Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
15.-19. júli (5 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gengið á fjórum dögum frá
Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Gist i sæluhúsum F.l. á
leiðinni. Biðlisti. Fararstjóri:
Hilmar Þór Sigurðsson.
15.-19. júlf (5 dagar):
Hvftárnes-Þverbrekknamúli
— Hveravellir.
Gengið með svefnpoka og mat
milli sæluhúsa F.l. á Kjalarsvæö-
inu. Skoöunarferöir frá áningar-
stöðum. Biðlisti. Fararstjóri:
Dagbjört Óskarsdóttir.
17.-24. júlf (8 dagar): Lónsöræfi.
Flug eóa rúta til Hafnar f Horna-
firöi. ieppar flytja farþega inn á
lllakamb. Gist í tjöldum. Farar-
stjóri: Egill Benediktsson.
17.-22. júlf (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gengið milli gönguhúsa frá
Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Fararstjóri: Arnar
Jónsson.
22. -26. júlí (5 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
23. -26. júlf (4 dagar): Strandir
ísafjarðardjúp.
Gist tvær nætur á Laugarhóli f
Bjarnarfiröi og eina nótt í Reykja-
nesi. Ekið norður i Trókyllisvík,
farið yfir í Djúp um Steingríms-
fjarðarheiði, og suöur til
Reykjavíkur um Þorskafjaröar-
heiði. Fararstjóri: Sigurður
Kristinsson.
Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofu F.Í., Oldugötu 3.
Feröafélag Islands.
UTIVISTARFERÐIR
Sumarleyfisferð á
Homstrandir
17.-24. júlí, 8 dagar
Ekið á föstud. um Strandir i
Norðurfjörð og siglt í Reykjafjörð
á Homströndum. Dvalið. þar til
fimmtudags og siglt fyrir Hom
til Isafjarðar. Frábærar göngu-
leiðir til allra átta frá tjaldstað.
Tilvalin fjölskylduferð. Góð farar-
stjóm. Sundlaug. Uppl. og farm.
á skrifst. Grófinni 1, simar
14606 og 23732. Sjáumst.
Otivist. ferðafélag.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferð 17.-19. júlí:
1) Kjölur — gönguferð f Kerllng-
arfiöllum
Ekið til Hveravalla og gist þar í
sæluhúsi Ferðafólagsins. Á
laugardegi er fariö i Kerlingar-
fjöll og gengið þar.
2) Landmannalaugar — Eldgjá
Ekið til Landmannalauga og gist
þar í sæluhúsi Ferðafélagsins.
Farið í Eldgjá ef fært verður,
annars farnar gönguferðir á
Laugasvæöinu.
3) Þórsmörk — glst f Skag-
fiörðsskála/Langadal
Gönguferöir um Mörkina. Missið
ekki af sumrinu i Þórsmörk.
Notfærið ykkur frábæra aðstöðu
Feröafélagsins í Langadal og
dveljiö lengri tíma.
Brottför i allar ferðirnar er frá
Umferðamiðstööinni, austan-
megin, kl. 20.00 föstudag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins, Öidu-
götu 3.
Ferðafélag islands.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Miðvikudagur 15. júlí:
kl. 08.00 Þóramörk — dagsferð
á kr. 1.000,-
Kl. 20.00 Bláfiöll - farlð upp
með stólalyftunni (kvöldferð). *
Verð kr. 500.-
Laugardagur 18. júli:
Kl. 08.00 HEKLA
10 klst. gönguferð fram og til
baka á Heklutind (1491 m).
Ógleymanleg gönguferð. Verð
kr. 1.200.-
Brottför frá Umferðamiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bil.
Fritt fyrir böm í fylgd fullorðinna.
Ferðafélag (slands.
Krossinn
Auðhrekku 2 — KópavoRÍ
Samkoma i kvöld kl. 20.30 i
höndum trúboöshópsins frá
Biblíuskóla Jimmy Swaggart.
Allir velkomnir.
ÚTIVISTARFERÐIR
Miðvikudagur 15. júlí
Kl. 8.00 Þórsmörk. Dagsferð kr.
