stóð á því að
þessi frétt sofnaði, spurði Joel Brin-
kley. Ástæðan er sú að á þeim tíma
var ríkisstjóm Ronalds Reagan
óbifanleg og enginn áhugi á því að
fylgja þessu eftir. Brinkley sagði
að blaðamenn gætu að verulegu
leyti kennt sjálfum sér um og und-
ir það álit tóku blaðamenn
Newsweek, Washington Post, Los
Angeles Times og Wall Street Jour-
nal. _
„Ég viðurkenni eins og félagar
mínir hér, að við brugðumst í íran-
Kontra-málinu," sagði John Walcott
frá Wall Street Joumal í pallborðs-
umræðum um það mál. „En við
eigum ekki að velta okkur upp úr
mistökunum, heldur læra af þeim.
Og þá spyijum við, hvemig í ósköp-
unum var hægt að halda fjölmiðlum
svo lengi frá þessu máli?"
Ein af ástæðunum var sú, að
mati Walcotts, að hjá stjómvöldum
hafði enginn maður yfírsýn, enda
var öll vitneskja vísvitandi deilda-
skipt. Ennfremur hefur Reagan-
stjómin unnið markvisst að því að
leggja hindranir í veg fyrir rann-
sóknarblaðamenn. Loks hefur
stjórnin spilað á samkeppni fjölmiðl-
anna og matað jámenn sína á
völdum upplýsingum, en svelt hina.
Þetta staðfesti Richard Sandza frá
Newsweek, sem sagði að þrír helstu
heimildarmenn í stjómarherbúðum
neituðu að tala við blað hans um
íran-Kontra-málið.
John Walcott áminnti blaðamenn
að leiðast ekki til almennrar dóm-
hörku í umfjöllun um þetta mál eða
önnur. Við megum ekki láta hefni-
gimi ráða skrifum okkar, sagði
Walcott, og var góður rómur gerður
að máli hans.
Rick Atkinson frá Washington
Post lýsti svipað og aðrir þeim
vanda að halda athygli lesenda við
íran-Kontra-málið. Því hefur blað
hans öðru hveiju birt samantektir
og yfírlit til að auðvelda lesendum
að fylgjast með. En blaðamenn eiga
ekki heldur auðvelt með að halda
skipan á þeim reiðinnar býsnum af
upplýsingum sem þegar liggja fyr-
ir. Washington Post hefur komið
upp viðamikilli tölvuskrá um allt
þetta mál. Rick Atkinson kvað sam-
keppni fjölmiðla til góðs og hlyti
hún að stuðla að því að sannleikur-
inn liti dagsins ljós.
Á þinginu í Phoenix var fjallað
um fjöldann allan af öðrum hliðum
blaðamennsku, eins og samskipti
við heimildarmenn, lögin um upp-
lýsingaskyldu stjómvalda, tölvu-
bankanotkun, aðferðir við sjónvarp
og útvarp, og síðast en ekki síst
siðfræði blaðamennsku. En frá
þeim verður ekki greint að sinni.
Salurinn var þéttskipaður þegar rætt var um fréttaflutning af Gary Hart. Morgunbiaðið/JÁs
Aukning í flutningfum Heijólfs:
Ákveðið að
fjölga ferðum
V estmannaeyj um.
VERULEG aukning hefur orðið
í flutningum Herjólfs fyrstu sex
mánuði þessa árs. Um mánaða-
mótin hafði Heijólfur flutt
22.733 farþega en þeir voru
20.372 sömu mánuði í fyrra.
Aukningin er því 11,6%.
Aukningin hefur orðið meiri á
bifreiðum og vörum. Þannig flutti
Heijólfur 5.034 bifreiðar fyrstu 6
mánuði ársins á móti 4.412 í
fyrra, sem er 14% aukning. Vöru-
flutningar hafa aukist um 18,5%,
eða úr 6.171 tonni í fyrra í 7.312
tonn nú.
Vegna þessara auknu flutninga
hefur ferðum skipsins verið fjölg-
að. Það fer sína föstu áætlunar-
ferð hvem morgun úr Eyjum og
frá Þorlákshöfn um hádegið og
meðan sumaráætlun er í gildi,
fram til 15. september, fer skipið
aukaferðir síðdegis á föstudögum
og sunnudögum. Þá fer Heijólfur
aukaferð á fímmtudögum fram
yfir Þjóðhátíð.
