Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 45
45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
Eftir að styrjaldarbijálæðið
komst í algleyming var engum hlíft.
Norður-Atlantshafið og Norðursjór-
inn voru morandi af tundurduflum
og kafbátum, sem nutu dyggilegrar
aðstoðar Focke-Wulf-flugvéla. ís-
lensk skip urðu fyrir hrottalegum
árásum og mörgum þeirra var sökkt
á grimdarlegan hiátt, án þess að
skipshöfnum væri gefin kostur á
að fara í björgunarbátana eða á
fleka.
Islenska sjómannastéttin lét ekki
deigan síga, þrátt fyrir hörmungar
styijaldarinnar, þeim var það full-
komlega ljóst að lífsafkoma þjóðar-
innar væri undir því komin að
takast mætti að halda uppi sigling-
um með lífsbjörgina að og frá
landinu, það verður víst seint full
þakkað.
Ekki hefí ég tölu á öllum þeim
ferðum sem Þorleifur sigldi með bv.
Kára á Englands-markað í stríðinu,
en eitt er víst að þær voru margar.
Hann var lítið fyrir að taka sér frí
frá störfum, en lét sér þau stopp
nægja sem til féllu hveiju sinni.
A stríðsárunum voru loftskeyta-
stöðvamar innsiglaðar þegar skipin
lögðu af stað í siglingu til útlanda,
það mátti ekki ijúfa innsiglið nema
í neyðartilfelli, fréttist því ekkert
af ferðum þeirra frá því þau létu
úr höfn og þar til komið var til
hafnar erlendis. Sú bið gat oft orð-
ið æði löng og eftirvæntingarfull,
og þeir sem heima biðu áttu oft
marga raunarstundina, því brugðið
gat til beggja vona.
Svo heppilega vildi til að bv.
Kári varð ekki fyrir óhöppum af
styijaldarvöldum. En eitt er víst að
Dagbjört hefur átt marga andvöku-
nóttina á meðan Þorleifur var á
sjónum á þessum ófriðarárum, og
ekki að ástæðulausu. Henni var
gefín mikill styrkur og sálarþrek,
hún var ekki að bera tilfinningar
sínar á torg, enda sjómannsdóttir
og vissi að hveiju hún gekk þegar
hún kvæntist sjómanni. Styrkurinn
og þrekið var hennar heiman-
mundur.
Þegar vora tók hér heima árið
1945 voru Þjóðveijar að bíða ósigur
á öllum vígstöðvum, það var fyrir-
sjáanlegt að hvetju stefndi. Og
orrustunni um Atlantshafið lauk
þann 4. maí, þegar yfírflotaforingi
Þjóðveija sendi kafbátsmönnum til-
kynningu um að hætta öllum
hemaðaraðgerðum, og fjórum dög-
um síðar gáfust Þjóðveijar upp.
Þorleifur var á bv. Kára fram á
vorið 1946, en þá urðu þáttaskil,
hann batt endanlega fyrir pokann
sinn ákveðinn í því að kveðja sjó-
mennskuna fyrir fullt og allt, en
sú varð ekki raunin. Eftir að hann
hóf störf í landi notaði hann oft
sumarfríin til að skreppa afleys-
ingatúra fyrir kollega sína til sjós.
Þann 1. apríl 1946 fór hann til
starfa hjá Póst- og símamálastofn-
uninni á Fjarskiptastöðinni í
Gufunesi. Skipaður fastur starfs-
maður frá 1. janúar 1947. Hann tók
símritarapróf árið 1953. 1. apríl
1963 var hann skipaður varðstjóri
og því starfí gegndi hann þar til
31. desember 1979, en þá lét hann
af störfum fyrir aldurs sakir. Þor-
leifur var alla tíð trúr í starfi og
bar hag fjarskiptastöðvarinnar fyrir
bijósti, hann fór vel með það sem
honum var trúað fyrir og allt bruðl
var andstætt eðli hans.
Fyrir 29 árum réðust þau hjón í
það að byggja sér einbýlishús í
Löngufít 10 í Garðabæ, þar var
myndarlega að verki staðið. Síðan
var tekið til við garðræktina, en þar
var mikið verk að vinna þar sem
grunnt var niður á klöppina, svo
aka þurfti miklu magni af mold í
garðinn áður en ræktun gat hafíst.
Nú er þar gróskumikill tijágarður
með blómabeðum og tilheyrandi
garðhýsi.
