Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 2

Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JULI 1987 Dalasýsla: Þrjátíu veikjast eftir ættarmót „Vitum ekki hvað er á ferðinni, en verðum að búast við hinu versta,“ segir heilsugæslulæknirinn NOKKRIR tug-ir manna veiktust eftir ættarmót, sem haldið var á sumarhótelinu á Laugum í Sæl- ingsdal í Dalasýslu helgina 4. og 5. júlí sl. Þar voru samankomnir 324 ættingjar, flestir af Suður- nesjum, aðallega frá Keflavík. Gunnar Rafn Jóhannesson, heilsugæslulæknir í Búðardal, sagði í samtali við Morgunblaðið að gest- irnir hefðu farið að kvarta um magakveisur og niðurgang strax á sunnudeginum og eftir að þeir voru farnir til síns heima, hefðu fréttir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra: Dregið verði úr afskipt- um ríkisins af banka- kerfinu Andstaðan við hvalveiðum vestra: borist af fleirum sem höfðu veikst. „Ég hef heyrt tölur allt upp í 30. Okkur ber auðvitað að rannsaka málið og búast við því versta. Heil- brigðisfulltrúinn hér hefur tekið sýni úr öllum þeim matvælum, sem til vom á hótelinu, en ekkert hefur komið út úr þeim rannsóknum sem bendir til ákveðins sýkils." Gunnar Rafn sagði að verið væri að hvetja sjúklingana til að serida inn saursýni, sem rannsökuð eru á sýklarannsóknadeild Landsspítal- ans, en ekkert hefur komið úr þeim rannsóknum enn sem komið er. „Við getum alls ekki slegið því föstu að um sé að ræða salmonellu þótt tiltölulega stutt sé síðan gestir úr þremur fermingarveislum hér lögð- ust í rúmið með þá veiki. Þá var líka mun auðveldara að sjá hvað um var að ræða, enda var maturinn í allar veislumar keyptur frá sama hótelinu, Dalabúð. Við erum fyrst og fremst að leita að sýklum, sem hugsanlega geta valdið þeim ein- kennum sem sjúklingarnir hafa fengið,“ sagði Gunnar Rafn. Gert klárt fyrir flutning flugvélarinnar af stallinum og inn í flugskýli. Morgunblaðið/EyjolfurGuðmundsson Keflavíkurflugvöllur: Fluffvélin tekin af stallinum Voirum. ^ Vogum. FLUGVÉLIN sem hefur staðið á stalli á Keflavíkurflugvelli und- anfarin ár hefur verið tekin af stallinum vegna viðgerða. Verð- ur flugvélin flutt inn í flugskýli á vellinum og máluð. Flugvél þessi, sem hefur staðið á stalli í um tiu ár, var notuð hér á landi vegna flutninga fyrir Varn- arliðið innanlands vegna ratsjár- stöðva á Langanesi og við Hornafjörð. Þegar Flugleiðir tóku við þessum flutningum var hlui- verki flugvélarinnar lokið hérlendis, en vegna þess að það þótti of kostn- aðarsamt að flytja vélina á safn í Bandaríkjunum varð hún áfram hér á landi og komið fyrir á stalli. Flugvélin er síðasta flugvélin sem var notuð við þessa flutninga hér á landi. EG „VIÐ VERÐUM að einbeita okk- ur að því sem mest dregur úr ríkisafskiptum, nefnilega að minnka afskipti þess af banka- kerfinu,“ sagði Þorsteinn Páls- son, forsætisráðherra, á fundi með ungum sjálfstæðismönnum á veitingahúsinu Gauk á Stöng í gærkvöldi. Þorsteinn sagði skipt- ar skoðanir vera uppi um þessi mál í stjórnarflokkunum þremur en hann væri þó bjartsýnn á að ríkisbönkunum yrði breytt í hlutafélög og hlutirnir síðan seldir. Varðandi sölu annarra ríkisfyrir- tækja sagði hann ekki hafa náðst skýrir samningar um þau mál með- al flokkanna. Sum ríkisfyrirtæki, eins og Áburðarverksmiðjan til dæmis, væru líka rekin með miklum halla og því ekki raunhæft að ætla að selja þau eins og málin stæðu. Reksturinn hjá sumum virtist þó fara batnandi og ætti að stefna að því að koma honum í það gott horf að möguleikar á sölu opnuðust. Þorsteinn sagði að lokum að það væri stefna stjómarinnar að ríkisút- gjöld myndu ekki aukast sem hlutfall af þjóðarframleiðslu á þessu kjörtímabili. Islendingar reiða sig á loforð um viðræður Bandaríski viðskiptaráðherrann hef- ur ekki tekið ákvörðun um aðgerðir MÖGULEIKAR á því að viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti við Ronald Reagan forseta, að hvalveiðar íslendinga dragi úr gildi friðunaráætlunar Alþjóða hvalveiðiráðsins, virðast fara vaxandi. Þetta verður ráðið af svörum embættismanna hérlendis og í Banda- ríkjunum við spurningum Morgunblaðsins í gær. Malcom Baldridge viðskiptaráðherra hefur ekki tekið neina ákvörðun um hvort hann láti forseta fá staðfestingu þessa, en fjallað hefur verið um að koma á viðræðum íslenskra stjórnvalda og ráðuneytisins eftir óformlegum leiðum. Á miðri vertíðinni í fyrra var gert hlé á hvalveiðunum til þess að koma í veg fyrir að ráðherrann