1000.- Sumardvöl til föstudags
eða sunnudags er ódýrt sumar-
leyfi. Gist í Básum.
Kl. 20.00 Engey. Brottför frá
kornhlööunni Sundahöfn kl.
20.00. Verð kr. 400.- Fritt fyrir
börn m. fullorönum. Ef veður
aftrar landtöku verður farið í Viö-
ey. Gengið verður um eyjuna.
Helgarferðir 17.-19. júlí
1. Þórsmörk — Goðaland. Gist
f Útivistarskálunum Básunum.
Brottför föstud. kl. 20.00.
2. Landmannalaugar — Land-
mannaleið. Gist í húsi. Brottför
kl. 20.00, föstud. Farið í Eldgjá
ef færð leyfir.
3. Skógar — Fimmvörðuháls —
Básar. Brottför laugard. kl. 8.00.
4. Sprengisandur — Eyvlnda-
kofaver. Sunnud. 19. júli kl.
8.00. Uppl. og farm. á skrifst.
Grófinni 1, símar: 14606 og
23732.
Sjáumst,
Útivist.
Hilmar Foss
lögg, skjalaþýð. og dómt.,
Hafnarstræti 11,
símar 14824 og 621464.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
Gistiheimilið
Mjóuhlið 2. S. 24030.
r
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Til leigu óskast
Til leigu óskast fyrir starfsmann okkar 2ja-3ja
herbergja íbúð.
Hafið samband í síma 24114.
Ásgeir Einarsson hf.
ATH!
Ung kona, kennari, óskar eftir 2ja-3ja her-
bergja íbúð. Reglusemi og góðri umgengni
heitið. Þrif koma til greina upp í kostnað á
leigu.
Upplýsingar á kvöldin í síma 28624 (heima),
79760 (í vinnunni).
Brynja.
Islandsmót FMÍ
í vélflugi verður haldið laugardaginn 18. júlí
nk. (til vara 19. júlí) á Hellu. Væntanlegir
þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að
skrá sig sem fyrst hjá formanni viðkomandi
flugklúbbs eða „ON TOP“ í gamla flugturnin-
um á Reykjavíkurflugvelli.
Vélflugdeild FMÍ.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því,
að gjalddagi söluskatts fyrir júnímánuð er
15. júlí. Ber þá að skila skattinum til inn-
heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Orðsending
Þeir, sem þurfa að hafa tal af mér, geta náð
sambandi við mig í síma 11610 kl. 8.00-
10.00 árdegis alla virka daga. (Góðfúslega
sjkrifið niður símanúmer og símatíma).
Magni Guðmundsson, Ph.D.
hagfr.
Ragnar Tómasson
Borgartún 29
^HUSAKAUP
Veitingastaður
Af sérstökum ástæðum er til sölu einn af
betri veitingastöðum borgarinnar.
Leigusamningur á húsnæði til langs tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Beitusíld
Til sölu af sérstökum ástæðum úrvals beitu-
síld.
Upplýsingar í síma 97-5132.
Ámi Guðnason,
Akranesi - Minning
Ami Guðnason, Háholti 18,
Akranesi, lést á sjúkrahúsi Akra-
ness eftir nokkurra vikna legu hinn
4. júlf. Hann verður jarðsettur frá
Akranesskirkju í dag.
Ámi var fæddur á Kaldbak í
Garði 26. október 1905. Hann var
sonur hjónanna Guðna Grímssonar
sjómanns og Ragnheiðar Þórðar-
dóttur. Þau eignuðust tvö börn
önnur, sem bæði eru látin, Þor-
björgu er lést ung og Þorgrím er í
mínu minni bjó í Klöpp í Garðinum.
Guðni Grímsson á Kaldbak og Guð-
mundur Grímsson í Réttarholti,
langafi þess er 'þessar línur ritar,
voru braéður. Nálægð og frændsemi
gerðu að verkum að verulegur sam-
gangur var milli bæjanna í Réttar-
holti og á Kaldbak og systkinin í
Réttarholti og á Kaldbak voru mjög
jafnaldra.
