Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 15

Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 15
TRpr t.ttYi r<? 5TTTnA(Tm.flTsrd (TTO?a thvtttostom MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 vinnur þar annar smiðurinn en leitað er tilboða í ýmis verk og hafa verktakar á staðnum undir forystu Sigmundar Þórðarsonar unnið flest er vinna þurfti. Af sömu ástæðum hefur níu mönnum verið sagt upp störfum með sama fyrirvara, þar af þrem vélstjórum, þrem verkstjórum, gæðastjóra og tveim viðhaldsmönnum á flökun- arvélum. Kaupfélagsstjóri taldi þetta einu færu leiðina til að koma á ýmsum breytingum til hagræð- is, annað væri fullreynt. „Ástandið er ekki nógu gott,“ sagði Bjami „og það verður að breyta því.“ Ráðgjafafyrirtæki vinnur að þess- um skipulagsbreytingum í sam- ráði við ráðamenn kaupfélagsins og nýtir einnig hugmyndir þeirra um hvað geti bætt ástandið og afkomu fyrirtækisins. „Enginn fótur er fyrir þeim söguburði að kaupfélagið sé við það að fara á hausinn," sagði kaupfélagsstjóri, „greiðslustaðan hefur verið mjög erfíð, en eignir eru verulegar fram yfir skuldir, því er engin ástæða til að óttast slíkt en greiðslustaðan þarf að batna.“ í niðurlagi inngangsorða kaupfélagsstjóra að ársreikning- um kaupfélagsins stendur: „Hins vegar eru mörg óleyst verk og verður að ráðast á þau sem fyrst, en ljóst er, að ekki næst árangur nema starfsfólk og félagsmenn taki höndum saman og til þess þarf jákvætt hugarfar í garð kaupfélagsins. Að því þarf fyrst og fremst að vinna og á því veltur framtíð okkar. Vinnum saman, byggjum upp styrkan Dýrafjörð." Á undanfömum ámm hefur mikið verið unnið við að breyta og bæta skrifstofumar, ennfrem- ur hefur verið barist við að losna við leka í kaupfélaginu og hefur öll verslunarálman niðri verið klædd að utan en þó er efri hæð- in ekki enn orðin nógu góð og þarf meira til. Verslunaraðstaðan uppi hefur verið minnkuð en aftur á móti verið stækkað niðri nú í vor og sumar, en endanlega er því verki ekki lokið enn. Stórbætt hefur verið kæliaðstaða fyrir allar mjólkurafurðir svo engin mjólk ætti að skemmast eftir að hún er komin til Þingeyrar, „en auðvitað er ekki nógu gott að flytja hana hingað um hásumardaginn á venjulegum bflum,“ vom lokaorð Bjama Grímssonar. — Hulda Frá útskrift fiskitækna á Þingeyri. Bjami kvað stöðu kaupfélags Dýrfirðinga mun betri en stöðu nágrannakaupfélaganna, hann bætti því við, að samgöngur þyrfti að bæta, markaðurinn hér væri lítill, því óhagstæður versluninni og of oft sæktu menn vatn yfír lækinn, versluðu mikið á ísafírði t.d. varla gæti það talist hagstæð- ur verslunarmáti. Frá áramótum hefur verið full vinna fyrir fastráðið starfsfólk, en síðan í aprfl hefur verið mikið meira en næg vinna, unnið frá 4—6 að nóttu til kl. 19.00 og flesta laugardaga til hádegis, því þá væri byijað að vinna kl. 4.00. Útlendingar vinna hér engir, enda engin verbúð. Þeir, sem bæm erlend ættamöfn, væm allir skráðir til heimilis á Þingeyri og því heimamenn og sumir búnir að búa hér' um áratugi. í hraðfrysti- húsinu er aðstaða til að hita sér kaffí og greiðir kaupfélagið kaffíð og þann tilkostnað er því fylgir. Bjarni taidi það bita mun en ekki fjár, uppbót á að kaffístofa starfs- fólks væri ekki, að sínu mati, nægilega góð eða aðlaðandi, þar þyrfti að betmmbæta aðstöðuna. Kaupfélagið gekkst fyrir nám- skeiði fyrir fískvinnslufólk eins og gert hefur verið víðar og aðgang að því hafði fastráðið fólk og þeir sem lokið hafa þessari endur- menntunar starfsfræðslu bera nú starfsheitið: sérhæfður físk- vinnslumaður. Á sama tíma og stóð yfír Hrafnseyrarhátíð 17. júní var öllum Þingeyringum boðið til kaffídrykkju í félagsheimilinu til að vera viðstaddir hátíðlega út- skrift 45 starfsmanna hraðfrysti- hússins er luku námi. Kaupfélags- stjóri stýrði þessari samkomu og var starfsfólki afhent innrömmuð skírteini. Viðstaddur þá athöfn var Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu- samband Vestfjarða, og tók hann til máls og ámaði „físktæknun- um“ allra heilla. Leiktu þér meö hraða lióssins .azerTag Geislaleikurinn er hin kröfuharða íþrótt ársins 3010. innifalið í Geislaleiknum er: Fyrsti Og eini leikurinn Sem gerir ‘StjömuGeislari sem geislar innrauöu Ijósi þér kleift aö ná mótherja þínum á (samskonarogerísjónvarpsfjarstýringu). ‘StjömuNemi sem sýnir meó hljóð-og Ijós- merki í hvert skipti sem hann nemur innrauöa ‘StjömuHúfu og ‘StjömuNema. Komdu og taktu spennuleik Ji framtíðarinnar með þér heim í dag. allt að 30 - 50m færi. Uvisa DEurocard ~i i I Kortnúmerl I i I i i i I i i i I i i ii iGildistlmi: I l I Nafnúmer: I l ~ l l j i i |NiTrv i i I Heimili: Staður: l i Undirskrift i i j j Já, sendið mér eitt stk. af LazerTag Geislaleiknum Ijósiö frá StjörnuGeislaranum. *StjörnuBelti til aöfesta einnStjörnuNema á Þá er hægt aó fá aukalega: *StjömuVesti, *StjömuHjálm, MSA SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 Kynningarverð aðeins kr. 2.980,- Sendum í póstkröfu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.