Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 19897 Fornleifauppgröfturinn í Aðalstræti: Fundu kol úr kol- Margrét Hallgrímsdóttir heldur á koli úr kolbogasýningavél Fjalakattarins. A innfelldu myndinni sjást Margrét og Theódóra vinna við að teikna snið af uppgreftrinum í Aðalstræti. bogasýningavél- um og* vaðmálsbút FUNDIST hafa kol úr elstu gerð kolbogasýningavéla frá fyrri hluta þessarar aldar í uppgreftr- inum við Aðalstræti. Kolin fundust á þeim stað þar sem gamli sýningarsalur Fjalakattar- ins var til margra ára. Þá fannst einnig í gær vaðmálsbútur í upp- greftrinum. Að sögn Margrétar Hallgríms- dóttur fomleifafræðings hafa komið í ljós þijú mannvistarlög, það elsta hugsanlega frá miðöldum. Hún sagði að uppgröfturinn væri Ný útvarps- stöð byrjar um áramót ÚTVARPSFÉLAGIÐ Rót, en að því standa ýmsir félagar úr samtökum á vinstri kanti stjórnmálanna, hyggst hefja útsendingar um næstkomandi áramót. Gert er ráð fyrir að stofnkostn- aður stöðvarinnar sé um 3 milljón- ir króna og verður opnað hlutafjárútboð á næstunni. Út- varpsstöðin hyggst einkum út- varpa töluðu orði og vera vettvangur fyrir friðar-, verka- lýðs-, jafnréttis-, umhverfis-, og menningarmál. langt kominn og lyki honum endan- lega um mánaðarmótin. Eftir væri að gera sniðmyndir og ganga frá svæðinu, en eins og kunnugt er verður byggt á lóðinni. „Uppgröft- urinn er mikilvægur að því leyti að nú er vitað meira en áður um gamla sjávarbotninn og landslag á svæð- inu á landnámsöld. Við vitum ennfremur að gamli bærinn, sem fannst við uppgröft í Aðalstræti 18 og 14 hefur ekki teygt anga sína hingað. Þetta var fyrst og fremst könn- unargröftur á vegum Arbæjarsafns og markmiðið að athuga hvað væri í grunninum. Uppgröfturinn er jafn- mikilvægur viðvíkjandi endanlegri niðurstöðu á útbreiðslu byggðar á þessu svæði frá fyrstu tíð hvort sem eitthvað hefði ftmdist eða ekki," sagði Margrét. Morgunblaðið/KGA Borgardómur í leigribílstj óramálinu: Aðild að Frama forsenda fyrir leyfi til leigubílaakstiirs Fertugnr amfetamínsali: Dæmdur í 20 mánaða fangelsi SAKADÓMUR í ávana- og fikni- efnamálum hefúr kveðið upp dóm yfir fertugum manni fyrir að hafa í fórum sínum og ætla að selja i ágóðaskyni rúmlega 160 grömm af amfetamíni. Mað- urinn var dæmdur í 20 mánaða fangelsi og 10.000 kr. sekt. Sakbomingur var handtekinn í lok nóvember, eftir að húsleit hafði verið framkvæmd á heimili hans. Maðurinn er góðkunningi lögregl- unnar og hefur hlotið þunga dóma áður, bæði hérlendis og í Danmörku fyrir sams konar brot. Dómurinn hefur ekki verið birtur hinum dæmda, en hann er staddur erlend- BORGARDÓMUR kvað upp dóm síðastliðinn föstudag í svokölluðu leigubílstjóramáli. