Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
*
Agnar Ivars hús
gagnabólstrari
Fæddur 14. febrúar 1917
Dáinn 26. júní 1987
Þegar ég minnist Agnars
frænda míns, eða Bufa eins og
hann var jafnan kallaður hér áður
fyrr, þá leitar hugurinn meira en
40 ár aftur í tímann.
Ég var þá í fóstri um stundar-
sakir hjá afa Jóni og ömmu Rósu,
foreldrum Bufa.
Agnar var þá ungur maður í
blóma lífsins, kvikur á fæti og létt-
ur í lund. Hann var giftur yndis-
legri konu, Guðrúnu Helgadóttur,
hafði nýlokið námi í húsgagna-
bólstrun og var reiðubúinn að
takast á við lífið og tilveruna.
Lífið hafði þó ekki alltaf brosað
við Agnari. Hann hafði nokkrum
árum áður þurft að horfa á bak
Edgari, einkabróður sínum, mikl-
um efnispilti, sem lést aðeins 21
árs að aldri og Önnu Steinunni,
einkasystur sinni, sem lést í frum-
bemsku.
Minningin um ungu hjónin Agn-
ar og Guðrúnu á þessum árum er
ákaflega björt. Það var sungið og
spilað undir á píanó eða teiknað
og litað með pastellitunum hennar
Gunnu. Það var alltaf sólskin á
þessum árum. Agnar hjálpaði mér
að lesa fyrirsagnir í Mogganum
og að fylgjast með teiknuðu hetj-
unni Markúsi. Stundum var farið
í bíltúr í gula Wolsley-bílnum hans
afa, sem var áreiðanlega falleg-
asti bíllinn í heiminum. Þá var oft
komið við í Prestó, hljóðfæraversl-
uninni hans afa Jóns sem var
hreinræktuð undraveröld.
Undir handarjaðri Agnars var
^ ótakmarkað athafnafrelsi nema
þegar afamir Jón og Þórarinn
vom að kompónera eða æfa eitt-
hvert verk fyrir slaghörpu og fíðlu.
Þá passaði Agnar upp á að ég
truflaði ekki meira en góðu hófí
gegndi. Hann hafði sjálfur lært á
fíðlu hjá afa Þórami og þekkti til
hlítar þann stríðsaga sem krafíst
var þegar saman fóm litlir dreng-
ir og tónlist. Agnar tók þessvegna
í höndina á mér, leiddi mig inn í
næsta herbergi, færði mér litabók
og liti og gerði mér grein fyrir
föstu punktunum í tiiveranni þeg-
ar afamir æfðu á hljóðfæri. Ef
allar aðrar aðferðir þmtu þá las
Agnar fyrir mig úr Nonna og
Manna.
En skyndilega dró ský fyrir
sólu. Guðrún kona Agnars var
dáin eftir stutta en erfíða sjúk-
dómslegu aðeins 26 ára að aldri.
Ég var þá tæpra tíu ára og
gerði mér ekki grein fyrir sorg og
söknuði Agnars, sem hallaði sér
að Bakkusi meira en góðu hófí
gegndi á næstu ámm.
En árið 1953 birti aftur upp hjá
Agnari svo um munaði er hann
giftist öðm sinni, Svövu Felix-
dóttur, frænku minni. Svava, sem
er ein mætasta kona sem ég hef
kynnst, bjó manni sínum fallegt
og gott heimili og bömin tvö, Jón
og Guðrún, fæddust á næstu tveim
ámm. Agnar vann við iðn sína,
ýmist með eigin rekstur eða hjá
öðmm og virtist hafa allar for-
sendur í besta lagi fyrir hamingju-
sömu lífí. En Bakkus konungur
lætur ekki að sér hæða. Hann
hafði smám saman hert tök sín á
Agnari svo ekki varð lengur við
unað og fór því svo sem gjaman
gerist á þeim bæ að hjónabandið
brast.
Agnar fluttist nú heim til for-
eldra sinna og bjó með þeim til
dánardægurs þeirra, Jón Ivars dó
1968 og Rósa 1986, þá tæplega
94 ára að aldri. Agnar reyndist
móður sinni besti drengur þau 18
ár er Rósa lifði eftir mann sinn.
Jafnvel þótt segja megi að Agn-
ari hafí tæpast náð viðunandi
tökum á lífí sínu eftir að slitnaði
upp úr hjónabandi hans og Svövu
þá vora engu að síður fjölmargir
ljósir punktar í tilvemnni.
