Morgunblaðið - 03.07.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.07.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987 Grafarrán í Argentínu: Krefjast offjár fyr- ir hendur Perons Brutust inn í grafhýsið og hjuggu þær af líkinu Buenos Aires, Reuter. Grafræningjar hafa höggvið hendurnar af Juan heitnum Per- on, fyrrum forseta Argentínu, og krefjast nú átta milljóna doll- ara fyrir að skila þeim aftur. Peron lést fyrir 13 árum og hvílir smurður líkami hans í grafhýsi í Buenos Aires. Voru þessar fréttir í gær hafðar eftir argentínskum dómara. Jaime Far Suau dómari leitaði í gær í fímm klukkustundir í graf- hýsinu þar sem Peron hvílir og gerði hann það að beiðni formanns Per- onistaflokksins, Vicente Saadi, sem Texas: hafði fengið bréf frá ræningjunum með fymefndum upplýsingum. Við leitina kom í ljós, að þeir sögðu satt frá, hendumar vantaði og auk þess hersverð. Antonio Cafíero, einn helsti leið- togi peronista, sagði, að atburður- inn væri „einfaldlega viðbjóðslegur. Það er ekki einu sinni, að pólitískar öfgar búi að baki, aðeins geðbilun". Innanríkisráðherra Argentínu, Antonio Troccoli, sagði í gær, að ríkisstjómin myndi ekki lýsa yfir neyðarástandi vegna þessa máls né fresta fyrirhuguðum þingkosning- um, sem fram eiga að fara 6. september nk. Sagði hann, að það, sem vekti fyrir ræningjunum, væri að „vekja ótta og ólgu meðal al- mennings vegna komandi kosn- inga“. Reuter Þessi mynd af líki Perons var tekin árið 1975 en auk þess er í grafhýsinu lík seinni konu hans, Evu Peron. Átján lík í lestarvagni Dallas, Reuter. AÐ MINNSTA kosti átján lík fundust í innsigluðum flutninga- lestarvagni í landamærabænum Sierra Blanca í vesturhluta Tex- as í gær, að sögn útvarpsstöðvar í grenndinni. Talið er að líkin séu af ólöglegum mexíkönskum innflytjendum, en ekkert er enn vitað um ástæðuna fyrir dauða þeirra. Að sögn útvarps- stöðvarinnar fundu landamæra- verðir einn mann á lífi í vagninum. Lestin kom frá landamæraborg- inni E1 Paso, en Sierra Blanca er um 135 kflómetra suðaustur af henni. Gengi gjaldmiðla Lundúnir, Reuter. LÍTIL hreyfing var á fjármuna- mörkuðum heimsins í gær. Verðbréf í Wall Street lækkuðu lítillega, en gjaldmiðlar stóðu flestir f stað. Verðbréf í New York lækkuðu lítillega annan daginn í röð og röktu menn það aðallega til þess að löng helgi var framundan, en í dag er frí vestra vegna þjóðhátíðardags Bandaríkjanna, sem er á morgun, 4. júlí. Nokkrir spáspekingar í Wall Street töldu sig þó merkja breytingu á markaðnum í þá veru að menn séu varari um sig en áður. Sem kunnugt er hefur bandaríski verð- bréfamarkaðurinn verið í langvinnri uppsveiflu í meira en ár. Gullverð lækkaði nokkuð hratt, en helstu gjaldmiðlar heims stóðu nokkum veginn í stað gagnvart Bandaríkjadal. Sterlingspundið hélt þó áfram að hækka í verði, en það hefur hækkað jafnt og þétt eftir stefnuræðu Margaretar Thatcher að loknum kosningum. Það hefur þó ekki hækkað jafnmikið og marg- ir töldu vegna ótta manna við aukna verðbólgu á næstunni. Fyrir Sterl- ingspundið fékkst 1,6190 Banda- ríkjadalur. Verð dalsins