skuldbindi Reagan forseta til að fara fram á viðskiptabann gagnvart íslendingum. Halldór Ásgrímsson sjávarút- hann um hvalvoiðimálið. „Banda- vegsráðherra átti fund með sendi- ríkjamenn hafa lofað okkur að þeir herra Bandaríkjanna í gærmorgun muni ekki aðhafast neitt nema að og ræddu þeir meðal annars við undangengnum viðræðum. Þær kynnu að hefjast fljótlega en um það er enn ekkert ákveðið," sagði Halldór. Á fundi hvalveiðiráðsins í Bo- urnemouth í júnímánuði var samþykkt tillaga Bandaríkjamanna þess efnis að þeim þjóðum er stundi hvalveiðar í rannsóknarskyni beri að leita samþykkis vísindanefndar ráðsins. Jafnframt samþykkti ráðið að fallast ekki á vísindaveiðar ís- lendinga þar sem þær uppfylli ekki sett skilyrði. Samkvæmt bandarískum lögum ber viðskiptaráðuneyti Banda- ríkjanna að gera forseta viðvart ef íslendingar, eða önnur hvalveiði- þjóð, fara út fyrir þann ramma sem Deilan um Rockall-svæðið tekur nýja stefnu: Bretar falla frá andstöðu víð rannsóknarleiðangurinn Rannsóknir Islendinga, Dana og Færeyinga geta staðist áætlun SENDIRÁÐI Íslands í London hefur verið gerð grein fyrir því að Bretar muni gera sitt til að áætlun um rannsóknarleiðangur íslendinga, Dana og Færeyinga á Hatton-Rockall-svæðið í næsta mánuði standist. Áður höfðu Bretar lýst því yfir að leiðangur- inn samrýmdist ekki þeirra rannsóknum á svæðinu. Gæti ekki af honum orðið fyrr en í september, en þá eru skilyrði orðin slæm til slíkra ferða. Kveð- ur nú við annan tón. Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að íslensk stjórnvöld fögnuðu þessum sinnaskiptum Breta. „Sem betur fer hafa þeir komist að þeirri niðurstöðu að ekki þurfí að koma til árekstra út af þessum rannsóknum. Ég held að það sé ákaflega mikilvægt fyrir okkur að vita hvort eftir einhveiju sé að sækjast á þessu svæði. Öll slík vitn- eskja mun koma okkur til góða í framtíðinni," sagði Steingrímur. „Ég hef alltaf treyst því að sá dagur kæmi að Bretar tækju upp samstarf við okkur, Dani og Færey- inga um réttargæslu á Rockall- svæðinu og löglega meðferð málsins," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson formaður utanríkismála- nefndar Alþingis þegar þessi yfir- lýsing Breta var borin undir hann. „Að vísu er biðin orðin æði löng því að málið var fyrst flutt á Al- þingi haustið 1978." Eyjólfur sagði að hér væri um að ræða mun þýðingarmeira mál en menn hefðu almennt gert sér grein fyrir. „Tilhliðrun á borð við þessa er vísasti vegurinn til að málið leysist farsællega, eftir rétt- um lagaleiðum og í samvinnu og fullri vinsemd. Sá farvegur hefur nú myndast," sagði hann. Á fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir 20 milljón króna framlagi ís- lendinga til rannsókna á Hatton- Rockall svæðinu. Undirbúningur leiðangursins er í fullum gangi og verður sérsmiðað skip til leitar á hafsbotni leigt til fararinnar. friðunaráætlun Alþjóða hvalveiði- ráðsins setur. Þegar staðfesting ráðuneytisins berst forseta Banda- ríkjanna getur hann farið þess á leit við fjármálaráðherra að sett verði viðskiptabann á vörur viðkom- andi lands. Taki hann ákvörðun um að aðhafast ekki ber honum að til- kynna Bandaríkjaþingi það innan 60 daga. Engin staðfesting fékkst á því í gær að Bandaríkjamenn hefðu þeg- ar óskað eftir viðræðum um hval- veiðarnar og aðgerðir viðskipta- ráðuneytisins. Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra sagði að þessa stundina væri verið að athuga þessi mál mjög gaum- gæfilega og hugsanlega yrðu hafnar viðræður, en nánari stað- festingar og ákvörðunar væri ekki að vænta fyrr en á næstu dögum- Síðastliðið sumar létu íslending- ar undan þrýstingi bandaríska viðskiptaráðuneytisins og gerðu hlé á hvalveiðum. Þá hafði ráðuneytið tilkynnt íslenskum sendifulltrúum í Washington að forsetanum yrði gert viðvart létu íslendingar ekki af hvalveiðum tafarlaust. Á fundinum í Bournemouth sagð' Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra að samþykkt fundarins um vísindaveiðarnar byndi ekki hendur íslendinga þar sem hún bryti í bága við stofnsamning ráðsins. { ræðu sem hann hélt í upphafi fundarins sagði ráðherrann efnislega að við- skiptaþvinganir myndu ekki breyta neinu um veiðar íslendinga þar sem þjóðin hefði aldrei látið undan slíkum hótunum. Samkvæmt heimildum blaðsins er líklegt að staðan í hvalveiðimál- inu verði meðal umræðuefna á ríkisstjórnarfundi í dag. Sjá frétt á blaðsíðu 63.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.