í fyrsta lagi áttu þau Svava
miklu bamaláni að fagna og vom
miklir kærleikar með Agnari,
bömum hans, tengdabömum og
bamabömum.
í öðm lagi héldu Agnar og
Svava alltaf góðri vináttu þar til
yfír lauk og er það fagur vitnis-
burður um lyndiseinkunn þeirra
beggja.
Svava reyndist fyrrverandi eig-
inmanni sínum mikil stoð og stytta
alla tíð og sýndi alveg einstaka
fómfysi og hetjulund er Agnari
háði sitt dauðastríð og má með
sanni segja að þar hafí öll ijöl-
skyldan sameinast öðm sinni.
Böm Agnars og tengdabörn
reyndust honum sem best verður
á kosið.
Fyrir mér verður Agnar alltaf
minnisstæður sem einstakt ljúf-
menni. Hann reiddi ekki gæfuna
í þverpokum alla tíð en hann gerði
aldrei á hlut nokkurs manns. Mér
fannst sem Agnar endurheimti
hamingjuna síðustu æviár sín í
samvistum við böm sín, tengda-
böm og bamaböm, sem vom
augasteinar afa síns og ég held
að hann hafi kvatt þennan heim
sáttur við lífið og tilvemna. Einar
Benediktksson orti eitt sinn:
Stundin deyr og dvínar burt
sem dropi i straumaniðinn.
Öll vor ævi er annaðhvurt
óséð eða liðin.
Úr Vogum.
Agnar ívars fæddist 14. febrúar
1917 og lést 26. júní 1987, rétt
sjötugur að aldri. Hann var sonur
sæmdarhjónanna Rósu og Jóns
ívars. Ættum Jóns og Rósu gerði
ég nokkur skil í minningargrein
að Rósu ívars látinni vorið 1986.
Agnar nam húsgagnabólstmn
hjá Kristni Sveinssyni. Kristinn
var upphaflega söðlasmiður en
lærði bólstmn hjá dönskum manni,
Axel Meinholt. Kristinn er almennt
talinn fyrsti íslenski bólstrarinn
og varð síðar fyrsti formaður Fé-
lags húsgagnasmiða á íslandi.
Agnar var góður fagmaður og
sérstaklega vandvirkur. Hann
vann um skeið hjá Ingólfi Gis-
surarsyni, Helga Sigurðssyni og
Ásgrími P. Lúðvíkssyni sem var
æskukunningi Agnars. Þess á milli
rak Agnar eigið verkstæði í iðn
sinni.
Agnar kvæntist árið 1942 Guð-
rúnu Helgadóttur, listrænni
afbragðskonu. Guðrún var dóttir
Helga Jörgenssonar tollþjóns og
konu hans, sem bæði era látin.
Guðrún lést árið 1950 aðeins 26
ára að aldri og var hún mikill
harmdauði þeim sem til þekktu.
Agnar og Guðrún vom bamlaus.
Agnar kvæntist öðm sinni 1953
Svövu Felixdóttur endurskoðanda
hjá Tollendurskoðun. Svava er
fædd 3. apríl 1922. Hún er dóttir
hjónanna Felix Jónssonar yfírtoll-
varðar, f. 1895 d. 1978, og
Guðmundu Jóhannsdóttur frá
Hofí, Eyrarbakka. Guðmunda er
fædd 1898 og býr nú á Hrafnistu
í Hafnarfirði vel em. Felix var
sonur Jóns Þórðarsonar, f. 1856
d. 1959, 103 ára að aldri og Guð-
rúnar Símonardóttur, f. 1866 d.
1959, 93 ára, frá Reykjakoti í
Ölfusi. Guðrún var systir
langömmu minnar í föðurætt,
Helgu Símonardóttur hómópötu,
f. 1849 d. 1937, á ísafírði. Þau
Jón og Guðrún bjuggu lengi á
Núpum i Ölfusi.
Böm Svövu og Agnars era Jón
ívars, f. 27. maí 1954, starfsmað-
ur Egils Skallagrímssonar,
kvæntur Guðlaugu Björgvinsdótt-
ur, ritara hjá Flugleiðum. Þau eiga
einn sont Ára, f. 2. október 1983.
Guðrún Ivars, stúdent, einkaritari
Háskólarektors f. 21. desember
1955, gift Zophoníasi Sigurðssyni,
tæknistjóra Kringlunnar. Þau eiga
eina dóttur, Svövu f. 15. júlí 1981.