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu, að umsjónarnefnd leigubifreiða hefði verið heimilt að svipta leigubílstjóra leyfi sínu, sem neit- aði að vera félagi i Frama. Atvik máls voru með þeim hætti að leigubílstjóri hjá Steindóri var sviptur atvinnuleyfí af umsjónar- nefnd leigubifreiða, þar eð hann neitaði að gerast félagi í Frama, stéttarfélagi leigubílstjóra. Leigubílstjórinn, Sigurður Ármann Siguijónsson sætti sig ekki við þessa sviptingu og höfðaði dómsmál gegn umsjónamefnd leigubifreiða og ráðuneyti samgöngumála, þar sem krafist var ógildingar leyfis- sviptingarinnar. Sækjandi byggði kröfur sínar m.a. á eftirfarandi málsástæðum. í fyrsta lagi taldi hann óheimilt að skylda menn til þátttöku í félögum; slíkt væri í andstöðu við 73. gr. stjómarskrárinnar um félagafrelsi. í öðru lagi taldi sækjandi að lögin um leigubifreiðar mæltu ekki fyrir um það að leigubílstjórar ættu að vera félagar í Frama. Í þriðja lagi bæri ráðherra valdið samkvæmt lögum um leigubifreiðar til að út- hluta og afturkalla starfsleyfi og að framsal þessa valds til umsjónar- nefndarinnar væri ólögmætt. Því fremur ætti þetta við, þar eð hér væri um takmörkun á atvinnufrelsi að ræða, sem lagaboð þyrfti til sam- kvæmt 69. gr. stjómarskrárinnar. í fjórða lagi hélt sækjandi því fram, að sviptingin væri ólögmæt, jafnvel þó hann væri ekki félagi, þar eð einfaldlega hefði mátt innheimta félagsgjöldin. Veijandi, ríkislögmaður, hafnaði því að skyldan væri andstæð 73. gr. Greinin stæði því ekki í vegi að menn væru skyldaðir til þátttöku í félagi, fylgdu aðildinni réttindi. Frama væri með lögum tryggð ákveðin einokunaraðstaða, þannig að þeir sem ekki væru í félaginu nytu ekki réttindanna. Taldi veij- andi það og ljóst, að samkvæmt skýringu á lögum um leigubifreiðir, með hliðsjón af tilgangi laganna og eðli, væri leigubflstjórum skylt að vera í Frama. Um brottreksturinn sagði veijandi að það væri viður- Félagsmálaráð: Veitingahúsið Lennon verði svipt vínleyfi FÉLAGSMÁLARÁÐ hefúr óskað eftir því við lögreglustjóra og dómsmálaráðuneyti að veitinga- staðurinn Lennon við Austurvöll verði sviptur vínveitingaleyfi. „Þetta á sér þann aðdraganda að veitingahúsið fékk endurnýjun á almennu vínveitingaleyfi 30. april sl. efltir að málinu hafði áður ver- ið frestað um nokkurn tíma, þar sem menn töldu ýmislegt að- finnsluvert við starfsemina,“ sagði Árni Sigfússon, formaður félagsmálaráðs í samtali við Ólafur ísleifsson efiiahagsráðunautur ríkisstj órnarinnar um endurskoðaða Þjóðhagsspá: Skýrslan lýsir góðærinu mikla sem verið hefiir Áframhaldandi uppgangs tæplega að vænta „ÖÐRUM þræði er skýrsla Þjóðhagsstofiiunar lýsing á því mikla góðæri sem þjóðin hefúr notið á síðustu árum,“ sagði Ólafúr ísleifsson, efinahags- ráðunautur ríkisstjórnarinnar, þegar Morgunblaðið innti hann álits á endurskoðaðri Þjóð- hagsspá er kynnt var síðastlið- inn föstudag. „Gangi spá stofnunarinnar efltir hafa tekj- ur á mann aukist að raungildi um nálega þriðjung á þremur árum.“ „Á hinn bóginn kemur ljóslega fram í skýrslunni að þenslu gætir á ýmsum sviðum efnahagslífsins. Jafnframt kemur fram, meðal annars í ljósi nýlegrar skýrslu Hafrannsóknarstofnunar, að tæp- ast er að vænta áframhaldandi uppgangs í efnahagsmálum. Það er brýnt að menn átti sig á þess- um horfum framundan og taki mið af þeim svo að takast megi að veija þann árangur sem áunn- ist hefur." Morgunblaðið. „Samkvæmt upp- lýsingum frá unglingadeild Félagsmálastofiiunar og eftirlits- mönnum vínveitingahúsa