Morgunblaðið - 14.07.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JULI 1987
Dalasýsla:
Þrjátíu veikjast
eftir ættarmót
„Vitum ekki hvað er á ferðinni, en
verðum að búast við hinu versta,“
segir heilsugæslulæknirinn
NOKKRIR tug-ir manna veiktust
eftir ættarmót, sem haldið var á
sumarhótelinu á Laugum í Sæl-
ingsdal í Dalasýslu helgina 4. og
5. júlí sl. Þar voru samankomnir
324 ættingjar, flestir af Suður-
nesjum, aðallega frá Keflavík.
Gunnar Rafn Jóhannesson,
heilsugæslulæknir í Búðardal, sagði
í samtali við Morgunblaðið að gest-
irnir hefðu farið að kvarta um
magakveisur og niðurgang strax á
sunnudeginum og eftir að þeir voru
farnir til síns heima, hefðu fréttir
Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra:
Dregið verði
úr afskipt-
um ríkisins
af banka-
kerfinu
Andstaðan við hvalveiðum vestra:
borist af fleirum sem höfðu veikst.
„Ég hef heyrt tölur allt upp í 30.
Okkur ber auðvitað að rannsaka
málið og búast við því versta. Heil-
brigðisfulltrúinn hér hefur tekið
sýni úr öllum þeim matvælum, sem
til vom á hótelinu, en ekkert hefur
komið út úr þeim rannsóknum sem
bendir til ákveðins sýkils."
Gunnar Rafn sagði að verið væri
að hvetja sjúklingana til að serida
inn saursýni, sem rannsökuð eru á
sýklarannsóknadeild Landsspítal-
ans, en ekkert hefur komið úr þeim
rannsóknum enn sem komið er.
„Við getum alls ekki slegið því föstu
að um sé að ræða salmonellu þótt
tiltölulega stutt sé síðan gestir úr
þremur fermingarveislum hér lögð-
ust í rúmið með þá veiki. Þá var
líka mun auðveldara að sjá hvað
um var að ræða, enda var maturinn
í allar veislumar keyptur frá sama
hótelinu, Dalabúð. Við erum fyrst
og fremst að leita að sýklum, sem
hugsanlega geta valdið þeim ein-
kennum sem sjúklingarnir hafa
fengið,“ sagði Gunnar Rafn.
Gert klárt fyrir flutning flugvélarinnar af stallinum og inn í flugskýli. Morgunblaðið/EyjolfurGuðmundsson
Keflavíkurflugvöllur:
Fluffvélin tekin af stallinum
Voirum. ^
Vogum.
FLUGVÉLIN sem hefur staðið á
stalli á Keflavíkurflugvelli und-
anfarin ár hefur verið tekin af
stallinum vegna viðgerða. Verð-
ur flugvélin flutt inn í flugskýli
á vellinum og máluð.
Flugvél þessi, sem hefur staðið
á stalli í um tiu ár, var notuð hér
á landi vegna flutninga fyrir Varn-
arliðið innanlands vegna ratsjár-
stöðva á Langanesi og við
Hornafjörð. Þegar Flugleiðir tóku
við þessum flutningum var hlui-
verki flugvélarinnar lokið hérlendis,
en vegna þess að það þótti of kostn-
aðarsamt að flytja vélina á safn í
Bandaríkjunum varð hún áfram hér
á landi og komið fyrir á stalli.
Flugvélin er síðasta flugvélin sem
var notuð við þessa flutninga hér á
landi. EG
„VIÐ VERÐUM að einbeita okk-
ur að því sem mest dregur úr
ríkisafskiptum, nefnilega að
minnka afskipti þess af banka-
kerfinu,“ sagði Þorsteinn Páls-
son, forsætisráðherra, á fundi
með ungum sjálfstæðismönnum
á veitingahúsinu Gauk á Stöng í
gærkvöldi. Þorsteinn sagði skipt-
ar skoðanir vera uppi um þessi
mál í stjórnarflokkunum þremur
en hann væri þó bjartsýnn á að
ríkisbönkunum yrði breytt í
hlutafélög og hlutirnir síðan
seldir.
Varðandi sölu annarra ríkisfyrir-
tækja sagði hann ekki hafa náðst
skýrir samningar um þau mál með-
al flokkanna. Sum ríkisfyrirtæki,
eins og Áburðarverksmiðjan til
dæmis, væru líka rekin með miklum
halla og því ekki raunhæft að ætla
að selja þau eins og málin stæðu.
Reksturinn hjá sumum virtist þó
fara batnandi og ætti að stefna að
því að koma honum í það gott horf
að möguleikar á sölu opnuðust.
Þorsteinn sagði að lokum að það
væri stefna stjómarinnar að ríkisút-
gjöld myndu ekki aukast sem
hlutfall af þjóðarframleiðslu á þessu
kjörtímabili.
Islendingar reiða sig
á loforð um viðræður
Bandaríski viðskiptaráðherrann hef-
ur ekki tekið ákvörðun um aðgerðir
MÖGULEIKAR á því að viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti
við Ronald Reagan forseta, að hvalveiðar íslendinga dragi úr gildi
friðunaráætlunar Alþjóða hvalveiðiráðsins, virðast fara vaxandi.
Þetta verður ráðið af svörum embættismanna hérlendis og í Banda-
ríkjunum við spurningum Morgunblaðsins í gær. Malcom Baldridge
viðskiptaráðherra hefur ekki tekið neina ákvörðun um hvort hann
láti forseta fá staðfestingu þessa, en fjallað hefur verið um að koma
á viðræðum íslenskra stjórnvalda og ráðuneytisins eftir óformlegum
leiðum. Á miðri vertíðinni í fyrra var gert hlé á hvalveiðunum til
þess að koma í veg fyrir að ráðherrann skuldbindi Reagan forseta
til að fara fram á viðskiptabann gagnvart íslendingum.
