Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 32

Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ; ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 Dalvík: Ný lögreglustöð DALVÍKINGAR tóku formlega í notkun nýja lögreglustöð á föstu- daginn og er þetta þriðja lög- reglustöðin sem þar er tekin í notkun. Oll aðstaða lögreglunnar gjörbeytist við það að flytjast í þetta nýja húsnæði þvi mjög þröngt var orðið um alla starf- semi í þvi gamla. Nýja lögreglustöðin er um 120 fermetrar að stærð og inniheldur bílageymslu og sérstaka geymslu fyrir óskilamuni, og eru góðir möguleikar til þess að stækka hús- næðið í tæplega 200 fermetra. Húsnæðið var keypt fokhelt í apríl 1984 fyrir 1,2 milljónir króna og í fyrrahaust hófst frágangur innanhúss. Framreiknaður kostnað- ur við gerð lögreglustöðvarinnar er tæplega 4 milljónir króna. Við það tækifæri er stöðin var tekin í notkun sagði bæjarfógeti, Elías I. Elíasson, að stöðin væri sú þriðja sem tekin væri f notkun en sú fyrsta sem stæði undir nafni. Sagði hann að mönnum hefði verið fyrir löngu ljóst að gamla stöðin stæði ekki til frambúðar og að hún hefði átt að víkja fyrir öðrum mann- virkjum. Óskaði hann síðan lög- reglumönnum til hamingju með hina nýju aðstöðu og Dalvíkingum öllum með hina nýju lögreglustöð. Lögreglumenn standandi í afgreiðslu hinnar nyju stöðvar; Arngrímur Baldursson, lögregluþjónn, Skarp- héðinn Pétursson, héraðslögreglumaður, Hjalti Zóphaníasson, skrifstofustjóri i dómsmálaráðuneytinu, Eiías I. Elíasson, bæjarfógeti, Halldór Gunnlaugson, varðstjóri, Sævar Freyr Ingason, lögregluþjónn, Zóphanías Jónmundsson, héraðslögreglumaður, og Ólafiir Asgeirsson, aðstoðaryfiriögregluþjónn. Kjúklingar hækka um 5%: Kjarnfóðurskatturinn fer beint út í verðlagið Morgunblaðið/Trausti Hin nýja iögreglustöð, en auk hennar eru þarna til húsa Rarik, áhaldahús og aðstaða fyrir sjúkra- og siökkvibifreiðar. - segir Jónas Halldórsson „ÞESSI tvöföldun á kjamfóður- skattinum er hrikaleg og við Hitaveita Akureyrar: Gjaldskráin lækkar um 18% GJALDSKRÁ Hitaveitu Akur- eyrar lækkar að meðaltali um 18% frá 1. ágúst að telja, og verð- ur gjald fyrir mínútulítrann 3200 kr. og fyrir vatnstonnið 56 krón- Reiknað er með að skuldir Hita- veitu Akureyrar verði ekki hærri en sem svarar tveimur milljörðum árið 1993, og verði skuldin hærri greiðir ríkissjóður 75% þeirrar upp- hæðar sem umfram verður. Franz Ámason, hitaveitustjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að stefnt væri að því að gera hita- veituna skuldlausa eftir u.þ.b. 23 ár, en benti á að forsendur gætu hæglega breyst. Nefndi hann í því sambandi óhagstæða gengisþróun og frekari fjárfestingar af hálfu hitaveitunnar því ekki væri vitað hver vatnsforði hitaveitunnar væri. Þá benti hann á að Hitaveita Akur- eyrar borgaði nú um 20 milljónir árlega í raforku. Þar af rynnu 6-7 milljónir til Rafmagnsveitu Akur- eyrar og þijár milljónir færu beint í ríkissjóð í formi söluskatts. Snæbjöm í svifflugunni. MorgunUaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson Flogið í 50 ára gamalli svifflugu FÉLAGI í Svifflugfélaginu, Snæ- björa Erlendsson, gerði sér lítið fyrir nú um helgina og flaug í tvígang nær fimmtíu ára gamalli