Dagbjört er mikil hagleiks- og
listakona, sem bjó manni sínum
fagurt og hlýlegt heimili og þar er
gott að koma. Handavinnan hennar
er alveg í sérflokki, og hún hefur
ekki verið við eina fjölina felld i list-
inni, fjöldi málverka og annarra
listmuna prýða heimilið hvar sem á
er litið, þar má m.a. sjá fagra
smíðisgripi úr beini, horni, tönn og
leir og fleira mætti upp telja. Mörg
af listaverkum hennar hafa verið
fengin að láni á sýningar. Þetta
kunni maður hennar vel að meta,
enda heimakær.
Eftir starfslok þeirra hjóna gafst
þeim tími til að njóta samvista. Það
var af sem áður var á meðan Þor-
leifur var langdvölum á sjónum og
eftir að hann kom í land, þá tók
vaktavinnan við og Dagbjört var
útivinnandi húsmóðir. Nú gafst
tækifæri, þau ferðuðust mikið
heima og erlendis og fóru víða um
lönd. Þá tóku þau virkan þátt í
störfum og ferðalögum ellilífeyris-
þega.
Þegar líða tók að síðustu jólum
fór Þorleifur að kenna lasleika, sem
ágerðist, hann var lagður inn á St.
Jósepsspítala í Hafnarfirði. Eftir
uppskurð var ljóst að hveiju stefndi,
krabbamein hafði heltekið líkam-
ann.
Það var mikil áreynsla fyrir hans
ástríku eiginkonu að horfa upp á
þverrandi heilsu eiginmannsins,
sjúkdómurinn ágerðist dag frá degi,
mannlegur máttur fékk ekkert að-
gert, nema lina sárustu þjáningam-
ar. En hún reyndist sem fyrr
traustur lífsförunautur, sem vakti
yfír velferð hans af stakri um-
hyggju og fómfysi þar til yfír lauk.
Þegar morgunsólin sendi geisla sína
yfir fæðingarbæ Þorleifs Jónssonar,
föstudaginn 3. júlí slokknaði síðasti
lífsneistinn.
Og nú, þegar komið er að leiðar-
lokum, vil ég fyrir hönd stöðvar-
stjóra og starfsfólks íjarskipta-
stöðvarinnar í Gufunesi, svo og
annarra loftskeytamanna, þakka
samfylgdina. Dagbjört mín, við
sendum þér og öðrum aðstandend-
um innilegar samúðarkveðjur.
Eitt er víst, að minningin um
góðan dreng mun lifa á meðal okk-
ar loftskeytamanna. Blessuð veri
minning Þorleifs Jónssonar.
Ólafur K. Björnsson
HÓTEL UMV
RAUÐARARSTÍG 18- reykjavík
SlMI 623350
Meö Bröste x
og klút í hendi
kemstu í skínandi
hreingerningar-
\ skap! ..
UÓMANDIBÍLL
I HVELLI
Bröste hreinsivörurnar
vinna kraftaverk á bilnum:
Splendo gerir rúðumar skinandi hreinar á
augabragði.
Basta Vinyl Extra fjarlægir óhreinindi af
vinyl eða plasti utan á bilnum t.d. stuðurum.
Polish Spray er bón sem setur sterkan gljáa
á lakkið og ver það raka og óhreinindum.
Rens-Lak djúphreinsar billakkið sem fær þá
sinn upprunalega lit.
Bröste gæðavörur fást á
bensinstöðvum Esso.
Olíufélagið hf i
Af nógu
er að taka Gazma.
------------\
Fullar búðir
fata.
Teg.: 8731.
Léttur ullarfrakki
Verð: kr. 6.500,-
Efni: 100% ull.
Báðar búðirnar eru
fullar af glæsilegum
kápum og frökkum
á góðu verði!
Teg.: 8710. Heilsársfrakki
Verð: kr. 9.500.-
Efni: GABERDINE.
55% polyester, 45% ull, kamgarn.
Teg.: 8708. Sumarfrakki
Verð: kr. 6.500.-
Efni: 100% polyamide (krumpuefnl).
Teg.: 0187. Herrafrakki
Verð kr. 10.000.-
Efni: NINO-FLEX,
65% polyester, 35% bómull
Teg.: 345. Heilsársfrakki
(Trench-coat)
Verð: kr. 9.500.-
Efni: NINO-FLEX.
KAPUSALAN
BORGARTÚNl 22 AKGREYRl HAFNARSTRÆTI 88
SÍMI 23509 Næg bilastæði SÍMI 96-25250
65% polyester, 35% bómull.
Póstsendum um land allt