Halldór Ásgrímsson sjávarút- hann um hvalvoiðimálið. „Banda-
vegsráðherra átti fund með sendi- ríkjamenn hafa lofað okkur að þeir
herra Bandaríkjanna í gærmorgun muni ekki aðhafast neitt nema að
og ræddu þeir meðal annars við undangengnum viðræðum. Þær
kynnu að hefjast fljótlega en um
það er enn ekkert ákveðið," sagði
Halldór.
Á fundi hvalveiðiráðsins í Bo-
urnemouth í júnímánuði var
samþykkt tillaga Bandaríkjamanna
þess efnis að þeim þjóðum er stundi
hvalveiðar í rannsóknarskyni beri
að leita samþykkis vísindanefndar
ráðsins. Jafnframt samþykkti ráðið
að fallast ekki á vísindaveiðar ís-
lendinga þar sem þær uppfylli ekki
sett skilyrði.
Samkvæmt bandarískum lögum
ber viðskiptaráðuneyti Banda-
ríkjanna að gera forseta viðvart ef
íslendingar, eða önnur hvalveiði-
þjóð, fara út fyrir þann ramma sem
Deilan um Rockall-svæðið tekur nýja stefnu:
Bretar falla frá andstöðu
víð rannsóknarleiðangurinn
Rannsóknir Islendinga, Dana og
Færeyinga geta staðist áætlun
SENDIRÁÐI Íslands í London
hefur verið gerð grein fyrir því
að Bretar muni gera sitt til að
áætlun um rannsóknarleiðangur
íslendinga, Dana og Færeyinga
á Hatton-Rockall-svæðið í næsta
mánuði standist. Áður höfðu
Bretar lýst því yfir að leiðangur-
inn samrýmdist ekki þeirra
rannsóknum á svæðinu. Gæti
ekki af honum orðið fyrr en í
september, en þá eru skilyrði
orðin slæm til slíkra ferða. Kveð-
ur nú við annan tón. Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra
sagði í samtali við Morgunblaðið
að íslensk stjórnvöld fögnuðu
þessum sinnaskiptum Breta.
„Sem betur fer hafa þeir komist
að þeirri niðurstöðu að ekki þurfí
að koma til árekstra út af þessum
rannsóknum. Ég held að það sé
ákaflega mikilvægt fyrir okkur að
vita hvort eftir einhveiju sé að
sækjast á þessu svæði. Öll slík vitn-
eskja mun koma okkur til góða í
framtíðinni," sagði Steingrímur.
„Ég hef alltaf treyst því að sá
dagur kæmi að Bretar tækju upp
samstarf við okkur, Dani og Færey-
inga um réttargæslu á Rockall-
svæðinu og löglega meðferð
málsins," sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis þegar þessi yfir-
lýsing Breta var borin undir hann.
„Að vísu er biðin orðin æði löng
því að málið var fyrst flutt á Al-
þingi haustið 1978."
Eyjólfur sagði að hér væri um
að ræða mun þýðingarmeira mál
en menn hefðu almennt gert sér
grein fyrir. „Tilhliðrun á borð við
þessa er vísasti vegurinn til að
málið leysist farsællega, eftir rétt-
um lagaleiðum og í samvinnu og
fullri vinsemd. Sá farvegur hefur
nú myndast," sagði hann.
Á fjárlögum þessa árs er gert ráð
fyrir 20 milljón króna framlagi ís-
lendinga til rannsókna á Hatton-
Rockall svæðinu. Undirbúningur
leiðangursins er í fullum gangi og
verður sérsmiðað skip til leitar á
hafsbotni leigt til fararinnar.
friðunaráætlun Alþjóða hvalveiði-
ráðsins setur. Þegar staðfesting
ráðuneytisins berst forseta Banda-
ríkjanna getur hann farið þess á
leit við fjármálaráðherra að sett
verði viðskiptabann á vörur viðkom-
andi lands. Taki hann ákvörðun um
að aðhafast ekki ber honum að til-
kynna Bandaríkjaþingi það innan
60 daga.
Engin staðfesting fékkst á því í
gær að Bandaríkjamenn hefðu þeg-
ar óskað eftir viðræðum um hval-
veiðarnar og aðgerðir viðskipta-
ráðuneytisins. Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra
sagði að þessa stundina væri verið
að athuga þessi mál mjög gaum-
gæfilega og hugsanlega yrðu
hafnar viðræður, en nánari stað-
festingar og ákvörðunar væri ekki
að vænta fyrr en á næstu dögum-
Síðastliðið sumar létu íslending-
ar undan þrýstingi bandaríska
viðskiptaráðuneytisins og gerðu hlé
á hvalveiðum. Þá hafði ráðuneytið
tilkynnt íslenskum sendifulltrúum í
Washington að forsetanum yrði
gert viðvart létu íslendingar ekki
af hvalveiðum tafarlaust.
Á fundinum í Bournemouth sagð'
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra að samþykkt fundarins um
vísindaveiðarnar byndi ekki hendur
íslendinga þar sem hún bryti í bága
við stofnsamning ráðsins. { ræðu
sem hann hélt í upphafi fundarins
sagði ráðherrann efnislega að við-
skiptaþvinganir myndu ekki breyta
neinu um veiðar íslendinga þar sem
þjóðin hefði aldrei látið undan
slíkum hótunum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er líklegt að staðan í hvalveiðimál-
inu verði meðal umræðuefna á
ríkisstjórnarfundi í dag.
Sjá frétt á blaðsíðu 63.