Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 64

Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 64
30 DAGAR A -4 -4- A ^4 XJöföar til X X fólks í öllum starfsgreinum! plDr0imMM»it> KRINGWN KblHeNM pmptp ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Dráttar- báturinn Magni til Sig'lufjarðar SAMKOMULAG hefur tekist með hafnarstjóra í Reykjavík og forsvarsmönnum Dráttarskips hf. um kaup á dráttarbátnum Magna samkvæmt upplýsingum frá hafnarstjóra í Reykjavík. Ætlunin er að Magni verði notað- ur til að draga dýpkunarpramma Dýpkunarfélags Siglfirðinga í framtíðinni. Kaupverð er 3,5 milljónir sem greiðast við af- hendingu skipsins . Hannes Valdimarsson aðstoðar- hafnarstjóri í Reykjavík sagði í samtali við Morgunblaðið að sam- komulag þetta væri háð samþykki hafnarstjómar, sem kemur saman næstá fimmtudag. Magni var smíðaður 1955 í Stál- smiðjunni í Reykjavík og er fyrsta stálskipið sem smíðað var á ís- landi, að sögn Hannesar. Skákþing Norðurlanda: Helgi Ólafs- son vann Maki ÞAÐ gekk á ýmsu hjá Islending- unum þegar önnur umferð Skákþings Norðurlanda var tefld í gær í Þórshöfn í Færeyjum. Helgi Olafsson vann Maki frá Finnlandi í 63 leikjum, Margeir Pétursson gerði jafntefli við Wed- berg frá Svíþjóð í 60 leikjum og Jón L. Arnason tapaði fyri Mortensen frá Danmörku. Mortensen er efstur ásamt Schneider frá Svíþjóð. Þeir hafa tvo vinninga. Helgi er með einn og hálfan vinning og Jón L. og Mar- geir eru með 1 vinning hvor. Þriðja umferð verður tefld í dag og þá hefst einnig keppni í opnum flokki. r MorKunblaðið/Bjami Slökkviliðsmaður sprautar vatni á eldinn í verksmiðjuhúsi Málningar hf. í Kópavogi í gær. Hitinn er svo mikill að hann verður að snúa sér frá eldinum. 80 milljóna króna tjón í Kópavogi: Verksmiðja Málningar brann til kaldra kola Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá sellulósaþynni TALIÐ er að tjón hafi numið um 80 milljónum króna er húseign Málningar hf. á Marbakkabraut 21 í Kópavogi brann til kaldra kola í gærdag og allt það sem inni var. I húsinu var verksmiðja fyrirtækisins til húsa auk skrif- stofuhúsnæðis, birgðageymslu og mötuneytis. 35 manns vinna að staðaldri i verksmiðjunni og sakaði engan þeirra nema hvað einn varð fyrir smávægileguni brunasárum er eldurinn kom upp. Slökkviliðið kom á vettvang um kl. 13.45 fullskipað auk þess sem kallað var á liðsauka frá slökkviliði Reykjavíkurflugvallar. Erfiðlega gekk að slökkva eldinn þar sem eldhaf var rnikið og breiddist það um allt húsið á örskömmum tíma. Þá olli vatnsskortur nokkrum erfið- leikum, en þrátt fyrir að hús Málningar hf. stæði næst sjávar- bakkanum, var ekki hægt að dæla á það sjónum vegna óhreininda sem þar eru. Þá hefðu sogbarkarnir í slöngunum stíflast, að sögn Rúnars Bjarnasonar, slökkviliðsstjóra. íbúðarhúsin vestan við hið brenn- andi hús voru í nokkurri eldhættu og var það ráð tekið að rýma þau. Eldurinn kom upp í norðausturhorni hússins á neðri hæð þess og að sögn sjónarvotta heyrðust nokkrar sprengingar áður en eldurinn bloss- aði upp. Rúnar sagði að grunur léki á að kviknað hafi í út frá sellulósa- þynni, sem væri mjög eldfimt efni. Húsið, sem er um 2 þúsund fer- metrar að grunnfleti, er tvílyft og steinsteypt með bárujárnsklæddu þaki. Húsnæðið er að fullu tryggt hjá Brunabótafélagi íslands og inn- •bú er tryggt hjá Almennum trygg- ingum. Stefán J. Guðjohnsen, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði óvíst hve lengi framleiðslan þyrfti að liggja niðri. Fyrirtækið hefði ekki í neitt hús að venda og ljóst væri að hús þess sem nú hefði brunnið yrði ekki byggt upp. Það væri gjörsamlega ónýtt. Sjá frétt á bls. 62-63. Uppgröfturinn í Aðalstræti: Nokkur hundruð ára krít- arpípa FORNAR mannvistarleifar hafa komið í ljós í uppgreftrinum í Aðalstræti og leifar af öskulagi frá eldgosi í Kötlu sem var um 1500. „Það merkasta sem við höfum fundið til þessa eru leifar af ösku- lagi sem nokkurn veginn er öruggt að sé frá Kötlugosi um 1500 og tvö mannvistarlög. En við erum orðin svartsýn að finna mikið heillegt hér, því mikið rask hefur átt sér stað hér fyrr á áium,“ sagði Mar- grét Hallgrímsdóttir fornleifafræð- ingur í gær. Mannvistarlögin eru frá 17. öld og annað frá 16. öld, en það eldra liggur beint ofan á gamla sjávarbotninum. Þá hefur fundist fullt af dýrabeinum og hluti af krítarpípu sem Margrét sagði að gæti verið nokkur hundruð ára gömul. Hitamolla á Siglufirði Siglufirði. I GÆR var heitasti dagur sem komið hefur í sumar hér á Siglu- firði og í alskýjuðu veðri fór hitinn upp í 21 stig um klukkan 17. Sól skein fyrri hluta dags og fór til dæmis hitastigið í 26-28 gráður í hádeginu, en um miðjan dag dró fyrir sólu. í gærkvöldi um kl. 21 var hitastigið á Siglufirði 19 gráð- ur. rnj Frávísunarkrafa í Hafskipsmálinu: Albert vel- gjörðarmað- ur Hallvarðar MUNNLEGUR málflutningur fór fram í gær í máli ákæruvalds- ins gegn framkvæmdastjórum Hafskips um þá kröfu verjenda að málinu verði vísað frá dómi vegna vanhæfis ríkissaksóknara, Hallvarðar Einvarðssonar, til meðferðar máisins. Ein meginröksemd vetjenda með frávísuninni var sú, að rekstur Út- vegsbankans og Hafskips hefði verið það samofinn, að bankinn hefði haft boðvald yfir fyrirtækið. Hluti af þessu boðvaldi hafi verið Jóhann Einvarðsson bróðir Hall- varðar; hann væri þar með aðili málsins og Hallvarður því van- hæfur. Einnig töldu veijendurnir Hallvarð standa í slíkri þakkarskuld við Albert Guðmundsson, að tor- tryggilegt væri að Albert skyldi sleppa við málssókn. Sjá frásögn á bls 35.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.