í öðrum helstu gjaldmiðlum var þannig farið að fyrir hann fékkst: 1,3297 Kanadadalur 1,8285 vestur-þýskt mark 2,0590 hollensk gyllini 1,5175 svissneskir frankar 37,90 belgískir frankar 6,0975 franskir frankar 1324 ítalskar lírur 147,00 japönskjen 6,3830 sænskar krónur 6,6970 norskar krónur 6,9200 danskar krónur Gullúnsan kostaði í gær 447,60 Bandaríkjadali. Suður-Kórea: Roh Tae Woo styrkir enn pólítíska stöðu sína Heimsækir búðir stíórnarandstæðinga Seoul, Reuter. ROH TAE WOO, leiðtogi stjórn- arflokksins í Suður-Kóreu og væntanlegur forsetaframbj óð- andi hans, kom í gær í óvænta heimsókn til höfuðstöðva stjórn- arandstöðunnar. Þar hvatti hann til þess að báðir f lokkarnir kæmu sér saman um nýja stjórn- arskrá í skyndi svo að þjóðar- sáttin verði innsigluð sem fyrst. Þá hefur Roh komið með tillögu sem miðar að því að friða ætt- ingja þeirra, sem féllu i upp- reisninni í Kwangju árið 1980. í höfuðstöðvum Lýðræðislega sameiningarflokksins tók Kim Young Sam á móti Roh og var að vonum undrandi _ yfír þessari óvæntu heimsókn. í stuttum við- ræðum leiðtoganna tveggja fór Roh fram á að stjómmálaflokkam- ir hæfu formlegar viðræður um endurskipulagningu kosningafyrir- komulags landsins og tók Kim vel í það. Heimsókn Rohs kemur í kjölfar hinna gífurlega róttæku tillagna hans um stjómarfarsbreytingar í Kóreu, sem miða að því að koma á sönnu lýðræði í landinu. Þessar tillögur kom Roh með síðastliðinn mánudag og er óhætt að segja að hann hafí komið mönnum í opna skjöldu, því fram að þeim hafði Roh og flokkur hans verið nær óbifandi í afstöðu sinni til grund- vallarmannréttinda. Stjómarflokkurinn, Lýðræðis- legi réttlætisflokkurinn, virðist ætla að stíga skrefíð til fulls hvað varðar breytingar í lýðræðisátt, því í gær tilkynntu flokksbroddar að í hyggju væri að græða þau sár, sem em eftir uppreisnina í Kwangju í maí 1980. Ræddu þeir um að ættingjum hinna látnu yrðu greiddar skaðabætur, fangelsuðum uppreisnarmönnum sleppt úr haldi, þeim sem féllu reist minnismerki og jafnvel mun koma til greina að íbúar borgarinn verði opinberlega beðnir afsökunar af stjóminni. Samkvæmt opinberum tölum féllu 193 manns þegar herinn bældi nið- ur uppreisn borgarbúa gegn herlögunum, sem giltu í landinu. Stjómarandstæðingar í borginni segja að talan sé að minnsta kosti fímm sinnum hærri. Þess má geta að Kim Dae Jung er einmitt frá Kwangju. Forsetakosningarnar Hvað gerist í forsetakosningun- um í desember er mönnum hulin ráðgáta af þeirri einföldu ástæðu að 60% þeirra, sem eru á kjörskrá, hafa aldrei kosið áður. Frá síðustu forsetakosningum, sem fram fóru 1971, hefur ný kynslóð vaxið úr grasi í þjóðfélagi þar sem efnisleg gæði hafa aukist gífurlega, en pólísk áhrif ótínds almúgans engin. Stjómarandstaðan á við ýmis vandkvæði að stríða. í fyrsta lagi eru leiðtogar hennar tveir, þeir Kim Dae Jung og Kim Young Sam. Kim Dae Jung hefur verið í stofufang- elsi meirihluta undanfarins áratugs og í algeru fréttabanni og er því ekki jafnþekktur og annars væri. Hann sagði reyndar ítrekað á með- an varðhaldi hans stóð að hann myndi ekki sækjast eftir forseta- stólnum ef honum yrði sleppt úr haldi og lýðréttindi hans tryggð. Þetta hefur hann staðfest eftir að honum var sleppt á dögunum, en í fyrradag kvað við örlítið annan tón en venjulega þegar hann var spurð- ur hvort hann hyggðist bjóða sig fram. Svaraði hann þá að bragði: „Af hverju ekki?