Morgunblaðið - 14.07.1987, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
FJölsótt ráðstefna
endurskoðenda
TUTTUGASTA og önnur
sumarráðstefna Félags lögg-
iltra endurskoðenda var
haldin í Hótel Örk í Hvera-
gerði dagana 3.-5. júlí.
Megin verkefni ráðstefnunnar
var umfjöllun um innri málefni
félagsins, samskiptareglur, árit-
anir og vinnupappíra endurskoð-
enda.
Frummælandi um samskipta-
reglur félagsins var Helgi V.
Jónsson, löggiltur endurskoð-
andi, en endurskoðunarnefnd,
skipuð þeim Rúnari B. Jóhanns-
syni, Sigurði H. Pálssyni, Sturlu
Jónssyni og Tryggva Jónssyni,
löggiltum endurskoðendum,
undirbjó umræður um áritanir
og vinnupappíra. Að lokinni
framsögn fóru umræður fram
um þessi mál í sex umræðuhóp-
um.
Ráðstefnugestir komu til hótel
Arkar í Hveragerði að kvöldi
föstudags, 3. júlí, en ráðstefnan
var sett kl. 9.15 að morgni laug-
ardags með ávarpi formanns
félagsins, Eyjólfs K. Siguijóns-
sonar, löggilts endurskoðanda.
Bauð hann sérstaklega vel-
komna til ráðstefnunnar frú
Margaret Downes, sem er for-
seti nýstofnaðs evrópuráðs
endurskoðenda, sem aðsetur
hefír í Brussel. Hún ávarpaði
síðan ráðstefnugesti áður en
gengið var til dagskrár ráðstefn-
unnar.
Komu fram í ávarpi hennar
fróðlegar upplýsingar um nýj-
ustu viðhorf að því er varðar
starfssvið endurskoðenda, fram-
kvæmd gildandi reglna og
þróunar nýrra með hliðsjón af
síauknum alþjóðlegum sam-
skiptum.
Síðari hluta laugardags fór
fram knattspymukeppni milli
Debet- og Kredit-liða og vann
Debet-liðið, en um kvöldið var
stiginn dans af miklu fjöri.
Þessi ráðstefna var vel sótt
af félögum FLE og mökum
þeirra og tókst í alla staði vel.
(Fréttatilkynning.)
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ferðalangur á vegum Ferðabæjar við rætur Snæfellsjökuls.
Dagsferðir
á Snæfellsnes
FERÐASKRIFSTOFAN Ferða-
bær skipuleggur nú dagsferðir á
Snæfellsnes i samvinnu við Arn-
arflug, Hótel Nes i Ólafsvik og
bæjarstjóm Ólafsvíkur. Þessar
ferðir verða famar tvisvar i viku
og hefur Araarflug bætt við
áætlanaflugi á Rif af þessu til-
efni.
víkur sem er vikan 15.-22. ágúst
og að sögn_ Kristjáns Pálssonar
bæjarstjóra Ólafsvíkur verður for-
seti Islands Vigdís Finnbogadóttir
ein af afmælisgestunum.
V estmannaeyjar:
Morgunblaðið/Sverrir
Einar Öra Einarsson (Manni) og Garðar Thór Cortes (Nonni) ásamt Agústi Guðmundssyni leik-
stjóra um borð í m/s Örion sem verður heimili þeirra félaga næstu tíu vikurnar.
Nonni og Manni valdir
úr hópi 200 umsækjenda
Tveir islenskir piltar hafa verið valdir úr hópi tvö hundruð um-
sækjanda til þess að fara með hlutverk bræðranna Nonna og
Manna i sjónvarpskvikmyndinni um Nonna. Þeir heita Garðar
Thór Cortes sem fer með hlutverk Nonna og Einar Öra Einars-
son sem leikur Manna.
NÚ eru að hefjast kvikmynda-
tökur á sjónvarpskvikmynd sem
byggð er á sögunum um Nonna
eftir Jón Sveinsson. Myndin verð-
ur unnin í samvinnu fyrirtækja
og aðila víðs vegar að úr Evrópu
en einn helsti framkvæmdaraðil-
inn er norska fyrirtækið Filmeff-
ekt a/s í samvinnu við þýska
fyrirtækið Taurus Film og breska
fyrirtækið Arena Films.
Ágúst Guðmundsson leikstjóri
myndarinnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að flest útiatriði
myndarinnar yrðu tekin upp á
stöðum allt í kringum Breiðafjörð
og í Flatey sem hefur að hluta
verið breytt í Akureyrarbæ á
síðustu öld. Inniatriðin verða öll
tekin upp í Noregi. Áætlað er að
tökur sumaratriða taki tíu vikur
og verður aðalaðsetur kvikmynda-
fólksins um borð í norska skipinu
m/s Orion þar sem engin leið var
að fá hótelpláss fyrir alla aðstand-
endur á þessum árstíma.
Ágúst sagði að leikarar kæmu
frá fimm löndum, íslandi, Noregi,
Englandi, Spáni og Frakklandi.
Mikið var leitað að Nonna og
Manna og voru yfir 200 piltar ffá
ýmsum Evrópulöndum prófaðir.
Verið var að leita að enskumæl-
andi strákum á vissum aldri.
Ágúst kvaðst hafa orðið mjög
undrandi á þeim fjölda íslenskra
pilta sem talaði ensku og jafnvel
án þess að hafa nokkum tímann
komið út fyrir landsteinana.
