Morgunblaðið - 14.07.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
43
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Útlit
í dag ætla ég að fjalla áfram
um útlit stjömumerkjanna.
Greinin í dag verður sú síðasta
um það efni í bili. Eins og
áður er hafður sá fyrirvari að
útlit mótast af öllu korti hvers
einstaklings. Erfðaþættir hafa
síðan einnig sitt að segja, sbr.
hið fræga Bijánsstaðanef.
Steingeitin
Hin dæmigerða Steingeit hef-
ur oft heldur kalt yfirbragð,
er stíf á svip og virðist
þunglamaleg og alvörugefin.
Hún þrammar áfram, djúpt
hugsi, og virðist hafa heiminn
á herðum sér. Einnig má
þekkja hana á íhaldssömum
og klassískum klæðaburði.
Konur í Steingeitarmerkinu
eru oft ljóshærðar og bláeyg-
ar. Fegurð þeirra er köld og
öguð, a la Grace Kelly frá
Mónakó. Karlamir eru oft
luralegir og jarðbundnir i
vexti, þ.e. þykkir og þéttir.
Þó er einnig til grannholda
útgáfa af Steingeit, því oft
mótar þörfin fyrir aga og
sjálfsafneitun útlitið.
Vatnsberinn
Vatnsberar eru gjaman ljósir
yfirlitum. Yfir þeim hvílir
ákveðin heiðríkja og ró sem
gerir þá all sérstaka. Þeir
virka oft kuldlegir og frá-
hrindandi á ókunna. Yfirbragð
þeirra er samt sem áður vin-
gjamlegt og brosmilt. Vatns-
berar em almennt grann-
vaxnir og frekar fínlegir í
útliti og er andlitsfall og
líkamsbygging regluleg. Þeir
eru því yfírleitt myndarlegir.
Til eru tvær gerðir af Vatns-
bera, eftir því hvort Satúmus
eða Úranus er ráðandi. Þeir
fyrmefndu eru venjulegri og
hafa oft á tíðum frekar dauf-
legt yfirbragð en þeir síðar-
nefndu eru rafmagnaðir og oft
á tíðum sérstakir, bæði hvað
varðar útlit og klæðaburð.
Fiskurinn
Fiskurinn er mjúkur og fínleg-
ur. Líkamsbygging hans er
mjúk og er lítið um skarpa
drætti sem aðgreina eitt frá
öðru. Karlmenn í Fiskamerk-
inu eru t.d. sjaldan með
áberandi vöðvabyggingu. í
einstaka tilvikum fer vöxtur
Fisksins í hundana ef svo má
að orði komast, þ.e. hann verð-
ur ólögulegur í vexti. Augu
hans eru oft sérstök, stór, fjar-
ræn, syndandi, vingjamleg og
draumlynd. Fiskurinn hefur
einnig _oft á tíðum góðlegt
bros. Áberandi er svífandi
göngulag.
Brœðingur
Ég sagði hér að framan að
útlitið mótist af kortinu i heild.
Þegar merkin eru mörg beij-
ast þau um yfírráðin og
útkoman verður einhvers kon-
ar málamiðlun eða bræðingur
allra þáttanna. Maður með sól
í Bogmanni og Tungl í Krabba
er kannski hávaxinn (Bog-
maður) en Krabbin leggur til
ummálið og mýktina, þannig
að viðkomandi verður stór og
þybbinn I stað þess að vera
stór og grannur ef einungis
væri tekið mið af Bogmanni.
í gær talaði ég um áhrif plán-
eta, Júpfters og Satúmusar, á
útlit manna. Það er t.d. öruggt
að Naut, sem er að upplagi
þétt á velli, verður meira um
sig ef Júpíter er ( afstöðu við
Sólina en grennra ef sam-
dráttur Satúmusar heldur
nautnasýkinni I skefjum. „Ég
veit að þig langar út að borða,
að þig langar að fá þér aðra
tertusneið. En mundu að þú
hefur skyldum að gegna. Þú
þarft að vinna í kvöld," segir
Satúmus og Nautið bítur á
jaxlinn og kílóin safnast ekki
fyrir.
a r>ni i
uAKHUK
þOL/EKK/ ANNflO
seONA SKOTIVetZÐ AÐ
f/NNA L&Ð T/L AÐ
STÖÐVA ee/NA OGHfáSt
KONONGl
G- .FoPTOO
C.wefcEK
GRETTIR
ShAACK
ShAACK
SMACK
DYRAGLENS
01962 Trlbune Company Syndlcete, Inc.
UOSKA
~7/^ rta.hbv,-
H > MlkllL
C TENMIS"
S Keppni
MÉR LÍPOR EINI5 OG &&
-_V* R1 UPPTVSiNGAMlD-
^ S1ÖP y.
