Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 24

Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 ■■■■■., 'v- '*n z Spenna á Persaflóa eykst nú stöðugt. Meðal annars eru þessi tvö skip Rauða flotans búin að koma sér fyrir í Hormuz-sundi og bíða þess sem verða vill. Franskir lögreglumenn við íranska sendiráðið í París. í baksýn er foldgnár Eiffel- turainn. Öryggisráðið um Persaflóastríðið: Afganistan: Innrásarherinn viðurkennir aukið mannfall Skæruliðar sækja í sig veðrið Moskvu, Reuter. MANNFALL í liði sovéska innr- ásarhersins í Afganistan hefur aukist mjög á síðastliðnum mánuðum eftir því sem skæru- liðar hafa sótt í sig veðrið. Þetta kom fram í máli Boris Pyadyshev, talsmanni sovéska utanríkisráðuneytisins, fyrir skömmu. Fram kom einnig að hersveitir leppstjórnarinnar í Kabúl hafa heldur ekki farið Reuter Vill beita refsiaðgerðum verði ályktuninni ekki hlítt Óvissuástand á Persaflóa Lundúnum, Reuter. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna kom í gær saman til atkvæðagreiðslu um ályktun þess efiiis að íran og írak skuli leggja niður vopn, þrátt fyrir að Iranir hafi farið fram á frestun hennar á síðustu stundu. Á meðan þessu stóð undirbjuggu Bandaríkjamenn ferð fyrstu skipalestarinnar á uppkastið að tillögunni. í henni er gert ráð fyrir að styijaldaraðil- um verði gert að draga hersveitir sínar til baka, en á milli verði einskismannsland. Þá eiga löndin einnig að skiptast á stríðsföngum. Verði ríkin ekki við þessu munu SÞ grípa til „frekari ráðstafana" og er þá átt við refsiaðgerðir. Kuwait, sem styður íraka, hvatti í gær ráðið til þess að sam- þykkja tillöguna. Forsætisráð- herra furstadæmisins, Sheikh Saad al-Abdullah al-Salem al- Sabah, sagði á fréttamannafundi í gær að hann vonaðist til þess að ályktunin yrði til þess að skipa- árásum á flóanum linnti. Á hinn bóginn gerði hann lítið úr mikil- vægi þess að skip frá Kuwait sigldu undir bandarískum fána. „Endurskráning skipanna er við- skiptaráðstöfun, sem er ekki ætlað að stigmagna stríðið eða skapa frekari átök öflugra aðila á svæðinu." Frakkar slitu stjómmálasam- bandi við frani eftir að þeir neituðu frönskum yfirvöldum um að yfírheyra starfsmann íranska sendiráðsins í París, en sá er grun- aður um aðild að hryðjuverkaöld- unni í París í fyrra. Maðurinn er titlaður sendiráiðstúlkur og nýtur því ekki réttinda stjómarerind- reka, en hins vegar er talið að hann sé leyniþjónustumaður og í raun næstráðandi sendiráðsins. Bretar hafa einungis lágmarks- samskipti við íran og Bandaríkja- menn hafa nær ekkert samband haft við landið síðan 1980. Nú þegar Frakkar hafa slitið stjóm- málasambandi sínu við írani em Rússar og Kínveijar einu fasta- fulltrúar öryggisráðsins, sem hafa samband við klerkaveldið. Er því hætt við að íranir verði býsna vinasnauðir ef þeir ákveða að hundsa ytilmæli öryggisráðs- ins. varhluta af árásum þessum. Að undanfornu hafii borist fréttir af mjög bættri vígstöðu skæru- liða. Pyadyshev sagði að árásir og ávinningar skæmliða hefðu aukist mjög eftir að Najib, leiðtogi lepp- stjómarinnar, lýsti einhliða yfír vopnahléi í janúar síðastliðnum. Hann sagði einnig að skæmlið- ar hefðu fært sér í nyt nýtískuleg vopn, sem Bandaríkjamenn hefðu látið þeim í té. Þar á meðal era Stinger-flaugamar, sem skjóta má af öxl, en með flaugum þess- um hafa skæmliðar skotið niður tugi þyrlna og flugvéla. „Þetta jók á vandann og leiddi til frekara mannfalls meðal [stjómarher- manna] og sovéskra hersveita," sagði Pyadyshev, en gaf ekki frek- ari upplýsingar um valinn. Hann sagði ennfremur, án þess að fjöl- yrða um það, að gripið yrði til ráðstafana til þess að binda enda á þessa „skammæju yfírburði." Kremlarbændur og húskarlar þeirra í Kabúl hafa ekkert viljað segja um ormstur sínar og skæm- liða, en bandarískur embættis- maður sagði í mánuðinum að sveitir skæmliða hefðu í fyrsta sinn rekið öflugt sovéskt lið á flótta, þar á meðal sérstakar úr- valssveitir. Embættismaðurinn, sem óskaði nafnleyndar, sagði að ormstan hefði á sér stað í Paktia- héraði. Sovétmenn réðust inn í Afgan- istan á jóladag 1979 og hafa síðan haft lausan her í landinu. Að öllu jöfnu er talið að um 115.000 manns séu í herliði Rauða hersins í Afganistan. undir flotavernd síðan í Víet- nam-stríðinu, en talið er að fyrstu olíuskip Kuwait-búa muni leggja af stað undir bandarískum fána á morgun. Franska stjórnin, sem sleit stjórnmálasambandi við írani á föstudag, ráðlagði frönskum skipafélögum að beina skipum sínum frá