Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 64
30 DAGAR A -4 -4- A ^4 XJöföar til X X fólks í öllum starfsgreinum! plDr0imMM»it>
KRINGWN KblHeNM pmptp
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Dráttar-
báturinn
Magni til
Sig'lufjarðar
SAMKOMULAG hefur tekist
með hafnarstjóra í Reykjavík og
forsvarsmönnum Dráttarskips
hf. um kaup á dráttarbátnum
Magna samkvæmt upplýsingum
frá hafnarstjóra í Reykjavík.
Ætlunin er að Magni verði notað-
ur til að draga dýpkunarpramma
Dýpkunarfélags Siglfirðinga í
framtíðinni. Kaupverð er 3,5
milljónir sem greiðast við af-
hendingu skipsins .
Hannes Valdimarsson aðstoðar-
hafnarstjóri í Reykjavík sagði í
samtali við Morgunblaðið að sam-
komulag þetta væri háð samþykki
hafnarstjómar, sem kemur saman
næstá fimmtudag.
Magni var smíðaður 1955 í Stál-
smiðjunni í Reykjavík og er fyrsta
stálskipið sem smíðað var á ís-
landi, að sögn Hannesar.
Skákþing
Norðurlanda:
Helgi Ólafs-
son vann Maki
ÞAÐ gekk á ýmsu hjá Islending-
unum þegar önnur umferð
Skákþings Norðurlanda var tefld
í gær í Þórshöfn í Færeyjum.
Helgi Olafsson vann Maki frá
Finnlandi í 63 leikjum, Margeir
Pétursson gerði jafntefli við Wed-
berg frá Svíþjóð í 60 leikjum og Jón
L. Arnason tapaði fyri Mortensen
frá Danmörku.
Mortensen er efstur ásamt
Schneider frá Svíþjóð. Þeir hafa tvo
vinninga. Helgi er með einn og
hálfan vinning og Jón L. og Mar-
geir eru með 1 vinning hvor.
Þriðja umferð verður tefld í dag
og þá hefst einnig keppni í opnum
flokki.
r MorKunblaðið/Bjami
Slökkviliðsmaður sprautar vatni á eldinn í verksmiðjuhúsi Málningar hf. í Kópavogi í gær. Hitinn er
svo mikill að hann verður að snúa sér frá eldinum.
80 milljóna króna tjón í Kópavogi:
Verksmiðja Málningar
brann til kaldra kola
Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá sellulósaþynni
TALIÐ er að tjón hafi numið um
80 milljónum króna er húseign
Málningar hf. á Marbakkabraut
21 í Kópavogi brann til kaldra
kola í gærdag og allt það sem
inni var. I húsinu var verksmiðja
fyrirtækisins til húsa auk skrif-
stofuhúsnæðis, birgðageymslu
og mötuneytis. 35 manns vinna
að staðaldri i verksmiðjunni og
sakaði engan þeirra nema hvað
einn varð fyrir smávægileguni
brunasárum er eldurinn kom
upp.
Slökkviliðið kom á vettvang um
kl. 13.45 fullskipað auk þess sem
kallað var á liðsauka frá slökkviliði
Reykjavíkurflugvallar. Erfiðlega
gekk að slökkva eldinn þar sem
eldhaf var rnikið og breiddist það
um allt húsið á örskömmum tíma.
Þá olli vatnsskortur nokkrum erfið-
leikum, en þrátt fyrir að hús
Málningar hf. stæði næst sjávar-
bakkanum, var ekki hægt að dæla
á það sjónum vegna óhreininda sem
þar eru. Þá hefðu sogbarkarnir í
slöngunum stíflast, að sögn Rúnars
Bjarnasonar, slökkviliðsstjóra.
íbúðarhúsin vestan við hið brenn-
andi hús voru í nokkurri eldhættu
og var það ráð tekið að rýma þau.
Eldurinn kom upp í norðausturhorni
hússins á neðri hæð þess og að
sögn sjónarvotta heyrðust nokkrar
sprengingar áður en eldurinn bloss-
aði upp. Rúnar sagði að grunur léki
á að kviknað hafi í út frá sellulósa-
þynni, sem væri mjög eldfimt efni.
Húsið, sem er um 2 þúsund fer-
metrar að grunnfleti, er tvílyft og
steinsteypt með bárujárnsklæddu
þaki. Húsnæðið er að fullu tryggt
hjá Brunabótafélagi íslands og inn-
•bú er tryggt hjá Almennum trygg-
ingum. Stefán J. Guðjohnsen,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
sagði óvíst hve lengi framleiðslan
þyrfti að liggja niðri. Fyrirtækið
hefði ekki í neitt hús að venda og
ljóst væri að hús þess sem nú hefði
brunnið yrði ekki byggt upp. Það
væri gjörsamlega ónýtt.
Sjá frétt á bls. 62-63.
Uppgröfturinn
í Aðalstræti:
Nokkur
hundruð
ára krít-
arpípa
FORNAR mannvistarleifar hafa
komið í ljós í uppgreftrinum í
Aðalstræti og leifar af öskulagi
frá eldgosi í Kötlu sem var um
1500.
„Það merkasta sem við höfum
fundið til þessa eru leifar af ösku-
lagi sem nokkurn veginn er öruggt
að sé frá Kötlugosi um 1500 og tvö
mannvistarlög. En við erum orðin
svartsýn að finna mikið heillegt
hér, því mikið rask hefur átt sér
stað hér fyrr á áium,“ sagði Mar-
grét Hallgrímsdóttir fornleifafræð-
ingur í gær. Mannvistarlögin eru
frá 17. öld og annað frá 16. öld,
en það eldra liggur beint ofan á
gamla sjávarbotninum. Þá hefur
fundist fullt af dýrabeinum og hluti
af krítarpípu sem Margrét sagði að
gæti verið nokkur hundruð ára
gömul.
Hitamolla
á Siglufirði
Siglufirði.
I GÆR var heitasti dagur sem
komið hefur í sumar hér á Siglu-
firði og í alskýjuðu veðri fór
hitinn upp í 21 stig um klukkan
17.
Sól skein fyrri hluta dags og fór
til dæmis hitastigið í 26-28 gráður
í hádeginu, en um miðjan dag dró
fyrir sólu. í gærkvöldi um kl. 21
var hitastigið á Siglufirði 19 gráð-
ur.
rnj
Frávísunarkrafa
í Hafskipsmálinu:
Albert vel-
gjörðarmað-
ur Hallvarðar
MUNNLEGUR málflutningur
fór fram í gær í máli ákæruvalds-
ins gegn framkvæmdastjórum
Hafskips um þá kröfu verjenda
að málinu verði vísað frá dómi
vegna vanhæfis ríkissaksóknara,
Hallvarðar Einvarðssonar, til
meðferðar máisins.
Ein meginröksemd vetjenda með
frávísuninni var sú, að rekstur Út-
vegsbankans og Hafskips hefði
verið það samofinn, að bankinn
hefði haft boðvald yfir fyrirtækið.
Hluti af þessu boðvaldi hafi verið
Jóhann Einvarðsson bróðir Hall-
varðar; hann væri þar með aðili
málsins og Hallvarður því van-
hæfur. Einnig töldu veijendurnir
Hallvarð standa í slíkri þakkarskuld
við Albert Guðmundsson, að tor-
tryggilegt væri að Albert skyldi
sleppa við málssókn.
Sjá frásögn á bls 35.