Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 4

Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 Indriði Pálsson forsljóri Skeljungs: Ekkí beint samband milli verðþróunar jarð- olíu og unninnar olíu „JARÐOLÍAN hefiir verið að smáhækka undanfarið og mér þykir ekki ólíklegt að sú þróun muni halda áfram," sagði Indriði Pálsson, forstjóri Skeljungs, þeg- ar Morgunblaðið spurði hann álits á olíuverðshækkunum á er- lendum mörkuðum í kjölfar spennu á Persaflóa og hvaða áhrif slíkar hækkanir kynnu að hafa fyrir íslendinga. „Verð- þróun unninnar olíu fer eftir öðrum lögmálum en jarðolía og ekki er alveg beint samband á milli, þó að þetta þróist á sama hátt þegar til langs tíma er litið.“ „Það eru mjög margir þættir sem hafa áhrif á þessa þróun, ástandið við Persaflóa er ekki það eina. Það getur engin sagt til um hvemig þessi mál muni þróast á næstunni og hvaða á'nrif þetta muni hafa fyrir okkur, en verð á unnum olíu- vömm á íslandi þróast eins og í öðrum Evrópuríkjum." Verð á jarðolíu er nú um 20 doll- arar tunnan en var í kringum 10 dollarar fyrir ári síðan. Verðið hefur hvað hæst verið rúmir 30 dollarar. „Þetta sveiflast alltaf eitthvað. Verð hafa verið að þokast upp yfir- leitt en ekki orðið neinar stórsveifl- ur,“ sagði Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins, í samtali við Morgunblaðið. „Olíuverð hefur hækkað eitthvað frá því í vetur en þetta er afskaplega viðkvæmt tíma- bil núna, meðan flotavemd Banda- ríkjamanna á Persaflóa er að byija, og ekki hægt að vera með neinar spár. Það verður að bíða og sjá hvað gerist þegar hún hefst." VEÐURHORFUR í DAG, 21.07.87 YFIRLIT á hádegi í gær: Um 700 km suður af Hornafirði er 1027 millibara hæð sem þokast austur. Á suðvestanverðu Grænlands- hafi er 1002 millibara djúp lægð sem hreyfist norðaustur. Við Hvarf er önnur lægð, 998 millibara djúp, sem hreyfist lítið. SPÁ: Vestan og suðvestan gola eða kaldi (3-5 vindstig) á landinu. Skýjað og smá skúrir á víð og dreif fram eftir degi en léttir til aust- anlands síðdegis. Hiti á bilinu 10 til 18 stig. /EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: 1IÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Suðvestlæg átt. Vætusamt m vestanvert landið en þurrt og víða bjart veður austanlands. remur hlýtt í veöri, einkum á norðaustur- og austurlandi. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Halfskyiað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / ■» Slydda / * / * « * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ' Súld OO Mistur Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VI ÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 16 alskýjað Reykjavik 12 akúr Bergen Helsinki Jan Mayen Kaupmannah. Narssarssuaq Nuuk Osló Stokkhólmur Þórshöfn Algarve Amsterdam Aþena Barcelona Beriin Chfcago Feneyjar Frankfurt Glaskow Hamborg LasPalmas London Los Angeles Lúxemborg Madrfd Mallorca Miami Montreal NewYork París Róm Vfn Washington Winnlpeg 21 skýjað 21 heiðskfrt 7 rigning 16 skýjað 13 rigning 9 heiðskfrt 22 skýjað 21 skýjað 13 alskýjað 25 heiðskirt 18 skúr 33 heiðsklrt 24 skýjað 23 úrkomafgr. 