Kaldbakur, eða Kallbakur eins
og sagt var í Garðinum, var ofan
vegar í inn-Garðinum, ásamt Móa-
koti milli þess þar sem seinna voru
Hvammur og Hausthús. Það var
meðan hús í Garðinum hétu, en
voru ekki bara númer, eins og nú
þykir sumum betra.
Ungur að árum, innan við ferm-
ingu, varð Ámi fyrir þvf áfalli að
veikjast af berklum, sem þá voru
sá sjúkdómur er fólk óttaðist einna
mest og flesta dró jtil dauða. Merki
sjúkdómsins bar Árni til æviloka
því annar fótur hans varð staur.
Það hefur örugglega ekki verið
árennilegt á þeim árum að leggja
útí lífsbaráttuna þannig búinn.
Þjóðfélag þeirra tíma var önnur
veröld en við nú þekkjum. En Ámi
var þeirrar gerðar að hann lét sér
ekki allt fyrir brjósti brenna.
Ámi nam skósmíði hjá Gunnari
Ámasyni, skósmið í Keflavík. Hann
mun þó lítið hafa starfað við þá
grein eftir að námi lauk, heldur
stundaði þá vinnu sem til féll jafnt
til sjós og lands í Keflavík, Sand-
gerði og Garði( þrátt fyrir stirðan
fót og mjöðm. í Sandgerði starfaði
Ámi meðal annars hjá Haraldi
Böðvarssyni af Akranesi, sem þar
hafði þá mikil umsvif.
Síðar fluttist Ámi upp á Akra-
nes, sjálfsagt í og með vegna
starfanna hjá Haraldi. Á Akranesi
kynntist hann Ásbjörgu Gróu Ás-
mundsdóttur, sem fædd er í Fells-
axlarkoti, en alin upp í Litla-
Lambhaga. Felldu þau hugi saman
og gengu í hjónaband 19. nóvember
1938. Heimili þeirra var fyrst á
Laugabraut 26, en síðustu tæp 40
árin áttu þau heima í Háholti 18.
Þau eignuðust ekki böm, en það
hefí ég fyrir satt að bömum ann-
arra hafí þau oft verið betri en
enginn.
A Akranesi stundaði Ámi sjó-
mennsku framan af. Var á síld á
sumrum og við vertíðarróðra á vetr-
um. Árið 1933 hóf hann störf hjá
Haraldi Böðvarssyni á Akranesi,
fystu árin til sjós, en svo í landi.
Hjá Haraldi og afkomendum hans,
sem síðan tóku við stjóm fyrirtækj-
anna, starfaði Ámi síðan í rúmlega
40 ár eða til ársins 1975 að hann
lét af störfum. Hann minntist oft
áranna hjá Haraldi og þá jafnan
með miklum hlýhug til stjómend-
anna, eldri sem yngri, sem hann
taldi alla tíð hafa sýnt sér sérstaka
velvild.
Frá bamæsku hafði það verið í
vitund minni að frændfólk ætti ég
á Akranesi. Það var þó ekki fyrr
en á fullorðinsárum, þegar leið mín
fór að liggja býsna oft um Akranes
að ég fór svolítið að reyna rækja
frændsemina og það var ævinlega
gott að heimsækja þau Áma og
Gróu í Háholti 18.
Ámi frændi minn kom mér þann-
ig fyrir sjónir, að hann hefði verið
hamhleypa og víkingur til vinnu,
fastur fyrir og fylginn sér. Ömgg-
lega var hann skapstór og skapheit-
ur, en það var ævinlega grunnt á
gamanseminni. Hann var svipsterk-
ur og þykkt, grátt hárið gaf honum
höfðinglegt yfírbragð.
Að leiðarlokum þakka ég frænda
mínum samfylgdina, hlýhug og vin-
áttu í minn garð og minnar fjöl-
skyldu. Gróu votta ég einlæga
samúð er hún nú í hárri elli kveður
ástvin sinn. Megi sá er öllu ræður
veita henni styrk og vernd.
Eiður Guðnason