Öll em böm og tengdaböm Agn-
ars mikið sæmdarfólk sem hefur
komið sér vel áfram í lífinu.
Ég hitti Agnar kvöldstund
skömmu áður en hann lagðist
banaleguna. Ég vissi ekki að Agn-
ar hafði þá þegar vitneskju um
þann sjúkdóm sem skömmu síðar
dró hann til dauða. Við leituðum
saman að gömlum ljósmyndum frá
Akureyrarámm foreldra hans sem
skyldu birtast í 70 ára afmælisriti
Leikfélags Akureyrar, en Rósa
hafði verið ein vinsælasta leikkon-
an norðan heiða á sínum yngri
ámm. Agnar var einstaklega hress
og glaður og lék við hvem sinn
fíngur.
Mér fannst þá sem ég færðist
rúm 40 ár aftur í tímann til þeirra
ára er fundum okkar bar fyrst
saman í mínu barnsminni. Mér
fínnst líklegt að Agnar aki nú um
himnavegi með foreldram sínum
og systkinum í gula Wolsleynum
hans afa Jóns. Mér fínnst gott að
minnast Agnars frænda míns á
þann veg.
Gengi er valt, þar fé er falt
fagna skalt í hljóði.
Hitt varð alltaf hundraðfalt
sem hjartað galt úr sjóði.
(Einar Ben.)
Guð blessi minninguna um góðan
dreng með gott hjartalag.
Edgar Guðmundsson
Leiðrétting
Einar Þórðarson, Bámgötu 38
hér í bænum, hefur beðið Morgun-
blaðið að geta þess vegna kveðju-
orða um Birgi Harðarson í blaðinu
á sunnudag að foreldrar Birgis em
þau Ingibjörg Þórðardóttir, sem nú
er vistmaður á Hrafnistu í Reykja-
vík, en bjó lengst af á Haðarstíg
15 hér í bænum, og Hörður Guð-
mundsson. Augljóst er því að þau
Kristín, Pálmi og Viðar, sem nefnd
em til sögu í kveðjuorðunum, em
ekki systkin hans heldur hálfsystk-
ini.
raöauglýsingai- — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Frystigámur 17fet
Til sölu frystigámur, nýyfirfarin. Greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 687325 og eftir kl. 19.00
í síma 673312.
Innréttingar
fyrir hárgreiðslu- og snyrtistofu.
Vegna fyrirhugaðs flutnings Kristu í Kringl-
una eru allar innréttingar stofunnar á
Rauðarárstíg 18 til sölu.
Um er að ræða m.a. stóla, borð, hillur, skápa,
hárþurrkur, vaska, spegla o.fl. o.fl.
Afhending fer fram 13.-16. ágúst.
Upplýsingar á Rauðarárstíg 18, ekki í síma,
mánudaga-föstudaga kl. 17.00-18.00.
SEBASTIAN
Intemational
Heidelberg Sord
Stærð 64x91
ásamt brotvél til sölu. Bæði tækin eru í góðu
ástandi.
Tilboðum skal skilað á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Plássleysi — 4056“ fyrir 25. júlí.
Veitingastaður
Af sérstökum ástæðum er til sölu einn af
betri veitingastöðum borgarinnar.
Leigusamningur á húsnæði til langs tíma.
S621600
Borgartún 29
RagnarTómasson hdl
HUSAKAUP
Loðdýrabændur
— fóðurstöðvar
Höfum til sölu blokkfryst grófhökkuð þorsk-
bein til notkunar í loðdýrafóður. Einnig til
sölu gufuþurrkað loðnumjöl til notkunar í
loðdýra- og laxeldisfóður.
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.,
680 Þórshöfn.
Símar 96-81111, 81137 og 81237.
Síðustu forvöð
Nú fara að verða síðustu forvöö að sækja um aukafulltrúa á SUS-
þingið i Borgarnesi 4.-6. sept. nk. Einnig er nauösynlegt að skrlfstofu
SUS berist sem allra fyrst tilkynning um útnefningu þingfulltrúa.
Framkvaamdastjórn SUS.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboðinn, Hafnarfirði
Almennur félagsfundur verður í Sjálfstæðishúsinu viö Strandgötu
fimmtudaginn 23. júlí nk. kl. 8.00, stundvíslega.
Fundarefni:
Kosning fulltrúa á Landssambandsþing sjálfstæðiskvenna, sem hald-
ið verður á Akureyri, dagana 28.-30. ágúst nk.
Félagskonur, mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.