26 mistur 26 þokumóða 17 skúr 17 skýjað 13 þrumuveður 25 Wttakýjað 17 rignlng 16 heiðskirt 15 skúr 29 láttskýjað 28 Wttskýjað 28 Wttskýjað vantar 20 skúr 23 alskýjað 16 rigning 30 þokumóða 22 Wttskýjað 28 mistur 17 úrkomaigr. í DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa fslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer) Ekið á vegfaranda á Fríkirkjuvegi MJÖG harður árekstur varð á mótum Laugavegar og Kringlu- mýrarbrautar á miðnætti aðfararnótt sunnudags. Tveir bílar rákust saman og endaði annar þeirra ferð sina á ljósastaur. Báðir bílarnir voru dregnir af slysstað mikið skemmdir og öku- menn fluttir á slysadeild. Þeir munu þó ekki hafa slasast alvarlega. Harður árekstur EKIÐ var á gangandi vegfaranda á Fríkirkjuvegi miíli Fríkirkjunn- ar og Miðbæjarskólans aðfarar- nótt síðastliðins sunnudags. Ökumaður fór af slysstað án þess að gefa skýrslu til lögreglunnar. Atburðurinn átti sér stað kl. 1.30. Ökumaður var stúlka um tvítugt á ljósri bifreið, líklega af Daihatsu- gerð. Hún stöðvaði bifreið sína og gaf sig á tal við hinn slasaða, en ók síðan brott. Vegfarandinn var síðar fluttur með leigubifreið á slysa- deild, nokkuð meiddur á mjöðm og fótum. Lögreglan mælist til þess að öku- maður bifreiðarinnar geft sig fram við slysarannsóknardeild lögregl- unnar í Reykjavík, enda verða ökumenn ávallt að gefa skýrslu, valdi þeir slysi. Einnig eru þeir, sem kunna að hafa verið vitni að slysinu, beðnir um að hafa sambandi við lög- reglu. Ásgeir Bjarna - son erlátinn ÁSGEIR Bjarnason fram- kvæmdtistjóri Yfirstjómar mannvirkjagerðar á Landspítala- lóð, lést sunnudaginn 19. júlí. Asgeir fæddist í Reykjavík 8. maí 1926. Foreldrar hans voru þau Bjami Þorsteinsson framkvæmda- stjóri og annar eigandi Vélsmiðj- unnar Héðins og kona hans Jóhanna Olsen. Ásgeir lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1946. Hann var síðan við nám í Sviss og eftir það við störf í Vélsmiðrjunni Héðni þar til hann seldi sinn hlut í fyrirtækinu. Hann sinnti síðan viðskiptum í Reykjavík og varð framkvæmda- stjóri Geðvemdarfélgas íslands árið 1966 og sat í stjóm félagsins frá 1971. Sem framkvæmdastjóri sá hann um byggingar Geðvemdarfé- lagsins að Reykjarlundi og síðar um byggingu endurhæfingastöðvar að Álfalandi í Reykjavík. Hann var skipaður í bygginga- nefnd Geðdeildar Landspítalans árið 1971 og varð starfsmaður nefndarinnar á meðan á hönnun Ásgeir Bjarnason framkvæmda- stjóri stóð. Árið 1974 tók Ásgeir við starfi framkvæmdastjóra Yfir- stjómar mannvirkjagerðar á Landspítalalóð og sinnti hann því starfi til æviloka. Eftirlifandi kona Ásgeirs er Kristín Vilhjálmsdóttir og eignuðust þau flögur böm. Pétur Pétursson, Selfossi, látinn PÉTUR Pétursson rafeindavirkja- meistari lést i Borgarspftalanum föstudaginn 17. júli sl. 51 árs að aldri en hann fæddist i Siglufirði þann 14. júni árið 1936. Pétur var rafeindavirki og starfaði hjá Pósti og síma fyrstu árin en starf- rækti síðan verslun á Selfossi fyrst ásamt Áma Óskarssyni og síðan einn. Síðast vann Pétur hjá sjón- varpinu. Pétur var sonur hjónanna Péturs Vermundssonar og Pálínu Skarphéð- insdóttur en var alinn upp frá fjögurra ára aldri hjá fósturforeldr- um sínum, þeim Áma Kristjánssyni og Guðbjörgu Kristinsdóttur í Siglu- firði. Eiginkona Péturs er Ingibjörg Pétur Pétursson Kjartansdóttir og eignuðust þau þijú böm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.