Þegar Ágúst var spurður að
því hvers vegna Garðar og Einar
Óm hefðu verið valdir sagði hann
að það væri fyrst fremst vegna
þess að þeir hefðu sýnt góða leik-
hæfileika.
Ungu leikaramir Garðar og
Einar Öm sögðu í samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu mik-
inn áhuga á leiklist og hefðu áður
leikið í skólaleikritum. Garðar
sagðist tala ensku vegna þess að
mamma hans væri ensk og var
hann eitt ár í skóla á Englandi.
Einar Öm hefur verið í enskum
skóla í Tanzaníu undanfarin fjög-
ur ár og talar því ensku jafnvel
og móðurmálið.
Hvorugur piltanna hefur áður
komið til Flateyjar en þeir sögð-
ust hlakka mikið til þess að hverfa
hundrað ár aftur í tímann.
Einar Öm sagði að Clint East-
wood væri uppáhaldsleikarinn
sinn og sagðist hann stefna að
því að verðá eins góður leikari og
hann. Uppáhaldsleikari Garðars
er um þessar mundir grínleikarinn
Mel Brooks en hann sagði að
líklega yrði Einar Öm í uppáhaldi
eftir sumarið.
Reiknað er með að sjónvarps-
kvikmyndin Nonni verði frumsýnd
um jólin 1988.
Hótel Þórshamar opnað
Hótel Þórshamar í Vestmannaeyjum.
-------
Morgunblaðið/Guðl. Sig.
Að sögn Inga Sverrissonar hjá
Ferðabæ kom hugmyndin að þess-
um ferðum fram í vor. Var þá strax
haft samband við Amarflug og
bæjarstjóm Ólafsvíkur og höfðu
báðir aðilar áhuga á samstarfinu.
Ingi sagði að flogið yrði með
Amarflugi á Rif á mánudags- og
föstudagsmorgnum kl. 8.00. Þá
yrði ekið með rútu í kringum Snæ-
fellsjökul og með sérstökum
fjallabíl, sem Ólafsvíkurbær hefur
fest kaup á, inn á jökulinn. Fólk
getur sfðan valið um það að fljúga
til Reykjavíkur síðdegis eða að
ganga á jökulinn með leiðsögu-
manni og fara til Reykjavíkur næsta
dag.
Herbert Hjelm formaður bæjar-
ráðs Ólafsvíkur sagði í samtali við
Morgunblaðið að bæjarstjóm Ól-
afsvíkur hefði verið sammáta um
að bæta þyrfti aðstöðu þeirra ferða-
manna sem vildu heimsækja bæinn.
Herbert sagði að bærinn ætti 300
ára verslunarafmæli í ár og því
ekki úr vegi að bjóða ferðamönnum
til veglegrar veislu.
Verið er að vinna að gerð heim-
ildamjmdar um Ólafsvík og verður
hún sýnd í sjónvarpinu um miðjan
ágúst. Ýmislegt annað verður til
skemmtunar á afmælisviku Ólafs-
NÝTT glæsilegt hótel, Hótel
Þórshamar, var opnað í Vest-
mannaeyjum um helgina. Hótelið
er staðsett í hjarta bæjarins, við
Vestmannabrautina, og i því eru
16 tveggja manna herbergi og að
auki tvær íbúðir. Setustofa með
vönduðum húsgögnum er fyrir
gesti og salur þar sem morgun-
verður er borinn fram. Síðar i
haust verður opnaður fullkominn
matsölustaður á jarðhæð hótels-
ins.
Hótel Þórshamar er í eigu fyrir-
tækisins H. Sigurmundsson hf. sem
er fjölskyldufyrirtæki hjónanna Heið-
mundar Sigurmundssonar og Guð-
rúnar Jóhannsdóttur og bama þeirra.
Hótelstjóri verður Jóhann Heið-
mundsson. Húsið teiknaði Ólafur Á.
. Kristjánsson fyrrum bæjarstjóri en
Siguijón Pálsson teiknaði innrétting-
ar. Hótelið var byggt á grunni gamla
Þórshamarshússins þar sem fyrrum
var Nýjabíó, en það skemmdist mikið
í gosinu 1973. Húsið var innréttað
og öllum búnaði þar fyrir komið á
100 dögum. Verkið var allt unnið af
iðnaðarmönnum úr Eyjum og öll hús-
gögn og innréttingar eru íslensk
framleiðsla.
„Við vonum að þetta hús eigi eftir
,að hýsa marga góða gesti og það
verði bæjarfélaginu til sóma,“ sagði
Heiðmundur Sigurmundsson f sam-
tali við Morgunblaðið. Hann sagði að
markmiðið með byggingu þessa hót-
els væri viðleitni til þess að auka
ferðamannastrauminn til Vest-
mannaeyja og reyna að fá ferðamenn
til að dvelja þar lengur.
„Þess vegna fórum við út í það
að byggja upp gott hótel með góðum
þægindum. Hér eru 18 herbergi, tvær
íbúðir en hin herbergin eru tveggja
manna, öll með baði. Á öllum her-
bergjum er sjónvarp, sfmi, morgun-
hani, og ísskápur. Hér munum við
reyna að láta gestum líða vel, þannig
að þeir fari með góðar endurminning-
ar frá Vestmannaeyjum," sagði
Heiðmundur Sigurmundsson.
Heiðmundur sagði ennffemur að
Vestmannaeyjar væru virkileg perla
að koma til, þar væri náttúrufegurð
mikil og upp á margt væri að bjóða
fyrir ferðamenn. „Þessi rekstur