hefúr margt farið úrskeiðis í starfsem- inni, og hefúr verið okkur veru- legt áhyggjuefiii." Á þessum sama fundi tók félags- málaráð ákvörðun um að rýmka reglur um úthlutun vínveitingaleyfa þannig að staðir sem sækja um al- mennt vínveitingaleyfi fái það, uppfylii þeir þær kröfur sem settar eru. Að undanfömu hafa vínveitinga- leyfi verið nær einskorðuð við léttvín með mat, konfak og ýmsa kaffílí- kjöra. „Sé eitthvað athugavert við aðstæður áskiljum við okkur rétt til þess að takmarka leyfin og um leið og þessi rýmkun á sér stað erum við að herða eftirlit og aðgerðir gagn- vart þeim sem fara ekki að settum reglum," sagði Ámi Sigfússon „Þannig fylgir aukin ábyrgð auknu valfrelsi." Annríki hjá lögreg’lunni MIKIL ölvun var I miðbænum aðfararnótt laugardags og hafði lögreglan í mörgu að snúast. Fjöldi unglinga safnaðist í mið- bænum eftir tónleika A-ha og voru fímm rúður brotnar. Voru fanga- geymslur lögreglunnar yfirfullar. Nóttin var hins vegar óvenju róleg í Haftiarfírði og Kópavogi. kennd brottrekstrarástæða sam- kvæmt félagarétti að menn borguðu ekki félagsgjöld. Um hið ólögmæta valdframsal benti veijandi á að þeg- ar hin gamla úthlutunameftid var við lýði, hafi Hæstiréttur ekkert haft við slíkt valdframsal að athuga. Dómarinn í máli þessu var Steingrímur Gautur Kristjánsson borgardómari. Hann sýknaði um- sjónamefnd leigubifreiða af öllum kröfum stefnanda. í dómnum var fallist á það með stefnda að skýring á 73. gr. sijómarskrárinnar eftir orðanna hljóðan leiddi ekki til þeirr- ar niðurstöðu að félagsaðild stefn- anda að Frama teldist ólögmætt skilyrði fyrir atvinnuleyfí honum til handa og að ekki væri efni til ann- ars konar skýringar á ákvæðinu. í dómnum var talið að í 10. gr. laga um leigubifreiðar fælist heim- ild til handa ríkinu til að setja eðlileg og sanngjöm skilyrði fyrir veitingu atvinnulejrfa og þegar gætt væri ákvæða laganna og forsögu, yrði að telja inngöngu í stéttarfélag bflstjóra meðal þeirra. Dómarinn taldi ekki eftii til að bflstjórinn héldi leyfí sínu áfram, enda hefði hann lýst því yfir að hann sæktist ekki eftir aðild að félaginu. Einnig var komið inn á 69. gr. stjómarskrárinnar í dómn- um, en sú grein mælir fyrir um að ekki megi leggja höft á atvinnu- frelsi manna nema með lögum. Dómarinn taldi, að með hliðsjón af forsögu þessa ákvæðis og fordæmi Hæstaréttar, væri ekki unnt að líta öðm vísi á en að takmarkanir þær á atvinnufrelsi, sem fælust í lögum um leigubfla væm samþýðanlegar 69. gr. Ekki var fallist á það að vald- framsalið til umsjónamefndarinnar væri ólögmætt, enda væri það við- horf ríkjandi í stjómsýslurétti, að þar sem hinum æðstu valdhöfum væri heimílað vald í lögum, mætti skýra það ákvæði sem svo að heim- ilt væri að framselja það vald lægra settum stjómvöldum með reglu- gerð, nema annað kæmi ljóslega fram í viðkomandi lögum. Haraldur Johannessen fulltrúi ríkislögmanns flutti málið fyrir hönd stefndu, en Jón Steinar Gunn- laugsson hrl fyrir hönd stefnanda. Jón Steinar taldi, í samtali við Morgunblaðið, að fullvíst væri að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.