svifflugu sem ekki hafði verið flogið síðan 1970. Var svifflugan gerð upp og flugferðin farin í tilefhi 50 ára afinælis Svifflugfé- lagsins, sem er á þessu ári. Akureyringar —ferðafólk Við bjóðum daglega ný afskorin blóm. Einnig mikið úrval af pottaplöntum. Skreytingar við öll tækifæri. Bflastæði við búðardyrnar. AKUR KAUPANGI V/ MYRARVEG 602 AKUREYRI SIMAR 24800 & 24830 POSTHOI.F498 vitum ekki hvemig gengur að koma henni út í verðlagið,“ sagði Jónas Halldórsson, formaður Félags kjúklingabænda, en á fiindi í síðustu viku tóku kjúkl- ingabændur ákvörðun um að hækka kjúklinga um 5%, og sagði Jónas að önnur 5% hækkun ætti eftir að fylgja í kjölfarið. „Það er til allverulegt magn af kjúklingum sem framleiddir hafa verið áður en kjamfóðurskatturinn var tvöfaldaður og því teljum við okkur getað hækkað þetta svona í áföngum, en hins vegar má ekki gleyma að geymslukostnaður hleðst einnig upp hjá okkur því umfram- birgðir í landinu eru nú um 300-400 tonn.“ Jónas sagði að kjúklinganeysla hefði greinilega dregist saman og að kjúklingabændur yrðu að vinna sig út úr þessum vanda sjálfír. „Það er greinilegt að salmonellusýkingar hafa breytt neyslunni og við verðum að bregðast við því á ábyrgan hátt; það þýðir ekki að halda áfram að framleiða eins og ekkert hafí í sko- rist. Mér fínnst þetta hins vegar heldur kaldar kveðjur sem við fáum frá Alþýðuflokknum og Sjálfstæðis- flokknum því þar á bæjum hafa menn verið með yfirlýsingar um að afnema beri kjamfóðurskattinn og talið hann óréttlátan, en þess í stað er hann tvöfaldaður. Neytandinn er á þennan hátt látinn borga niður lambakjötið. Ég hugsa að kjúkling- ar gætu lækkað um 60-100 krónur kg ef kjamfóðurskatturinn yrði af- numinn, en þó em kjúklingar þrátt fyrir allt ódýrasta kjötið á markaðn- um fyrir utan lambakjöt í heilum skrokkum,“ sagði Jónas Halldórs- son að lokum. Snæbjöm var dreginn í loftið eftir hádegið á laugardag og flaug hann þá svifflugunni í samtals 13 mínútur í fyrri ferðinni en 23 í þeirri seinni og gekk allt vel í bæði skiptin. „Hún er svolítið svifasein en það er gaman að fljúga henni. Hún lætur vel að stjóm, betur en ég bjóst við,“ sagði Snæbjöm eftir ferðimar, og var himinlifandi með þær báðar, eins og hann komst að orði. Sagði hann að ákveðið hefði ver- ið fyrir einu og hálfu ári að setja sviffluguna saman og fljúga henni í tilefni afmælisins. „Það er ekkert varið í að setja svona grip saman án þess að geta sýnt fólki það svart á hvítu að hægt er að fljúga hon- um,“ sagði Snæbjöm. Hann sagði reyndar að búið væri að smíða hana mikið upp, en samt væri talsvert eftir í henni sem væri upprunalegt. „Við ætlum seinna að reyna að draga hana upp á spili því þannig var hún áður dregin á loft, en aldr- ei með flugvél eins og nú. Svifflugan fór í sitt fyrsta reynsluflug í mars árið 1938 og var eftir það töluvert flogið í 20 ár sam- fleytt, en síðan algjörlega lögð til hliðar, fyrir utan flugið sem fór fram á flugdaginn, fyrir 17 ámm. Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson Snæbjöra að gera sig kláran fyrir flugið í svifflugunni sem ekki hafði verið flogið síðan 25. júlí 1970, en henni var fyrst flogið í mars 1938.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.