Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
9
Páks
á Hveravelli
Tilkynnið þátttöku á skrifstofu Fáks
fyrir 20. júlí.
Ferðanefnd.
RVALS VARA
>■&> ■
RABÆRU VER
síma [621566
Og nú erum við í Borgartúni 28
BJORNINN HF
Borgartún 28 — sími 621566
Reykjavík
„Unaðsleg
lesning“
I vikuskammtí Flosa
segir mjL:
„Nú er síðasta afreks-
verk félagsvisindadeild-
ar Háskólans komið fyrir
almenningssjónir, en það
er kSnnun á viðhorfi fjöl-
miðlanna tíl fjölmiðla-
manna. Manni gætí
bókstaflega dottíð i hug
að þjóðin væri ekki búin
að fá sig fullsadda af þvi
að hlusta, horfa og lesa
um það í fjölmiðlum,
hvað fjölmiðlafólki finnst
um fjöhniðlafólk í fjöl-
miðlum.
Þessi skýrsla er sem-
sagt byggð á svokallaðri
„fréttamannakönnun"
og er alveg unaðsleg
lesning. Areiðanlega
óborganlegt vegarnestí
fyrir hin islensku „fjöl-
miðlafrík" framtíðarinn-
ar.
Mér er sagt að ungt,
meðvitað fólk á uppleið
eigi sér þann draum heit-
astan að komast í fjöl-
miðla, helst sem blaða-
eða fréttamenn. Þetta
eru oft ungir dáindis-
menn, sem taka sig vel
út og vita oftast hvað
þeir vifja en sjaldnar
hvað þeir geta, stundum
kallaðir „uppar“. Þá er
sagt að þegar ungar
föngulegar, snoppufrið-
ar og meðvitaðar telpur
dreymi eitthvað sem ekki
er dónalegt, þá séu það
helst fjölmiðlar og þær í
þeim.
Svo verða sumir af
þessu fólki góðir og
gjaldgengir blaða-, frétta
og fjölmiðlamenn og
-konur, en aðrir halda
áfram að vera fjölmiðla-
frik sem nota hvert
tækifæri til að fjalla um
sjálft sig og önnur fjöl-
miðlafrik í tíma og ótíma
í fjölmiðlum.
Öll er svo þessi Qöl-
miðlun um fjölmiðla og
fjölmiðalafólk i fjölmiðl-
um að verða talsvert
brosleg og þess vegna af
hinu góða, þvi það er nú
einu sinni svo, að hlátur-
inn lengir lfið“.
Skemmtileg og ekki skemmtileg
lesning
Ekki verður með sanni sagt að pólitísk harðlífisskrif Þjóðviljans
séu það skemmtilegasta sem fyrir augu ber í fjölmiðlaflóru Fjall-
konunnar. En vikuskammtar Flosa Ólafssonar rísa eins og
Akrafjall og Skarðsheiði, já eins og fjólubláir draumar upp úr
flatneskjunni. Staksteinar stelast í góðgæti Flosa í dag.
Hinndæmi-
gerði frétta-
maður
Enn segir Flosi:
„í þessari félagsvfs-
indalegu könnun gefst
blaðamönnum kostur á
að tjá sig um það, meðal
annars, hvemig þeir álití
að dæmigerður frétta-
maður eigi að vera.
Á bls. 5 undir töflu 3
stendur orðrétt:
Hiim dæmigerði
fréttamaður, einsog
hann blasir við könnun-
inni er karlmaður á
ÖNDVERÐVM ÞRÍ-
TUGSALDRI og hann
hefur verið nálægt því
hálfan áratug í starfi.
Og nokkru neðar á
síðunni undir töflu 4:
Fréttamaðurinn dæmi-
gerði hefur lokið há-
skólaprófi, en ekki
endilega í blaðamennsku.
Um þetta er það helst
að segja, að sá er á
þrítugsaldri sem orðinn
er tvítugur og allir sem
mæltír eru á tungu vora.
íslenzku (ekki sist há-
skólamenn), vita að á
öndverðum þritugsaldri
er maður rétt rúmlega
tvítugur, en á ofanverð-
um þrítugsaldri eru
menn famir að nálgast
þrítugt.