“ en bætti síðan við að hann áliti framboð ekki rétt að svo komnu máli. Telja því marg- ir að hann hugleiði nú framboð sitt, minnugur þess að litlu munaði að hann ynni Park Chung Hee í for- setakosningunum 1971. Vandi Kim Young Sam er nokk- urs annars eðlis. Margir Kóreanar telja hann í yngsta lagi og telja að reynsluleysi muni há honum í for- setaembætti. Þrátt fyrir að hann hafí verið aðalleiðtogi stjómarand- stöðunnar í fjarveru Kim Dae Jung og líklegastur forsetaframbjóðandi hennar, fínnst mörgum hann vera nöldrari, sem aldrei er ánægður sama hvað gert er. Á þetta sérstak- Reuter Hér ma sjá Kim Young Sam taka á móti Roh Tae Woo og er ekki annað að sjá en vel fari á með þeim. lega við um fólk á miðjum aldri og upp úr. Þetta fólk, sem nú myndar mið- stéttina í landinu, hefur yfirleitt verið ákveðnir stuðningsmenn stjómarflokksins og þannig kosið öryggi og efnahagsávinninga frek- ar en lýðræði í strangasta skilningi þess orðs. í óeirðunum nú fyrir skemmstu brá hins vegar svo við að þetta fólk streymdi út á götur og slóst í lið með mótmælendunum, sem til þessa höfðu nær einungis verið vinstrisinnaðir stúdentar. Telja margir fréttaskýrendur að einmitt þessi staðreynd hafí e.t.v. haft mest áhrif á Roh þegar hann tók hina örlagaríku ákvörðun sína og lagði að auki pólítískan frama sinn að veði. Benda þeir einnig á að í sjónvarpsávarpi Chuns forseta hafí hann lýst yfír efasemdum sínum um breytingamar, en hamrað á að vilji fólksins væri aug- ljós og að honum bæri að hlíta. Hvað „fólkið í landinu" eða milli- stéttin kýs í kosningunum er svo spumingin sem framtíð Iandsins veltur á. Roh Tae Woo verður óneitanlega að teljast sigurstranglegur. Með fmmkvæði sínu er hann þegar bú- inn að eigna sér heiðurinn af því að hafa komið friði á í landinu þeg- ar margir óttuðust að borgarastyij- öld væri á næsta leiti. Um leið varð fólki ljóst að hann var síður en svo viljalaust verkfæri í höndum Chun Doo Hwan, forseta, heldur maður með sjálfstæðar skoðanir, sem var reiðubúinn að snúast öndverður gegn pólítískum guðföður sínum þeirra vegna. Síðast en ekki síst em tillögumar um langþráð lýðræði í landinu eymamerktar honum, þrátt fyrir að í raun hafí einungis verið látið undan kröfum stjómar- andstöðunnar. Með heimsókn sinni í tjaldbúð stjómarandstöðunnar í gær bætti Roh um betur. Hann sýndi að hann á hægt með að bijóta odd af oflæti sínu og er sáttfús maður. Telja sumir að Roh hafi með þessu herbragði rekið smiðs- höggið á landsföðursímynd sína og fínnist mörgum Kóreönum sem Roh sé í raun yfír stjómmálaflokkana hafínn. Takist Roh að halda þeirri almenningshylli sem hann hefur nú notið í fímm daga má telja víst að hann hverfi ekki af sjónarsviðinu í bráð. A.M.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.