Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 39

Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 39 Þórunn L. Sturlaugs- dóttir — Minning Fædd 17. desember 1950 Dáin 14. júli 1987 Kallið er komið. Komin er nú stundin vinarskilnaður viðkvæm stund vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðasta biund. (V. Briem) Þannn 14. júlí lést í Landspítal- anum elskuleg vinkona okkar, Þórunn Lovísa Sturlaugsdóttir, eftir erfiða sjúkdómslegu, sem hún átti í um nokkurt skeið. Erfitt er að sætta sig við að Tóta sé ekki lengur á meðal okk- ar, svo ung tekin frá eiginmanni og þremur ungum bömum, einnig að fá ekki legur að njóta samvista við hana og hlýju hennar, sem hún átti svo mikið af. Tóta var dóttir hjónanna Stur- laugs Jóhannssonar og Önnu Magneu Gísladóttur frá ísafirði. Eftirlifandi maður hennar er Bragi Benediktsson og eignuðust þau þrjú böm. Margar góðar minningar koma upp í huga okkar er við minnumst Tótu frá þeim tíma er við ólumst upp saman fyrir vestan og eftir að við allar fluttumst suður. Við minnumst margra góðra stunda er við áttum saman með mökum og bömum, ýmist á heimilum okk- ar eða utan. Samband okkar var alla tíð mjög náið og er nú högg- við stórt skarð í vinahópinn. Elsku Bragi, Anna, Lauga, Benni og Teitur litli, ykkar harmur er mikill og megi góður Guð styrkja ykkur í þessari erfiðu raun. Fjölskyldur okkar senda ykkur sínar innilegustu samúðarkveðjur, einnig foreldmm, systkinum og öðmm aðstandendum. Blessuð sé minning hennar. Guðný E. Guðmundsdóttir Elín J. Brynjólfsdóttir í dag verður borin til grafar vin- kona okkar, Þómnn Sturlaugsdótt- ir. Það er komið skarð í hópinn sem hefur haldið saman frá því að við komum suður, ein af annarri að vestan. Við höfum fylgst með veikindum Tótu, og það er erfítt að sjá á bak vini og ungri móður í blóma lífsins, og við skiljum ekki þann kraft og dugnað sem hún sýndi í veikindum sínum og hve lífsbarátta hennar var sterk. Með trega kveðjum við Tótu og um leið sendum við samúðarkveðjur til eiginmanns hennar, Braga, og bama þeirra, Önnu Laugu, Benna og Teits. Einnig vottum við foreldr- um hennar og systkinum okkar innilegustu samúð. Dísa, Didda, Gréta og Obba. bókmen Eignastu bókasafn - misstu ekki af einta byrjaðu strax að safna - hvert blað tölus( áskriftarsími 621720 Þriðja tölublað komið í verzlanir Grand Prix S Radial A GOODYEAR KEMST EG HEIM LEIÐANDI I VEROLD TÆKNIÞROUNAR HJOLBARÐA prisma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.