Hinn dæmigerði
fréttamaður hefur þvi
orðið stúdent 10-12 ára,
lokið háskólaprófi 16-17
ára, unnið siðan hálfan
áratug sem fréttamaður,
eða þar til hann hefur
náð umræddum „önd-
verðum þrítugsaldrin-
rnn...“
„Hávísindaleg
niðurstaða“
Loks segir Flosi:
„Aðstandendur þessa
verkefnis, semsagt nem-
endur i fjölmiðlafræði
við Háskóla íslands,
draga fram það sem
þeim að eigin dómi finnst
eftirsóknarverðustu
kostir góðra blaða- og
fréttamanna ... Kostíra-
ir em 22:
Heiðarlegur, áreiðan-
legur, vandvirkur, fróð-
leiksfús, hugmyndarík-
ur, óhlutdrægur,
forvitinn, ákveðinn, út-
haldsgóður, kurteis,
ósérhlifinn, sldlningsrík-
ur, taugasterkur, metn-
aðargjam, samvinnuþýð-
ur, ágengur, fágaður, vel
klæddur, ópersónulegur,
tilfinninganæmur, slótt-
ugur, frekur.
Þessi upptalning á
kostum góðs blaðamanns
talar sinu máli. Greini-
lega er ekki gert ráð
fyrir þvi að máli skiptí
hvort blaðamaður sé það
sem stundum var áður
kallað RITFÆR eða VEL
MÁLI FARINN.
Getur það verið að i
fjölmiðlafræðideild hinn-
ar virtu félagsvisinda-
deildar Háskóla íslands
sé það rikjandi skoðun
að ekki sé lengur þörf á
þvi sam áður var gert að
skilyrði tíl að fólk fengi
vinnu við blaðamennsku.
Semsagt að blaðamenui
væru læsir og skrifandi“.
TSíttanialkadulinn
Kr^tettifgötu 12-18
Chervolet Monsa 1987
Blár, ekinn 8 þ.km. Sjálfsk., aflstýri, 3 dyr,
útvarp + segulb. Verö 530 þús.
M. Benz 280 SE 1978
Hvítur, sjálfsk., ekinn 100 þ.km. Mjög gott
eintak. Verð 590 þús.
V.W. Golf GTI 16 ventla 1986
Rauður, okinn 8 þ.km., sóllúga, vökvastýri,
sportfelgur, rafm. í öllu o.fl. Vorö 850 þús.
Mazda 323 (1600) GTI 1986
Grásans., 4 dyra, 5 gíra, ekinn 25 þ.km.
Útvarp + segulband, 2 dekkjagangar. Verö
550 þús.
Nissan Cherry 1000 1985
Hvitur, fallegur bíll, ekinn 21 þ.km. Verð 280
þús.
Audi 80 XI Coupó 1982
Hvitur, 5 cyl., 5 gíra, ekinn 84 þ.km., sóll-
úga, sportfelgur of.l. Glæsilegur sportbill.
Verð 680 þús.
Fiat Panda ’82
51 þ.km. V. 110 þ.
BMW 320 ’81
87 þ.km. Svartur. V. 390 þ.
BMW 528i ’80
90 þ.km. V. 450 þ.
Talbot Samba '85
13 þ.km. 3ja dyra. V. 275 þ.
Citroen BX 14E '86
25 þ.km. Skipti á ód. V. 490 þ.
Ford Sierra 1,6 '86
7 þ.km. Grár. V. 470 þ.
M. Benz 190 E '86
34 þ.km. Einn meö öllu. Verö 1150 þ.
Ath: Mikið af bílum á 10-24 mán. greiðslukjörum.
Hefurðu heyrt um
skammtímaskuldabréf
Veðdeildar Iðnaðarbankans?
Þau eru verðtrygg ð
og bera 9,3% ávoxum.
bréfanna er í afgreiðslum Iðnaðar-
banka (slands hf.
Skammtímaskuldabréfin eru full-
verðtryggð m.v. lánskjaravísitölu og
bera 9,3% ávöxtun umfram verð-
bólgu. Frá áramótum hefur ávöxtun
þeirra því jafngilt 30,9% nafnvöxt-
un.
Allar nánari upþlýsingar í Ármúla 7
og síminn er 68-10-40.
Gjalddagar skammtímaskulda-
bréfanna eru frá 1. október 1987 og
síðan á tveggja mánaða fresti eftir
það (sjátöflu). Hvert skuldabréf
greiðist upp með einni greiðslu á
gjalddaga. Skammtímabréfin eru
þannig sniðin að þörfum þeirra sem
vilja njóta öruggrar ávöxtunar á
verðbréfamarkaði en geta ekki
bundið fé sitt lengi. Greiðslustaður
Gjalddagi
1. október 1987
1.desember1987
1.febrúarl988
1. apríl 1988
1. júni 1988
1. ágúst 1988
1. október 1988
1. desember 1988
1. febrúar 1989
1. apríl 1989
1. júní 1989
Ávöxtun umfram
verðbólgu
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
9,3%
1
§§ Verðbréfamarkaður
= Iðnaðarbankans hf.