FERDINAND
rrrrrrrrrrrrrr:.............................. • ........... .............................
SMAFOLK
HERE'S TME W0RLE7
FAMOUS HOCKEV' PLAVER
RACIN6 POWN THE ICE,' ®
ME KN0UI5 I PON'T
HAVE A SLAP5H0T..
Hér æðir heimsfrægi Hann þykist ætla að reyna Markmaðurinn lætur það Hann veit að ég kann ekki
isknattleiksmaðurinn nið- skáskot...
ur ísinn!
ekki á sig fá ...
skáskot...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Mörgum hættir til að spila út
einspili gegn litarsamningi bara^-
ef þeir eiga það til. Það er mjög
misráðið, eins og eftirfarandi
spil er gott dæmi um.
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ Á976
¥ KD1052
♦ 4
♦ 872
Vestur
♦ 83
¥ Á8764
♦ 8
♦ Á10965
Austur
♦ KG4
¥93
♦ D1053
♦ KG43
Suður
♦ K1052
¥G
♦ ÁKG9762
♦ D
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass Pass 3 tíglar
3Jyörtu Pass Pass 3 spaðar
4 lauf Pass 4 spaðar Pass Dobl Pass
Athyglisverðar sagnir. Venju-
lega opna menn ekki á hindrun-
arsögn með flórlit til hliðar i
hálit, en suður var í flórðu hendi
og vildi ekki hleypa andstæðing-
unum of auðveldlega inn á. En
vestur vaknaði samt til lífsins
og sýndi hjartalitinn. Suður
ákvað að sýna fjórlitinn í spaða
úr þvi að norður lét það ógert
að dobla hjörtum. Og enn var
barist upp $ fjóra spaða doblaða.
í sjálfii sér góður árangur i
sögnum hjá AV, en veatur
breytti vænlegum ágóða í
stórtap þegar hann valdi að spila
út einspilinu í tígli.
Sagnhafi á nú tvær vinnings-
leiðin Hann getur stungið tígul
í blindum og spilað spaðaás og
meiri spaða. Eða farið i hjartað
og notað það sem tromp á aust-
ur.
Með laufsókn er spilið hins
vegar vonlaust, því sagnhafi
ræður ekki við styttinginn
heima. Og auðvitað er Iauf rétta
útspilið. Einspil lætur maður
helst ekki út nema eiga góða
möguleika á að makker eigi
snögga innkomu á litinn eða
tromp, svo stungan náist. Þar
sem vestur á tvo ása sjálfur
getur hann varla vænst þess að
styrkur makkers liggi i ásum.
Ennfremur er fráleitt að spila
upp í sannaðan hliðarlit sagn-
hsrfa. í þessu tiifelli hlýtur dobl
austurs að vera byggt á styrk í
spaða og tígli. Því ber að sækja
sagnhafa þar sem hann er veik-^
astur fyrir, sem líklega er i
laufi, úr þvi að makker tók ekki
undir hjartað.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu í Subot-
ica í Júgóslavíu sem nú er að
ljúka kom þessi staða upp i skák
Indveijans Prasad og ung-
verska stórmeistarans Sax, sem
hafði svart og átti leik.
■
£H
■&
■x iip
A II
& A
SÉt fill m
m fjf wm.
1 al Æi
38. - Bxh2!, 39. Hxh2 _ Hxe2
og hvítur gafst upp. Þegar flórar
umferðir voru eftir á mótinu leit
út fyrir mikinn sigur Englend-
inga. Short var efstur og
Speelman annar, en næstir
komu Ungveijinn Ribli og Mik-
hail Tal var enn fjórði þrátt fyrir
slæmt tap fyrir Prasad.