Persaflóa, þar sem ekki væri unnt að tryggja ör- yggi þeirra. Mohammad Djavad Salari, sendiherra írans í Bonn, skýrði Reuter frá því að hann hefði beð- ið vestur-þýsk stjómvöld um að reyna að fresta fundi öryggisráðs- ins fram í næsta mánuð, en þá taka Vestur-Þjóðveijar við forsæti ráðsins. Nú eiga Frakkar það. „Eftir hinar Qandsamlegu aðgerð- ir Frakka í garð írans að undan- fömu, gæti ályktunin ekki orðið annað en einhliða og á það getum ekki fallist. Eins og málin standa sjáum við engan gmndvöll fyrir réttlátri ályktun." Stjómarerindrekar við Samein- uðu þjóðimar sögðu hins vegar að ekki hefði verið minnst á frest- un fundarins, þegar komið var saman til þess að leggja lokahönd Sovétríkin: V erður gagnrýni á stefiiu kommúnistaflokksins leyfð? Grein í Moskovskaya Pravda bendir til að svo sé í GREIN eftir virtan sovéskan hagspeking, V. Dashichev, sem birtist í dagblaðinu Moskov- skaya Pravda er sú hugmynd viðruð að evrókommúnisminn svokallaði eigi sér rætur að rekja til félagslegra og efiia- hagslegra mistaka i Sovétríkj- unum. Ekki hefur fyrr verið gengið svo langt í hagsöguskýr- ingum, þó svo að vissulega hafi áður heyrst raddir um að margt hafi betur mátt fara. Það sem mesta athygli vekur þó er að þetta er í fyrsta sinni sem játað er að kommúnistaflokkar utan Sovétríkjanna hafí tapað fylgi vegna þess að Sovétríkin hafi ekki reynst sú fyrirmynd, sem kommúnistar hafii viljað vera láta. „Að mínu viti var evrókommún- isminn, þar sem leitað var annarra leiða og markmiða sósíalískrar þróunar en gert var í Sovétríkjun- um, í raun svar við félagslegum og efnahagslegum vanda okkar." Dashichev prófessor, sem er deildarstjóri Rannsóknastofnunar sósíalískra hagkerfa í Moskvu, sagði ennfremur að hið miðstýrða hagkerfi í Moskvu hefði reynst Þrándur í Götu nánari samhæf- ingar hagkerfa Varsjárbanda- lagsríkjanna og annarra sósíalist- aríkja. „Samvinnan átti sér aðeins stað í efstu þrepum stjómsviðsins," segir hann og bætir við að oft sé auðveldara fyrir Austur-Evr- ópubúa að ferðast vestur um jámtjald en til Sovétríkjanna. Sovétríkin sökudólg- urinn? í greininni er gengið mun lengra en áður í gagnrýni á fyrri valdhafa á pólítíska sviðinu, sem því efnahagslega, því ein af niður- stöðum höfundar er að Sovétríkj- unum sé að hluta að kenna um stirð samskipti þeirra við komm- únistaflokka utan Sovétríkjanna, hvort sem ræðir um Vesturlönd eða leppríki Sovétríkjanna. Greinin er talin merki um að róttækari gagnrýni en áður sé nú leyfð og það rakið til samþykktar Miðstjómarinnar hinn 26. júní sl. um gagngerar efnahagsbreyting- ar í fijálsræðisátt. Þá styrkti Mikhail Gorbachev einnig stöðu sína með því að koma þremur stuðningsmönnum sínum í stjóm- málaráðið. Dashichev prófessor gagnrýndi harðlega „íhaldssaman sóíalisma" og réðist ennfremur gegn „þeirri efnis- og eiginhagsmunahyggju skrifkeranna, sem hefur gert skrifstofuveldið að því bákni sem það er.“ Hann rakti það fyrir- komulag að hveiju smáatriði skuli miðstýrt til Stalíns, sem rak efna- hagslífíð eins og herafla. „ ... en þjóðfélagið getur ekki lifað og þrifist samkvæmt heraga." Hin nýja/gamla stétt Sigur Sovétrílqanna í Seinni heimsstyijöldinni virtist staðfesta verklag Stalíns og hans nóta og það varð nokkurs konar heilög kýr — ósnertanleg og óumdeilan- legt og reyndar til einskis nýtt. Varðhundar hins gamla kerfís spurðu sjálfa sig aldrei hinnar ein- fóldu og augljósu spumingar: „Hvers vegna býr það ríki heims, sem er auðugast að náttúmauð- lindum, við stöðugan skort á öllum sviðum? Af hveiju búum við við ein léleg^ustu lífsskilyrði Evrópu?" í síðustu viku sagði Gorbachev á fundi með helstu ritstjómm Sovétríkjanna að sér væri ljóst að sumum fyndist gagnrýnin hafa gengið of langt. Hann taldi þó að allt sem sagt hefði verið væri inn- an ramma marxismans og til þess fallið að glæða baráttuna fyrir sigri sósialismans. Gorbachev virðist þeirrar skoð- unar að gagnrýnin sé Sovétríkjun- um nauðsynleg og að meira tjáningarfrelsi muni leiða til al- mennari samstöðu um ágæti kommúnistastjómarinnar, frekar en að það efli stjómarandstöðu. Hvort hann hefur rétt fyrir sér á enn eftir að koma í ljós og það er reyndar enn óljóst hvort nokkuð var um stefnumörkun að ræða þar sem grein Dashichev var. Takmörkuð gagnrýni hefur jrfír- leitt verið liðin í Sovétríkjunum, svo fremur sem ekki hefur verið efast um ágæti kerfísins. Nú er búið að bijóta ísinn, en verður vökinni við haldið? A.M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.