Magnús Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Heijólfs, sagði að
vegna sífellt aukinna umsvifa
væri orðið knýjandi að flýta
nýsmíði fyrir Heijólf, fá stærra
og hraðskreiðara skip. Sagðist
Magnús vænta þess að með haust-
inu verði útboðsgögn tilbúin og
að útboð gæti farið fram fyrir
áramót.
-hkj.
Arnarflug:
5 ár frá upphafi
millilandaflugs
FIMM ár verða liðin frá því Arn-
arflug hóf áætlunarflug frá
íslandi til Evrópu á morgun,
laugardaginn 4. júlí.
Amarflug var stofnað þann 10.
apríl árið 1976 af um 700 einstakl-
ingum og fyrirtækjum. Frá stofnun
félagsins var talið að frumskilyrði
fyrir áframhaldandi flugrekstri
væri að fá áætlunarleyfi til milli-
landaflugs, segir í frétt frá Amar-
flugi, án þess yrði ekki hægt að
reka félagið með því jafnvægi og
stöðugleika sem nauðsynlegur
þætti í flugrekstri.
í desember árið 1976 sótti Amar-
flug um leyfí til áætlunarflugs frá
Islandi til fímm borga í Evrópu.
Borgimar voru Kaupmannahöfn,
Dublin, Amsterdam, Dússeldorf og
Zúrich. Sex ámm síðar eða í mars
árið 1982 fékk Amarflug formlégt
leyfí til áætlunarflugs til Amster-
dam, Zúrich og Dússeldorf sem
síðar fluttist yfír til Hamborgar að
ósk Amarflugs.
Fyrsta áætlunarferð félagsins
milli landa varð að veruleika þann
fjórða júlí 1982 til Zúrich í Sviss.
Stokkseyri og Höfn í Hornafirði:
Aðgerðir gegn
umferð fjórhjóla
Á HÖFN hefur umferð fjórhjóla
verið bönnuð og á Stokkseyri
hefur fjórhjólaeigendum verið
úthlutað sérstöku svæði til notk-
unar. Tjömeshreppur mun
einnig hafa bannað notkun fjór-
hjóla.
Á fímmtudag í síðustu viku sam-
þykkti hreppsnefnd Hafnarhrepps í
Homafírði að banna umferð fjór-
hjóla í bæjarlandinu og er verið að
athuga með leiksvæði fyrir þessi
hjól.
Um 30 fjórhjól eru skráð í
hreppnum og að sögn lögreglunnar
á Höfn einhver fjöldi óskráðra.
Nokkuð hefur borist af kvörtunum
vegan fjórhjólanna; má m.a. geta
þess að kindur, sem reknar höfðu
verið á afréttar, flúðu af þeim sök-
um ágangs fjórhjóla.
Ákvörðun hefíir verið tekin af
hreppsnefnd Stokkseyrarhrepps um
sérstakt fjórhjólasvæði i Stokks-
eyrarmýrinni. Samkvæmt upplýs-
ingum Lárusar M. Bjömssonar
sveitarstjóra er gert ráð fyrir því
að hreppsnefndin banni umferð
Qórhjóla annars staðar en á þessu
svæði. Að sögn Lárusar hafa verið
vandræði vegna hjólanna. Vitað
væri um tvö slys og nokkuð um
nattúruspjöll, t.d. á lífríki fjörunnar
og vamargarðinum.
Skák:
Hannes og
Þröstur á
heimsmeist-
aramót
TVEIR íslendingar, þeir Hannes
Hlífar Stefánsson og Þröstur
Þórhallsson, verða meðal kepp-
enda á heimsmeistaramóti ungl-
inga í skák sem hefst á
Filippseyjum um miðjan júIS.
Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari verður fararstjóri og
aðstoðarmaður piltanna tveggja.
Taflmennskan hefst 19. júlí og
verða tefldar 13. umferðir. Mótinu
lýkur síðan með verðlaunaafhend-
ingu 3. ágúst.